Fréttablaðið - 15.09.2015, Page 2
Veður
Norðaustanáttin verður allsráðandi
í dag og má búast við vindi á bilinu
8-15 m/s, einna hvassast allra austast
og undir Vatnajökli. Súld eða dálítil
rigning norðan- og austanlands, en
bjart að mestu suðvestan til á landinu.
Hiti 6 til 15 stig, hlýjast syðst á landinu.
Sjá Síðu 24
Samfélag Rekstraraðilum til tuga
ára verður vísað burt af Hlemmi nú
fyrir áramót en til stendur að efla
þar mannlíf með fjölbreyttari starf-
semi. Hlemmi verður lokað í vetur
og farþegar og gestir munu ekki eiga
þar skjól í vondum veðrum.
Sigvaldi Karlsson hefur rekið
sjoppuna á Hlemmi í rúmlega tutt-
ugu og eitt ár. Hann hefur sagt upp
starfsfólki sínu og segist ekki fá svör
frá borginni um það hvort hann fái
að selja veitingar á nýju Hlemm-
torgi.
„Það er búið að segja upp leigunni
og ég er búinn að segja upp öllu
mínu starfsfólki, það kemur ekki til
vinnu eftir 1. nóvember. Ég vil vita
hvort ég má leigja hér áfram eftir
breytingarnar. Ég hef beðið um svör
en engin fengið. Þá er ég ósáttur við
að veitingaleyfið mitt sé boðið út án
þess að það sé talað við mig.“
Hann segist hafa fengið nýjar upp-
lýsingar í gær. Tafir á framkvæmdum
valda því að hann fær að vera lengur.
Mánuð í senn þar til framkvæmdir
hefjast. „Ef ég fengi frest í þrjá mán-
uði, þá gæti ég kannski unnið með
það en eins og staðan er í dag, þarf
ég að vera með allar hillur hálftómar
vegna óvissunnar.“
Ágústa Sigurðardóttir er ein þeirra
sem hefur verið sagt upp störfum
þann 1. nóvember. „Ég á eftir að
sakna Hlemms, yfirmaðurinn er
náttúrulega frábær. Það væri mikill
missir að þessari sjoppu, sumu má
bara ekki breyta, þetta er hluti af
menningu okkar.“
Gunnlaugur Jósefsson stendur
vaktina við Passamyndir sem hafa
starfað á Hlemmi í þrjátíu og fimm
ár. Hann segir margt hafa breyst á
Hlemmi og úrbóta sé þörf.
„Það er oft löng röð af fólki að
bíða eftir upplýsingum. Þetta fólk fær
enga þjónustu og endar í einhverjum
blindgötum. Það er mikið af ferða-
mönnum sem biðja um að fá að fara
á klósettið. Klósettin úti eru alltaf að
bila og fólk er að gera í buxurnar. Ég
held að almenningur sé ekki alveg
búinn að átta sig á því að hann verður
rekinn út á gangstéttarbrún eftir sex
vikur. Þá verður lokað hér. Fólk þarf
bara að bíða undir þakkantinum sem
míglekur.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Vísað burt af Hlemmi
eftir áratuga starfsemi
Hlemmi verður lokað í vetur og rekstraraðilum vísað burt. Eigandi sjoppu á
torginu er ósáttur við að fá engin svör frá Reykjavíkurborg um það hvort hann
fái að halda áfram rekstri eftir endurbætur og hefur því sagt upp starfsfólki sínu.
Ágústa Sigurðardóttir er ein þeirra sem missa starf sitt. Hún vinnur í sjoppunni og
segir hana hluta af menningu borgarinnar. Fréttablaðið/Stefán
Hlemmi verður lokað í vetur á meðan
framkvæmdir standa yfir.
Fréttablaðið/Stefán
Fylgdust með þeim bestu á fótboltaæfingu
Klósettin úti eru
alltaf að bila og fólk
er að gera í buxurnar.
Gunnlaugur Jósefsson
StjórnSýSla Þjóðskrá hefur óskað
eftir fundi með tæknisæðingastof-
unni Art Medica til að bera undir
hana hugmyndir Þjóðskrár og innan-
ríkisráðuneytisins um lausn á deilum
við lesbískar mæður.
Fréttablaðið hefur greint frá því
á síðustu vikum að ekki gildi það
sama um samkynhneigðar mæður
og gagnkynhneigð pör. Móðirin sem
ekki gengur með barnið þarf að skila
inn staðfestingu frá Art Medica, sem
er eina læknastofan á landinu sem
sér um tæknifrjóvgun, um að hún
hafi verið samþykk frjóvguninni og
sé móðir barnsins.
Hugmyndir Þjóðskrár snúast um
að spara mæðrunum pappírsvinnu
svo fljótlega eftir fæðingu barns með
því að Art Medica veiti upplýsing-
arnar sjálfkrafa við fæðingu. Þessu
til stuðnings vísar Þjóðskrá í úrskurð
Persónuverndar frá 2013 þar sem
segir: „Er það mat Persónuverndar að
upplýsingar um samþykki kvartanda,
um að eiginkona hennar hafi undir-
gengist tæknifrjóvgunarmeðferð,
teljist ekki viðkvæmar persónuupp-
lýsingar um kvartanda þrátt fyrir að
umræddar upplýsingar geti borið
með sér viðkvæmar persónuupp-
lýsingar um þriðja aðila, þ.e. maka
hennar.“
„Ég get ekki sagt að þetta sé alveg
í höfn þótt við séum búin að finna
þarna leið sem okkur og ráðuneytinu
líst vel á fyrr en við erum búin að fá
samþykki fyrir þessu hjá Art Medica.
Það er velvilji hjá ráðuneytinu að
taka við þessum ábendingum og sjá
hvað okkur er fært samkvæmt laga-
umhverfinu,“ segir Margrét Hauks-
dóttir, forstjóri Þjóðskrár. – snæ
Leita lausnar
fyrir lesbíur
Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóð-
skrár.
Hressar á æfingu Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu æfðu á Laugardalsvelli fyrir undankeppni EM 2017 í gær, en fyrsti leikurinn fer fram í næstu viku. Þessar hressu
stelpur sátu í stúkunni og fylgdust með bestu leikmönnum íslenskrar kvennaknattspyrnu á opinni æfingu. Fréttablaðið/Pjetur
lögreglumál Efnin sem fundust um
borð í Norrænu 8. september reynd-
ust vera um 80 kílógrömm af MDMA.
Fundust efnin í niðursuðudósum, vara-
dekki bifreiðarinnar sem þau grunuðu
voru á og tveimur gaskútum. Sá sem er
grunaður um innflutning á efnunum
hefur verið úrskurðaður í fjögurra
vikna gæsluvarðhald. Hefur hann
játað vitneskju um tilvist efnanna en
segir að eiginkona sín hafi ekki vitað
um þau.
Í úrskurði Héraðsdóms Austurlands
þar sem varðhaldsdómur yfir hinum
grunaða er staðfestur kemur fram
að efnin hafi fundist í 14 niðursuðu-
dósum, varadekki bifreiðar hjónanna
og í tveimur gaskútum.
Efnin fundust í kjölfar áhættugrein-
ingar tollsins á Íslandi í samvinnu við
tollayfirvöld í Færeyjum og lögreglu á
Íslandi. – tpt
Áttatíu kíló af
MDMA
1 5 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 Þ r I ð j u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
3
0
-E
6
7
0
1
7
3
0
-E
5
3
4
1
7
3
0
-E
3
F
8
1
7
3
0
-E
2
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
9
2
0
1
5
C
M
Y
K