Morgunblaðið - 29.06.2015, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 7990.- m
Vegna afnáms Vörugjalda
nú kr. 6.990 m2
VIÐTAL
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Á mörkum Ameríku og Evrópu ligg-
ur okkar einstaka eldfjallaeyja Ís-
land, lifandi rannsóknarstöð jarðvís-
inda og náttúruperla er á sér fáar
hliðstæður í heiminum. Þau forrétt-
indi að kalla landið okkar og alast
upp innan um stórbrotið landslag
þess hefur mótað þjóðarsálina og án
nokkurs vafa haft áhrif á allt okkar
besta fólk. Við sættum okkur þó
ekki bara við að njóta náttúrunnar,
við viljum skilja hana og þekkja.
Jarðvísindin geta sagt okkur margt
um umhverfi okkar og því ekki að
undra að jarðfræðingurinn Snæ-
björn Guðmundsson hafi leitað inn á
það svið vísindanna. Hann hefur frá
unga aldri haft dálæti á náttúru
landsins en einnig verið trúr þeirri
sannfæringu að þekking sé fyrir alla
og því kennt og nú skrifað almennan
vegvísi um jarðfræði Íslands. Bókin,
sem nýlega kom í verslanir, er í
þægilegu broti, auðveld uppflett-
ingar, fallega myndskreytt og á al-
mennu og auðskiljanlegu máli.
„Verkið var unnið á um þremur
árum þótt hugmyndin hefði fæðst
nokkru fyrr,“ segir Snæbjörn.
„Hugmyndin að bókinni kom til mín
þegar ég var í jarðfræðinámi og átt-
aði mig á því að fátt þessu líkt hefði
verið tekið saman á íslensku fyrir al-
menning. Það hefur vissulega tölu-
vert verið skrifað um jarðfræði en
það er ýmist sérhæfðara efni um
eldvirku svæðin eða almennara, eins
og kennslubækur. Jarðfræðitextar
um ferðamannastaði og helstu jarð-
fræðifyrirbæri eru vissulega til en
eru dreifðir hingað og þangað og
hafa í rauninni hvergi verið teknir
saman í eina handhæga bók. Ætli
það hafi því ekki verið innblásturinn,
að auðvelda fólki að nálgast alla þá
þekkingu sem þegar er til en er ill-
aðgengileg,“ segir hann en vinnsl-
una á sjálfri bókinni segir hann hafa
verið frekar einfalda.
„Þegar hugmyndin lá nokkurn
veginn fyrir var bara að demba sér í
skrifin og byrja einhvers staðar en
ég vann þetta töluvert eftir lands-
hlutunum. Svo hélt ritstjórinn minn
hjá Forlaginu, Örn Sigurðsson, vel
utan um allt verkið og þá hafðist
þetta að lokum.“
Bókin er fjölbreytileg enda af
nægu að taka og segist Snæbjörn
hafa reynt að kalla fram marg-
breytileikann í íslenskri náttúru.
„Ég reyni að gera sem fjölbreytt-
astri jarðfræði skil í bókinni, enda er
jarðfræði Íslands miklu meira en
bara eldfjöll, jöklar og hverir og það
er ekki víst að allir geri sér grein
fyrir margbreytileikanum. Með því
að skoða jarðfræði allra landshluta
fæst hins vegar sjálfkrafa tiltölulega
víð nálgun á viðfangsefnið, því
jarðfræðiflóran er svo mismunandi á
milli svæða. Svona yfirgripsmikil
bók nær samt ekki öllum blæbrigð-
unum og ég gæti alveg nefnt jarð-
myndanir sem hefðu átt heima
þarna en komust ekki á blað í þetta
skipti.“
Þekking býr til væntumþykju
Fræðirit geta verið torlesin fyrir
leikmenn en Snæbjörn segir Vegvís-
inn hafa verið skrifaðan fyrir alla
áhugasama um jarðfræði landsins
og textinn sé almennur og auðskilj-
anlegur. Jafnframt bendir hann á að
bókin eigi fullt erindi til landsmanna
enda auki þekking á væntumþykju,
jarðfræðin er þar ekki undanskilin.
