Fréttablaðið - 27.04.2015, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 27. apríl 2015 | SKOÐUN | 11
Opinn kynningarfundur um umhverfismál og framleiðslu á Grundartanga
Á fundinum verða kynntar niðurstöður umhverfisvöktunar fyrir iðnaðar-
svæðið á Grundartanga árið 2014. Fulltrúar Kratus, GMR, Norðuráls
og Elkem flytja erindi um starfsemi og mengunarvarnir fyrirtækjanna.
Höfundar sérfræðiskýrslna verða einnig til svara á fundinum.
Fundurinn verður haldinn hjá Norðuráli
fimmtudaginn 30. apríl 2015 klukkan 14:30
og er opinn öllu áhugafólki um umhverfið
í nágrenni Grundartanga.
UMHVERFI OG IÐNAÐUR
Hæstiréttur ómerkti á
miðvikudag sýknu hér-
aðsdóms í svokölluðu
Aurum-máli, þar sem
ég er ákærður sem hlut-
deildarmaður í viðskipt-
um sem áttu sér stað
vorið 2008. Um var að
ræða fullkomlega eðli-
leg viðskipti sem emb-
ætti sérstaks saksóknara
reynir að klæða í glæpa-
búning.
Vegna málsmeðferðarinnar
fyrir Hæstarétti upplýsti einn
virtasti dómari landsins, sem
dæmdi málið í héraði, að sér-
stakur saksóknari hefði hringt
til sín meðan á málarekstrinum
stóð og sagt sér af því að Sverrir
Ólafsson, sem var meðdómari í
málinu, og Ólafur Ólafsson væru
bræður. Eftir að sýknudómur í
héraði var kveðinn upp lét sér-
stakur saksóknari eins og hann
hefði ekkert vitað af tengslun-
um. Hæstiréttur blessar þetta
og dæmir að sérstakur skuli fá
annað tækifæri í sakamáli, sem
hann tapaði.
Sú skýring að sérstakur
saksóknari hafi ekki vitað af
bræðratengslum Ólafs og Sverr-
is Ólafssona fyrir meðferð máls-
ins stenst ekki. Hver trúir því að
100 manna herlið sérstaks sak-
sóknara kunni ekki á Google þar
sem tengslin liggja fyrir? Hvaða
hugsanlega ástæðu hafði hér-
aðsdómarinn til þess að ljúga til
um samskipti sín við sérstakan
saksóknara? Skiptir ekki máli
að bréf liggur frammi í málinu
frá meðdómaranum sem styð-
ur frásögn héraðsdómarans?
Af hverju er svona rugl í kerf-
inu tekið út á okkur sem vorum
sýknaðir? Ekki er við okkur
að sakast um það sem
gerðist. Eigum við ekki
að njóta vafans? Það er
skelfilegt að upplifa þá
tilfinningu að Hæsti-
réttur haldi hlífiskildi
yfir óheiðarlegum emb-
ættismanni en láti rétt-
indi fjögurra einstak-
linga lönd og leið.
Ég hef mátt verja
hendur mínar sem sak-
borningur síðustu 13 ár. Eitt
tekur við af öðru. Tilgangur-
inn virðist vera sá að koma mér
í fangelsi hvað sem það kostar.
Gerðar hafa verið ótal húsleitir
heima hjá mér og í fyrirtækjum
sem tengjast mér. Rótað hefur
verið í nærbuxnaskúffu minni,
síminn minn hleraður og mikil-
vægum gögnum haldið undan
í dómsmálum. Og ekki hefur
eigin kona mín verið látin í friði.
Hennar símar hafa verið hlerað-
ir og húsleitir gerðar í hennar
fyrirtækjum án þess að hún hafi
nokkurn tíma á ævinni fengið
stöðu sakbornings. Sök hennar
virðist sú ein að hafa gifst röng-
um manni.
En niðurstaða miðvikudagsins
er staðreynd. Enn á ný á að drösla
mér niður í héraðsdóm, þar sem
ákæruvaldið í landinu fær frjáls-
ar hendur til að færa fram sakar-
giftir sínar á hendur mér. Ákæru-
valdið hefur eytt milljörðum
króna af fé íslenskra skattborg-
ara síðustu 13 ár til þess eins að
finna einhvern glæp, svo hægt
sé að taka mig úr umferð. Ég er
viss um að eftir 20 ár munum við
fyrirlíta svona vinnubrögð. En
af hverju gerist þetta aftur og
aftur? Fyrir mér er svarið ein-
falt – kerfið sér jú um sína – og
ver sig með kjafti og klóm.
Verst þykir mér samt að
sjá að Hæstiréttur skuli spila
með.
Að ljúga með blessun Hæstaréttar
DÓMSMÁL
Jón Ásgeir
Jóhannesson
AF NETINU
Furðulegar
hugmyndir um
réttindi vinnandi fólks
Fólk sem ræður
sig í vinnu er
í raun að selja
vinnuafl sitt. Oft
er vinnan það
eina sem það á
til að selja, það
á ekki eignir eða
hluti í fyrir-
tækjum eða gjaldeyri.
Sjálfsagður réttur fólks sem
selur vinnu sína með þessum
hætti er að neita að selja hana
þegar borgunin er of léleg. Í
siðmenntuðu samfélagi dettur
engum í hug að taka þennan rétt
af launafólki.
http://www.eyjan.is/silfuregils
Egill Helgason
Sveppir éta eitur
Á útskriftarsýn-
ingu Listahá-
skólans sýnir
nemandi í
iðnhönnun,
hvernig nota má
íslenzka mat-
sveppi til að eyða
eitri í jarðvegi.
Sigrún Thorlacius líffræðingur
og iðnhönnuður ræktaði sveppi,
sem éta eitur á sorphaugum
tæknialdar. Notaði þá til að
hreinsa Renault Megane bílvél,
löðrandi í eitri. Breytti mengandi
efnum í meinlaus. Notaði sveppi
gegn blýi og cadmium, olíum,
sílikoni og kvikasilfri. Sýndi bílvél-
ina, er sveppirnir voru að breyta
í skaðlaust járnarusl. Fyndið er,
að Listasafn Reykjavíkur sýnir
hreinsun sílikons í Hafnarhúsinu.
Í sömu viku og Reykjavíkurhafnir
semja við Silicor um sílikon-
mengandi stóriðju á Grundar-
tanga.
http://www.jonas.is
Jónas Kristjánsson
➜ Ég hef mátt verja
hendur mínar sem sak-
borningur síðustu 13 ár.
Eitt tekur við af öðru.
Tilgangurinn virðist vera
sá að koma mér í fangelsi
hvað sem það kostar.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
B
-7
8
B
C
1
7
5
B
-7
7
8
0
1
7
5
B
-7
6
4
4
1
7
5
B
-7
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K