Fréttablaðið - 15.09.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 15.09.2015, Blaðsíða 32
Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur Hvað? Jazzkvöld á Kexi Hvenær? 20.30 Hvar? Kex Hostel, Skúlagötu 28 Tríóið Jónsson & More, skipað bræðrun- um Ólafi Jónssyni á saxófón og Þorgrími Jónssyni á kontrabassa auk trommu- leikarans Scott McLemore, kemur fram á Kexi í kvöld. Þeir munu leika lög af nýútkomnum geisladisk tríósins, No Way Out, ásamt nokkrum uppáhalds- standördum. Hvað? Hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna Hvað er svona merkilegt við það? Hvenær? 12.00 Hvar? Þjóðminjasafnið Sagnfræðingurinn Kristín Svava Tómasdóttir mun flytja fyrsta fyrirlestur haustsins á vegum Þjóðminjasafnsins. Erindi Kristínar Svövu tengist sýning- unni Hvað er svona merkilegt við það? sem stendur yfir í Bogasal Þjóðminja- safnsins. Sýningin er framlag safnsins til 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna og fjallar um störf íslenskra kvenna frá 1915 til dagsins í dag og baráttu þeirra fyrir réttindum sínum. Hvað? Tónleikar með Jessie J Hvenær? 20.00 Hvar? Laugardalshöllin Enska stjarnan Jessie J treður upp í Laug- ardalshöll. Söngkonan, sem er frá Lond- on, sló fyrst í gegn með laginu Do It Like a Dude og hefur átt fjölda af smellum síðan þá. Hún hefur einnig verið þjálfari í bresku útgáfunni af The Voice. Hvað? #Öllbörn – Styrktartónleikar fyrir sýrlenska flóttamenn Hvenær? 19.00 Hvar? Húrra, Naustunum, 101 Reykjavík Margir þekktir tónlistarmenn munu koma fram á styrktartónleikum fyrir sýrlenska flóttamenn. Allur ágóði tón- leikanna mun renna óskertur til starfs UNICEF í Sýrlandi og nágrannaríkjum þar sem flóttamannastraumurinn er sem mestur. Bylgja Babýlons verður kynnir og eftirfarandi tónlistarmenn koma fram: Úlfur Úlfur, Sísí Ey, Mosi Musik, Kött Grá Pje, Lay Low, Fox Train Safari, Bellstop. Hver og einn ræður hvað hann vill borga fyrir miðann (lágmark: 1.500 kr.) og þar með hve mikið rennur í sjóðinn. Auk þess verða styrktarbaukar á staðnum. Miðar verða eingöngu seldir við innganginn. Fyrir þá sem ekki komast en vilja styrkja það frá- bæra starf sem UNICEF er að vinna er hægt að styrkja starfið um 1.900 kr. með því að senda „UNICEF“ á 1900. Sýningar Hvað? Aida eftir Verdi Hvenær? 18.45 Hvar? Háskólabíó Aida er stærsta ópera sem gerð hefur verið á óperu- sviði. Hún verður sýnd í Háskólabíói. Útsendingar- tími er um það bil 2 klst. og 25 mínútur, þar á meðal 15 mínútna millikafli sem er fluttur á ítölsku með enskum texta. Hvað? Sýningin Rýmisþræðir Hvenær? 12.00 17.00 Hvar? Listasafnið á Akureyri Sýningin Rýmisþræðir var opnuð um helgina. Í tilkynningu frá Listasafninu á Akureyri segir: „Þræðir tengja Ragn- heiði Björk Þórsdóttur við lífið, upp- runann og uppsprettuna. Þeir eru í senn efniviðurinn og viðfangsefnið í listsköpun hennar og mynda uppi- stöðu, ívaf og þannig verkin sjálf. Þráðurinn er eins og blýantur og vefnaður eins og teikning úr þráðum. Það er einhver galdur í vefnaðinum, hann er svo óendanlega tengdur lífinu, örlögum og sögu mannsins á jörðinni. Vefnaður er í senn erfiður and- stæðingur og góður vinur sem felur bæði í sér einfaldleika og fjölbreytileika og reynir þannig bæði á líkama og sál.“ Hvað? Sýning Georgs Guðna Hvenær? 12.00 Hvar? Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19 Sýning með verkum Georgs Guðna var opnuð í höfuðstöðvum Arion banka um helgina. Hún stendur til 11. desember. Í til- kynningu segir: „Georg Guðni (1961-2011) er einn áhrifamesti listamaður þjóðarinnar en með málverkum sínum af íslenskri nátt- úru er hann talinn hafa endurvakið lands- lagið í íslenskri myndlist. Í þeim birtist ekki eingöngu sú fagra ásýnd íslenskrar náttúru sem okkur er orðið tamt að sjá, heldur birtast okkur þar bæði óminnis ásar og sögulaus auðn, jafnt ókunnir dalir sem nafnlaus fjöll. Sem áhorfendur upplifum við okkur eiginlega alls staðar og hvergi, áttavillt í nýsköpuðu en jafnframt kunnuglegu lands- lagi. Hér birtist okkur náttúran með sama hætti og hún birtist í huga málarans, á svæði hugs- unar þar sem ímyndun og veruleiki renna saman.“ Íþróttir Hvað? Þróttur gegn Haukum Hvenær? 17.15 Hvar? Valbjarnarvöllur Þróttur fær lið Hauka í heim- sókn. Þróttarar eiga góða möguleika á að komast upp í úrvalsdeildina og getur sigur gegn Haukum tryggt annað sætið og þar með réttinn til að leika í efstu deild. Haukar eru með 33 stig og eru í sjötta sæti deildarinnar. Með sigri getur liðið komist upp í 5. sætið. Jessie J verður í Laugardalshöll í kvöld. Jazzkvöldin á Kexi vekja gjarnan lukku. Viltu vita hvað eignin þín hefur hækkað í verði ? 510 7900 Þórunn Gísladóttir Löggiltur fasteignasali. Kristján Þ. Hauksson Sölufulltrúi. 696 1122 kristjan@fastlind.is www.fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Frítt verðmat og framúrskarandi þjónusta í þína þágu. Sýningartímar á eMiði.is og miði.is ÞRIÐJ UDAGS TILBO Ð ÞRIÐJ UDAGS TILBO Ð ÞRIÐJ UDAGS TILBO Ð ÞRIÐJ UDAGS TILBO Ð KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA KNOCK KNOCK KL. 10:30 LOVE & MERCY KL. 8 THE TRANSPORTER REFUELED KL. 10:20 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 8 VACATION KL. 5:50 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 KNOCK KNOCK KL. 5:50 - 8 - 10:30 KNOCK KNOCK VIP KL. 5:50 - 8 - 10:20 LOVE & MERCY KL. 8 - 10:30 SELF/LESS KL. 8 - 10:30 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 5:30 - 8 - 10:30 VACATION KL. 5:50 - 8 - 10:30 SKÓSVEINARNIR ÍSLTAL 2D KL. 5:50 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 KNOCK KNOCK KL. 5:50 - 8 - 10:20 SELF/LESS KL. 5:30 - 8 - 10:30 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 5:30 - 8 - 10:30 VACATION KL. 5:50 - 8 MISSION: IMPOSSIBLE KL. 10:20 LOVE & MERCY KL. 5:30 - 8 - 10:30 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 5:30 - 8 - 10:30 MISSION: IMPOSSIBLE KL. 8 ANT-MAN 2D KL. 10:45 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 KNOCK KNOCK KL. 8 - 10:10 LOVE & MERCY KL. 8 MAZE RUNNER: SCORCH TRIALS KL. 10:30 VACATION KL. 6 SKÓSVEINARNIR ÍSLTAL 3D KL. 5:40ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG NÝJASTA MYND GUY RICHIE LEIKSTJÓRA SNATCH OG SHERLOCK HOLMES  THE TELEGRAPH  HITFIX  TIME OUT LONDON FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR LOOPER SÁLFRÆÐIÞRILLER AF BESTU GERÐ  CINEMABLEND  HITFIX  EMPIRE  VARIETY  NEW YORK TIMES  CHICAGO TRIBUNE  VARIETY  VILLAGE VOICE  WASHINGTON POST  HITFIX  TRI-CITY HERALD ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞR IÐJ UD AGS TILB OÐ ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð LÝKUR LAUGARDAGINN 19. SEPT. ÚTSALAN ÚTSÖLULOK H E I L S U R Ú M ATH! Góða skemmtun í bíó www.versdagsins.is Örlátur maður hlýtur ríkulega umbun og sá sem gefur öðrum að drekka fær þorsta sínum svalað... MAZE RUNNER 6, 9 NO ESCAPE 5:45, 8, 10:15 STRAIGHT OUTTA COMPTON 10:20 THE GIFT 8 ABSOLUTELY ANYTHING 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ 1 5 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r28 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 3 1 -8 4 7 0 1 7 3 1 -8 3 3 4 1 7 3 1 -8 1 F 8 1 7 3 1 -8 0 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 4 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.