Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Síða 3
LANGVERST ÁVÖXTUN
Í LANDSBANKANUM
miðvikudagur 11. mars 2009 3Fréttir
„Ég var í miðri vörn fyrir Íbúða-
lánasjóð í mjög harðri snerru, um
það bil sem ég var kosinn á þing
vorið og sumarið 2007,“ segir Árni
Páll Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar. Hann starfaði lengi
sem lögmaður fyrir Íbúðalánasjóð,
þar sem hann sérhæfði sig í evr-
ópumálum, og hélt því áfram um
skamman tíma eftir að hann varð
þingmaður. Forstjóri Íbúðaláana-
sjóðs segir að vegna sérþekkingar
Árna Páls hjá sjóðnum hafi reynst
nauðsynlegt að hann kláraði þau
verkefni sem þá voru í gangi.
Viðskiptabankarnir kærðu
sjóðinn
Árni Páll segir að Árni Magnús-
son, þáverandi félagsmálaráð-
herra Framsóknarflokksins, hafi
árið 2003 óskað eftir áliti hans sem
lögmanns í kjölfar þess að við-
skiptabanarnir fóru að undirbjóða
húsnæðislán Íbúðalánasjóðs.
Bankarnir héldu þá fram að starf-
semi Íbúðarlánasjóðs bryti gegn
ríkisaðstoðarreglum EES-samn-
ingsins. „Niðurstaða mín var sú að
starfsemi sjóðsins stæðist þessar
reglur,“ segir Árni Páll.
Í framhaldinu var honum falið
að vinna tilkynningu til Eftirlits-
stofnunar EFTA (EES) fyrir þáver-
andi ríkisstjórn. Sem kunnugt er
kærðu viðskiptabankarnir starf-
semi sjóðsins til ESA og hófst stöð-
ugur málarekstur sem stóð með
litlum hléum til október 2008 þeg-
ar bankakerfið hrundi. Árni Páll
segir að þá hafi öllum orðið end-
anlega ljóst á hversu veikum mál-
efnagrunni kröfur bankanna stóðu
og hversu illa búnir þeir voru til að
rækja hlutverk sem lánveitandi á
íbúðalánamarkaði.
Lauk störfum í árslok 2007
Árni Páll segir að síðustu greiðslur
sem hann fékk frá Íbúðalánasjóði
voru ferðakostnaður og laun vegna
fundaferðar til Brussel í septemb-
er 2007 að upphæð 158 þúsund.
Auk þess sinnti hann rúmlega 180
klukkustunda vinnu fyrir sjóðinn
seinni hluta ársins 2007 og fékk fyr-
ir það greidda 1,5 milljón króna.
Þar af voru tæplega 330 þúsund
krónur, sem samsvarar vinnu fyr-
ir 39,5 stunda vinnu eftir að þing
kom saman 1. október 2007.
„Frá árslokum 2007 hef ég ekki
unnið fyrir Íbúðalánasjóð, að öðru
leyti en því að ég hef veitt forstjóra
hans ókeypis ráð þegar hann hef-
ur leitað til mín vegna einstakra
vandamála sem upp hafa komið
og tengjast mínum fyrri störfum,“
segir Árni Páll.
Ekki hagsmunatengsl
Guðmundur Bjarnason, forstjóri
Íbúðalánasjóðs, lítur ekki svo á að
um hagsmunatengsl hafi verið að
ræða þótt Árni Páll hafi starfað fyr-
ir sjóðinn eftir að hann var orðinn
þingmaður. „Auðvitað getur svona
lagað verið álitamál en ég álít það
ekki vera svo í þessu tilfelli. Þarna
var hann að klára verkefni sem
tengdust hans sérfræðiþekkingu.
Hann var auðvitað búinn að starfa
hér í nokkur ár og var þarna að
ljúka því starfi,“ segir hann.
Guðmundur bendir á að mikil-
vægt hafi verið fyrir Íbúðalánasjóð
að starfsmaður með þekkingu á
málefninu sinnti starfinu.
Engar reglur eru um að þing-
menn skuli ekki sinna öðrum störf-
um meðfram þingmennskunni.
Ráðgjafastörf síðasta sumar
Þau verkefni sem hann hafði áður
með höndum fyrir Íbúðalánasjóð
voru falin erlendum lögmanni
sumarið 2008. „Þá var óskað eft-
ir því við mig af hálfu Íbúðalána-
sjóðs og fjármálaráðuneytisins að
ég myndi veita hinum erlenda lög-
manni ráðgjöf eftir því sem hann
teldi nauðsyn á enda þá ennþá
mjög tvísýnt um örlög Íbúðalána-
sjóðs.
Ég aðstoðaði erlenda lögfræði-
fyrirtækið með ráðgjöf, bréfaskrif-
um, greiningum og undirbúningi
funda að þessu leyti í september
og október 2008. Heildarreikning-
ur vegna þeirrar þjónustu og ferð-
ar til Brussel vegna funda var 7.292
evrur,“ segir Árni Páll.
Miðað við gengi Seðlabankans
var evran 150 krónur um miðjan
október. Greiðslurnar frá lögfræði-
fyritækinu hafa því numið rúmri
milljón.
Árni Páll Árnason hélt áfram störfum hjá Íbúðalánasjóði um hríð
eftir að hann settist á þing. Síðasta sumar þáði hann greiðslur
fyrir ráðgjafastörf tengd sjóðnum fyrir á aðra milljón. Haustið
áður fékk hann síðan tæpar tvær milljónir í laun frá sjóðnum. Þá
var hann þegar starfandi þingmaður.
Engar reglur eru um að þingmenn
skuli ekki sinna öðrum störfum
meðfram þingmennskunni.
Áfram hjá Íbúðalánasjóði
Árni Páll Árnason fékk tæpar tvær
milljónir í laun frá Íbúðalánasjóði
haustið 2007. Hann var kjörinn á
þing þá um vorið.
Mynd EggERt JóhannEsson
„Auðvitað getur svona
lagað verið álitamál
en ég álít það ekki vera
svo í þessu tilfelli.“
FÉKK MILLJÓNIR Í
AUKAGREIÐSLUR
ERLa hLynsdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Landsbankinn
taP
31,5 %
borgað út
68,5 %
gLitniR / ÍsLandsbanki
borgað út
85,12 %
taP
14,88%
kaUPÞing
borgað út
85,3 %
taP
14,7 %
LÍfEyRissJóðUR Landsbankans
fJÁRfEsti Í sJóði Eigin banka
Hlutfall peningamarkaðsbréfa*
Líf 1 31,7%
Líf 2 25,9%
Líf 3 18,3%
Líf 4 20,1%
Heildartap á sjóðnum: 2,75 milljarðar
*Hlutfall heildareigna Íslenska lífeyrissjóðsins eftir sparnað-
arleiðum í peningamarkaðssjóði Landsbankans
Mótmæli Í kjölfar bankahrunsins
dundu mótmæli á Landsbankanum
og var krafist brottvikningar þáver-
andi bankastjóra, Elínar sigfúsdóttur.