Fréttablaðið - 15.09.2015, Blaðsíða 16
Fótbolti Nú þegar strákarnir okkar
eru búnir að bóka farseðilinn á Evr-
ópumótið í fyrsta sinn, er komið
að stelpunum að hefja sína undan-
keppni fyrir EM 2017 í Hollandi.
Þær eru betur kunnugar lokamóti
en strákarnir enda hafa þær tvisvar
sinnum farið í lokakeppni Evrópu-
mótsins.
Fyrsti leikurinn verður á þriðjudag-
inn eftir viku gegn Hvíta-Rússlandi en
liðið fær mikilvægan vináttuleik til að
stilla strengina á fimmtudaginn gegn
Slóvakíu.
Í bæðin skiptin sem stelpurnar
komust á EM fóru þær í gegnum
umspil. Nú er búið að fjölga í loka-
keppninni og verða þar 16 lið í stað
tólf. Stelpurnar okkar voru í efsta
styrkleikaflokki þegar dregið var til
undankeppninnar og sluppu þær
því við stórlið. Efsta liðið í öllum
riðlunum átta fer beint til Hollands
og sex bestu liðin í öðru sæti.
Ísland á að komast á EM, svo ein-
falt er það. Stelpurnar okkar, sem eru
númer 18 á heimslistanum, eru með
Skotlandi (20), Hvíta-Rússlandi (49),
Slóveníu (64) og Makedóníu (117) í
riðli. Stefnan er skýr og einföld.
„Freyr er búinn að gefa það út að
við ætlum að vinna riðilinn,“ segir
Margrét Lára Viðarsdóttir, marka-
hæsti leikmaður íslenska liðsins frá
upphafi, við íþróttadeild 365. „Við
höfum aldrei gert það áður og því er
það nýtt og krefjandi verkefni.“
Þrátt fyrir að markmiðið sé að
enda í efsta sæti bendir Margrét á
öra þróun í kvennaboltanum og því
verður að vera á tánum gegn liði eins
og Hvíta-Rússlandi sem minna er
vitað um.
Ég er enn þá ung
„Það er erfitt að segja mikið um
Hvít-Rússana. Það er mikil framför í
kvennaboltanum og þessi minni lið
eru alltaf að taka stórstígum framför-
um. Við þurfum að hafa varann á fyrir
þann leik. Vonandi náum við bara að
nýta æfingaleikinn vel,“ segir Margrét.
Þessi magnaða markadrottning
segist í góðu formi og er búin að spila
alla 18 leiki Kristianstad í Svíþjóð.
Komi hún við sögu í næstu tveimur
leikjum kemst hún í 100 landsleikja
klúbbinn hjá landsliðinu.
„Ég er enn þá ung,“ segir hin 29 ára
gamla Margrét Lára. „Vonandi get ég
spilað fleiri leiki. Það verður gaman
að ná 100 leikjum en vonandi er bara
nóg eftir.“
Aðeins hefur hægst á markaskorun
Margrétar með landsliðinu, en hún
á að baki 71 mark í 98 leikjum. Hún
hefur þó „aðeins“ skorað tvö mörk
í síðustu tíu landsleikjum sem er
óvanalegt á þeim bænum.
„Ég er í fínu formi og hef náð að
spila flesta leiki með félagsliði mínu.
Vonandi get ég fært minn leik inn í
landsliðið og hjálpað því að vinna
leiki og ná okkar markmiði,“ segir
Margrét Lára.
Gætu toppað á næstu árum
Kynslóðaskipti hafa verið hjá íslenska
liðinu undanfarin misseri, eða síðan
Freyr Alexandersson tók við liðinu
af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni. Yngri
leikmenn hafa fengið að spreyta sig
og spilað mikið af góðum leikjum.
„Freyr og Ási [Ásmundur Haralds-
son aðstoðarþjálfari] eru að koma
vel inn í þetta. Það er komið gott
jafnvægi í hópinn. Yngri leikmenn
sem hafa komið inn í þetta á síðustu
tveimur árum hafa fengið góða og
dýrmæta reynslu. Ég sé fram á að liðið
geti toppað á næstu tveimur árum
og það væri gaman ef svo yrði,“ segir
Margrét Lára.
Markadrottningin segist finna fyrir
miklum samhug innan fótboltasam-
félagsins á Íslandi eftir að strákarnir
komust í fyrsta sinn á stórmót á dög-
unum.
„Það er ekki spurning. Við óskum
þeim bara innilega til hamingju og
auðvitað finnur maður fyrir sam-
heldninni og stuðningnum. Það er
bara vonandi að við fáum sama fólkið
og sama stuðning og þeir,“ segir Mar-
grét Lára Viðarsdóttir.
tomas@365.is
Ætlum að vinna riðilinn
Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta hefja leik í undankeppni EM 2017 í næstu viku. Æfingar
hjá landsliðinu hófust í gær og spilar liðið vináttuleik gegn Slóvökum á fimmtudaginn.
