Morgunblaðið - 29.06.2015, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Gríma Huld Blængsdóttir er heilsugæslulæknir í Mosfellsbæ oghefur starfað þar í 20 ár. „Það að starfa sem heilsugæslulæknirer krefjandi og fjölskrúðugt, okkar útkallssvæði hér í Mosfells-
læknishéraði nær yfir Mosó, Kjalarnes, Kjós og Þingvelli. Þetta er stórt
svæði og eru íbúar um 12.000 manns. Það hefur verið mjög mikið álag í
allan vetur og mikið að gera á vöktunum hér eins og annars staðar.
Veturinn var harður og það kemur niður á heilsu fólks og það lendir
enn í því að fá pestir þrátt fyrir að það sé langt komið fram á sumar, það
er alveg ótrúlegt.“
Gríma Huld býr ásamt eiginmanni sínum í Reynisnesi í Skerjafirði.
„Reynisnes er hluti af gamla Skildinganesbænum og húsið sem við bú-
um í var reist 1867. Það hefur verið í eigu fjölskyldu mannsins míns í
tvær kynslóðir.“ Eiginmaður Grímu er Eggert Hjartarson, slökkviliðs-
og sjúkraflutningamaður og rafvirki. Þau eiga tvö börn, Láru Ósk, 24
ára, og Gunnar Smára, 22 ára, og eru þau bæði háskólanemar.
Spurð um áhugamál segir Gríma Huld hestamennskuna vera nr. 1, 2
og 10. „Það fer allur tíminn í hana en ég lít ekki á það sem galla því
þetta er svo skemmtilegt.“ Hún er í Hestamannafélaginu Sörla og hefur
tekið þátt í innanfélagsmótum og Svellköldum. „Við ætlum að fara í
hestatúra í sumar þar sem við gátum ekki farið eins mikið og áður á
hestbak í vetur vegna veðurs. Við erum með hesta í sumarbeit hjá vina-
fólki rétt hjá Flúðum og erum mikið þar. Ég vil helst eyða fríinu hér
innanlands og fara á hestbak.“
Á Sörlasvæðinu Gríma Huld með þrjá til reiðar. Frá vinstri: Djásn,
Faxi og Þytur sem er keppnishesturinn hennar Grímu Huldar.
Á kafi í hestamennsku
Gríma Huld Blængsdóttir er 55 ára í dag
R
annveig Ingveldur (Iffa)
fæddist á Bíldudal 29.6.
1920, ólst upp í Reykja-
vík til sjö ára aldurs en
þá flutti fjölskyldan á
Efri-Brunnastaði á Vatnsleysu-
strönd: „Ég tók ástfóstri við Vatns-
leysuströndina og hef ætíð haldið
tryggð hana. Árið 1935 keyptu svo
foreldrar mínir Réttarholt í Soga-
mýri við Reykjavík og þá fluttum við
þangað.“
Rannveig var í skóla á Vatnsleysu-
strönd: „Viktoría Guðmundsdóttir,
skólastjóri þar, kveikti hjá mér náms-
áhugann og opnaði mér sýn á aðra
möguleika í lífinu en þá blöstu yf-
irleitt við ungum konum.“
Rannveig gekk í Flensborgarskól-
ann í einn vetur, tók inntökupróf í
Kennaraskóla Íslands og lauk tveim-
ur árum af þremur, áður en hún gifti
sig, varð ófrísk og hætti námi: „Þá
var ekki til siðs að giftar, hvað þá
ófrískar konur, væru í skóla.“
Rannveig lauk handavinnukenn-
araprófi 1950, kennaraprófi 1951,
Rannveig Löve, sérkennari og kvenréttindakona – 95 ára
Myndarlegur hópur Rannveig með börnum sínum og fjölskyldum þeirra er hún var sæmd fálkaorðinni árið 2011.
„Gef mér það ekki eftir“
Hjónin Rannveig og Guðmundur á góðri stund á áttunda áraugnum.
Ágústa Vala Viðars-
dóttir, Rebekka Rán
Hjálmarsdóttir, Bryndís
Sigurjónsdóttir og Inga
Sóley Viðarsdóttir
héldu tombólu og söfn-
uðu 12.632 krónum fyrir
Rauða krossinn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI