Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Blaðsíða 16
miðvikudagur 11. mars 200916 Ættfræði
Manfreð Vilhjálmsson
arkitekt
Manfreð Vilhjálmsson arkitekt hlaut
heiðursverðlaun menningarverð-
launa DV á miðvikudaginn var.
Starfsferill
Manfreð fæddist í Sunnudal á Skild-
inganesi. Hann stundaði nám í húsa-
smíði 1944-52, lauk stúdentsprófi frá
MR 1949 og lauk prófi í arkitektúr
frá Chalmers Tekniska Högskola í
Gautaborg 1954.
Manfreð vann hjá arkitektunum
Sven Brolid og Jan Wallinder í Gauta-
borg 1954-55, á Teiknistofu Skarp-
héðins Jóhannssonar 1955-59, rak
eigin teiknistofu 1959-67, rak teikni-
stofu með Þorvaldi S. Þorvaldssyni
arkitekt 1967-84, rak eigin teiknistofu
1984-95, starfrækti, ásamt Árna Þór-
ólfssyni og Steinari Sigurðssyni, stof-
una Manfreð Vilhjálmsson – Arki-
tektar ehf, frá 1996 sem sameinaðist
síðan stofu sem nú heitir VA Arki-
tektar þar sem Manfreð starfar enn.
Manfreð var formaður Húsa-
meistarafélags Íslands 1965 og 1966.
Manfreð teiknaði m.a. Nesti í
Reykjavík og á Akureyri, skrifstofu-
hús fyrir Vegagerð ríkisins á Sauð-
árkróki, Ísafirði og Selfossi, og ásamt
Þorvaldi S. Þorvaldssyni að hluta
Þjóðarbókhlöðuna, Skálholtsskóla
og Árbæjarkirkju og safnaðarheim-
ili. Þá teiknaði hann mannvirki við
Kröfluvirkjun, skólahús að Stóru-
Tjörnum, Reykjum og Eiðum, Bú-
staðavegarbrú yfir Kringlumýrar-
braut ásamt Ríkharði Kristjánssyni,
teiknaði endurbyggingu Höfða og
skipulagði Fossvog með Gunnlaugi
Halldórssyni og Guðmundi Kr. Krist-
inssyni.
Manfreð hlaut fyrstu verðlaun
1963 fyrir skipulag miðbæjar Akur-
eyrar ásamt Gunnlaugi Halldórs-
syni, verðlaun fyrir kirkju á Mosfelli
ásamt Guðmundi Kr. Kristinssyni
og önnur verðlaun 1986 fyrir teikn-
ingu að nýbyggingu Alþingis. Hann
hlaut heiðursverðlaun fyrir sýning-
arbás á Iðnsýningunni í Laugardals-
höll 1960, menningarverðlaun DV
1980 og 1988 og var sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
1996.
Fjölskylda
Manfreð kvæntist 6.8. 1952 Ernu Sig-
urjónsdóttur, f. 10.5. 1929, fyrrv. odd-
vita Bessastaðahrepps. Foreldrar
hennar: Sigurjón Danivalsson, fram-
kvæmdastjóri í Hveragerði, og Sól-
veig Lúðvíksdóttir húsmóðir.
Börn Manfreðs og Ernu eru Sól-
veig, f. 26.8. 1954, tækniteiknari; Vil-
hjálmur Már, f. 10.10. 1957, véltækni-
fræðingur, en kona hans er Jóhanna
Diðriksdóttir; Gunnhildur, f. 4.7.
1961, bókasafnsfræðingur, en mað-
ur hennar er Einar Rúnar Axelsson;
Sigurjón Már, f. 27.10. 1963, flugum-
ferðarstjóri, en kona hans er Svandís
Tryggvadóttir; Valdís Fríða, f. 17.2.
1968, læknir, en maður hennar er
Lárus Jónsson.
Systur Manfreðs: Steinunn, f. 1.5.
1930, d. 31.10. 1996, ritari við Seðla-
bankann; Karen, f. 4.1. 1934, fyrrv.
kennari í Reykjavík.
Foreldrar Manfreðs voru Vil-
hjálmur Jónsson, f. 31.5. 1901, d. 10.7.
1927, húsasmíðameistari í Reykja-
vík, og Marta Ólafsdóttir, f. 3.6. 1894,
12.11. 1983, húsmóðir.
