Aldan - 23.09.2014, Side 9

Aldan - 23.09.2014, Side 9
23. SEPTEMBER 2014 aldan 9 Sjávarútvegur á Austurlandi í örum vexti Umfang sjávarútvegs á Austurlandi hafur vaxið jafnt og þétt og allar niðurstöður benda til þess að þró- unin muni halda áfram á næstu árin. Þetta er megin niðurstaða úttektar sem unnin er af Ásgeiri Friðriki Heimissyni hagfræðinema við Háskóla Íslands. Úttektin, sem ber heitið „Umfang sjávarútvegs á Austfjörðum“, nær til sjávarútvegs á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Mjóafirði, Neskaupstað, Seyðisfirði, Stöðvar- firði og Vopnafirði. Helstu sjávar- útvegsfyrirtækin á þessu svæði eru Brimberg hf. , Eskja hf. , Gullberg hf., Loðnuvinnslan hf. , Síldarvinnslan hf. og auk þess starfrækir HB Grandi hf. næstum alla uppsjávarvinnslu sína á Vopnafirði. Í úttektinni er lagt mat á heildarumfang sjávarútvegs þessara fyrirtækja og leitast við að sundurliða hlut hans. Í skýrslunni kemur fram að sjávarútvegur af svæðinu hefur mikil áhrif á hagkerfi landsins. Beint framlag áðurnefndra sjávarútvegsfyr- irtækja árið 2012 var 17% af beinu framlagi sjávarútvegs á landsvísu; 4,2% af landsframleiðslu árið 2012 og útflutningsverðmæti sjávarafurða var u.þ.b.46 milljarðar eða 17,3% af heildarútflutningsverðmæti sjávar- afurða árið 2012 og 7,3% af heildar út- flutningsverðmæti Íslendinga það ár. Mikil uppbygging hefur verið á Austfjörðum og umfang sjávarútvegs á svæðinu vaxið jafnt og þétt. Allt bendir til þess að þessi þróun haldi áfram næstu árin. Framleiðni í sjávarútvegi á svæðinu er mikil, hefur vaxið um 20% að meðaltali á ári síðan 2005 og mun meira að meðaltali en í öðrum atvinnugreinum og í sjávarútvegi á landsvísu. Þá er framleiðni vinnuafls í fiskvinnslu á Austfjörðum 25% meiri en í fiskvinnslu að meðaltali á landinu. Niðurstöður úttektarinnar benda til þess að 3.400 til 4.700 störf í hagkerf- inu séu tilkomin vegna umfangs sjáv- arútvegs á því svæði sem skoðað var en þar af starfa einungis 618 beint við sjávarútveg. Skýrsla þessi er unnin í samstarfi við Útvegsmannafélag Aust- urlands fyrir Austurbrú. Tekur hún til athafnasvæðis sjávarútvegsfyrirtækja á Austfjörðum og annarra fyrirtækja sem teljast til sjávarklasans og eru staðsett á Austfjörðum. Undanfarin ár hefur verið bent á að sjávarút- vegur er ekki eins mikilvægur fyrir atvinnulífið á Austfjörðum og áður fyrr vegna tilkomu Alcoa Fjarðaáls. Það vill þó gleymast í umræðunni að þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins hefur höfuðstöðvar sínar á Austfjörðum ásamt öðrum stórum sjávarútvegsfyrirtækjum. Það er því verðugt rannsóknarefni að greina um- fang sjávarútvegs á svæðinu og bera saman við heildarumfang sjávarútvegs- ins á landsvísu ásamt því að meta hlut sjávarútvegs í hagkerfi Austurlands. Í skýrslunni er lagt mat á heildarumfang sjávarútvegs á Austfjörðum og leitast við að sundurliða hlut sjávarútvegs sem er þar staðsettur. Skýrsla þessi tekur einungis til fiskveiða og fiskvinnslu og þeirrar starfsemi sem tengist sjávarút- vegi beint og óbeint. Austurbrú vinnur að hags- munum íbúa á Austurlandi Austurbrú er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 8. maí 2012 á grunni Þekk- ingarnets Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Austur- lands og Menningarráðs Austurlands