Aldan - 23.09.2014, Síða 1
íshúsið
ísvélar
Rétt ísun – hærra skilaverð!
30
ára reyns
la
198
3 - 2013
www.ishusid.is ∑ S:566 6000 Fáðu tilboð! Eigum ísvélar á lager
isvelar.is
Hjallahraun 2 - 220 Hfj.
s. 562 3833 - 852 4556
www.asafl.is
asafl@asafl.is
FPT bátavélar frá 20-825 hö.
Hitaveitu &
gasskápar
Blikksmiðjan Vík ehf / Skemmuvegur 42, 200 Kópavogi / kt. 4309850279 / Sími: 557-1555 / blikkvik@blikkvik.is
fyrir sumarbústaði og heimili
Gæði • Þjónusta • Öryggi
Hitaveituskápar
Við sérsmíðum og eigum líka hitaveitukassa á lager.
Einnig smíðum við mikið af kössum á kerrur, bíla ofl.
Fáanlegir í mörgum litum.
Gasskápar
Eigum gasskápa á lager. Læsanlegir
og smíðaðir úr áli.
Láttu ekki stela af þér kútunum!
23. SEPTEMBER 2014
1. tölublað
1. árganguraldan
F R É T T A B L A Ð U M S J Á V A R Ú T V E G
Íslenska sjávarútvegssýningin
2014 er sú 11. í röðinni
Íslenska sjávarútvegssýningin, „The
Icelandic Fisheries Exhibition and Awards
2014,“ og verðlaunaafhending henni sam-
hliða til þeirra sem taldir eru hafa skarað
fram úr í íslenskum sjávarútvegi og fisk-
vinnslu verður opnuð formlega næsta
fimmtudag, 25. september í Smáranum
í Kópavogi og strendur til laugardags.
Sýningin er opin fimmtudag og föstudag
frá kl. 10.00 til 18.00 og á laugardag frá
kl. 10.00 til 16.00. Íslenska sjávarútvegs-
sýningin fagnar 30 ára afmæli en fyrsta
sýningin var árið 1984 en þetta er 11. sýn-
ingin í röðinni. Umfang sýningarinnar
hefur meira en tvöfaldast á síðasta áratug.
Sýningin er bæði afurða- og tæknisýn-
ing og þátttakendur geta tryggt að þeirra
vörur munu njóta verðskuldaðrar ahygli
og oftast viðurkenningar.
Samhliða Íslensku sjávarútvegssýn-
ingunni verður haldin ráðstefna í Smár-
anum sem nefnist „Coastal Fisheries and
coastal communities in the North Atlantic“
og fer fram síðdegis laugardaginn 27. sept-
ember í tengslum við sýningarsvæði sjáv-
arútvegssýningarinnar og er öllum opin.
Ráðstefnan er á vegum MATÍS og styrkt af
Norrænu ráðherranefndinni. Þar á m.a. að
ræða stöður sjávarbyggða, smábátaveiðar og
byggðaþróun við Norður-Atlantshaf. Sam-
félög í sjávarbyggðum og smábátaútgerð
tengjast sterkum böndum í þeim löndum
sem liggja að Norður-Atlantshafi. Víðast
hvar á svæðinu eiga sjávarbyggðir undir
högg að sækja og smábátaútgerðir eiga í
rekstrarvanda, ásamt því sem endurnýjun
í greininni er takmörkuð. Þessar áskor-
anir, ásamt fleiri viðfangsefnum, verða
rædd á ráðstefnunni en leitast á við að
greina framtíðarmöguleika sjávarbyggð-
anna. Ráðstefnan er þannig uppbyggð að
fyrst munu fulltrúar frá Íslandi, Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Færeyjum, Grænlandi
og Nýfundnalandi flytja stutta fyrirlestra
um stöðu þessara mála í þeirra löndum. Þá
verður kynnt rannsóknarverkefni þar sem
afkoma og laun smábátaútgerða í Noregi,
Svíþjóð, Danmörku og Íslandi er greind og
borið saman við aðrar atvinnugreinar. Þá
munu íslenskir eigendur smábátaútgerðar í
Noregi greina frá rekstrarumhverfi smábáta
í Noregi, og bera það saman við Ísland; og
loks mun stjórnarformaður Byggðarstofn-
unar greina frá starfi og stefnu stofnunar-
innar, en Byggðastofnun hefur nýlega tekið
til endurskoðunar aðferðafræði stofnunar-
innar til að sinna sínu hlutverki betur.
Frá setningu 10. sjávarútvegssýningarinnar 2011. Þáverandi sjávarútvegsráðherra, Jón
Bjarnason, Guðrún Pálsdóttir þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi og framkvæmdastjóri
sýningarinnar Marianne Rasmussen Coulling.