Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. MARS 2015
!
"#
$
$
%
&'()**+
,- &.()**.
/
,
0
"1
) +')2
3 $
" "
#
#
4 1
!
! #
! $
! "$
1 4
5- )' 6.' ,
"7"
! ). +')2
!"#"$$#
%
8 !
4 "
8$
/
/
/ ,
&' ()
9
,
$ !
!
"
$
/ !
9$
, ,, !
$
- Blaðberar
Upplýsingar í síma 821 6379 og
822 6181
Blaðbera vantar í
Sandgerði
•
Blaðburður verður að hefjast þegar blaðið kemur í bæinn
Áfengis- og
vímuefnaráðgjafar
SÁÁ óskar eftir áfengis- og vímuefna-
ráðgjöfum til náms eða starfa.
Stúdentspróf æskilegt. Nánari upplýsingar
veitir Hjalti Björnsson dagskrárstjóri í síma
824 7620, netfang hjalti@saa.is
Skriflegar umsóknir sendist á Sjúkrahúsið
Vog, Stórhöfða 45, 112 Reykjavík, merktar
„ráðgjafi“, fyrir 25. mars nk.
Staða skólastjóra Tónskóla Sigursveins
Skólastjórn Tónskóla Sigursveins auglýsir stöðu skólastjóra
lausa til umsóknar. Ráðið er í stöðuna til 5 ára í senn. Ráðning
framlengist um 5 ár sé henni ekki sagt upp minnst 9 mánuðum
fyrir lok ráðningartíma. Starf skólastjóra hefst 1. ágúst 2015
eða eftir samkomulagi í ráðningarsamningi.
Tónskóli Sigursveins var stofnaður árið 1964. Frumkvæði að
stofnun hans hafði Sigursveinn D. Kristinsson tónskáld. Skólinn
er sjálfseignarstofnun sem rekinn er af styrktarfélagi með
framlögum frá sveitarfélögum og ríkissjóði skv. lögum um fjár-
hagslegan stuðning við tónlistarskóla auk skólagjalda. Skólinn
er almennur tónlistarskóli og starfar á grundvelli stefnu í tón-
listarmenntun, sem mótuð var af stofnanda skólans. Megin-
markmið skólans er að efla almenna tónlistarþekkingu meðal
barna og fullorðinna og að skapa þeim, sem skara fram úr í
námi verkefni við sitt hæfi.
Skólinn veitir tónlistarmenntun á grunnstigi, miðstigi og fram-
haldsstigi í samræmi við aðalnámskrá skv. tónlist sem sett er
af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Í skólanum er kennt
á öll helstu hljóðfæri fyrir klassíska og rytmíska tónlist og allar
nauðsynlegar hliðarnámsgreinar. Nemendur í fullu námi við
skólann hafa verið ríflega 500 á síðustu árum og við skólann
starfa jafnan 50-60 kennarar í 25-30 stöðugildum.
Æskilegt er að umsækjendur uppfylli eftirfarandi skilyrði:
• Hafi háskólamenntun í tónlist, menntun í uppeldis- og
kennslufræðum og/eða aðra menntun sem nýst getur
í starfinu.
• Hafi reynslu af kennslu við tónlistarskóla, reynslu af
stjórnunarstörfum og reynslu af að vinna með ungu
fólki eða aðra reynslu sem nýst getur í starfinu.
• Hafi góða leiðtoga- og samskiptahæfileika.
Umsækjendur skulu hafa kynnt sér skipulagsskrá Tónskóla
Sigursveins og þann grunn sem lagður var við stofnun hans og
vera reiðubúnir til að starfa á þeim grundvelli og í þeim anda
sem einkennt hefur starf skólans í fimmtíu ár.
Skólastjórn mun skipa starfshóp sem vinnur úr þeim umsókn-
um sem berast og leggur mat á þær með tilliti til framan-
greindra skilyrða og með tilliti til þeirrar menntastefnu sem
skólinn fylgir. Umsagnir starfshópsins eru leiðbeinandi fyrir
skólastjórn sem tekur ákvörðun um ráðninguna. Skólastjórn
áskilur sér rétt til að ráða hvaða umsækjanda sem er eða hafna
öllum umsóknum.
Umsókn fylgi:
1. Afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum.
2. Starfsferilskrá.
3. Listræn ferilskrá.
4. Stutt greinargerð um viðhorf umsækjanda til tónlistar-
menntunar og starfsemi tónlistarskóla og framtíðarsýn
hans fyrir Tónskóla Sigursveins.
5. Nöfn allt að þriggja manna, sem vilja gefa munnlega
umsögn um umsækjanda ef eftir verður leitað.
Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður
í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
Umsóknum skal skilað á pappír til Tónskóla Sigursveins,
Engjateig 1, 105 Reykjavík eða rafrænt á netfangið
tsdk@ismennt.is. Umsóknafrestur er til 31. mars 2015.