og annast auk þess daglegan rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Yfir 30 stofnaðilar eru að Austurbrú, þar á meðal eru öll sveitarfélögin á Austurlandi, allir háskólar lands- ins, helstu fagstofnanir, stéttarfélög og hagsmunasamtök atvinnulífsins, framhaldsskólar og þekkingarsetur á Austurlandi. Þeir lögaðilar sem hafa starfsstöð eða lögheimili á Austurlandi og gera þjónustu- eða samstarfssamn- inga við Austurbrú verða hagsmunað- ilar. Fulltrúaráð Austurbrúar er skipað fulltrúum stofnaðila og skráðra hags- munaaðila. Austurbrú vinnur að hagsmuna- málum íbúa á Austurlandi og veitir samræmda og þverfaglega þjónustu tengda atvinnulífi, menntun og menn- ingu. Stofnunin er í forsvari fyrir þróun: samfélags, atvinnulífs, háskólanáms, símenntunar, rannsókna og menn- ingarstarfs á Austurlandi. Austurbrú er fyrsta stofnun sinnar tegundar á Íslandi. Markmiðið með henni er að einfalda stjórnsýslu, vera vettvangur fyrir samstarf og samþættingu og vinna metnaðarfullt starf, íbúum Austurlands til hagsbóta. Stofnunin er með dreif- settar starfsstöðvar á Austurlandi og yfir 20 starfsmenn. Meginmarkmiðið með henni er að vera vettvangur fyrir samstarf og samþættingu á þjónustu, nýta sameinað afl til að sækja fram, kalla eftir nýjum verkefnum, bæði inn- lendum og erlendum, og vinna metn- aðarfullt starf, íbúum Austurlands til hagsbóta. Hún er í forsvari fyrir þróun atvinnulífs, samfélags, stjórnsýslu, há- skólanáms, símenntunar, rannsókna, þekkingar- og menningarstarfs á Aust- urlandi. Geysileg áhrif á sveitarfélög GeÍ samantekt sem Halldóra Trausta- dóttir, ritstjóri Austurlands, gerði um skýrsluna segir m.a. : „Helstu sjávar- útvegsfyrirtækin á þessu svæði eru Brimberg hf. , Eskja hf. , Gullberg hf. , Loðnuvinnslan hf. , Síldarvinnslan hf. og auk þess starfrækir HB Grandi hf. næstum alla uppsjávarvinnslu sína á Vopnafirði. Í úttektinni er lagt mat á heildar umfang sjávarútvegs þessara fyrirtækja og leitast við að sundur- liða hlut hans. Í skýrslunni er Síldar- vinnslunni hf. í Neskaupstað, Eskju hf. á Eskifirði, Loðnuvinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði, Gullbergi hf. og Brim- bergi ehf. á Seyðisfirði og HB Granda hf. sem er með rekstur á Vopnafirði líst og með réttu bent á geysileg áhrif þessara fyrirtækja á sveitarfélögin sem þau starfa í. Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað er í dag eitt af stærstu og öflugustu sjávar- útvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemin á yfir 50 ára reynslu í fisk- vinnslu og útgerð. Fyrirtækið er það stærsta á Íslandi í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á Íslandi. Fyrirtækið starfrækir fullkomið fiskiðjuver þar sem fram fer frysting á bolfiski og uppsjávarfiski. Uppsjávarvinnslan er ein sú fullkomnasta á landinu þar sem hægt er að frysta u.þ.b.520 tonn af af- urðum á sólarhring þegar best lætur. Fyrirtækið starfrækir þrjár vel útbúnar fiskimjöls- og lýsisverksmiðjur. Verk- smiðjan í Neskaupstað getur unnið úr um 1.250 tonnum hráefnis á sólarhring og sú á Seyðisfirði afkastar u.