Fréttatíminn - 18.09.2015, Side 24
Vill ekki fara í gegnum lífið sem fórnarlamb
Þrátt fyrir erfiða vormánuði árið 2013 hélt Ey-
steinn áfram að mæta í skólann. „Ég hélt að það
væri þannig að maður þyrfti að eiga næga inni-
stæðu, það er að lenda í nógu mörgu, til að geta
leikið vel, en það er ekki þannig.“ Á þessu tímabili
var Egill Heiðar Anton Pálsson að leikstýra Ey-
steini í verkefni í skólanum. „Hann hjálpaði mér
að vinna úr þessu. En það voru auðvitað dagar
þar sem ég mætti og var algjörlega frosinn. Ekki
líkamlega samt, ég gekk í gegnum allar senur og
fór með línurnar mínar, en ég tók ekkert inn sem
aðrir voru að segja. Ég var ekki á staðnum, haus-
inn minn og hjartað voru einhvers staðar annars
staðar. Að leika snýst um að vera í augnablik-
inu, og það er ekki hægt að mæta í losti og dofnu
ástandi og ætla að leika, komst ég að.“ Í vetur
mun Eysteinn meðal annars leika í sýningunni
Hver er hræddur við Virginíu Woolf sem Egill
mun leikstýra. „Ég er ótrúlega spenntur fyrir því
að fá að vinna með honum aftur, hann er frábær
kennari og ég hlakka til að mæta honum sem leik-
stjóra.“
Eysteinn segir leiklistardeildina í Listahá-
skólanum vera stórkostlega og hann fann fyrir
miklum stuðningi eftir móðurmissinn. „Það
mættu allir við jarðarför mömmu og að finna
þannig stuðning var ólýsanlegt. Að jafna mig eftir
þetta er eitt af stóru verkefnunum í lífinu og tekur
örugglega aldrei enda. Það sem ég lærði kannski
mest af þessu er að það getur allt gerst. Þú getur
annað hvort óttast það að allt geti gerst og verið
fórnarlamb í lífinu, ómeðvitað, eða fagnað því að
allt getur gerst og ekki deyft þig fyrir því sem get-
ur gerst.“ Eysteinn segir jafnframt að eftir þessa
reynslu hafi hann tamið sér að taka hlutunum
eins og þeir eru og einbeitt sér að því að vera góð
manneskja sem vinnur vinnuna sína og er góður
við fjölskyldu og vini. „En það kemur auðvitað
fyrir að ég verði hræddur og efast um sjálfan mig,
en það er bara hluti af lífinu.“
Fullorðnaðist í Borgarleikhúsinu
Eysteinn útskrifaðist sem leikari síðastliðið vor,
24 ára gamall. „Auðvitað var það ákveðið mó-
ment að útskrifast sem leikari. Þetta var endir á
ákveðnu tímabili en upphafið á öðru,“ en Eysteinn
skrifaði undir eins árs samning við Borgarleik-
húsið áður en hann útskrifaðist. Hann segist hafa
upplifað ákveðin tímamót þegar hann byrjaði í
Borgarleikhúsinu. „Mér fannst ég þurfa að full-
orðnast aðeins. Á meðan ég var í skólanum bjó ég
í íbúð niðri í bæ með vinum mínum þar sem við
tókum til svona tvisvar sinnum á ári. Núna er ég
fluttur aftur í Hlíðarnar og það er aðeins meira
fullorðins, nú fer ég í IKEA um helgar og vaska
upp strax eftir matinn.“
Eysteinn er spenntur fyrir komandi vetri í
Borgarleikhúsinu. „Hér fæ ég að vinna með fólki
á hverjum degi sem veitir mér innblástur og
fær mig til að vera miklu betri en ég er.“ Hans
fyrsta verkefni er nútímaverkið At sem frum-
sýnt verður um helgina. „Þetta er ákveðin eld-
skírn því verkið er hratt og einkennist af mikilli
keyrslu. Það er stígandi allan tímann og ég fer
ekki af sviðinu fyrr en ljósin slokkna í lokin.“
Sögusviðið er vinnustaður þar sem þrír vinnufé-
lagar berjast um tvö störf. „Þetta var valið besta
nýja leikrit ársins í Bretlandi í fyrra og það ætti
að segja fólki eitthvað um hvað verkið er hratt
og sniðugt. Öll einbeitingin hjá okkur leikur-
unum snýr að stíganda senunnar og við viljum að
allir sogist inni í atburðarásina með okkur. Þetta
verk höfðar til púkans sem býr innra með okkur
öllum.“ Höfundurinn, Mike Bartlett, nýtir sér
form nautaatsins og þaðan kemur nafn verksins.
