Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Qupperneq 15
miðvikudagur 11. mars 2009 15Umræða Hver er konan? „konan er sunna dís másdóttir, meistaranemi í hagnýtri menningarmiðlun og rómantísk sál.“ Hvað drífur þig áfram? „aðeins of mikil framkvæmdagleði.“ Hvar ertu alin upp? „Ég er reykjavíkurmær í húð og hár.“ Áhugamál? „klárlega ástin, bókmenntir, kvikmyndir og margt fleira.“ Hvaða bók lastu síðast? „atóm- stöðina eftir Halldór Laxness.“ Trúir þú á ást við fyrstu sýn? „Já, það geri ég svo sannarlega.“ Hefur þú fengið eða skrifað ást- arbréf? „sjálf hef ég skrifað ástarbréf og samkvæmt minni skilgreiningu á ástarbréfum, það er að segja email-um og sms-um, svokölluðum nútímaástarbréfum, hef ég fengið alveg helling af þeim.“ Hvernig gengur að safna ástarbréfum? „söfnunin var að fara af stað og virðist fólk taka vel í hana. Ég vaknaði til dæmis í morgun við símtal frá eldri manni sem lumar á yfir 300 síðum af ástarjátningum sem hafa farið á milli hans og konunnar hans.“ Eru Íslendingar rómantískir? „Ég held það, þó þeir vilji ekki alltaf kannast við það svona opinberlega.“ Hvert á að senda ástarbréfin? „Fólk getur sent bréf með hefð- bundnum hætti á Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Handritadeild, arngrímsgötu 3, 107 reykjavík. Tölvupósta, Facebook- skilaboð, sms-skeyti eða önnur rafræn ástar-skilaboð má senda á netfangið astarbrefoskast@gmail. com. Fólk er ekki skyldugt til að gefa upp fullt nafn og kennitölu með bréfunum.“ Hver er draumurinn? „skamm- tímadraumurinn er að fá gommu af ástarbréfum sem við getum varðveitt fyrir komandi kynslóðir.“ Ertu sátt/ur við störf íslEnsku ríkisbankanna? „Nei, ég er ekki alveg sátt við þá.“ KrisTrún JónsdóTTir 17 ára Nemi „Nei, ég get ekki sagt það.“ Guðrún MarÍa PÁlsdóTTir 18 ára Nemi „Nei, alls ekki. Ég vil geta afskrifað skuldirnar mínar eins og þeir. Þeir lokuðu líka sérreikningum, peningasjóðum og fleiru.“ ErlinG Þór KrisTJÁnsson 29 ára aTviNNuLaus „Nei. Þeir geta afskrifað skuldirnar sínar en við getum ekki afskrifað okkar.“ ósKar FrEyr JúlÍusson 22 ára TækNimaður HJá vodaFoNe Dómstóll götunnar sunna dÍs MÁsdóTTir, meistaranemi í hagnýtri menningar- miðlun, er í samstarfi við Landsbóka- safn Íslands um að safna ástarbréf- um, ástarjátningum á tölvupósti og sms-um Íslendinga. markmiðið er að setja upp sýningu í miðbænum í samráði við eigendur bréfanna. Hefur fengið Helling af ástarbréfum „Nei. Ég skil ekki hvernig þeir geta afskrifað skuldir sínar og skilið þær eftir í gamla bankanum á meðan almenningur þarf að halda áfram að borga sínar skuldir.“ ninna sTEFÁnsdóTTir 20 ára versLuNarkoNa maður Dagsins Stórmerkileg kona, óháður rann- sóknardómari í Frakklandi, sat í Silfri helgarinnar og jós yfir landslýð merkum sannindum: Gangi skvett- urnar nærri valdhöfum bregðast þeir við með tregðu. Í barnaskap okkar trúðum við spillingarkönn- uninni frægu sem sagði hér ekkert slíkt. Og í svipuðu skapi vonumst við eftir iðrun og játningu auð- mannanna, jafnvel endurgreiðsl- um. Auðvitað er efnahagsbrota- deild lögreglunnar í fjársvelti og landhelgisgæzlan látin ganga fyrir. Og vitaskuld andæfa menn kostn- aði við stjórnlagaþing og vilja frek- ar tónlistarhús. Kvarta um tíma- skort þegar persónukjör ber á góma en tuða fram og aftur um ríkisfang seðlabankastjóra. Yfirbót bankahrunsins er ósönn og vilji til uppgjörs takmarkaður. Áðurnefnd kona áréttaði samt mjög nauðsyn þess að gera upp banka- hrunið til að forðast áframhaldandi siðspillingu og bauð enn fremur að- stoð. Steingrímur hlýtur að þiggja það. En siðspillingin var ekki bara í stjórnum bankanna. Lífeyrissjóðir, eða öllu heldur forsvarsmenn þeirra, virðast vísvitandi hafa beitt blekkingum samhliða því að maka sjálfir krókinn. Sem lausn liggur einn lífeyrissjóður allra landsmanna beinast við. Og sá á ekki að vera handbendi fjárglæframanna né sjálftökusjóður heldur einungis hafa það markmið að gæta hagsmuna sjóðfélaga. Séreignasjóðir gætu þess vegna starfað samhliða og opnir þeim sem vilja leggja umfram til hliðar. Framsóknarflokkurinn flaggar 20% flatri afskrift húsnæðislána. En mennirnir eru margir og lánsupphæðirnar einnig. Þetta færir fólki því mjög mismunandi niðurfellingar í krónum talið og ekki gerður greinarmunur á þörf og nauðsyn. Augljóslega reynir þessi leið líka mjög á ríkiskassann. En eitthvað verður að gera þeim til hjálpar sem dýpst eru sokknir í skuldafenið og tillögur um nýjar viðmiðanir lána hlýtur að vera hægt að útfæra skynsamlega. Einnig hafa menn nefnt skerðingu eignahlutfalls íbúða sem léttir greiðslubyrði en gerir fólki kleift að búa áfram í húsum sínum. Lausnir eru til og valdhöfum ekkert að vanbúnaði. Tregðulögmálið kjallari svona er íslanD 1 Tryggvi fékk kúlulán einkahlutafélag í eigu þáverandi forstjóra fjárfestingabankans askar Capital, Tryggva Þórs Herbertssonar, fékk 150 milljóna kúlulán frá bankanum til að kaupa hlutabréf í bankanum sjálfum árið 2007. 2 spáði fyrir um brotthvarf ingibjargar völva dv spáði því um áramót að ingibjörg sólrún gísladóttir myndi hætta í stjórnmálum af persónulegum ástæðum. 3 Áttræð ofurfyrirsæta rakar inn fé Ferill bresku fyrirsætunnar daphne selfe spannar sextíu ár og hún er hvergi nærri hætt. 4 langveikum dreng neitað um styrk guðrúnu Lilju Hermannsdóttur, móður sjö ára langveiks drengs, var neitað um styrk frá kópavogsbæ. 5 Miklu stærri gjalddagi í maí samkvæmt heimildum dv stóð straumur frammi fyrir miklu stærri gjalddaga í maí. 6 svikull miðill krafinn um bætur Charles silveira 38 ára Bandaríkjamaður frá Long island hefur höfðað mál á hendur miðlinum ava miller. 7 Tók á móti kúnnum Jóhannes Jónsson, eigandi Bónuss, stóð vaktina á laugardaginn við opnun nýjustu Bónusverslunarinnar á korputorgi í mosfellsbæ. mest lesið á dv.is lÝður Árnason heilbrigðisstarfsmaður skrifar „Gangi skvetturnar nærri valdhöfum bregðast þeir við með tregðu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.