Morgunblaðið - 12.03.2015, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
á
t-
-
und krónur á dag, til félaga sem áttu leikmenn sem
höfnuðu í fjórum efstu sætum mótsins. Greiðslurnar
fara stiglækkandi og fyrir leikmenn sem voru í 21.-
24. sæti eru t.d. greiddir 75 frankar á dag, rúmlega
10 þúsund krónur.
Hverju félagi sem átti leikmann í íslenska lands-
liðinu, sem hafnaði í 11. sæti, verða greiddir 200
frankar, um 28 þúsund krónur, fyrir þá 11 daga
sem liðu frá fyrsta leik íslenska liðsins til þess síð-
asta.
Alls tóku 72 leikmenn úr þýsku 1. deildinni þátt í
HM í handknattleik og 56 úr frönsku 1. deildinni
svo dæmi sé tekið. Barcelona og Meshkov Brest frá
Hvíta-Rússlandi áttu flesta leikmenn í keppninni, 12
hvort. Vardar Skopje, Vive Kielce og El Jaish Doha
áttu 11 leikmenn hvert og Kiel og PSG 10.
nd krónur til Íslands
GuðmundurKrist-
jánsson hefur
verið skipaður
nýr fyrirliði
norska knatt-
spyrnuliðsins
Start frá Kristi-
ansand. Guð-
mundur, sem er
26 ára gamall og kom til Start frá
Breiðabliki árið 2012, hefur borið
fyrirliðabandið í leikjum Start á
undirbúningstímabilinu en á síðustu
leiktíð var Håkon Opdal fyrirliði
liðsins. Auk Guðmundar leika Matt-
hías Vilhjálmsson og markvörð-
urinn Ingvar Jónsson með liði Start
sem mætir Lilleström, undir stjórn
Rúnars Kristinssonar, á útivelli í
fyrstu umferð norsku úrvalsdeild-
arinnar 7. apríl.
Guðrún Arnardóttir, varn-armaður úr Breiðabliki, lék
sinn fyrsta A-landsleik í gær þegar
Ísland mætti Japan í Algarve-
bikarnum í knattspyrnu. Guðrún,
sem var kölluð út eftir að mótið
hófst vegna meiðsla Katrínar Óm-
arsdóttur, var í byrjunarliðinu og
spilaði allar 90 mínúturnar.
Enginn í ís-lenska
landsliðshópnum
var í byrjunarliði
í öllum fjórum
leikjum Algarve-
bikarsins að
þessu sinni. Gló-
dís Perla Viggós-
dóttir, Sara
Björk Gunnarsdóttir, Fanndís Frið-
riksdóttir, Gunnhildur Yrsa Jóns-
dóttir og Hallbera Guðný Gísla-
dóttir spiluðu mest en þær voru
allar þrívegis í byrjunarliði og komu
inná sem varamenn einu sinni hver.
Knattspyrnudeild Víkings hefursamið við markvörðinn Denis
Cardaklija um að leika með félaginu
næstu tvö árin. Denis lék 8 leiki
með Fram í Pepsi-deildinni síðasta
sumar en áður átti hann að baki
rúmlega 60 leiki fyrir uppeldis-
félagið Sindra á Höfn í Hornafirði.
SigtryggurArnar
Björnsson, einn
besti leikmaður
Skallagríms í
Dominos-
deildinni í körfu-
bolta í vetur,
tjáði RÚV að
hann ætli að leika
áfram í úrvals-
deildinni ef það býðst. Skallagrímur
er fallinn úr efstu deild og Sig-
tryggur er því tilbúinn til þess að
söðla um. Hann hefur skorað 17 stig
að meðaltali í 21 leik í deildinni í
vetur og gefið um 5 stoðsendingar í
leik.
Ingvar Ómarsson, hjólreiðamaðurúr Tindi hjólreiðafélagi, sem
keppir fyrir Kría Racing, hafnaði í
fjórða sæti í Soigneur CX Cuppen,
stærsta „cyclocross“-hjólreiðamóti í
Danmörku sem var haldið í Charlot-
tenlund-skóginum rétt norðan við
Kaupmannahöfn síðasta laugardag.
Sigurvegari mótsins var Morten
Laustsen. Þátttakendur voru 50
þetta árið og þar á meðal voru tveir
aðrir Íslendingar, Kári Brynjólfs-
son sem hafnaði í 10. sæti og Gunn-
ar Guðnason sem varð í 24. sæti.