Ætt
Vilhjálmur var sonur Jóns, b. á Skarði
í Gnúpverjahreppi, bróðir Matthí-
asar, föður Haralds, fyrrv. mennta-
skólakennara á Laugarvatni, föð-
ur Haralds, fyrrv. alþm., föður Ólafs
fjallgöngugarps. Jón var sonur Jóns,
b. á Skarði Gíslasonar, b. á Hæli
Gamalíelssonar, bróður Gests, lang-
afa Steinþórs Gestssonar, fyrrv. al-
þingismanns á Hæli, föður Gests,
skattstjóra í Reykjavík. Gestur var
einnig langafi Einars Ingimundar-
sonar, fyrrv. alþm., og Helgu, móð-
ur Benedikts Sveinssonar hrl., föður
Bjarna alþm. Móðir Jóns Jónssonar
var Steinunn, systir Rósu, langömmu
Alfreðs Flóka. Steinunn var dóttir
Matthíasar, b. á Miðfelli, bróður Ein-
ars, langafa Jóhanns, föður Haralds,
hagfræðings. Matthías var sonur
Gísla, b. á Sóleyjarbakka Jónssonar,
b. á Spóastöðum Guðmundssonar,
ættföður Kópsvatnsættar Þorsteins-
sonar.
Móðir Vilhjálms var Steinunn
Jónsdóttir, b. á Hurðarbaki á Skeið-
um Guðnasonar, og Aldísar, syst-
ur Ingigerðar, langömmu Þorgerðar
Ingólfsdóttur söngstjóra. Aldís var
dóttir Þorsteins, smiðs á Vorsabæ
Jörundssonar, smiðs á Laug Illuga-
sonar, Skálholtssmiðs Jónssonar.
Marta var dóttir Ólafs, b. á Hrísa-
koti í Helgafellssveit Ólafssonar, b. á
Stóra-Vatnshorni í Haukadal, bróð-
ur Ingibjargar, langömmu Gunnars
Símonarsonar, föður Rúnars arki-
tekts og Halls Símonarsonar blaða-
manns, föður Halls, fyrrv. frétta-
manns. Ólafur var sonur Halls, b.
á Stóra-Vatnshorni Hallssonar, og
Margrétar Árnadóttur, b. á Stóra-
Vatnshorni Jónssonar, fræðimanns á
Stóra-Vatnshorni Egilssonar.
Móðir Mörtu var Málfríður, systir
Bjarna, langafa Magnúsar Jóhannes-
sonar, fyrrv. siglingamálastjóra. Mál-
fríður var dóttir Jónasar, b. á Magn-
úsarfjósum í Flóa Hannessonar, og
Margrétar Bjarnadóttur, b. á Stóra-
Hálsi í Grafningi Kolbeinssonar.
Einar fæddist á Akranesi
og ólst þar upp. Hann var í
Brekkubæjarskóla og Hér-
aðsskólanum að Reykjum
í Hrútafirði og stundaði
nám við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti.
Einar stundaði sjó-
mennsku á bátum og tog-
urum víðs vegar um land
um árabil. Þá hefur hann stundað
byggingarvinnu víða um land en
þó lengst af í Reykjavík. Auk þess
stundaði hann byggingarvinnu og
starfaði við sendibílaþjónustu í
Danmörku í níu ár. Hann hefur nú
starfað hjá Norðuráli í tæp þrjú ár.
Fjölskylda
Eiginkona Einars er Sigrún Jóhann-
esdóttir, f. 8.11. 1970, hjúkrunar-
fræðingur við Landspítal-
ann.
Dóttir Einars er Sig-
ríður Bára Einarsdóttir, f.
31.7. 1991, nemi við MH.
Börn Einars og Sig-
rúnar eru Ólöf Ósk Ein-
arsdóttir, f. 28.10. 1995;
Jón Ingvi Einarsson, f. 1.8.
2000; Jóhannes Einars-
son, f. 16.8. 2003.
Systkini Einars eru Valtýr Berg-
mann Benediktsson, f. 28.8. 1975,
þjónn hjá Fiskmarkaðnum; Ka-
ren Edda Benediktsdóttir, f. 17.12.
1982, nemi í stjórnmálafræði.
Foreldrar Einars eru Benedikt
Valtýsson, f. 20.7. 1946, vélvirki hjá
Norðuráli, og Sigríður Bára Ein-
arsdóttir, f. 18.1. 1947, gjaldkeri hjá
Iceland Seafood.
