Austurland - 30.04.2014, Síða 5

Austurland - 30.04.2014, Síða 5
530. apríl 2014 Skólaskrifstofa Austurlands Aðstoðarskólastjóra og kennarastöður Við eftirtalda skóla á svæði Skólaskrifstofu Austur- lands eru lausar stöður næsta skólaár: EGILSSTAÐASKÓLI Umsjónarkennsla og íþróttir á Egilsstöðum. Um- sjónarkennsla við nýja deild skólans á Hallormsstað. GRUNNSKÓLI BORGARFJARÐAR Umsjónarkennsla í 1. – 4. bekk. Umsóknarfrestur er til 16. maí. GRUNNSKÓLI DJÚPAVOGS Aðstoðarskólastjóri, stjórnunarhlutfall 50%. Tölvukennsla, smíðar, íþróttir, enska, danska, heim- ilisfræði og handavinna. Einnig vantar umsjónar- kennara í 1. bekk. LEIKSKÓLINN BJARKATÚN Aðstoðarskólastjóri, stjórnunarhlutfall 15-20%. Stöður leikskólakennara, tvær 100% stöður, fimm 88% stöður og ein 50% staða. LEIKSKÓLAR FJARÐABYGGÐAR Óska eftir að ráða lærða leikskólakennara til starfa. Skólarnir eru Sólvellir, Dalborg, Lyngholt og Kæribær. Sjá nánar á heimasíðu Fjarðabyggðar. GRUNNSKÓLI REYÐARFJARÐAR Stærðfræði á unglingastigi, hönnun og smíðar. VOPNAFJARÐARSKÓLI Smíðakennsla 50% staða. Laun samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ. Um- sóknarfrestur er til 3. maí 2014. Nánari upplýsingar um stöðurnar veita viðkomandi skólastjórar og ber að skila umsóknum til þeirra. Einnig eru frekari upplýsingar á heimasíðu Skólaskrif- stofunnar www.skolaust.is og á heimasíðum viðkom- andi sveitarfélaga. HVERJIR ERU ÞETTA? Enn höldum við áfram að birta myndir frá Héraðs- skjalasafni Austurlands. Hér kemur mynd sem kemur úr myndasafni Austra af ungum skákmönnum. Engar upplýsingar bárust um síðustu mynd, myndina af íþróttamönnum en hún kom úr myndasafni UÍA. Birtum við hana því aftur (innfelld) í þeirri von að einhver beri kennsl á mennina. Upplýsingar frá lesendum eru vel þegnar og er þeim sem geta gefið þær bent á að hafa samband við Arndísi eða Magnhildi í síma 471 – 1417. Netföng: arndis@heraust. is eða magnhildur@heraust.is. Kirkja vikunnar Áskirkja Kirkja vikunnar að þessu sinni er Ás- kirkja í Fellum. Þessi fallega sveita- kirkja stendur við Lagarfljót og er útsýni frá kirkjunni stórkostlegt. Að venju er textinn um kirkjuna fenginn úr riti Vigfúsar Ingvars Ingvarssonar Kirkjur og kirkjugöngur í Múlapró- fastsdæmi. Áskirkja í Fellum var reist úr timbri árið 1898 er sr. Þórarinn Þórarinsson þjónaði sókninni og var Vigfús Kjartansson frá Sand- brekku yfirsmiður. Kirkjan var vígð 30. október þetta ár. Loft er yfir í vesturenda kirkjuskips. Ferstrend- ur turn er á vesturenda kirkjuinnar með stórum trékrossi. Hvelfing er í kirkjunni allri. Á hvorri hlið eru þrír, stórir, bogadregnir járngluggar og þrír minni á vesturstafni. Skrúðhús er í forkirkju. Áður stóð á sama grunni all- myndarleg timburkirkja en eitthvað minni, frá 1851. Úr þeirri kirkju er altaristaflan sem er litlu eldri en sú kirkja. Hún sýnir Krist á krossinum og er erlend og ekki vitað hver lista- maðurinn var. Predikunarstóllinn og númerataflan eru sömuleiðis úr þessari gömlu kirkju. Meðal merkra gripa kirkjunnar er gamall, fallegur silfurkaleikur með patínu e.t.v. sá sem getið er í bisk- upsvísitasíu árið 1637. Þá á kirkjan þjónustusett (ferðakaleik, patínu og vínílát í látúnshylki) sem líklega er verk Vigfúsar Frydendal silfursmiðs á Skeggjastöðum í Fellum frá því um 1840. Fagurlega útsaumaðan patínu- dúk á kirkjan. Um aldur hans er óvíst en hans er fyrst getið svo öruggt sé í vísitasíugerð frá 1832. Kirkjuklukk- ur eru tvær og önnur þeirra talin forn. Árið 1883 er getið um gamlan skriftastól í kirkjunni „með gylltu skinnsæti.“ Vandaðan skírnarfont gaf Kvenfélagið Dagsbrún, sumarið 1973, í tilefni af 75 ára afmæli kirkj- unnar. Hann er fagurlega útskorinn af Þórarni Stefánssyni frá Mýrum í Skriðdal. Safnaðarfundur árið 1892 samþykkti „að kaupa harmoníum handa kirkjunni af sjóði hennar.“ Fyrsti organistinn mun hafa verið Sigurður Jónsson í Hrafnsgerði. Nú er í kirkjunni ítalskt rafmagnsorgel. Það mun hafa verið á 8. áratugnum sem hljóðfærið og kórfólk fór upp á loft. Ás er forn kirkjustaður (Maríu- kirkja – Undir Ási) en var bænda- eign til 1662 er Brynjólfur biskup Sveinsson keypti jörðina og gaf hana kirkjunni. Sóknin nær yfir Fell (áður Fellahrepp) frá Skógar- gerði til Hrafnsgerðis. Ásprestakall var sameinað Valþjófsstaðarpresta- kalli 22. desember árið 1883 og síð- asti presturinn á Ási, sr. Sigurður Gunnarsson, fluttist í Valþjófsstað vorið 1884 en þaðan hefur sókninni verið þjónað frá þeim tíma. (Sigurð- ur Gunnarsson þessi var föðurbróðir Gunnars Gunnarssonar skálds en foreldrar Gunnars bjuggu á Val- þjófsstað hjá Sigurði þegar Gunnar fæddist eins og lýst í fyrsta bindi Fjallkirkjunnar (innskot ritstjóra)). Eftir að verulega fjölgaði í Fella- bæ vildu sumir flytja kirkjuna þang- að eða byggja kirkju þar út frá en um 13 km eru inn að Ási. Sóknin festi kaup á 200m2 húsnæði í fjöl- notahúsinu í Fellabæ þar sem inn- réttaður var rúmgóður safnaðarsalur, fundarherbergi og skrifstofa ásamt eldhúsi, snyrtingum og geymslu og vígði biskup Íslands Kirkjuselið 16. nóvember árið 2003. Kirkjuselið hef- ur, auk þess að nýtast sókninni til helgihalds og annars safnaðarstarfs, oft hýst sameiginlega starfsemi safn- aða á Héraði. Þjónustuhús var reist við Áskirkju 2008 og sá Tréiðjan Ein- ir ehf um að byggja það. Það er klætt sams konar, standandi klæðningu og upprunaleg klæðning kirkjunnar. Heimild: Vigfús Ingvar Ingvars- son. 2011. Kirkjur og kirkjugöngur í Múlaprófastsdæmi. a GRÁSLEPPA Kaupum ferska óskorna Grásleppu um allt land. Tökum einnig verkuð hrogn til útutnings. Fiskislóð 34, 101 Reykjavík Sími 520-7302 (Ragnar)

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.