Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.04.2015, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 27.04.2015, Qupperneq 13
KRUMMI Hrafna Guðrúnar má kaupa á Þjóð- minjasafninu og Þjóðmenningarhús- inu. Nánari upplýs- ingar á gvassag- isla.wix.com/tre- verk og í netfanginu gvassa gisla@ hotmail.com. Samband Íslendinga við hrafninn hefur ávallt verið náið. Fuglinn tengist okkur í gegnum söguna og þjóðtrúna og langflestir geta sagt ein- hverjar sögur af krumma. Sjálfri finnst mér þessi vitri fugl mjög fallegur og ég veit að hann höfðar til mjög margra,“ segir listakonan Guðrún Gísladóttir. Guðrún er myndlista- og smíðakennari í grunnskóla en hún á einnig að baki nám í textíl- og fatahönnun frá Listaháskóla Íslands. Guðrún hefur unnið að listsköpun sinni meðfram kennarastarfinu. „Ég hef verið að renna dálítið í trérennibekk, bæði trjáform og aðra muni sem eru á mörkum nytja og lista,“ segir hún en síðastliðið ár hefur hún einbeitt sér að hrafninum. „Fyrir ári kom samstarfs- kona til mín og bað mig um að búa til fyrir sig stóran og grófan hrafn en hún hafði séð verkefni sem ég hafði unnið með börnunum þar sem við tálguðum hrafna.“ Nú smíðar hún bæði stóra og smáa hrafna, flesta svarta en suma hvíta. Hún leggur mikla áherslu á að hrafninn standi á rekaviði. „Annars finnst mér ég ekki gera honum nógu hátt undir höfði,“ segir hún glaðlega en ekki er hlaupið að því að nálgast rekaviðinn. „Ég hef gengið allar fjörur hér á Reykjanesi og hef sambönd norður í land,“ segir hún glettin. „Hrafninn hefur aðeins þróast á þessu ári. Nú er ég trúrri hrafnsform- inu en ég fór dálítið frjálslega með það fyrst,“ segir Guðrún sem notar ís- lenskt birki við smíðina. „Birkið er besti efniviðurinn, það er sterkt, trefjarnar stuttar og mjúkar,“ segir hún. Grófleiki efnisins gefur þá tilfinningu að krumm- inn sé fiðraður og jafnvel lifandi. „Ég vildi hafa hann úfinn eins og hann oft er þegar maður sér hann sitja uppi á ljósa- staurum í roki.“ ■ solveig@365.is ÚFIÐ HRAFNAGER VITUR FUGL Guðrún Gísladóttir listgreinakennari hannar og smíðar fallega hrafna úr birki. Krummarnir tylla sér á rekavið með úfnar fjaðrir. GRÓFIR Krummarnir eru ekki pússaðir sem verður til þess að þeir líkjast lifandi fiðruðum fuglum. MYND/ERNIR HRAFNAMÓÐIR Guðrún smíðar hrafna sína úr birki sem hún segir langbesta efni- viðinn. MYND/ERNIR Góðar fjölskyldustundir Gönguferðir, létt fjallaklifur og skemmtilegar ævin- týraferðir úti í náttúrunni eru í senn góðar, hollar og skemmtilegar samverustundir fyrir fjölskylduna. SÍÐA 2 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 B -A 5 2 C 1 7 5 B -A 3 F 0 1 7 5 B -A 2 B 4 1 7 5 B -A 1 7 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.