Margrét Lára Viðarsdóttir leiðir íslensku stelpurnar í hlaupadrillum á fyrstu æfingu liðsins á Laugardalsvellinum í gær. Fréttablaðið/Pjetur
Leiðin á EM 2017
Ísland er í fimm liða riðli með Skot-
landi, Hvíta-Rússlandi, Slóveníu og
Makedóníu
Ísland var í efsta styrkleikaflokki og
kemst efsta liðið beint á EM
sex bestu þjóðirnar sem enda í öðru
sæti fara einnig beint á EM
sjöunda og áttunda besta þjóðin
mætast í umspili um síðasta sætið
á EM
Í dag
Pepsi-deild karla
stjarnan 1-0 Fylkir
1-0 Pablo Punyed (30.).
Stjarnan er sama og sloppin við fall
með þessum úrslitum, en liðið á níu
stig á Leikni þegar níu stig eru eftir í
pottinum.
Efst
FH 45
Breiðablik 37
KR 36
Valur 32
Fjölnir 30
Stjarnan 24
Neðst
Víkingur 22
Fylkir 22
ÍA 20
ÍBV 18
Leiknir 15
Keflavík 7
1. deild karla
17.15 Þróttur - Haukar Valbjarnarvöllur
18.15 Meistaradeildarkvöld Sport
18.30 PSG - Malmö Bravó (Opinni)
18.30 PSV - Man. Utd Sport 3
18.30 Man. City - Juventus Sport 4
18.30 Real Madrid - Shakhtar Sport 5
Nýjast
Kristján Hauksson hefur
ekki sagt skilið við boltann.
Mættur upp á topp. Aldrei of
seint að meikaða sem striker
Magnús Sigurbjörnsson
@sigurbjornsson
Þróttarar í pepsi-deildina?
Þróttur Reykjavík getur komist á ný
í Pepsi-deild karla í kvöld, en liðið
spilar frestaðan leik gegn Haukum
á Valbjarnarvelli klukkan 17.15.
Með sigri tryggir Þróttur sæti sitt á
meðal þeirra bestu.
Þróttarar voru lengi
vel efstir í deildinni
en misstigu sig
aftur og aftur í
seinni umferðinni.
KA var byrjað að
stríða Þrótturunum
alvarlega og hóta að
hirða af þeim sætið,
en Þróttarar eiga nú
tvo leiki til að ná í tvö
stig og komast þar
með upp á ný. Þróttur
var síðast í deild
þeirra bestu árið
2009 en féll þá með
16 stig ásamt Fjölni.
Ólafsvíkingar eru
nú þegar búnir að
tryggja sig upp.
Enska úrvalsdeildin
West Ham 2– 0 Newcastle
Efst
Man. City 15
Leicester 11
Man. Utd 10
Arsenal 10
Neðst
Chelsea 4
Stoke 2
Sunderland 2
Newcastle 2
Í DAG KL. 17:15
365.is Sími 1817
ÞRÓTTUR Í PEPSI-DEILD?
Þróttur og Haukar mætast í Laugardalnum í dag klukkan 17:15.
Með sigri geta Þróttarar tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni á
næstu leiktíð. Ekki missa af þessum hörkuleik!
olís-deild karla
Grótta 33-26 FH
Markahæstir: Finnur Ingi Stefánsson 9/3 -
Einar Rafn Eiðsson 8/5
Nýliðarnir eru komnir á blað með
þessum frábæra sigri á FH.
ÍR 25-24 UMFA
Markahæstir: Sturla Ásgeirsson 9/6 - Böðvar
Páll Ásgeirsson 9
Silfurdrengurinn Sturla var hetjan
í Austurbergi í gær en sigurmarkið
skoraði hann 30 sekúndum fyrir
leikslok.
Fram 24-19 Víkingur
Markahæstir: Sigurður Örn Þorsteinsson 8 -
Jóhann Reynir Gunnlaugsson 6/2
Víkingar sprungu á limminu í
stöðunni 18-18 og þurfa að bíða
eftir fyrsta sigrinum í Olís-deildinni.
Efri hluti
Valur 4
ÍR 4
Haukar 2
Afturelding 2
FH 2
Neðri hluti
Fram 2
Grótta 2
Fram 0
ÍBV 0
Víkingur 0
1 5 . S E P t E M b E R 2 0 1 5 Þ R i Ð J U D A G U R16 S P o R t ∙ F R É t t A b l A Ð i ÐSPORT
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
3
2
-A
2
D
0
1
7
3
2
-A
1
9
4
1
7
3
2
-A
0
5
8
1
7
3
2
-9
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
9
2
0
1
5
C
M
Y
K