Fréttablaðið - 15.09.2015, Side 6
GRJÓNAGRAUTUR
alveg mátulegur
Nú einnig í litlum umbúðum– fullkominn skammtur fyrir einn
TILBÚINN TIL NEYSLU
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-1
3
9
7
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is
Dr. Óttar Guðmundsson geðlæknir flytur erindi um sjálfsvíg
hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð
16. september n.k. í Safnaðarheimili Háteigskirkju.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20:30.
Í kjölfarið fer af stað stuðningshópur fyrir aðstandendur
sem misst hafa í sjálfsvígi.
Kaffiveitingar og allir velkomnir.
Fyrirlestur
um sjálfsvíg
Félagasamtök Ísbrjótur Greenpeace,
Arctic Sunrise, er væntanlegur til
Reykjavíkur í kvöld. Skipið kom
siglandi til Íslands frá Grænlandi
á sunnudag og kastaði akkerum út
af Arnarstapa laust eftir miðnætti
aðfaranótt mánudags.
„Við vorum aðeins fyrr á ferðinni
en við ætluðum,“ segir Sune Scheller,
leiðangursstjóri í heimsskautavernd
Grænfriðunga, en upphafleg áætlun
gerði ráð fyrir komu til Reykjavíkur á
morgun, 16. september. Slæmt veður
við Norðaustur-Grænland segir hann
að hafi orðið til þess að haldið var fyrr
af stað til Íslands en ráð hafði verið
fyrir gert. „Við bíðum nú eftir því að fá
stæði í höfninni, en köstuðum í milli-
tíðinni akkerum hér, hinum megin
við flóann frá Reykjavík.“
Við Grænland segir Sune að skip-
verjar hafi skráð og flett ofan af fram-
ferði olíuleitarfyrirtækis sem notist
við hljóðbylgjur sem framkallaðar eru
með gríðaröflugum loftbyssum til að
leita að olíu og gasi djúpt undir sjávar-
botninum. Aðferðin, sem kölluð er
„seismic blasting“, er sögð skaðleg
öllum lífverum í hafinu, enda hávað-
inn af hverri sprengingu gífurlegur.
Skotið er á tíu sekúndna fresti, stans-
laust sólarhringum saman og jafnvel
mánuði í senn. Hávaðinn neðansjávar
er sagður um 259 desibel, en það jafn-
gildi 197,5 desibelum ofansjávar, eða
viðlíka látum og áttföldum hávaða
þotuhreyfils í flugtaki. Sársaukamörk
mannfólks liggja við 125 desibel og
hljóðhimnur geta rofnað við 140 til
150 desibel. Ofansjávar heyrist hins
vegar lítið sem ekkert.
Greenpeace segir mikilvægt að
fletta ofan af þessum rannsóknar-
háttum olíuleitarfyrirtækja sem við-
hafðir séu í óbyggðum þar sem fáir
veiti þessu athygli. Ljóst sé hins vegar
að aðferðin geti stórskaðað og jafnvel
drepið stór sjávardýr á borð við hvali,
fyrir utan öll önnur áhrif.
Sune segir að skipið verði í höfn
í Reykjavík fram á sunnudag en þá
verði haldið aftur heim til megin-
lands Evrópu í heimahöfn í Amster-
dam í Hollandi. „Við ætlum hins
vegar að bjóða fólki að skoða sig um
í skipinu áður en við förum, líkast til
á föstudaginn átjánda milli eitt og
fimm síðdegis,“ segir hann og vonast
eftir fjölmenni. Þar fyrir utan noti
skipverjar stoppið í Reykjavík til
hvíldar og til að sækja vistir áður en
haldið verði heim. olikr@frettabladid.is
Vilja banna hljóð-
sprengjur við olíuleit
Opið hús verður í Arctic Sunrise, ísbrjót Greenpeace-samtakanna, í Reykjavíkur-
höfn á föstudaginn kemur. Skipið hefur hér viðkomu á leið sinni úr rannsóknar-
leiðangri við Grænland til heimahafnar í Hollandi.
