Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 18. Mars 2009 3Fréttir
að eiga rétt á að leysa bréfin út. Hann
hefði þá getað selt bréfin í bankan-
um, borgað kúlulánið til baka með
vöxtum og innleyst hagnaðinn sem
orðið hefði af hækkun bréfanna á
lánstímanum. Finnur hins vegar
hvorki græddi né tapaði á lántökunni
því hann hafði ekki öðlast rétt á að
ráðstafa bréfunum.
Breytt stemning og gildismat
Aðspurður hvort Finnur myndi
þiggja slíkt tilboð ef það stæði hon-
um til boða í dag segir bankastjórinn
að hafa megi margar skoðanir á slík-
um viðskiptum. „Ég myndi sennilega
hugsa mig vandlega um ef mér byð-
ist að kaupa hlutabréf í fjármálafyrir-
tæki núna því það er svo mikil óvisa á
fjármálamörkuðum,“ segir Finnur.
Hann segist þó telja að það geti
verið jákvætt að tengja saman hags-
muni stjórnenda og hagsmuni hlut-
hafa í fyrirtækjum en að það þurfi
að vera með þeim hætti að verið sé
að tengja hagsmuni þeirra saman í
raun og veru. „Að það sé ekki þannig
að stjórnendurnir beri hlutfallslega
meira úr býtum en hluthafarnir því
það er auðvitað óeðlilegt,“ segir Finn-
ur.
Svo segir Finnur um lánið: „Við
getum alveg verið hreinskilnir við
hvor annan. Auðvitað hefur margt
breyst í þjóðfélaginu: Stemningin,
viðhorf og gildismat í samfélaginu er
öðruvísi en áður. Ég held að við get-
um bara horft í eigin barm og við-
urkennt hreinskilningslega að við
hugsum öðruvísi og metum hlutina
öðruvísi heldur en var,“ segir Finnur.
„Ég held að við getum
bara horft í eigin barm
og viðurkennt hrein-
skilningslega að við
hugsum öðruvísi og
metum hlutina öðruvísi
heldur en var“
Bankastjórinn fékk kúlulán
Finnur sveinbjörnsson, þáverandi
bankastjóri icebank og núverandi
bankastjóri kauþings, fékk 850
milljóna króna kúlulán til að kaupa
hlutabréf í icebank síðla árs árið 2007.
Umsjónarmenn hafa verið skipaðir af fjármálaráðherra yfir fimm lífeyrissjóðum
sem eignastýring Landsbankans hefur haft umsjón með. Þetta er gert í kjölfar rann-
sóknar Fjármálaeftirlitsins á brotum sem eiga að hafa átt sér stað í byrjun árs 2008.
Þau snúa að því að sjóðirnir hafi fjárfest of mikið í einstökum fjárfestingum.
rannsakar laskaða
sjóði landsbankans
Hæstaréttarlögmennirnir Lára V.
Júlíusdóttir og Viðar Lúðvíksson hafa
verið skipaðir umsjónarmenn með
fimm lífeyrissjóðum sem hafa ver-
ið í rekstri hjá eignastýringu Lands-
bankans. Fjármálaráðherra skipaði
Láru og Viðar umsjónarmenn í kjöl-
far rannsóknar Fjármálaeftirlitsins á
meintum brotum sem eiga að hafa
gerst á fyrri hluta ársins 2008.
Rannsóknin snýr að því hvort
brotið hafi verið gegn lögum um
hvernig stýra skuli fjárfestingum líf-
eyrissjóða. Eyvindur G Gunnarsson,
lektor í lögfræði við Háskóla Íslands,
segir erfitt að segja fyrir um hugsan-
leg viðurlög við þessum brotum. Ekki
séu til mörg fordæmi um slík brot hjá
lífeyrissjóðum hérlendis.
„Veit ekkert um hvað málið
snýst“
Lífyrissjóðirnir sem um ræð-
ir eru Íslenski lífeyrissjóðurinn, Líf-
eyrissjóður Eimskipafélags Íslands,
Tannlæknafélagsins, Félag íslenskra
atvinnuflugmanna og Kjalar lífeyr-
issjóður. Davíð Harðarson starfaði
sem framkvæmdastjóri líeyrissjóð-
anna þegar brotin eiga að hafa átt sér
stað. Í samtali við DV sagðist Davíð
ekki geta rætt um þau brot sem eiga
að hafa átt sér stað. „Ég veit ekki um
hvað málið snýst. Fjármálaeftirlit-
ið eða sérstakur saksóknari verður
að svara fyrir það hvað hann er að
skoða,“ segir Davíð.
Í samtali við DV segir Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari, að
málið snúi að því hvort lífeyrissjóð-
irnir hafi farið út fyrir lagaheimild-
ir í einstaka fjárfestingum sínum.
„Þegar fólk borgar í lífeyrissjóð sam-
kvæmt lögum koma þau réttindi á
móti að þeim fjármunum sé dreift.
Grunur leikur á því að það hafi ekki
verið sem skyldi,“ segir hann. Ólaf-
ur segir að sjóðsstjórar lífeyrissjóða
verði að gæta að því á hverjum tíma
hvernig samsetningu sjóða sé hátt-
að. Hann segist ekki geta tjáð sig um
það hvort yfirmenn
Landsbankans, þeir
Sigurjón Þ. Árnason
og Halldór J. Kristj-
ánsson, séu meðal
þeirra sem verði yf-
irheyrðir.
