Morgunblaðið - 29.06.2015, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Svíarnir Anders Roslund ogBörge Hellström hafaskrifað góðar bækur umvond mál og glæpasagan
Auga fyrir auga er sú langbesta frá
þeim sem komið hefur út á íslensku.
Að undanförnu er eins og brostið
hafi stífla og hver glæpasagan á fæt-
ur annarri hefur komið út. Hið besta
mál, en spennusaga stendur ekki
alltaf undir nafni og það verður að
segjast eins og er að meðal-
mennskan hefur verið áberandi á
þeim vettvangi upp á síðkastið,
miðjuþóf, eins og þeir segja í fótbolt-
anum, en þó með góðum sprettum
inn á milli. Því er það sem besta
sumarkoma að fá bók á borð við
Auga fyrir auga, því þetta bók-
menntaverk áréttar að þegar
spennusagnahöfundar standa sig
ágætlega sóma verk þeirra sér vel á
meðal fagurbókmennta. Auga fyrir
auga er meistarastykki, sem enginn
blettur fellur á.
Flestum er hulið hvað það er sem
fær mann til þess að myrða aðra
manneskju og fæstir skilja mismun-
andi refsingar við
morði. Sinn er
siður í hverju
landi, en það er í
þessu eins og
ýmsu öðru að
undirgefnin er
ríkjandi. Eða eins
og höfundar
Auga fyrir auga
skrifa: „Örfáir dagar og sænska rík-
isstjórnin hafði látið undan. Lítið og
vesælt land sem pissaði í buxurnar
um leið og stóru strákarnir byrstu
sig.“ (bls. 376)
Auga fyrir auga er mjög vel skrif-
uð bók. Höfundar hugsa fyrir hverju
smáatriði og tilgangurinn helgar
meðalið. Hvergi er dauður punktur
og samfara töluverðri spennu er
fjallað um mjög svo umdeilt laga-
ákvæði, sem tekist er á um víða um
heim. Þetta er ekki aðeins glæpa-
saga heldur samtímasaga, þar sem
spurt er siðferðislegra spurninga,
leitað svara hjá yfirvöldum, fjöl-
skyldum og einstaklingum og þeim
svarað á óyggjandi hátt.
Lífið er ekki einfalt og í þessari
sögu er bent á hið augljósa að ekkert
er öruggt nema dauðinn. Hann birt-
ist bara í ýmsum myndum. Helstu
persónur bregðast misjafnlega við
honum og þeim er vel lýst sem og
innri baráttu þeirra. Auga fyrir auga
er átakanleg glæpasaga, vel skrifuð
og vel þýdd. Hvergi er veikur hlekk-
ur. Þetta er einfaldlega besta
spennu- og glæpasagan, sem komið
hefur út hérlendis í ár.
Ljósmynd/Peter Knutson
Langbest Auga fyrir auga er langbesta glæpasagan sem komið hefur út á
íslensku eftir sænsku rithöfundana Anders Roslund og Börge Hellström.
Öllu fórnað
fyrir réttlætið
Glæpasaga
Auga fyrir auga bbbbb
Eftir Anders Roslund og Börge Hell-
ström. Sigurður Þór Salvarsson þýddi.
Kilja. 473 bls. Veröld 2015.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Entourage 12
Kvikmyndastjarnan Vincent
Chase er snúin aftur ásamt
Eric, Turtle, Johnny og fram-
leiðandanum Ari Gold.
Metacritic 38/100
IMDB 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40, 20.00, 20.00, 22.30,
22.30, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 20.00
She’s Funny
That Way 12
Gleðikonuna Isabellu (Imo-
gen Poots) dreymir um að
gerast leikkona á Broadway.
Metacritic 54/100
IMDB 6,3/10
Laugarásbíó 20.00
Smárabíó 22.40
Jurassic World 12
Á eyjunni Isla Nublar hefur
nú verið opnaður nýr garður,
Jurassic World..
Metacritic 59/100
IMDB 7,6/10
Laugarásbíó 20.00, 22.35
Sambíóin Álfabakka 17.20,
17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.35
Sambíóin Keflavík 22.20
Smárabíó 20.00, 22.10
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Tomorrowland 12
Metacritic 60/100
IMDB 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.00
Sambíóin Akureyri 17.30
Spy 12
Susan Cooper í greiningar-
deild CIA er í rauninni hug-
myndasmiður hættulegustu
verkefna stofnunarinnar.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 84/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 22.00
Smárabíó 17.30, 20.00,
22.30
Mad Max:
Fury Road 16
Eftir að heimurinn hefur
gengið í gegnum mikla eyði-
leggingu er hið mannlega
ekki lengur mannlegt. Í
þessu umhverfi býr Max, fá-
máll og fáskiptinn bardaga-
maður.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 88/100
IMDB 9,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Akureyri 22.30
San Andreas 12
Jarðskjálfti ríður yfir Kali-
forníu og þarf þyrluflug-
maðurinn Ray að bjarga
dóttur sinni.
Metacritic 43/100
IMDB 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 22.10
Sambíóin Kringlunni 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00
Hrútar 12
Bræðurnir Gummi og Kiddi
hafa ekki talast við áratug-
um saman.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 83/100
IMDB 8,2/10
Laugarásbíó 16.00, 18.00
Smárabíó 15.30
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.10
Borgarbíó Akureyri 17.50
Bakk Tveir æskuvinir ákveða að
bakka hringinn í kringum Ís-
land til styrktar langveikum
börnum. Bönnuð yngri en
sjö ára.
Morgunblaðið bbbbn
Háskólabíó 18.00
Bíó Paradís 18.00
Fúsi
Bíó Paradís 18.00
1001 Grams
Bíó Paradís 18.00, 20.00
The New Girlfriend
Bíó Paradís 20.00
Human Capital
Bíó Paradís 22.15
Vonarstræti
Bíó Paradís 20.00
Citizenfour
Bíó Paradís 22.00
Hross í oss
Bíó Paradís 22.30
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Kjaftfori og hressi bangsinn Ted er snúinn
aftur. Nú er hann nýbúinn að kvænast
kærustu sinni Tammy-Lynn og gengur
með þann draum að verða faðir.
Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30
Smárabíó 17.15, 17.15, 20.00, 20.00, 22.30, 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00, 22.20
Ted 2 12
Tómas er ungur maður sem
ákveður að elta ástina sína vestur
á firði. Hann leggur framtíðarplön
sín á hilluna og ræður sig í sum-
arvinnu hjá Golfklúbbi Bolung-
arvíkur.
Morgunblaðið bbbmn
Smárabíó 17.45, 20.00
Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.15
Albatross 10
Eftir að ung stúlka flytur á nýtt heimili fara tilfinningar hennar í
óreiðu þegar þær keppast um að stjórna huga hennar.
Metacritic 91/100
IMDB 9,0/10
Laugarásbíó 17.00
Sambíóin Álfabakka
15.40, 15.40, 17.50, 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00
Sambíóin Kringlunni
17.50, 17.50, 20.00
Sambíóin Akureyri 17.45
Smárabíó 15.20, 15.30,
17.45
Inside Out VÍKKAÐU HRINGINN
Morgunblaðinu er það mikilvægt að sýna lesendum hlutina
í víðara samhengi. Fram undan er spennandi sumar fyrir
áskrifendur Morgunblaðsins vítt og breitt um landið.
Í dag sýnum við hvað framtíðin ber í skauti sér
fyrir einn af áskrifendum okkar.
Allir áskrifendur Morgunblaðsins
eru með í áskriftarleiknum.
Fylgstu með þegar við drögum út
vinningshafann þann 17. júlí.