Stefán fæddist á Efra-Ási í
Hjaltadal og ólst þar upp í
foreldrahúsum. Hann var
í Grunnskólanum á Hól-
um og Varmahlíðarskóla
og stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki.
Stefán ólst upp við öll
almenn sveitastörf í æsku
og á unglingsárunum. Hann stund-
aði sjómennsku á bátum og tog-
urum frá Sauðárkróki í fjögur ár,
stundaði vinnumennsku í Skaga-
firði, var í Efra-Ási við landbúnaðar-
störf 2004-2007, vann hjá ÞS Verk-
tökum á Austurlandi 2007-2008 og
hefur verið sjálfstæður verktaki frá
sl. vori.
Stefán hefur stundað minkaveið-
ar í nokkur ár.
Fjölskylda
Eiginkona Stefáns er Þóra
Dögg Reynisdóttir, f. 14.4.
1979, húsmóðir.
Börn Stefáns og Þóru
Daggar eru Silja Ösp Stef-
ánsdóttir, f. 9.11. 1999;
Selma Björk Þórudóttir, f.
1.10. 2004; Örn Ægir Stef-
ánsson, f. 13.2. 2007.
Systkini Stefáns eru Pétur Sverr-
isson, f. 18.7. 1963, pípulagninga-
maður í Reykjanesbæ; Sigrún Sverr-
isdóttir, f. 8.5. 1965, húsfreyja að
Kjarna í Eyjafirði; Árni Sverrisson, f.
24.10. 1969, bóndi í Efra-Ási.
Foreldrar Stefáns eru Sverr-
ir Magnússon, f. 20.6. 1942, fyrrv.
bóndi í Efra-Ási, og Ásdís Péturs-
dóttir, f. 17.10. 1943, fyrrv. bóndi í
Efra-Ási.
Einar Benediktsson
liðsstjóri hjá Norðuráli
Stefán Ásgrímur Sverrisson
verktaki á sauðárkróki
Þórdís Lilja Bergs, sem er þrítug í
dag, fæddist á Akureyri og ólst þar
upp, flutti síðan suður fyrir átta
árum en hefur stundað nám í hag-
fræði, heimspeki og stjórnmálafræði
á Bifröst sl. þrjú ár. Unnusti hennar,
Georg Heiðar Ómarsson, stundar
sama nám á sama stað en þau eiga
von á erfingja þann 8. maí nk.
„Barnið verður náttúrlega aðal-
afmælisgjöfin þegar það kemur, en
hátíðahöld afmælisdagsins taka
óneitanlega mið af því að ég er ólétt
og langt gengin með. Á afmælisdag-
inn ætlum við, ég og unnusti minn,
niður á Akranes að skoða aðstæður
til fæðingar á sjúkrahúsinu þar. Síð-
an skreppum við til Reykjavíkur þar
sem ég fer í þrívíddarsónar sem vin-
kona mín, hún Ásta Kristín Hólm-
kelsdóttir, sem er líka að læra hér á
Bifröst, var svo elskuleg að gefa mér
í afmælisgjöf. Þannig fær maður að
kíkja aðeins í aðalafmælispakkann
á afmælisdaginn,“ segir Þórdís Lilja
alsæl. Móðir Þórdísar býður þeim
Georg svo út að borða í höfuðstaðn-
um um kvöldið, en faðir Þórdísar
verður því miður fjarri góðu gamni
við skyldustörf á Akureyri.
„Það má nú reyndar koma hér
fram að mamma hélt frábærar af-
mælisveislur fyrir mig þegar ég var
krakki. Þá voru Smjattpattarnir í
miklu uppáhaldi og mamma bakaði
Smjattpattakökur sem gerðu alltaf
mikla lukku.“
En hvernig leggst það í Þórdísi
Lilju að komast á fertugsaldurinn?