„Mín persóna er nautið og nautið gefst aldrei upp.
Nautaatið hefur auðvitað verið gagnrýnt fyrir að
vera grimmt og ómannúðlegt og þess vegna er
svo áhugavert að setja það upp á skrifstofu, með
fólki í jakkafötum.“
Forfallinn Abba aðdáandi
Þessi helgi verður löng og viðburðarík hjá Ey-
steini. „Ég er að frumsýna tvö verk um helgina.
At í kvöld og Línu Langsokk á sunnudaginn. Ég
hoppa inn í hlutverk Tomma, sem er frekar fyndið
þar sem persónan mín í Ati heitir einnig Tómas.
En ég mæli kannski ekki með því að yngstu Línu
áhorfendurnir sjái Tomma í Ati.“ Tvö önnur verk
eru á dagskránni hjá Eysteini í vetur, Hver er
hræddur við Virginíu Woolf og Mamma Mia. „Ég
veit ekkert hvernig Mamma Mia verður, nema að
það verður algjör bomba. Ég er einn af þeim sem
fílar Abba í botn, þó svo að það sé ekkert töff að
segja frá því. Ég tek samt oft Youtube rúntinn og
hugsa: Djöfull er þetta gott
stöff. Íslendingar eru náttúru-
lega klikkaðir að halda þessar
„sing along“ sýningar.“
Það skín hins vegar í gegn
að Eysteinn er einna spennt-
astur fyrir hlutverki sínu í
Hver er hræddur við Virginíu
Woolf. „Ef ég hefði getað
sest niður fyrir ári og skrifað
niður hvað mig langaði að
gera á fyrsta árinu eftir út-
skrift væri handritið akkúrat
svona, þessi verk með þessum
mótleikurum.“
Aðspurður um hvað muni
taka við eftir árssamninginn
í Borgarleikhúsinu segir Ey-
steinn: „Mig langar bara að
vinna í góðum verkefnum,
eitthvað sem virkar og er
alvöru. Mér er alveg sama
hvort það er stórt á einhverj-
um alheimsmælikvarða eða
ekki. Það er margt spennandi
að gerast hér á Íslandi, bæði
í kvikmyndagerð, leiklist og
dansi. Það er mikil útrás í
gangi þrátt fyrir niðurskurð í
þessum málum. Ég er að leika
lítið hlutverk í Ófærð hjá Balta
og það verður sýnt erlendis,
sem er ótrúlega spennandi.
Eins og staðan er núna langar
mig bara að læra, halda áfram
að vaxa og sanka að mér
reynslu, njóta og gera eitthvað
gott, sama hvaðan hið góða
kemur.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Eysteinn ásamt
móður sinni, Önnu
Kristínu, og systur
sinni Lísu, árið
1994. „Við Lísa vor-
um eins og hundur
og köttur þegar
við vorum lítil.
En þegar mamma
lést snerum við
bökum saman, ég
hef aldrei upplifað
aðra eins samstöðu.
Núna erum við
bestu vinir og tölum
saman á hverjum
einasta degi. Hún er
langbesta vinkona
mín.“
24 viðtal Helgin 18.-20. september 2015