Aldan - 23.09.2014, Page 22
Er gamla dúnsængin orðin slitin?
Þarf hún að fá upplyftingu?Dúnþvottur
Við þvoum æðardún og skiptum um
ver á gömlum dúnsængum.
Setjum æðardún í dúnver.
Geymið auglýsinguna!
Morgunroði ehf. Sími 893-2928
Kárastaðir Borgarnes
23. SEPTEMBER 2014aldan22
„Megum ekki tefjast þegar búið er að slátra
og fiskurinn tilbúinn á markað erlendis“
- segir Jón Örn Pálsson hjá Fjarðarlaxi um samgöngumál
Fjarðalax ehf., stofnað árið 2009,
er einn stærsti aðili í innflutningi,
vinnslu og dreifinu á ferskum laxi og
laxaafurðum á austurströnd Banda-
ríkjanna. Þróunarstjóri Fjarðalax
á sunnanverðum Vestfjörðum er
Jón Örn Pálsson á Tálknafirði en
hann er menntaður sjávarútvegs-
fræðingur frá Háskólanum í Tromsö
í Noregi. Jón Örn segir að áður en
hann flutti til Vestfjarða fyrir 13
árum hafi verið gerðar margar
samþykktir og samkomulag um
vegabætur á Vestfjörðunum öllum.
„Við teljum okkur vera í dag beitt
ofríki af norðursvæðinu, Ísafjörð og
nágrenni, og þaðan hafa komið til-
lögur um úrbætur í vegamálum sem
eru algjörlega andstæðar hagsmunum
okkar, m.a. tillaga um að gera jarð-
göng frá innsta firði við Ísafjarðar-
djúp, Ísafirði til Kollafjarðar, en ég
skil alls ekki hvernig það samræm-
ist hugmyndum um sameiginlega
Vestfirði. Við þurfum þá að keyra til
Kollafjarðar til að komast inn í Djúp
og þaðan til baka til Ísafjarðar. Við
höfum bent á að það stytti leiðina
suður fyrir Ísafjarðar með því að fara
um suðursvæðið þegar búið er að gera
jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnar-
fjarðar og gera allan Vestfjarðaveg 60
að láglendisvegi með bundnu slitlagi.
Við fáum ekki stuðning frá norður-
svæðinu um þessar samgöngubætur,“
segir Jón Örn Pálsson.
Jón Örn segir að til marks um það
eru síðustu vegabætur inn Þorska-
fjörð að austan, væntanlega til þess
að þeir sem búi á norðursvæðinu geti
undirbúið heilsársveg yfir Þorska-
fjarðarheiði. Því fari farri að þar sé
verið að hugsa um hagsmuni þeirra
sem búi á suðursvæðinu. Bættar sam-
göngur milli norðurs- og suðursvæðis
mun styrkja bæði svæðin og Vestfirði
í heild sinni. Þetta eiga margir erfitt
með að sjá og það heyrast raddir um
að forgangröðun í jarðgangagerð sé
ekki rétt. „Við erum að framleiða fisk
hér á suðursvæðinu og megum ekki
tefjast mikið þegar búið er að slátra
og fiskurinn tilbúinn á markað er-
lendis. Við notum Breiðafjarðarferj-
una Baldur til þess að koma okkar
framleiðslu á markað, sem eru um 80
tonn á viku. Það væri mikill munur
ef við gætum farið landleiðina allan
ársins hring með farminn og eiga ekki
á hættu að teppast á fjallvegum eða
hálsum heldur geta ekið alla leið inn
í Þorskafjörð um láglendisveg. Auk
þess þarf flutningabíll að vera farinn
klukkan hálf fimm frá Patreksfirði til
þess að ná ferjunni sem styttir veru-
lega þann tíma sem við getum verið
að slátra á hverjum degi.“
Vestfirðir besta
svæðið til fiskeldis
„Vestfirskir firðir eru best fallnir til
fiskveldis hérlendis, hér er skjólið
í fjörðunum, heppilegt hitafar og
firðirnir hafa gríðarlega mikla
endurnýjun á sjó. Sem dæmi um
það er Arnarfjörður sem er 18 rúm-
kílómetrar (átjánþúsund milljón
rúmmetrar!) að stærð og inn í hann
streyma 2 rúmkílómetrar af nýsjó
á sólarhring. Sjórinn í Arnarfirði
endurnýjast því á 9 daga fresti og þolir
því margfalt meira eldi en á sér stað
firðinum í dag.“
Margar rafmagnsstraura-
línur komnar á tíma
„En það þarf að fara varlega og meta
stöðugt umhverfisáhrifin. Ég er sann-
færður um að það er hægt að fram-
leiða um 100 þúsund tonn af fiski
í vestfirskum fjörðum, en í dag er
framleiðslan sameiginlega hjá öllum
eldisstöðvunum um 4 þúsund tonn.“
Jón Örn segir að ástand raforku-
mála á Vestfjörðum sé þannig að
íbúar á höfuðborgarsvæðinu mundu
ekki sætta sig við það sem Fjarðarlaxi
og fleirum fyrirtækjum er boðið upp
á. „Við kostuðum niðursetningu á
jarðstreng frá flugvellinum á Bíldu-
dal og út í Dufansdal í Fossfirði,
þriggja fasa rafmagn um 3 km leið,
og sú framkvæmd kostaði nær 18
milljónir króna. Okkur fannst þetta
vera verkefni Orkubús Vestfjarða,
rétt eins og þeir lögðu jarðstreng frá
Bíldudal og út að flugvellinum. Við
vildum einnig fá ljósleiðara með raf-
magnsstrengnum, og lögðum hann.
