Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.04.2015, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 27.04.2015, Qupperneq 46
27. apríl 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 22 Kjartan Atli Kjartansson kjartanatli@frettabladid.is SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is ROMA svefnsófi Ljósgrátt eða dökkgrátt, slitsterkt áklæði. B: 200 cm. D: 100 cm. H: 50 cm. Svefnpláss: 120x200 cm. Fullt verð: 89.900 kr. Tilboðsverð 79.900 kr. Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 Áttu von á gestum MIAMI hornsvefnsófi með tungu Með rúmfatageymslu í tungu. Dökkgrátt, slitsterkt áklæði. Hægri og vinstri tunga. Stærð: 240 x 225 cm, H: 80 cm. Fullt verð: 169.900 kr. Tilboðsverð 149.900 kr. RUBEN svefnsófi með tungu Með rúmfatageymslu í tungu. Dökkgrátt, slitsterkt áklæði. Hægri og vinstri tunga. Stærð: 240 x 160 cm. Fullt verð: 139.900 kr. Tilboðsverð 99.900 kr. 20.000 AFSLÁTTUR KRÓNUR 40.000 AFSLÁTTUR KRÓNUR MEIRA Á dorma.is Þau Ragnheiður Margrét Júlíus- dóttir og Björn Þór Reynisson, for- eldrar kraftajötunsins Hafþórs Júl- íusar Björnssonar, fylgdu honum til Kúala Lúmpúr í Malasíu, þar sem hann tók þátt í keppninni Sterkasti maður heims. Keppnin fór fram um helgina og gekk vel en Hafþór lenti í þriðja sæti. „Þessu fylgir mikil spenna, maður tekur andlega þátt í þessu og það er frábært að fá að styðja hann í þessu alla leið,“ segir Björn. Hjónin hafa ferðast víða um heim til að sjá soninn keppa í afl- raunum. „Við ferðumst með honum á flestar keppnir, við förum árlega til Leeds á Sterkasta mann Evrópu, við höfum farið með honum á Arn- old Classic í Ohio í Bandaríkjunum og þetta er núna fjórða Sterkasti maður heims keppni sem við fylgj- um honum á,“ útskýrir Björn og Ragnheiður bætir við: „Við mætum svo auðvitað á öll mót á Íslandi sem hann tekur þátt í.“ Gerir kröfur til sjálfs sín Hjónin eru vitanlega stolt af syni sínum en segjast í raun ekki hafa grunað að hann yrði afreksmaður í íþróttum þegar hann var yngri. Illa gekk að fá Hafþór til þess að æfa íþróttir, þar til að hann prófaði körfuknattleik í fyrsta sinn tólf ára gamall. „Þar fann hann sig fljótt,“ útskýrir Björn, sem hafði áður reynt að koma Hafþóri í körfubolta. Þegar Hafþór fór að stunda körfu- boltann af kappi breyttist hugsun- arháttur hans; hann fór að hugsa eins og íþróttamaður. Foreldrarn- ir segja ákveðni og sjálfstæði hafi einkennt Hafþór á uppvaxtarárum hans. „Hann hafði sterkar skoð- anir á hlutunum, þá sérstaklega ef hann var ekki sáttur við hvernig ég klæddi hann,“ útskýrir Ragn- heiður og bætir við: „Hafþór hefur alltaf verið kröfuharður en það á sérstaklega við hann sjálfan, hann gerir miklar kröfur til sjálfs sín og vill alltaf gera betur, það er kannski þess vegna sem hann nær svona langt í því sem hann tekur sér fyrir hendur.