Morgunblaðið - 29.06.2015, Side 9
Olíuflekkur lá á sjónum við olíuhöfn-
ina í Örfirisey í gær og virtist
flekkurinn teygja sig yfir nokkur
hundruð metra svæði meðfram
hafnarbakkanum og í austurátt.
Engir viðbragðsaðilar voru komn-
ir á staðinn þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar þar að garði um
miðjan dag í gær, en að sögn hans
var mikil olíulykt á staðnum.
Síðar kom í ljós að ástæða þess að
olían fór í sjóinn var sú að olíuskilja á
bryggjunni í Eyjagarði var yfirfull,
samkvæmt upplýsingum Gests Guð-
jónssonar, fulltrúa í öryggisnefnd
Olíudreifingar.
Gestur sagði heppilegt að þetta
hefði uppgötvast snemma svo ekki
læki meiri olía út í sjóinn. „Olíuskilj-
an hefur yfirfyllst af einhverjum
ástæðum og boð um gallann hafa
ekki borist til vaktmanns. Hreinsi-
aðgerðirnar eru nú hafnar en þetta
virðist ekki vera mikil olía. Það þarf
mjög litla olíu til þess að þekja stórt
svæði,“ sagði Gestur síðdegis í gær.
Olía fór í sjóinn
við Örfirisey
Olíuskilja yfirfylltist og olía lak út
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Olíumengun Olíuflekkurinn var vel sjáanlegur á töluverðu svæði.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Í ferðalagið
Á vinnustaðinn
Í sumarbústaðinn
Í eldhúsið • Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Fæst í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum og Byko
Engar flækjurEkkert vesen
www.danco.is
Heildsöludreifing
Wrapmaster
Skammtari fyrir plastfilmur
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
„Þetta gekk æðislega vel og það var
ekki vesen á nokkrum manni,“ seg-
ir Áskell Heiðar Ásgeirsson, einn
skipuleggjenda tónlistar-
hátíðarinnar Drangeyjar, sem var
haldin í fyrsta skipti síðastliðinn
laugardag í tengslum við Lummu-
daga á Sauðárkróki.
„Við vorum með talsvert af
heimaböndum en þar að auki
Magna Ásgeirsson, Emilíönu Torr-
ini og Jónas Sigurðsson og Ritvélar
framtíðarinnar,“ segir Áskell Heið-
ar spurður hverjir hafi komið fram
á hátíðinni.
Umtalsverður fjöldi fólks var
samankominn á Sauðárkróki. Auk
Lummudaga fór þar fram Lands-
bankamótið, þar sem um 900 börn
léku knattspyrnu, en margar fjöl-
skyldur komu með börnunum.
„Þetta var svolítið þroskaður áhorf-
endahópur, þó reyndar einnig fjöl-
breyttur. Fjölskyldufólk og allur
aldur sem skemmti sér þarna fal-
lega saman. Þetta var mjög vel
heppnuð frumraun. Náttúran,
Drangey og sólin mynda þessa um-
gjörð sem við vorum að sækjast eft-
ir. Frábær tónlist í svona fallegri
umgjörð, það virkar alltaf,“ segir
Áskell Heiðar.
Á Lummudögunum sjálfum var
ýmislegt fleira að finna, m.a.
strandblaksmót, lasertag og svo-
kallaður sápubolti. Einnig var hald-
in Lummukeppni, en þar eru einu
skilyrðin fyrir þátttöku þau að
mæta með þrjár lummur fyrir dóm-
nefndina. isak@mbl.is
Tónlistarhátíðin Drangey haldin í fyrsta skipti
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Drangey festival 2015 Fjölmargir tónlistarmenn komu fram á tónleikunum, sem stóðu fram á kvöld.
„Himinlifandi með
niðurstöðuna“
Slæmt tíðarfar
í upphafi sum-
ars rak Íslend-
inga í auknum
mæli að tölvu-
skjánum til að
bóka sér sólar-
ferðir, skv.
frétt á vefsíð-
unni Túristi.is.
Haft er eftir
Tómasi Gests-
syni, fram-
kvæmdastjóra Heimsferða, að
sala á ferðum hafi aukist um 30%
frá því í fyrra. „Sumir áfanga-
staðir eru nánast að fyllast í júlí
en það er meira af lausum sætum
í ágúst,“ segir hann. Guðrún Sig-
urgeirsdóttir frá Vita segir einn-
ig að salan í júlí og ágúst sé
meiri í ár en í fyrra, en segir hót-
el óðum að fyllast. Sala á Tyrk-
landsferðum hjá ferðaskrifstof-
unni Nazar hefur aukist um 60%
frá því í fyrra og forsvarsmenn
Ferðaskrifstofu Íslands hafa svip-
aða sögu að segja.
Mikil sala er á ferð-
um til sólarlanda
„Þetta er búið að vera lengi á óska-
listanum. Aðstaðan var orðin of
þröng og fullnægði ekki þeim kröf-
um sem fjölgun íbúa og aukinn
ferðamannastraumur gerir,“ segir
Ásta Stefánsdóttir, bæjarstjóri
Sveitarfélagsins Árborgar, en nýir
búningsklefar, afgreiðsla og lítil
innilaug voru tekin í notkun við
Sundhöll Selfoss um helgina.
Hlutur Árborgar í húsinu kostar
um hálfan milljarð króna. Auk þess
er í byggingunni aðstaða fyrir lík-
amsræktarstöð í einkaeigu.
Sú nýjung er í nýja húsinu að þar
eru tveir búningsklefar merktir
báðum kynjum. Ásta segir að þeir
séu ætlaðir fötluðum sundgestum
eða veikum. Aðstoðarmaður geti þá
verið af gagnstæðu kyni, ef þess er
óskað. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þjónar fleiri
íbúum og
ferðafólki
Ný aðstaða í Sundhöll Selfoss hefur verið tekin í notkun
Í sundi Sundhöll Selfoss er vinsæl heilsulind. Gott útsýni er úr nýja húsinu út á laugarsvæðið.