Ingvar, sem hefur unnið fjölda
móta innanlands á undanförnum ár-
um og var valinn hjólreiðamaður
ársins 2014, varð á dögunum fyrstur
Íslendinga til að verða atvinnuhjól-
reiðamaður. Í næsta mánuði keppir
hann í tveim stærstu mótunum á
sínum ferli hingað til, US Pro Cup í
Los Angeles 12. apríl og Sea Otter
19. apríl.
Fólk sport@mbl.is
Bandaríkin fögnuðu sigri í Algarve-
bikar kvenna í knattspyrnu í tíunda
skipti í gær en bandaríska liðið sigraði
þá Frakkland, 2:0, í úrslitaleiknum í
Faro. Þýskaland fékk bronsið eftir
sigur á Svíum, 2:1.
Julie Johnston kom Bandaríkj-
unum yfir strax á 8. mínútu og Chris-
ten Press bætti við marki rétt fyrir
hlé. Frakkar fengu vítaspyrnu tíu
mínútum fyrir leikslok en Hope Solo í
marki Bandaríkjanna varði frá Am-
andine Henry.
Bandaríkin léku til úrslita á mótinu
í fjórtánda skipti og sigurinn er sá
fjórði á síðustu sex árum, en Algarve-
bikarinn hefur farið fram samfleytt
frá 1994. Þetta var hinsvegar fyrsti
úrslitaleikur Frakka sem áður höfðu
leikið fimm sinnum um brons-
verðlaunin og krækt í þau tvisvar.
vs@mbl.is
Tíundi sigur bandaríska
liðsins á Algarve
AFP
10. skipti Bandarísku leikmennirnir fagna tíunda sigri liðsins í keppninni.
Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson, leik-
maður norska úrvalsdeildarliðsins Aalesund, er
í 11 manna úrvalsliði yfir bestu ungu leikmenn-
ina í norsku úrvalsdeildinni sem Joacim Jons-
son, sparkspekingur norska netmiðilsins Net-
tavisen, hefur valið.
„Grétarsson hefur staðið sig vel á undirbún-
ingstímabilinu og gerir kröfu á að spila í vinstri-
bakvarðarstöðunni hjá Aalesund. Hann er lík-
amlega sterkur og er stöðugur í leik sínum
þrátt fyrir ungan aldur. Þá er hann með góðan
vinstri fót,“ segir Jonsson í umsögn um Daníel
Leó.
Daníel Leó er 19 ára gamall vinstri bakvörður
sem var í stóru hlutverki með Grindvíkingum í
1. deildinni á síðustu leiktíð og hefur spilað með
þeim frá 16 ára aldri. Hann
var jafnframt fastamaður í
U19 ára landsliði Íslands sem
lék í milliriðli Evrópukeppn-
innar síðasta vor og á 10 leiki
að baki í þeim aldursflokki.
Daníel gekk til liðs við Aale-
sund í vetur, rétt eins og Aron
Elís Þrándarson sem félagið
keypti af Víkingi í Reykjavík,
og þeir hafa verið í byrj-
unarliði félagsins í æfinga-
leikjum að undanförnu.
Keppni í norsku úrvalsdeildinni hefst 6. apríl, á
öðrum degi páska, en Aalesund leikur þá við Ros-
enborg á útivelli í Þrándheimi. gummih@mbl.is
Daníel Leó í úrvalsliði ungra
Daníel Leó
Grétarsson
ALGARVE-BIKARINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Við mættum í dag klárlega best spil-
andi liðinu á þessu móti, og auðvitað
ríkjandi heimsmeisturum, og það
verður að segjast eins og er að við
vorum skrefinu á eftir þeim að flestu
leyti,“ sagði Sara Björk Gunnars-
dóttir, landsliðskona í knattspyrnu,
við Morgunblaðið eftir 0:2-ósigurinn
gegn Japan í leiknum um 9. sæti Alg-
arve-bikarsins í Portúgal í gær.
Eftir markalausan fyrri hálfleik
skoraði japanska liðið tvívegis á
fyrstu fimmtán mínútum síðari hálf-
leiks.
