Aldan - 23.09.2014, Page 20
www.fmgehf.is
FMG (Fiskmarkaður Grindavíkur) – nýtt fyrirtæki í Grindavík –
býður útgerðum upp á alhliða skipaþjónustu. Þegar skip koma
inn til löndunar tekur FMG að sér löndun, flokkun og lestun
aflans á flutningstæki. Fyrirtækið býður einnig upp á
slægingarþjónustu. Í alhliða skipaþjónustu FMG má einnig
nefna þrif á lest og að koma ís og beitu um borð fyrir næstu
veiðiferð svo fátt eitt sé nefnt.
Þjónustuteymið alltaf klárt
Þjónustuna er hægt að panta í gegnum síma eða í gegnum
nýja vefsíðu fyrirtækisins, www.fmgehf.is, ýmist samdægurs
eða með nokkurra daga fyrirvara, allt eftir því hvernig aðstæður
eru.
Við pöntun á þjónustu ábyrgist FMG að þjónustuteymi sé klárt
í viðkomandi höfn um leið og skipið leggst að bryggju. Þótt
FMG leggi höfuðáherslu á Grindavík tekur fyrirtækið einnig að
Alhliða skipaþjónusta
sér sambærilega þjónustu í öðrum höfnum á SV-horni landsins.
„Öll þjónusta FMG gengur öðru fremur út á það að gera nánast
hvað sem er fyrir viðskiptavininn, en grunnurinn í öllu okkar
starfi er persónulegt viðmót og traust þjónusta,“ segir Vignir
Óskarsson, framkvæmdastjóri FMG.
Allt á einum stað
„Við leggjum kapp á að viðskiptavinurinn geti fengið allt á
einum stað. Þá erum við að tala um alla smávöru, beitu og
veiðarfæri frá Voot Beitu og hvers kyns aðföng önnur á
samkeppnisfæru verði. FMG er í nánu samstarfi við Voot Beitu
og við veitum jafnt íslenskum sem erlendum skipum og bátum
alla þá skipaþjónustu sem óskað er eftir,“ segir Vignir.