Leiðtogafundur David Cameron, forsætisráðherra Breta, hitti í gær Abdullah II., konung Jórdaníu, í höfuðborginni Amman. Cameron heimsótti flótta-
mannabúðir í Líbanon og Jórdaníu og lofaði að veita aukinn stuðning til að berjast gegn flóttamannavandanum. NordicPhotos/AFP
Hér er Arctic Sunrise í höfn á S-Spáni í júní síðastliðnum þegar Grænfriðungar tóku
þátt í átakinu Umhverfið skiptir máli (The Environment Matters) í Sevilla. Í þessum
mánuði hefur skipið skráð framferði olíufyrirtækja við hljóðsprengjuleit að olíu
við norðurskautið. Fréttablaðið/EPA
Fundað um flóttamannamál í Amman
sjávarútvegur Hagnaður Ísfélags
Vestmanneyja árið 2014 nam tæpum
3,2 milljörðum íslenskra króna. Eign-
ir samstæðunnar í lok árs námu 36,8
milljörðum íslenskra króna. Bókfært
eigið fé í árslok var tæpir 17 milljarð-
ar króna og eiginfjárhlutfall félagsins
var 48,1%. Laun og launatengd gjöld
samstæðunnar námu rúmum 3,3
milljörðum íslenskra króna.
Ársverk samstæðu voru samtals
283, ársverk móðurfélags voru 270 og
fækkaði um 20 milli ára. Hluthöfum
fækkaði um tvo á árinu og voru 137
í lok árs. ÍV fjárfestingarfélag ehf.
á um 88% útistandandi hlutafjár.
Samstæðan á fjögur dótturfélög, Dala
Rafn ehf., Fiskmarkað Þórshafnar
ehf., Jupiter Shipping ehf. og IVM 2
ehf. – sg
Ísfélag Vest-
mannaeyja
malar gull
Rekstur Ísfélagsins hefur gengið vel
undanfarið. fréttablaðið/óskar
kjaramál Launþegar, sem ekki eru
með fasta starfsstöð, eiga að fá laun
um leið og þeir ganga út um dyrnar
heima hjá sér og þar til þeir eru
komnir aftur heim að loknum vinnu-
degi samkvæmt nýjum dómi Evr-
ópudómstólsins.
Á fréttavef norska miðils-
ins Dagens Næringsliv segir
að dómurinn hafi í för með
sér miklar breytingar fyrir
til dæmis iðnaðarmenn,
sölumenn, tölvuráðgjafa,
ræstitækna og heilbrigðis-
starfsmenn í heimahjúkrun sem ekki
hafa fasta starfsstöð.
Halldór Grönvold, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bands Íslands, segir dóminn túlkun
á ákvæðum vinnutímatilskipunar
Evrópusambandsins sem inn-
leidd hefur verið hér. Tilskip-
unin fjalli ekki um launamál
heldur hvíldartímareglur.
Halldór bendir á að málið
fyrir Evrópudómstóln-
um hafi fjallað um virkan vinnutíma
starfsmanna á Spáni sem setja upp
öryggisbúnað en eru ekki með fasta
starfsstöð. „Það kann að vera að þetta
geti haft áhrif hér. Við getum tekið
sem dæmi iðnaðarmann í bygginga-
vinnu sem fer einn daginn í Grafarvog
og næsta dag í Kópavog en er ekki með
fasta starfsstöð. Ef menn eru með fasta
starfsstöð hefur þetta engin áhrif."
Að sögn Halldórs kann úrskurður
dómstólsins að hafa önnur og víð-
tækari áhrif þar sem kjarasamningar
eru með öðrum hætti en hér. – ibs
Á launum á leið í vinnuna
Halldór Grönvold
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð j u D a g u r6 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a Ð I Ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
3
2
-5
8
C
0
1
7
3
2
-5
7
8
4
1
7
3
2
-5
6
4
8
1
7
3
2
-5
5
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
9
2
0
1
5
C
M
Y
K