„Alveg svakalega vel. Ég er eig-
inlega búin að bíða eftir þessu af-
mæli í mörg ár. Ég hef einhvern veg-
inn bitið það í mig að þegar maður
verður þrítugur byrji lífið fyrst fyrir
alvöru. Hvers vegna mér finnst þetta
er auðvitað aukaatriði. Aðalatriðið
er að vera ánægður með lífið og til-
veruna og hafa trú á framtíðinni.“
40 ára í dag 30 ára í dag
Fær þrívíddarsónar í afmælisgjöf:
ólétt og alsæl á Bifröst
30 ára
n Kristín Sif Ómarsdóttir Þorláksgeisla 43, Reykjavík
n Edyta Dziarnowska Suðurhólum 20, Reykjavík
n Tomasz Romanowski Heiðarbóli 4d, Reykjanesbæ
n Ingi Þór Hallgrímsson Vallargötu 14, Sandgerði
n Sigurður Sigurðsson Birkihlíð 17, Vestmannaeyjum
n Heimir Hilmarsson Helluvaði 13, Reykjavík
n Sigurður Gísli Karlsson Eggertsgötu 20, Reykjavík
n Einar Ólafsson Bakkaseli 20, Reykjavík
n Rósa Guðmundsdóttir Öldugranda 3, Reykjavík
n Bjartmar Leósson Gunnarsbraut 53, Reykjavík
40 ára
n Ueamporn Udomworakul Hraunbæ 44, Reykjavík
n Garðar Rafn Halldórsson Flétturima 24, Reykjavík
n Ingibjörg María Ingvadóttir Dalbraut 14, Dalvík
n Sigurjón Guðni Ólason Grænuhlíð 14, Reykjavík
n Ingi Ingvarsson Laugalind 4, Kópavogi
n Kristín Magnúsdóttir Pétursey 1, Vík
n Jakob Vest Reynisson Ásabraut 1, Sandgerði
n María Halldórsdóttir Draumahæð 5, Garðabæ
n Auður Sigurjóna Jónasdóttir Laufengi 6, Reykjavík
n Gylfi Guðmundsson Laufrima 75, Reykjavík
n Aðalsteinn Rafn Richter Ásbúð 30, Garðabæ
n Gunnar Freyr Þórdísarson Skeggjagötu 2,
Reykjavík
n Sigríður Marta Valsdóttir Svölutjörn 46, Njarðvík
n Nína Björg Sigurðardóttir Breiðagerði 35,
Reykjavík
50 ára
n Osvalds Divra Eyravegi 21, Selfossi
n Sophia Guðrún Hansen Klapparstíg 17, Reykjavík
n Halldór Rúnar Magnússon Vesturbergi 53,
Reykjavík
n Aðalsteinn Leví Pálmason Veghúsum 17,
Reykjavík
n Aðalheiður Tryggvadóttir Hólmatúni 58, Álftanesi
n Sigurjón Magnússon Brimnesi, Ólafsfirði
n Kjartan Ólafsson Tröllateigi 37, Mosfellsbæ
n Bryndís Emilsdóttir Dvergholti 22, Mosfellsbæ
60 ára
n Sigurbjörg Ármannsdóttir Þingási 5, Reykjavík
n Örn Jónsson Grjótaseli 1, Reykjavík
n Særún Garðarsdóttir Glitvangi 5, Hafnarfirði
n Sveinn Geir Sigurjónsson Flétturima 2, Reykjavík
70 ára
n Viðar Valdimarsson Heiðarhrauni 4, Grindavík
n Ólöf Steinunn Þórsdóttir Bakka, Akureyri
n Reynir Stefánsson Mjóanesi, Egilsstöðum
n Ólafía Hrönn Ólafsdóttir Löngulínu 7, Garðabæ
n Sólveig Inga Gunnlaugsdóttir Ljósheimum 6,
Reykjavík
n Jónas Þórarinsson Ægisvöllum 6, Reykjanesbæ
75 ára
n Gunnar Oddsson Flatatungu, Varmahlíð
n Magnús Einarsson Grænlandsleið 32, Reykjavík
n Guðrún Ída Stanleysdóttir Rein, Selfossi
80 ára
n Guðmundur Jónsson Sóltúni 11, Reykjavík
n Marsibil Mogensen Rauðalæk 59, Reykjavík
n María G Öen Magnússon Hlíðarhúsum 7, Reykjavík
85 ára
n Guðrún Magnúsdóttir Háaleitisbraut 22, Reykjavík
Til
hamingju
með
afmælið!
fólk í fréTTum
Þórdís Lilja Bergs Fjölskyldu-
mynd af afmælisbarninu ólétta,
unnustanum georg Heiðari og
tíkinni Perlu á góðri stund.
auglýsingasíminn er
512
70
50