“ Fer með íslenskan lax með sér út Hafþóri þykir gott að koma í mat til foreldra sinna og segir Björn soninn sterka sér- staklega mikið fyrir fisk. „Hann borðar sér- staklega vel ef ég fer út í Hafið, sem er fisk- búðin sem við verslum við. Hann er rosa- lega mikið fyrir lax- inn þaðan. Við eldum fyrir hann lax og setj- um í box þegar hann er að ferðast til útlanda,“ segir Björn. Hjónin eru vitanlega stolt af syni sínum. Þau eru ötulir stuðn- ingsmenn þessa sterkasta manns þjóðarinnar og þótt víðar væri leitað. Vissu- lega segja þau að það hafi verið skrítið að setja sig inn í sportið í fyrstu. „Þetta var kannski pínu skrítið þegar við fórum fyrst með honum á Sterk- asta mann heims í Charlotte í Banda- ríkjun- um 2011 en í dag er þetta að verða bara eðli- legt fyrir okkur og við myndum fylgja honum hvert sem er til að styðja við bakið á honum,“ segir Björn. Fylgdu sterkasta syni Íslands til Malasíu Foreldrar Hafþórs Júlíusar Björnssonar kraft ajötuns hafa fylgt honum um allan heim. Þau segja Hafþór alltaf hafa verið ákveðinn og sjálfstæðan. STOLT AF SYNINUM Foreldrar Hafþórs eru að vonum stolt af syninum sem þau hafa ferðast víða með. HAFÞÓR JÚLÍUS BJÖRNSSON Við ferðumst með honum á flestar keppnir, við förum árlega til Leeds á Sterkasta mann Evrópu, við höfum farið með honum á Arnold Classic í Ohio í Banda- ríkjunum og þetta er núna fjórða Sterkasti maður heims keppni sem við fylgjum honum á. „Við ætluðum ekki einu sinni að hafa forsölu fyrr en við urðum varir við að fólk var að hringja mikið niður á Húrra og í okkur,“ segir Haukur S. Magnússon rit- stjóri Reykjavík Grapevine og einn af skipuleggjendum hipp- hopp-tónleikanna sem fóru fram á Húrra síðastliðinn föstudag. „Eftirspurnin þröngvaði okkur til að bjóða upp á miða í forsölu,“ en hann segir rúmlega helming miðanna hafa selst í forsölunni en uppselt var á tónleikana og færri komust að en vildu. Hann segir augljóst að íslenskt hipphopp sé komið að ákveðn- um suðupunkti og aðsóknin beri því gott vitni, en vel var mætt á tónleikana þar sem Gísli Pálmi, Emmsjé Gauti, Bent og Logi Pedro ásamt fleiri tónlistar- mönnum tróðu upp við góðar undirtektir. Síðastur á sviðið á föstudag- inn var rapparinn Gísli Pálmi en nýútkominni breiðskífu hans, Gísla Pálma, hefur verið vel tekið og sjálfsagt margir tónleikagest- ir sem fögnuðu tækifærinu til þess að sjá hann koma fram. Haukur segir aðstandend- ur tónleikana ánægða með viðtökurnar og von- ast til þess að þetta sé fyrsti viðburðurinn af mörgum. „Við erum ákaf- lega glaðir og þakklátir fyrir hversu vel tókst til og vonum bara að þetta verði fyrsti viðburðurinn af mörgum þar sem íslenskir hipphopp- arar sýna hversu mikil gróska er í gangi og alla þá frábæru vinnu sem margir hafa langt á sig og er farin að skila sér.“ - gló Helmingur miðanna seldist í forsölu Haukur S. Magnússon, ein skipuleggjenda vonast til þess að þetta verði fyrsti viðburður af mörgum. „Glow með Retro Stefson og Happy með Pharrell Williams. Það er ein- hver svona lífsgleði, hiti og léttleiki í þessum lögum sem maður þarf á köldum mánudagsmorgni.“ Sigríður Arnardóttir, sjónvarpskona á Hring- braut MÁNUDAGSLAGIÐ VEL HEPPNAÐIR TÓNLEIKAR Gísli Pálmi var einn af þeim tón- listarmönnum sem komu fram á vel heppnuðum tónleikum á Húrra á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 C -0 2 F C 1 7 5 C -0 1 C 0 1 7 5 C -0 0 8 4 1 7 5 B -F F 4 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.