Aldan - 23.09.2014, Side 26
Öll almenn skipaþjónusta
√ Stálsmíði
√ Vélvirkjun
√ Vinnslubúnaður
√ Háþrýstiþvottur og málun
√ Skrúfuviðgerðir
√ Trésmíði
Slippurinn Akureyri ehf. • DNG • Naustatanga 2 • 600 Akureyri • sími: 460 2900 • Fax: 460 2901 • www.slipp.is • www.dng.is
23. SEPTEMBER 2014aldan26
„Helsta ástæðan fyrir slæmu vega-
kerfi er of fá atkvæði á svæðinu“
- segir Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri Odda á Patreksfirði
Oddi hf. á Patreksfirði er framleið-
andi á frystum, ferskum og söltuðum
afurðum og er fyrirtækið þekkt á
mörkuðum hér heima og erlendis
fyrir gæðaframleiðslu og góða vöru.
Oddi hf. vinnur úr rúmlega 4000
tonnum af fiski á ársgrundvelli sem
þýðir hátt í 2000 tonn af afurðum. Sig-
urður Viggósson, framkvæmdastjóri,
segir að stöðugt stærri hluti afurðanna
fari á markað erlendis ferskur, eða
um 800 tonn sem er um 40%. Allar
þær afurðir fara í Breiðafjarðarferj-
una og frá Stykkishólmi beint í flug
á Keflavíkurflugvelli. „Á sumrin er
ferjan yfirleitt full af ferðamönnum en
á móti kemur að þá er ekið með fisk-
inn landleiðina alla leiðina, en það eru
um 440 km. leið. Á sumrin er minni
framleiðsla en yfir vetrarmánuðina
svo það kemur minna að sök. Breiða-
fjarðarferjan er lykilatriði fyrir okkur,
a.m.k. á meðan þjóðvegur 60 er ekki
betri eða greiðfærari en raun ber vitni.
Nú er að ljúka framkvæmdum og brú-
arsmíði á vestari kaflanum og þá er
Þorskafjörðurinn eftir með Teigskóg,
Hjallaháls og Ódrjúgsháls en miðað
við fyrri reynslu tekur það önnur 15
ár, og á meðan nýtum við ferjuna,“
segir Sigurður Viggósson.
- Hverju telurðu vera helstu ástæðuna
fyrir því að Vestfirðingar eru svona langt
á eftir öðrum landshlutum með vega-
framkvæmdir?
„Hér eru of fá atkvæði, er það ekki
augljóst að er helsta ástæðan? Þau eru
flest kringum Elliðavoginn þar sem
þingmenn og stjórnkerfið er beitt
mestum þrýstingi. Því fer fjarri að það
sé einhver togstreita milli íbúanna um
leiðir. Það eru yfir 20 ár síðan sveitar-
félögin voru sammála um að byggja
upp þennan láglendisveg frá suður-
fjörðunum í Reykhólahrepp, og þá var
m.a. vilji til þess að vegurinn lægi beint
frá Skálanesi í Reykhóla og Þorskafjörð-
urinn þveraður. Það er því alls ekki ný
hugmynd. Þrátt fyrir að sveitarfélögin
á Vestfjörðum og atvinnulífið hafi tekið
höndum saman um að þessi vegur verði
lagður hefur það ekki dugað til. Það eru
starfsmenn í stjórnkerfinu, samgöngu-
málum og umhverfismálum sem hafa
unnið gegn þessu þjóðþrifamáli og þrátt
fyrir að vilji þingmanna standi til þess
að farið sé í þessar framkvæmdir, þá
ráða þeir ekki við þetta kerfi. Þingmenn
okkar Vestfirðinga hafa kannski tapað
slagnum að vissu marki þegar Vest-
firðir hættu að vera sérstakt kjördæmi
og urðu hluti af Norðvesturkjördæmi.
Hagsmunabaráttan er orðin svo hörð
að það þarf eitthvað annað til þess að
breyta þessu en vissulega hefur vax-
andi fiskeldi hér í fjörðunum stækkað
þennan þrýstihóp.
Ef við hefðum nútíma samgöngur
þá væri sjávarútvegur og fiskvinnsla
á Vestfjörðum helmingi stærri vegna
nálægðar við fengsæl fiskimið, þetta
hefður bæði hamlað okkur í öflun
hráefnis sem og annara aðfanga, sem
og sölu afurða og koma þeim við
viðskiptavina. Við erum skrefi á eftir
öðrum, bæði vegna samgönguleysis og
vegna kostnaðar við að koma vörunni
á markað.“
Jöfnun búsetuskilyrða og
siglingar flutningaskipa
Sigurður Viggsósson segir að ekki
komi til greina að sætta sig við raf-
orkuskort, gerð sé skýlaus krafa um
að engar truflanir verði á afhendingu
þeirra raforku sem atvinnuífið í íbúar
þurfi í nánustu framtíð. Nú tekur t.d.
Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal
um 10% af allri þeirri orku sem notuð er
hér á suðurfjörðunum. Það þarf því að
huga nú þegar að öflun frekari raforku
fyrir þetta svæði áður en neyðarástand
skapast.
Sigurður segir að það sé jákvæður
liður í því að jafna búsetuskilyrði milli
landshluta að flytja ríkisstjofnanir
eða ríkisfyrirtæki út á landsbyggðina.
Einnig hafi Vestfirðingar barist lengi
fyrir því að fá flutningaskip/ gámaskip
frá Eimskip eða Samskip til að verða
með áætlunarsiglingar vestur. Það auð-
veldi flutning á freðfiski og saltfiski á
markað án umskipunar fyrir sunnan
auk flutnings ýmiss þungaflutnings sem
hentar ekki á bíla. Það þurfi hins vegar
að laga hafnirnar fyrir þessu stóru skip,
og kannski verði það næsta baráttu-
mál í samgöngumálum íbúa suðurhluta
Vestfjarða.
Sigurður Viggósson.
Núpur BA-69, einn báta Odda.