Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 3
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS)
vill ráða starfsfólk til að sinna slökkvi-
starfi og sjúkraflutningum. Bæði er um
framtíðarstörf að ræða og sumarstörf fyrir
sumarið 2015. Framtíðarstarfsmenn munu
fá nauðsynlega menntun og þjálfun til að
geta sinnt bæði slökkvistarfi og sjúkra-
flutningum hjá SHS en sumarstarfsmenn
þurfa að hafa starfsréttindi sem sjúkra-
flutningamenn. Allir starfsmenn verða að
vera reiðubúnir að vinna vaktavinnu.
Við erum að leita að einstaklingum sem
vilja láta gott af sér leiða og hafa áhuga
á að tilheyra öflugu liði sem hefur það
hlutverk að sinna útkallsþjónustu á höfuð-
borgarsvæðinu. Við viljum gjarnan sjá fleiri
konur í liðinu og æskilegt er að umsækj-
endur séu ekki eldri en 28 ára vegna kröfu
um eðlilega endurnýjun í liðinu.
Nánari upplýsingar um hæfniskröfur og
umsóknarferlið í heild sinni má finna á
heimasíðu SHS (www.shs.is).
Kynningarfundur verður haldinn
fyrir umsækjendur í slökkvistöðinni í
Hafnarfirði, Skútahrauni 6, þann
13. janúar nk. kl. 17:00.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Skógarhlíð 14 / S: 528-3000
www.shs.is
VILTU TAKA ÞÁTT?
SLÖKKVILIÐIÐ LEITAR AÐ LIÐSAUKA
Árvakur óskar eftir að ráða
starfsmann í mötuneyti í
tímabundið starf.
Í mötuneytinu er eldaður og framreiddur
matur fyrir starfsfólks Árvakurs hf., sem
gefur út Morgunblaðið. Starfið felst í
undirbúningi fyrir hádegismat, þrifum í
eldhúsi, uppvaski, þjónustu vegna funda og
þess háttar. Eins er mikilvægt að viðkomandi
geti leyst matráð af og þá eldað hádegismat
fyrir allt að 100 manns.
Um er að ræða 50% starf, frá 10-14 en
viðkomandi þarf að vera tilbúinn í 100%
starf þegar leysa þarf matráð af.
Við leitum að starfsmanni sem hefur reynslu
af ofangreindu, er snyrtilegur, þjónustulipur
og samstarfsfús. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhvít
Ljósbjörg Guðmundsdóttir, starfsmannastjóri
Árvakurs, í síma 569 1332. Umsóknarfrestur
er til 5. janúar 2015
Umsóknir er hægt að fylla út á mbl.is, neðst
á forsíðu. Á umsóknareyðublaðinu skal velja
almenn umsókn og tiltaka mötuneyti þegar
spurt er um ástæðu umsóknar. Einnig er hægt
að skila inn umsókn merktri starfsmannahaldi í
afgreiðslu Morgunblaðsins að Hádegismóum 2.
Viltu vinna
óskar eftir rekstraraðila til að taka að sér veitingarekstur
í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Sá sem annast veitingareksturinn þarf að:
• Vera fær um að sinna fjölbreyttum hópi sýningargesta, fundargesta og annarra gesta.
• Geta boðið fjölbreyttar veitingar sem henta starfsemi hússins.
• Hafa reynslu og hæfni til að sinna veitingarekstrinum af alúð, smekkvísi og metnaði.
• Búa yfir góðri samskiptahæfni og vera tilbúinn að þróa reksturinn í takt við reynslu
og þarfir hússins hverju sinni.
Safnahúsið við Hverfisgötu er friðuð bygging sem á sér aldargamla sögu og er af mörgum álitið eitt fegursta
hús Reykjavíkur. Í lok mars 2015 opnar Þjóðminjasafn Íslands Safnahúsið með nýrri sýningu Sjónarhorn/
Points of View um sjónrænan íslenskan menningararf sem er samstarfsverkefni Landsbókasafns-Háskóla-
bókasafns, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum, Þjóðminjasafns Íslands og Þjóðskjalasafns Íslands. Í húsinu verður jafnframt nýinnréttuð safnbúð,
fundaraðstaða og nýhönnuð veitingastofa þar sem gert er ráð fyrir kaffihússveitingarekstri og léttum
veitingum. Auk þess nær veitingareksturinn til veitingaþjónustu viðburða og funda.
Þjóðminjasafn Íslands tekur öllum umsóknum af opnum huga en mikilvægt er að bragur veitingastarfsem-
innar falli vel að yfirbragði nýrrar sýningar og friðaðrar byggingar. Áhugasömum er bent á að nálgast
umsóknarform og frekari upplýsingar um rekstrarfyrirkomulag með því að hafa samband við tengiliði
verkefnisins Þóru Björk Ólafsdóttur s. 530 2235 thora.bjork@thjodminjasafn.is eða Guðrúnu
Garðarsdóttur s. 530 2217 gudrun.gardarsdottir@thjodminjasafn.is
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum 14. janúar 2015.
Þjóðminjasafn Íslands