„Þótt jarðfræðirannsóknir séu
augljóslega nauðsynlegar fyrir ís-
lenskt samfélag þurfa í sjálfu sér
fæstir á sérstakri jarðfræði-
þekkingu að halda til að komast lífs
af. Hins vegar gefur þekking á nátt-
úrunni, og þá meðal annars jarð-
fræði og jarðsögu landsins, af sér
meiri umhyggju fyrir landinu og því
sem er sérstakt hér. Þekking býr til
væntumþykju, því okkur þykir vænt
um það sem við þekkjum vel, og ég
held að öll slík umhyggja fyrir nátt-
úrunni sé af hinu góða. Það má jafn-
vel segja að á okkar tímum sé hún
nauðsynleg til að vernda náttúru
landsins og náttúruminjar. Okkur
ber jú að passa upp á þetta allt sam-
an fyrir ófædda Íslendinga næstu
aldirnar, við getum ekki ofnýtt eða
skemmt landið fyrir stundargróða
okkar kynslóða. Þannig held ég að
það sé mikilvægt fyrir okkur að hafa
þekkingu á jarðsögu landsins.“
Þekking á líka að vera almenn og
aðgengileg öllum að sögn Snæ-
björns, ekki lokuð innan lítils hóps
fræðimanna eða fámennra hópa
samfélagsins. „Ja, er vísindaþekking
ekki minna virði ef hún er ætluð
fáum? Þekking hefur vissulega gildi
í sjálfri sér en hún hlýtur að verða
meira virði ef hún er aðgengileg
þeim sem hennar leita. Vandamálið
við þetta er þó að sú þekking sem
verður til hjá fræðimönnum er oft
ákaflega sérhæfð og illskiljanleg
fyrir fólk nema það hafi sérþekkingu
á málinu. Það er því nauðsynlegt að
hafa fólk öllum stundum í því að
túlka og miðla nýrri þekkingu til al-
mennings. Það sést reyndar vel á
viðbrögðum í samfélaginu að fólk er
mjög ánægt með góða vísinda-
miðlun, og má þar til dæmis benda á
viðburði hjá Stjörnuskoðunarfélag-
inu sem vekja alltaf lukku. Þetta
skilar sér allt til almennings.“
Gefum náttúrunni grið
Snæbjörn nálgast náttúruna
hvort tveggja í senn með hætti vís-
indamannsins en einnig sem áhuga-
maður og unnandi þess sem landið
býður upp á. Þannig telur hann að
verndun náttúru Íslands geti ekki
bara verið tilfinningamál heldur
einnig vísindaleg og rökfræðileg
nálgun.
„Umgengnin um landið er alltaf
umhugsunarefni og ef við lítum til
jarðmyndana þá eru þær oft við-
kvæmar fyrir átroðningi. Myndun
þeirra tekur oftar en ekki langan
tíma og jarðfræðiatburðirnir sem
skapa þær eru margir sjaldgæfir. Í
því sambandi mætti til dæmis nefna
Rauðhóla, sem eru gamlir gervigíg-
ar. Eyðilegging þeirra var sér-
staklega alvarleg því við getum ekki
búist við að sjá slíka myndun verða
aftur til á okkar tíð. Hvað virkjana-
framkvæmdir varðar þá tel ég að
þar séum við komin að ákveðnum
þáttaskilum, þótt orkufyrirtækin og
stjórnvöld telji kannski annað. Núna
verður mönnum tíðrætt um virkj-
anir í neðri hluta Þjórsár en það
væru heldur hraklegar fram-
Vísindamiðlun vekur
Jarðfræðingurinn Snæbjörn Guð-
mundsson hefur gefið út Vegvísi um
jarðfræði Íslands Bók á almennu máli
um öll helstu jarðfræðiundur landsins