Skömmu eftir að jarðstrengurinn
var tekinn í notkun síðastliðið haust
brotnuðu nokkrir rafmagnsstaurar
í aftaka veðri í loftlínu út á Bíldu-
dalsflugvöll, þannig að ef við hefðum
ekki hvatt til þess að jarðstrengur yrði
lagður hefði OV lent í miklu tjóni.
Margar strauralínurnar eru alveg
komnar á tíma, því miður. Það er
ótrúlegt að einkafyrirtæki þurfi að
standa að endurbótum á raforku-
dreifkerfi. Eitt það merkilegasta við
þetta er að við borgum okkar hluta
ef þessum jarðstreng en Orkubúið
á hann!
Engar áætlanir eru fyrirliggjandi
um virkjanir eð ráðstanir á meiri raf-
orku til Vestfjarða að við best vitum,
hvorki inni í Ísafjarðardjúpi eða við
Breiðafjörð. Við erum einnig með
eldi við Hlaðseyri í Patreksfirði og
Laugardal í Tálknafirði auk Foss-
fjarðar í Arnarfirði og slátrum er til
skiptst á þessum svæðum til að hvíla
þau. Við erum með um 45 manns í
vinnu, 30 í eldinu og 15 í vinnslunni
svo fyrirtækið er að skapa mörgum
atvinnu. Auk þess greiðum við götu
þeirra sem vilja fara í nám í fiskeldi
á Hólum og í samstarfi við Fræðslu-
miðstöð Vestfjarða er verið að undir-
búa útgáfu kennsluprógrams. Við
erum að byggja upp til framtíðar og
það er afar mikilvægt að hafa öruggar
samgöngur um láglendisveg suður
á höfuðborgarsvæðið og örugga af-
hendingu orku, en því miður er hvor-
ugt nógu tryggt. Um það þurfum við
Vestfirðingar að sameinast, um allan
kjálkann!“
Jón Örn Pálsson.
Fjarðarlax er með kvíaeldi við Laugardal við utanverðan Tálknafjörð og einnig
við Hlaðeyri í Patreksfirði og í Fossfirði í Arnarfirði.
Viðræður um sameiningu
SF og LÍU og stofnun nýrra
heildarsamtaka í sjávarútvegi
Stjórn SF samþykkti á fundi sínum
26. júní sl. að veita formanni og
framkvæmdaráði heimild til að
vinna að undirbúningi sameiningar
SF og LÍÚ og stofnun nýrra heildar-
samtaka atvinnurekenda að loknum
aðalfundum beggja samtakanna 30.
október nk. næsta haust. Auka að-
alfundur LÍÚ sem haldinn var síðar
sama dag samþykkti sambærilega
tillögu. Fulltrúar frá Capacent hafa
undanfarna mánuði unnið að úttekt
á ímynd sjávarútvegsins, skipulagi
hagsmunagæslu, kostum og göllum
sameiningar LÍÚ og SF og stofnun
nýrra hagsmunasamtaka atvinnurek-
enda í sjávarútvegi. Það næsta sem
gerðist var að unnið var að stofnun
þriggja ráðgefandi starfshópa: Laga-
hópur, formenn, Adólf Guðmundsson
og Arnar Sigurmundsson, Kynning-
arhópur, form. Gunnar Tómasson og
Framtíðarhópur, form. Ólafur Mart-
einsson. Það verður síðan hlutverk að-
alfunda SF og LÍÚ að taka endanlega
ákörðun um sameiningu og stofnun
nýrra heildarsamtaka atvinnurekenda
í sjávarútvegi.
Arnar Sigurmundsson, formaður
SF, segir að einhverjar niðurstöður
liggi fyrir í lok þessarar viku eftir fund
með fulltrúum frá báðum aðilum.
Arnar Sigurmundsson.