„Við áttum í raun ekki mikla mögu-
leika gegn þeim. Þær eru fljótar,
flinkar og agaðar, og með fáránlega
góða boltameðferð. Þegar við reynd-
um að pressa þær voru þær fljótar að
refsa. En það var skemmtilegt og lær-
dómsríkt að takast á við þær í fyrsta
skipti,“ sagði Sara en íslenska liðið
hefur aldrei áður mætt Japan, sem
freistar þess að verja heimsmeist-
aratitilinn á HM í Kanada í sumar.
Íslenska liðið náði ekki að skora í
fjórum leikjum sínum á mótinu en
Sara sagði það ekki vera sérstakt
áhyggjuefni.
Áhersla á varnarleikinn
„Jú, það er leiðinlegt að ná ekki að
skora en við sköpuðum okkur fín færi.
Í þessu móti var þetta frekar stöngin
út en stöngin inn, okkur vantaði
herslumuninn. Ég hef ekki miklar
áhyggjur af þessu. Við lögðum líka að-
aláherslu á að útfæra varnarleikinn og
tókst það mjög vel. Gegn Bandaríkj-
unum héldum við út í 90 mínútur og
höfum sennilega aldrei spilað varn-
arleikinn jafn vel. Við gerðum margt
gott í leikjunum við Noreg og Sviss
þótt þeir hefðu tapast. Við tökum
margt jákvætt með okkur úr mótinu.
En næsta skref verður að skerpa á
sóknarleiknum, nú eigum við fyrir
höndum áhugaverðan leik við Hol-
lendinga í byrjun apríl, og svo snýst
þetta allt um að við séum með allt í
standi þegar undankeppni EM byrjar
síðar á árinu,“ sagði Sara.
Íslenska liðið leikur við Holland í
Kórnum í Kópavogi 4. apríl en níu
dögum síðar verður dregið í riðla fyrir
EM 2017 sem fer einmitt fram í Hol-
landi eftir tvö ár.
Margrét er fyrirliðinn
Hún var fyrirliði liðsins á síðasta
ári, þegar Margrét Lára Viðarsdóttir
var í barneignarfríi, en þær báru fyr-
irliðabandið í tveimur leikjum hvor á
mótinu í Portúgal.
„Margrét er fyrirliði þegar hún
byrjar leikina en ég er varafyrirliði,
þannig að þessi hlutverk eru alveg á
hreinu,“ sagði Sara um þá skiptingu.
Ljósmynd/KSÍ
Ísland Byrjunarliðið gegn Japan í gær. Aftari röð frá vinstri: Guðrún Arnardóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Guðmunda
B. Óladóttir, Rakel Hönnudóttir, Fanndís Friðriksdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Hallbera
Guðný Gísladóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Sandra Sigurðardóttir, Elísa Viðarsdóttir, Ásgerður S. Baldursdóttir.
Sara Björk segir að markaleysið í Algarve-bikarnum sé ekki stórmál Stöngin
út að þessu sinni Ánægð með vel útfærðan varnarleik liðsins á mótinu
Ekki miklar áhyggjur
Faro, Portúgal, Algarve-bikarinn, leik-
ur um 9. sæti, miðvikudag 11. mars.
Lið Japan: Miho Fukumoto – Azusa
Iwashimizu, Aya Sameshima, Meg-
umi Kamionobe, Saori Ariyoshi – Mi-
zuho Sakaguchi, Kozue Ando, Asuna
Tanaka, Yumi Uetsuji, Asano Naga-
sato – Megumi Takase,
Lið Íslands: (4-5-1): Mark: Sandra
Sigurðardóttir. Vörn: Elísa Viðars-
dóttir (Glódís Perla Viggósdóttir 64.),
Guðrún Arnardóttir, Arna Sif Ás-
grímsdóttir, Hallbera Guðný Gísla-
dóttir. Miðja: Fanndís Friðriksdóttir
(Guðný Björk Óðinsdóttir 78.), Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir, Margrét Lára
Viðarsdóttir (Sara Björk Gunn-
arsdóttir 46.), Ásgerður Stefanía
Baldursdóttir (Dagný Brynjarsdóttir
64.), Rakel Hönnudóttir (Hólmfríður
Magnúsdóttir 64.). Sókn: Guðmunda
Brynja Óladóttir (Harpa Þorsteins-
dóttir 46.).
Gult spjald: Elísa 30.
Japan – Ísland 2:0