Aldan - 23.09.2014, Blaðsíða 12

Aldan - 23.09.2014, Blaðsíða 12
23. SEPTEMBER 2014aldan12 „Vinnutíminn í land- vinnslunni mundi lengj- ast og nýtast betur ef hér væri boðlegt vegakerfi“ - segir Guðjón Indriðason, framkvæmdastjóri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Þórsbergs á Tálknafirði Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Þórsberg á Tálknafirði var stofnað 1975 af Magnúsi Guðmundssyni en framkvæmdastjóri Þórsbergs er Guðjón Indriðason, tengdasonur Magnúsar, ættaður frá Grenivík. Guðjón segir að hann hafi flust til Tálknafjarðar 1970 og enn séu um 60 km af vegakaflanum milli Flóka- lundar og Bjarkalundar með sömu ummerkjum og fyrir hálfri öld, og sjaldan heflaður. Það sé fremur illa farið iðulega með verðmætan afla að flytja hann í flutningabíl um þennan mjög svo slæma veg svo það er oftast Breiðafjarðarferjan Baldur sem leysir vandann, þangað er framleiðslunni ekið í ferjuna á Brjánslæk, hún fer í land í Stykkishólmi og þaðan ekið eftir vegum sem eru boðlegir á árinu 2014. „Ef það væri boðlegur vegur alla leiðina suður mundi vinnutím- inn í landvinnslunni í Þórsbergi nýt- ast mun betur því við þurfum að vera búin að afhenda vöruna sem á að fara í flug í síðasta lagi kl. fjögur á daginn í bílana svo þeir nái áætlun ferjunnar. Ef það væri hins vegar akfært alla leið værum við með fullan vinnudag hér á Tálknafirði, jafnvel lengur ef mikill afli berst til vinnslu. Við vinnum líka fisk í frystingu og saltfisk, en auð- vitað þarf sá fiskur einnig að komast á markað, og hann er einnig fluttur með ferjunni. Að þurfa að klifra yfir fjöll með framleiðsluna finnst mér ansi önugt. Kleifarheiðin getur auð- vitað verið erfið og þá kemst maður ekkert, og austar eru svo Klettháls, Ódrjúgsháls og Hjallaháls, allt miklir farartálmar.“ Merkilegar hríslur í Þorskafirði „Það vekur hins vegar furðu mína og margra annarra að það skuli verða til svo merkilegar hríslur í Þorskafirði að það stöðvi vegaframkvæmdir og sumarbústaðaeigendur á Hallsteinsnesi skuli komast upp með það að halda heilum landshluta nánast í gíslingu eins og dæmin sanna með Teigskóg. Um 1970 var haldið Fjórðungsþing Vestfirðinga í Reykjanesi og þar var samþykkt að leiðin frá Ísafirði á suð- vesturhorn landsins og suður skyldi liggja gegnum jarðgöng milli Dýra- fjarðar og Arnarfjarðar, þaðan yfir Dynjandisheiði um Barðaströnd og suður í Borgarfjörð. En allt annað hefur verið framkvæmt en samkvæmt þessari áætlun, nú er ekið um láglendisveg um Ísafjarðardjúpið um Steingríms- fjarðarheiði og Þröskulda. Þar áður var samþykkt að leiðin ætti að liggja um Kollafjarðarheiði, en ekki varð af því fremur en mörgu öðru í vegamálum enda fáránlegt að við á suðurfjörðum Vestfjarða þyrftum að fara austur yfir Klettháls til að komast til Ísafjarðar. Hefði það hins vegar verið framkvæmt væri fyrir löngu búið að leggja veg um Teigskóg. Stysta leiðin suður á höfuð- borgarsvæðið er enn um jarðgöng til Arnarfjarðar og um láglendisveg um Barðaströndina. Það þarf því engan að undra að við séum orðin leið á þessu óviðunandi vegakerfi og ekki síður á skilningsleysi stjórnvalda. Við eigum betra skilið miðað við þau verðmæti sem við leggjum til gjaldeyrisöflunar með okkar útflutningsvörum,“ segir Guðjón Indriðason. Guðjón Indriðason. Dragnótabáturinn Aðalberg BA-236, einn