Morgunblaðið - 29.06.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
er leiðandi framleiðandi
LED lýsingar og stýringa
og býður heildarlausnir
fyrir hótel og
ráðstefnusali
Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum,
lýsingarhönnuðum og arkitektum
Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta
meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi.
www.reykjafell.is
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Kennurum í Álfhólsskóla íKópavogi var nokkurvandi á höndum í marsþegar boð barst um að
gefa sex nemendum kost á að sækja
listasmiðju í Póllandi. Eftir að þær
Ingibjörg Ólafía Ólafsdóttir mynd-
menntakennari og Donata H. Buk-
owska, kennari í alþjóðaveri skólans,
kynntu verkefnið og markmið þess
ákváðu þær að efna til ritgerða-
samkeppni meðal sjöundubekkinga.
Ritgerðarefnið var: Hvers vegna ætt-
ir þú að fara til Póllands? Hvað getur
þú lært af heimsókn til Póllands?
Með hvaða hætti gæti skólanum
gagnast reynsla þín?
Af 67 nemendum í 7. bekk tóku
sextán þátt í keppninni. Sigur úr bít-
um báru Liv Bárðardóttir, Bessi
Þrastarson, Matthías Jóhannesson,
Bryndís Bergmann Oddsdóttir og
tveir nemendur í alþjóðaverinu, And-
reia Patrícia Moreira Soares, sem er
portúgölsk, og Sabina Skiba frá Pól-
landi. Þau einfaldlega skrifuðu sig inn
í listasmiðjuna í Varsjá. Undir leið-
sögn Ingibjargar Ólafíu og Donötu
hófust þau svo handa við gerð kynn-
ingarefnis, t.d. stuttmyndar um þau
sjálf og skólann sinn, fyrir vænt-
anlega félaga sína í Póllandi til að
skoða á netinu.
Anna Wojtynska mannfræð-
ingur, sem um þessar mundir er að
skrifa doktorsritgerð við Háskóla Ís-
lands um pólska innflytjendur á Ís-
landi og hefur verið búsett hér í mörg
ár, var fengin til að stýra verkefninu.
„Upphaflega var ég ráðin sem verk-
Skrifuðu sig inn í
listasmiðju í Varsjá
Sex 12 ára nemendur í Álfhólsskóla í Kópavogi héldu til Póllands til að taka þátt í
listasmiðju í Varsjá dagana 22.- 29. maí. Þeim til halds og trausts voru Anna
Wojtynska verkefnastjóri og tveir kennarar skólans, Ingibjörg Ólafía Ólafsdóttir
myndmenntakennari og Donata H. Bukowska, kennari í alþjóðaverinu.
Fyrstu kynni Eftir að íslensku krakkarnir hittu pólska hópinn leið ekki á
löngu þar til allir drifu sig á vinnustofuna og hófust handa við listsköpun.
Íslenski hópurinn F.v. Bessi, Sabina, Lív, Andreia, Matthías, Bryndís og Ingibjörg Ólafía myndmenntakennari.
Maðurinn á götunni nefnast verk sem
bandaríski listamaðurinn Seward
Johnson hóf að skapa á níunda ára-
tugnum. Síðan hafa meira en 450
bronsstyttur hans í mannsstærð verið
til sýnis á götum og torgum víða um
heim.
Í vikunni tóku átján slíkar sér stöðu
á víð og dreif á milli 36. og 41. strætis á
Broadway í New York. „Ég vona að New
York-búar verði svolítið hissa, staldri
kannski við um stund, annaðhvort af
því að þeir eru ekki vissir um hvort
stytturnar séu raunverulegar mann-
eskjur eða þeim finnst eitthvað kunn-
uglegt við þær,“ sagði listamaðurinn.
Mannamyndir bandaríska listamannsins Sewards Johnsons
AFP
Kona í innkaupum Sumir létu blekkjast og furðuðu sig á kyrrstöðu konunnar.
Kunnuglegt fólk í New York
Kvikmyndastjarnan Marilyn Monroe.
„Það er engin ástæða til að henda flík-
um og hlutum sem þú þarft ekki leng-
ur á að halda. Við göngum úr skugga
um að nýir eigendur finnist að því sem
þú kemur með.“ Svo mæla þeir sem
standa að svokölluðum swap-markaði
kl. 16-19 miðvikudaginn 1. júlí á Loft
hosteli, Bankastræti 7.
Markaðshaldarar eru Green Mess-
enger, eða Grænu sendiboðarnir, sem
starfa í sjálfboðavinnu á HI-hótelum í
Reykjavík. Hópnum er kappsmál að
vekja fólk til vitundar um umhverf-
isvernd, þ.á m. umhverfisvænan
ferðamáta, og sjálfbærni.
Þeir hyggjast ekki kanna hvað hver
og einn kemur með, heldur er fólki
einfaldlega bent á að setja varninginn
á borðin og taka sér hvaðeina sem
aðrir hafa látið þar. Fólk getur líka
skipst á fötum og bókum augliti til
auglitis.
Grænu sendiboðarnir halda skiptimarkað á Loft hosteli í Bankastræti
Nýtnin í há-
vegum höfð
Morgunblaðið/Kristinn
Skipti Á markaðnum má endurnýja bæði bóka- og fataskápinn.