þ.b.1.100 tonnum hráefnis á sólarhring. Sú þriðja er í Helguvík. Síldarvinnslan gerir út þrjú skip til veiða á uppsjávarfiski, eitt frystiskip og eitt ísfiskskip. Eskja hf. á Eskifirði er eitt af leiðandi sjávarútvegsfyrirtækjum landsins sem gerir helst út á uppsjávarfisk. Í 70 ár hefur félagið verið kjölfesta atvinnulífs á Eskifirði og starfrækir nú tvö upp- sjávarfiskiskip og eitt línuskip. Eskja rekur eina af fullkomnustu fiskimjöls- verksmiðju Íslands sem getur unnið úr u.þ.b.1.000 tonnum hráefnis á sól- arhring. Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði var stofnuð árið 2001. Loðnuvinnslan er dótturfyrirtæki Kaupfélags Fá- skrúðsfirðinga sem hóf fiskvinnslu og útgerð árið 1954. Loðnuvinnslan rekur fiskimjölverksmiðju sem getur unnið úr u.þ.b.800 tonnum hráefnis á sólarhring, frystihús fyrir bolfisk og uppsjávarvinnslu og einnig hefur hún aðstöðu fyrir síldarsöltun. Þá gerir fyrirtækið út einn ísfisktogara og eitt uppsjávarfiskiskip. Gullberg hf. gerir út ísfisktogar- ann Gullver frá Seyðisfirði og landar hann öllum sínum afla til Brimbergs ehf. Brimberg hóf rekstur fiskvinnslu á Seyðisfirði fyrir 10 árum og er aðal uppistaða rekstursins vinnsla á bol- fisktegundum. HB Grandi hf. hóf rekstur uppsjáv- arvinnslu bæði til manneldisvinnslu og mjöl og lýsisframleiðslu á Vopnafirði árið 2005. Fyrir þann tíma hafði Tangi hf. útgerð á svæðinu og hefur starf- semi sjávarútvegs alltaf verið kjölfesta í atvinnulífi Vopnfirðinga. Uppsjáv- arvinnsla HB Granda á Vopnafirði er ein sú full komnasta á landinu þar sem hægt er að frysta u.þ.b.400 tonn af af- urðum á sólarhring. Einnig er ein af fullkomnustu fiskimjölverksmiðjum Íslands á Vopnafirði þar sem hægt er að vinna úr u.þ.b.1.150 tonnum hráefnis á sólarhring. Hlutfall fiskvinnslu 57% Hlutfall fiskvinnslu í virðisaukasjávar- útvegs á Austfjörðum hefur að meðal- tali verið 57% á Austfjörðum undan- farin ár og var komið upp í 59% árið 2012. Á sama tíma var þetta hlutfall einungis 35% á landinu öllu. Skýr- inguna má finna í þeim fullkomnu fisk- vinnslum og fiskimjölsverksmiðjum sem er að finna á Austfjörðum. Í skýrslunni kemur fram að sjávar- útvegur af svæðinu hefur mikil áhrif á hagkerfi landsins. Beint framlag áðurnefndra sjávarútvegsfyrirtækja árið 2012 var 17% af beinu fram- lagi sjávarútvegs á landsvísu; 4,2% af landsframleiðslu árið 2012 og út- flutningsverðmæti sjávarafurða var u.þ.b.46 milljarðar króna, ða 17,3% af heildarútflutningsverðmæti sjáv- arafurða árið 2012 og 7,3% af heildar útflutningsverðmæti Íslendinga það ár. Beint framlag sjávarútvegs til lands- framleiðslu hefur aukist undanfarin ár. Ástæðan fyrir aukinni hlutdeild sjávarútvegs er margþætt. Við geng- isfall krónunnar 2008 varð hagur útflutningsgreina meiri. Allar tekjur útflutningsgreina eru í erlendum gjaldmiðlum og fá þær því meira af íslenskum krónum fyrir afurðir sínar vegna lægra gengis krónunnar, jafnvel þó að verið sé að selja þær á sama verði og áður. Atvinnuvegir eins og sjávarút- vegur inn njóta því góðs af gengisfall- inu og útskýrir það hækkun hlutfalls í landsframleiðslu að hluta til. Mikil uppbygging hefur verið á Austfjörðum og umfang sjávarútvegs á svæðinu vaxið jafnt og þétt. Allt bendir til þess að þessi þróun haldi áfram næstu árin. Framleiðni í sjávarútvegi á svæðinu er mikil, hefur vaxið um 20% að meðaltali á ári síðan 2005 og mun meira að meðaltali en í öðrum atvinnugreinum og í sjávarútvegi á landsvísu. Þá er framleiðni vinnuafls í fiskvinnslu á Austfjörðum 25% meiri en í fiskvinnslu að meðaltali á landinu. Þessa miklu framleiðni má að mati skýrsluhöfundar öðru fremur rekja til skynsamra fjárfestinga, fagþekkingar og öflugs mannauðar. Sjávarútvegsfyr- irtækin á Austfjörðum borguðu u.