Morgunblaðið - 29.06.2015, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
bílalakk
frá þýska fyrirtækinu
Ekki bara fyrir fagmenn
líka fyrir þig
Eigum einnig sprautukönnur, réttingahamra, einnota hanska og pensla.
HÁGÆÐA
Opið: 8:
00 - 18:
00
mánud.–
fimmtud
.,
8:00 - 17
:00 föstu
d,
Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta
Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is
Íslenskir keppendur í taekwondo
náðu góðum árangri og unnu til
bronsverðlauna á Evrópumeist-
aramóti unglinga í poomsae í
taekwondo í Belgrad í Serbíu í
gær.
Hákon Jan Norðfjörð, Bartosz
Wiktorowicz og Eyþór Atli
Reynisson hlutu bronsverðlaun í
svokölluðu hópa-poomsae.
Hópa-poomsae er íþrótta-
grein þar sem þrír keppendur
þurfa að sýna flóknar hreyf-
ingar í fullkomnum takti og
samhljómi. Þetta er í fyrsta
skipti sem íslenskir keppendur
vinna til verðlauna á Evrópu-
meistaramóti í greininni og
þetta er þar af leiðandi sagt
vera stór áfangi í sögu íþrótt-
arinnar hér á landi.
Undanfarna daga hafa íslenskir
keppendur tekið þátt í einstak-
lingsflokkum á mótinu og flestir
komist upp úr undanrásum upp í
milliriðla.
Brons í taekwondo á
Evrópumeistaramóti
Ánægðir Hákon J. Norðfjörð, Bartosz Wiktorowicz og Eyþór A. Reynisson.
Tvær tilkynn-
ingar um heim-
ilisofbeldi bárust
lögreglunni á
höfuðborgar-
svæðinu aðfara-
nótt sunnudags.
Auk þess voru
tilkynntar tvær
líkamsárásir. Í
öðru tilvikinu
höfðu þrír menn
barið einn í Austurbænum en árás-
in var yfirstaðin þegar lögregla
kom á vettvang. Hin líkamsárásin
átti sér stað í Vesturbænum, en þar
var maður dreginn út úr bifreið og
laminn. Tilkynnt var um mjög ölv-
aðan og æstan mann í Austur-
bænum og um mjög ölvaða og vím-
aða konu með hávaða og læti í
Grafarholti. Bæði voru vistuð í
fangaklefa lögreglu. Tilkynning
barst um eignaspjöll á veitingastað
í Kópavogi og skömmu síðar var til-
kynnt um þjófnað úr verslun í bæn-
um. Öryggisvörður hafði mann í
tökum þegar lögregla kom á vett-
vang. Viðkomandi var vistaður í
fangageymslu.
Tilkynnt var um tvö innbrot í
Austurbænum, annað í kaffihús og
hitt í skóla. Þá var tilkynnt um
óboðna gesti í sundlaug í Mos-
fellsbæ. Talsverð afskipti þurfti að
hafa af ökumönnum; fimm voru
stöðvaðir vegna gruns um ölvun við
akstur og einn grunaður um akstur
undir áhrifum fíkniefna. Á Miklu-
braut var 17 ára ökumaður tekinn á
150 km hraða auk þess sem 16 ára
ökumaður var stöðvaður. Við hefð-
bundið eftirlit var ökumaður í
akstursbanni jafnframt stöðvaður.
Erilsamt hjá lög-
reglu aðfaranótt
sunnudags
Erill Lögreglan
kom víða við.
Stjórn Vistfræðifélags Íslands
harmar þá stöðu sem komin er upp
vegna úrskurðar meirihluta yfir-
ítölunefndar um að leyfa beri beit á
afrétti Almenninga. Hvetur stjórn-
in stjórnvöld til að beita sér sem
fyrst fyrir því að skapa það lagaum-
hverfi sem þarf til að ná lang-
tímamarkmiðum um verndun nátt-
úrunnar, endurheimt vistkerfa og
sjálfbæra nýtingu gróðurauðlind-
arinnar, jafnt sem annarra nátt-
úruauðlinda.
„Þjóðfélagslegt langtímamark-
mið hlýtur að vera að vinna að
verndun náttúrunnar og sjálfbærri
nýtingu gróðurauðlindarinnar þar
sem byggt er á vísindalegri þekk-
ingu,“ segir í ályktun. Fram kemur
það álit að úrskurðurinn byggist
ekki á bestu fáanlegu þekkingu
fremstu vísindamanna landsins um
gróður- og jarðvegseyðingu og end-
urheimt vistkerfa. Þvert á móti hafi
álit þeirra um að ekki væri tíma-
bært að leyfa beit á svæðinu huns-
að. „Þetta var mögulegt vegna gall-
aðrar löggjafar um landnýtingu og
eignarhald og því vó álit lögfróðra
og hagsmunaaðila þyngra en vís-
indaleg vistfræðileg þekking.“
Skorað á
stjórnvöld
að breyta
Segja vísindalega
þekkingu hunsaða
Morgunblaðið/Einar Falur
Kjölur Rofabarð við fjölfarna ferða-
mannaleið, á Kjalvegi.