báta Þórsbergs, við bryggju á Tálknafirði. Aftan við hann má sjá fiskeldiskví, líklega nokkuð táknrænt fyrir útgerðar- og atvinnumynstrið á Tálknafirði. Hraðfrystihúsið – Gunnvör lætur smíða togara í Kína Hraðfrystihúsið – Gunnvör í Hnífs- dal gerir út tvo ísfisktogara, Stefni ÍS- 28 sem landar að mestu á markað og Pál Pálsson ÍS-102 sem aflar hráefnis fyrir landvinnslu félagsins í Hnífsdal. Framleiðsla sjófrystra afurða byggist eingöngu á vinnslu flakafrystiskips- ins Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270. Helstu afurðir og markaðir eru þeir að þorskur, millilögð flök fer að mestu á Bandaríkamarkað og Bretlandsmarkað, ýsuflök, millilögð á Bandaríkjamarkað og Bretlandsmarkað og grálúða, að- allega haus- og sporðskorin á Asíu- markað. Karfi, heill og hausaður fer á Asíu- og Suður-Evrópumarkaðen aðrar tegundir eru heilfrystar með haus eða hausskornar. Nýr togari smíðaður í Kína Hraðfrystihúsið-Gunnvör lætur smíða nýjan togara fyrir 1,5 milljarð króna. Skipið verður smíðað í Rongcheng í Kína eftir íslenskri hönnun og er af- hending eftir 14 mánuði. Skipið verður sparneytnara og mun afkastameira en núverandi skip. Um talsverð tímamót er að ræða það sem þetta er stærsta einstaka fjárfesting sem gerð hefur verið í sjávarútvegi á Vestfjörðum um langa hríð. Þörf hefur verið á endur- nýjun á hluta skipa HG sem komin eru til ára sinna og hefur undirbún- ingur þess staðið í nokkurn tíma. Að sögn Einars Vals Kristjánssonar, fram- kvæmdastjóra HG, hafa aðstæður síð- ustu fimmtán ár ekki leyft fjárfestingar félagsins í nýjum skipum. Einar Valur kveður fyrirtækið hafa verið að byggja sig upp með kaupum á veiðiheimildum og til lítils sé að ráðast í fjárfestingar í skipum séu nægar veiðiheimildir ekki til staðar. „Þörfin á endurnýjun ísfiskskipanna helgast af nauðsyn þess að geta þjónað landvinnslu fyrirtækisins sem best með tilliti til góðs hráefnis og rekstr- aröryggis, enda krefst markaðurinn af- urða af góðum gæðum á réttum tíma,“ segir Einar Valur. „Einnig er lykilat- riði að ná fram orkusparnaði samfara auknum gæðum hráefnis til að þjóna sífellt auknum kröfum markaðar- ins, þetta er jú allt ein keðja; veiðar, vinnsla og markaðssetning. Síðast en ekki síst þarf fyrirtækið að standast samkeppni við erlenda keppinauta úti á markaðnum þar sem samkeppnin fer sífellt vaxandi. Einnig er vert að benda á að helstu keppinautarnir erlendis njóta ríkisstyrkja á meðan íslenskur sjávarútvegur greiðir fyrir afnot af auðlindinni til ríkisins. Ég hef sagt að eðlilegt sé að greiða fyrir aðganginn að auðlindinni þó að mér finnist gjaldið alltof hátt og lítið af því skili sér til baka út á landsbyggðina þar sem starfsemin á sér stað. Auðvitað er alltaf viss áhætta við svo stóra fjárfestingu. Við erum vel meðvituð um áhættuna samfara breytingum á afkastagetu fiskistofna, en vitum minna um aðra áhættuþætti, þar á ég við endurskoðun og breytingu á stjórnkerfi fiskveiða og mikla hækkun veiðigjalda. Þetta er mikil fjárfesting til langs tíma og því mikilvægt við slíka ákvörðunartöku að hafa fyrirsjáanleika, geta treyst því að rekstrargrundvelli verði ekki kippt undan rekstrinum á augabragð,“ segir Einar Valur Krist- jánsson, framkvæmdastjóri. Hraðfrystihúsið – Gunnvör í Hnífsdal.

x

Aldan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.