þ.b. 4,5 milljarða króna í opinber gjöld árið 2012, þar af borguðu þau u.þ.b. 9% af tekjusköttum lögaðila á landinu það ár. Niðurstöður úttektarinnar benda til þess að 3.400 til 4.700 störf í hagkerf- inu séu tilkomin vegna umfangs sjáv- arútvegs á því svæði sem skoðað var en þar af starfa einungis 618 beint við sjávarútveg. Í skýrslunn kemur fram að um 9.100 manns starfi við sjávar- útveg á landinu öllu en störfum við sjávarútveg fækkaði jafnt og þétt fram til ársins 2008, aðallega vegna tækni- framfara, en störfum hefur fjölgað aftur frá 2008 vegna aukins aflamagns en vinnsla uppsjávarfisks krefst mikils mannafla í landi. Óbein áhrif sjávarútvegs Textíliðnaður er sú atvinnugrein sem er mest háð sjávarútveginum en yfir helming af heildarveltu hans má rekja til sjávarútvegs, eða 51%. Undir textíliðnað fellur netagerð og ýmis veiðafæraþjónusta. U.þ.b.29% af tekjum málmsmíða og viðgerða koma frá viðskiptum við sjávarútveginn, en undir hann fellur almenn málmþjón- usta, blikksmíði og viðhald á tækjum. Næst kemur blönduð heildverslun sem fær u.þ.b.21% af sínum tekjum frá sjávarútvegi. Undir þessa atvinnugrein flokkast fyrirtæki eins og Samhentir, Saltkaup og Oddi en þau fyrirtæki sjá sjávarútveginum fyrir umbúðum. Heildverslun með fast, fljótandi og loftkennt eldsneyti fær u.þ.b.16% af sinni veltu frá sjávarútvegi. Undir þessa atvinnugrein flokkast öll olíu og eldsneytiskaup landsmanna og sést að sjávarútvegurinn á drjúgan þátt í þeim. Um 13% af veltu fjármálaþjón- ustu og vátryggingastarfsemi kem ur frá sjávarútvegi, fyrst og fremst vegna trygginga á veiðiskipum og frysti- húsum. Um 9% af veltu flutninga á landi og sjó og vöruflutninga með flugi koma frá sjávarútveginum. Hér er þó örugglega um vanmat að ræða þar sem flutningskostnaður greiðist oftast af seljanda eða kaupanda þegar afurðir eru keyptar og eru því innifaldar í verði og er því flutningskostnaður- inn ekki bókaður sem slíkur í þannig viðskiptum. Hlutdeild sjávarútvegs af veltu raf- magns, gas og hitaveita er u.þ.b.4%, sem mun að öllum líkindum færast í aukana á næstu árum með raf- magnsvæðingu fiskimjölverksmiðja. Heildverslun með hráefni úr land- búnaði og lifandi dýr fær u.þ.b.1,3% af sinni veltu frá sjávarútveginum, felast þessi viðskipti fyrst og fremst í sölu á sjávarafurðum. Óbein áhrif sjávarútvegs eru því geysimikil. Fáskrúðsfjörður hefur verið öflugur útgerðarstaður frá ómunatíð. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði er eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins í sjáv- arútvegi. Nýlega kom Hoffell SU, eitt skipa útgerðarinnar, til heimahafnar eftir breytingar. Hlutfall fiskvinnslu í virðisaukasjávarútvegs á Austfjörðum hefur að meðaltali verið 57% á Austfjörðum undanfarin ár og var komið upp í 59% árið 2012. Á sama tíma var þetta hlutfall einungis 35% á landinu öllu. Skýr- inguna má finna í þeim fullkomnu fiskvinnslum og fiskimjölsverksmiðjum sem er að finna á Aust- fjörðum.

x

Aldan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.