Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Síða 21
miðvikudagur 11. mars 2009 21Fókus
á miðvikudegi
Boðið í Bíó
Íslandsdeild Amnesty International ætlar að bjóða í bíó í
kvöld. Deildin ætlar að sýna brasilísku kvikmyndina Elas
da Favela, eða Women of the Favela, í tilefni af alþjóðleg-
um baráttudegi kvenna sem var 8. mars. Sýning myndar-
innar fer fram í húsnæði Íslandsdeildar Amnesty Inter-
national að Þingholtsstræti 27, 3 hæð, klukkan 20.00.
Dauflegt
um Dauðann
Er hægt að skrifa leikrit um dauða-
stríð barns? Gott leikrit, hugtækt og
hrífandi? Svarið er: Já. Fyrir nokkrum
árum var fluttur hér, fyrst í útvarpi, síð-
an á sviði, einleikurinn Ausa Steinberg
eftir Bretann Lee Hall. Hann hlaut
góðar viðtökur, enda frábært verk inn-
an sinna þröngu marka, fullt af drama
og húmor, allt þó í lágstemmdum og
tregafullum tóni. Tilfinningasemi ör-
laði þar ekki á, hvergi nokkurs staðar.
Nú reynir Jón Páll Eyjólfsson að end-
urtaka leikinn með því að leikbúa ekki
ósvipaðan texta eftir franska skáldið
Eric-Emmanuel Schmitt. Verkið var
frumsýnt sl. fimmtudagskvöld á Litla
sviðinu sem þáttur í einleikjaröð L.R.
Jón Páll er efnilegur leikstjóri, en hann
á sýnilega margt ólært í dramatúrgísk-
um vinnubrögðum. Efniðviðurinn er
bréf sem Óskar litli skrifar Guði. Hann
er með banvænan sjúkdóm, og veit
það vel, en enginn þorir að tala við
hann af hreinskilni annar en „Amma
bleika“, starfskona á spítalanum. Í
sviðsgerðinni er það hún sem les fyrir
okkur úr bréfunum. Hún er ein heima
hjá sér og handfjatlar bréfin sem helg-
an dóm, því að drengurinn er farinn
til Guðs. Í fyrstunni trúði Óskar ekki á
hann, enda barn trúlausra foreldra, en
það breyttist. Þetta eru snotrir textar
frá hendi skáldsins, en þeir eru varla
efni í leikrit - enda eins víst að Emm-
anuel-Schmitt hefði þá samið það
sjálfur. Sú leið, sem Jón Páll reynir að
fara, er fullkomlega ódramatísk, leiðir
ekki út í annað en tilbreytingarleysi
og doða.
Margrét Helga Jóhannsdóttir leikur
Ömmu bleiku og er ekki öfundsverð
af því. Hún hefur sitthvað á móti sér:
jogginggallinn, sem Snorri Freyr, hefur
fært hana í, klæðir hana mjög illa; svo
er málfarið á þýðingunni víða undar-
lega bóklegt og ósennilegt úr munni
tíu ára barns. Þá er ótalin furðulega
hæggeng leikstjórn sem steypist að
lokum á bólakaf í pytt tilfinningasem-
innar. Þó gerir Margrét Helga margt
vel; hlýleg nærvera hennar og fínlegt
skopskyn bregðast ekki fremur en
endranær. Þegar upp er staðið bjarg-
ar það þó litlu og manni er létt þegar
þetta er loksins búið.
Jón Viðar Jónsson
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
LeikféLag reykjavíkur:
Óskar og bleikklædda konan
eftir eric-emmanuel schmitt
Þýðing: guðrún vilmundardóttir
Leikgerð og leikstjórn: jón Páll
eyjólfsson
Leikmynd og búningar: snorri freyr
Hilmarsson
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Tónlist: Hallur ingólfsson
leiklist
Clint Eastwood er mættur aftur í að-
alhlutverk eftir fjögurra ára pásu frá
því að hann gerði óskarsverðlauna-
myndina Million Dollar Baby. East-
wood, eða Clintarinn eins og ég kýs
að kalla hann, hreppti þar Óskar-
inn fyrir bestu leikstjórn og var til-
nefndur fyrir leik sinn. Clintarinn
hefur verið þekktur fyrir fátt annað í
gegnum tíðina en að vera grjótharð-
ur töffari sem lætur menn heyra það
og tekur þá í karphúsið fyrir minnsta
skæting. Clint er mættur aftur og
karphúsið er galopið.
Gran Torino segir sögu hins
þröngsýna og fúllynda Walts Kow-
alski. Hann er nýbúinn að missa það
eina sem skipti hann máli í lífinu,
eiginkonuna, og honum er nokkurn
veginn sama um rest. Walt býr í út-
hverfi í bandarískri borg sem er nú
orðið að innflytjendahverfi. Hann er
einn eftir í götunni en allt í kringum
hann er fólk af asísku bergi brotið.
Hinum þröngsýna Walt líst ekkert á
þetta „hyski“. Sérstaklega líst honum
illa á fjölskylduna í næsta húsi.
Þegar meðlimir glæpaklíku
áreita nágranna Walts færast átök-
in yfir á blettinn hjá honum við litla
hrifningu fyrrverandi hermanns-
ins. Hann stígur út með rifilinn sinn
og vísar fólkinu óvinsamlega af lóð
sinni. Enda nýbúinn að slá grasið.
Upp frá því lítur fólkið í hverfinu á
hann sem hetju og verðlaunar hann
í samræmi við það. Hinn þröng-
sýni Walt neyðist til þess að brosa
aðeins og áður en maður veit af er
hann orðinn vinur fjölskyldunnar.
En klíkumeðlimirnir eru aldrei langt
undan og Walt veit að hann þarf að
gera það sem hann gerir best, „take
care of business“.
Eastwood er frábær í þessari
mynd. Hann er fullkominn í hlutverk
bandarísks manns af vissri kynslóð.
Manns sem ólst upp í kreppunni
miklu, þurfti alla tíð að hafa fyrir
sínu og barðist svo í Kóreu-stríðinu.
Þar sem hann gerði hræðilega hluti
í nafni stríðs og hefur reynt að lifa
með því alla tíð síðan. Hlutirnir eru
einfaldega debet og kredit hjá þeim
gamla og hann þolir ekki aumingja-
skap.
Samskipti Walts við nágranna-
fjölskylduna og fólkið í götunni eru
skemmtileg og maður getur ekki
annað en brosað þegar gamli fant-
urinn fer að linast. En þegar hlutirn-
ir fara á versta veg er lítið um bros.
Hann veit nákvæmlega hvað þarf að
gera og hvernig. Ásgeir Jónsson
Clintarinn
g jótharður
Clint Eastwood „Clint er mættur
aftur og karphúsið er galopið.“
Gran Torino frábær mynd um vinskap og ólík gildi.
gran Torino
Leikstjóri: Clint eastwood
Aðalhlutverk: Clint eastwood, Cory
Hardrict, Brian Haley, Brian Howe,
dreama Walker, Christopher Carley
kvikmyndir