Upplýsingar um starfið veitir
Sigursveinn K. Magnússon
skólastjóri í síma 568 5828.
Skorað er á alþingismenn að
fella burt ákvæði í lögum sem
tekur verkfallsrétt af lög-
reglumönnum. Frumvarp til
laga um breytingu á lög-
reglulögum er nú til umfjöll-
unar á Alþingi og vilja menn í
Lögreglufélagi Eyjafjarðar fá
aftur rétt til verkfalla, sem
þeir seldu frá sér fyrir um 30
árum fyrir samkomulag um
kauptryggingu. Átti hún að
tryggja að laun lögreglu-
manna héldust í hendur við
það sem viðmiðunarstéttir, en
vanhöld hafi verið á því.
„Ekki hefur verið staðið við
þetta samkomulag af hálfu
ríkisvaldsins og lög-
reglumenn setið eftir með
sárt ennið og afleita samn-
ingsstöðu. Viðsemjendur hafa
nýtt sér þessa stöðu með
þeim afleiðingum að ekki hef-
ur tekist að landa kjarasamn-
ingi í mörg ár,“ segir í ályktun
lögreglumanna við Eyjafjörð.
Benda þeir á að frá haustdög-
um 2008 hafi kjaramál þeirra
verið leidd til lykta á vett-
vangi Kjaradóms og útkoman
úr því sé ekki góð.
Grunnstoð samfélagsins
„Lögreglan á Íslandi er ein
af grunnstoðum samfélagsins
og lögreglumenn gera sér
manna best grein fyrir mik-
ilvægi starfa sinna. Í ljósi
reynslunnar blasir þó við að
lögreglumenn verða að hafa
verkfallsvopnið til að skapa
sér samningsstöðu,“ segir í
ályktun. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fylking Lögreglumenn vilja sterkari stöðu í kjaramálum.
Samningsstaða sé
bætt með lögum
Vilja fá verkfallsrétt að nýju
Bent er á kosti starfsnáms í
bréfi sem Samtök atvinnulífs-
ins hafa sent 4.000 unglingum
í 10. bekk og foreldrum þeirra.
Vakin er athygli á þessu í
fréttapósti SA. Segir að rann-
sóknir sýni að foreldrar og
forráðamenn séu helstu
áhrifavaldar unglinga á þess-
um tímamótum. Mikilvægt er
að ræða við þá um framtíðina
og vekja athygli þeirra á fjöl-
breyttum möguleikum.
Bent er á að í könnun sem
gerð var á síðastliðnu ári hafi
komið í ljós að 37% þeirra sem
völdu bóknám í framhalds-
skóla hefðu frekar kosið
starfsnám. Þá hafi um 60%
þeirra sem fóru í bóknám vilj-
að jafnhliða stunda starfsnám
að einhverju leyti.
Kraftar í réttan farveg
SA segir slæmt hve mikið
brotthvarf úr framhalds-
skólum sé. Orsakir þess séu
margar en vísbendingar eru
um að unglingar hætti námi
þegar þeir finna ekki styrk-
leikum sínum og kröftum rétt-
an farveg. Því er mikilvægt að
vinna með börnunum og leið-
beina í samræmi við þarfir og
áhuga. Í því sambandi er bent
á námsvefinn www.naesta-
skref.is sem veiti ítarlegar
upplýsingar um nám og störf
á iðn- og tæknisviði.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Vélavinna Starfsnám skapar ýmsa möguleika í vinnu, enda er
mikil eftirspurn eftir tæknimenntuðu fólki um þessar mundir.
Vilja starfsnám
jafnhliða bóknámi
SA kynnir námsmöguleika og
tækifæri fyrir 10. bekkingum
Podium ehf. ráðgjafarfyr-
irtæki sem sérhæfir sig í al-
mannatengslum, markaðs-
málum, stefnumótun og
breytingastjórnun er tekið til
starfa. Stofnandi og eigandi
er Eva Magnúsdóttir stjórn-
endaráðgjafi sem hefur langa
reynslu af vinnu við stefnu-
mótun í markaðsmálum,
almannatengslum og stefnu
um samfélagsábyrgð. Auk
verkefna á framangreindu
sviði tekur hún að sér við-
burðastjórnun, svo sem
funda- og ráðstefnuhald.
,,Ímynd er verðmætasta
eign fyrirtækja og það er
hægt að gera
heilmikið til
að efla hana
með mark-
vissum að-
gerðum,“ er
haft eftir Evu
í frétta-
tilkynningu.
Eva sat í
framkvæmdastjórn Mílu í 7 ár
þar sem hún bar m.a. ábyrgð
á stefnumótun hjá fyrirtæk-
inu Þar áður starfaði hún sem
forstöðumaður samskipta hjá
Símanum, við almannatengsl
og í blaðamennsku.
sbs@mbl.is
Nýtt ráðgjafarfyrirtæki Evu
Eva
Magnúsdóttir