Mikið tap
Íslenska lífeyris-
sjóðsins
DV sagði frá
því í síðustu viku
að Íslenski lífeyr-
issjóðurinn hefði
fjárfest fyrir tæpa
níu milljarða í pen-
ingamarkaðssjóði
Landsbankans
eða um fjórðungi
af heildareignum
sjóðsins. Sögu-
sagnir eru um að yfirmenn pen-
ingamarkaðssjóðs Landsbankans
hafi meinað Davíð að leysa út inn-
eign lífeyrissjóðsins í peningamark-
aðssjóðnum stuttu fyrir þjóðnýtingu
Landsbankans. Stefán Héðinn Stef-
ánsson og Sigurður Óli Hákonarson,
voru forsvarsmenn Landsvaka sem
sá um peningamarkaðssjóðinn.
Í samtali við DV fullyrti Davíð
Harðarson að forsvarsmenn Lands-
vaka hefðu ekki neitað honum um
að taka út eign lífeyrissjóðsins í pen-
ingamarkaðssjóðnum. „Ég staðfesti
það að neitun um sölu peningabréfa
á ekki við rök að styðjast.“
Sérstök lög gilda um fjárfestinga-
stefnu lífeyrissjóða. Takmörk gilda
um hversu mikið þau mega fjárfesta í
skulda- og hlutabréfum. Fjárfesting-
ar Íslenska lífeyrissjóðsins í peninga-
markaðssjóðum Landsbankans eru
taldar. hafa farið út fyrir þessi mörk.
annas sigMundsson
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Íslenski lífeyrissjóðurinn, sem er rek-
inn af Landsbankanum, skilaði nei-
kvæðri ávöxtun upp á ríflega 20 pró-
sent í fyrra, ef miðað er við öruggustu
ávöxtunarleiðina. Þetta er mun verri
afkoma en hjá lífeyrissjóðunum á
vegum Kaupþings og Íslandsbanka.
Lífeyrissjóður Landsbankans tap-
aði 2,75 milljörðum króna á pen-
ingamarkaðssjóði Landsbankans. Sá
peningamarkaðssjóður tapaði mun
meiru en sambærilegir sjóðir í öðrum
bönkum og hefur legið undir ámæli
fyrir að fjárfesta markvisst í félögum
tengdum Landsbankanum.
Innistæðueigendur í peninga-
markaðssjóði Landsbankans fengu
einungis greidd 68,5 prósent af eign
sinni í sjóðnum, ólíkt sjóðum Glitn-
is og Kaupþings, þar sem um 85 pró-
sent voru greidd út. Því fer saman tap
Lífeyrissjóðs Landsbankans, sem er
mun meira en hinna bankanna, og
afleit afkoma peningamarkaðssjóðs
bankans.
Ekki synjað um innlausn
Sögusagnir eru um að yfirmenn pen-
ingamarkaðssjóðs Landsbankans hafi
meinað forsvarsmanni Íslenska lífeyr-
issjóðsins að leysa út inneign lífeyris-
sjóðsins í peningamarkaðssjóðnum
stuttu fyrir þjóðnýtingu Landsbank-
ans. Þessu neita forsvarsmenn sjóðs-
ins hins vegar. Sömu sögusagnir segja
að Stefán Héðinn Stefánsson og Sig-
urður Óli Hákonarson, forsvarsmenn
Landsvaka sem sá um peningamark-
aðssjóðinn, hafi meinað þáverandi
framkvæmdastjóra Íslenska lífeyris-
sjóðsins, Davíð Harðarsyni, að leysa
til sín eignir lífeyrissjóðsins í peninga-
markaðssjóðnum.
Í samtali við DV fullyrti Davíð
Harðarson að forsvarsmenn Lands-
vaka hefðu ekki neitað honum um
að taka út eign lífeyrissjóðsins í pen-
ingamarkaðssjóðnum. „Ég staðfesti
það að neitun um sölu Peningabréfa
á ekki við rök að styðjast.“
Fjórðungur í
peningamarkaðssjóði
Tryggvi Guðbrandsson, núverandi
framkvæmdastjóri Íslenska lífeyris-
sjóðsins, segir að nánari upplýsing-
ar um tap sjóðsins verði veittar í maí.
„Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að all-
ar upplýsingar sem verða veittar um
einstaka fjárfestingar sjóðsins verði
birtar á ársfundi og í ársskýrslu sjóðs-
ins. Áætlað er að halda aðalfund í
maí,“ segir Tryggvi.
Meðal þeirra sem sitja í stjórn
Íslenska lífeyrissjóðsins eru Helgi
Magnússon, formaður Samtaka iðn-
aðarins, og Kristín Jóhannesdótt-
ir, framkvæmdastjóri fjárfestingafé-
lagsins Gaums. Í samtali við DV vildu
þau lítið tjá sig um málefni sjóðsins.
Ingólfur Guðmundsson, stjórnarfor-
maður lífeyrissjóðsins, segir að sér
sé ekki kunnugt um að forsvarsmenn
Landsvaka hafi neitað lífeyrissjóðn-
um um að taka út inneign sína úr pen-
ingamarkaðssjóði Landsbankans.
Afleit ávöxtun
Íslenski lífeyrissjóðurinn hélt fund á
Grand Hóteli um miðjan desember
árið 2008 þar sem Davíð Harðarson,
þáverandi framkvæmdastjóri, kynnti
stöðu sjóðsins. Um 300 sjóðsfélag-
ar mættu á fundinn og lýstu marg-
ir gremju sinni yfir afleitri ávöxtun
sjóðsins. Á fundinum sagði Davíð
að nafnávöxtun leiða Líf 1-4 og sam-
tryggingardeildar Íslenska lífeyris-
sjóðsins frá upphafi árs 2008 til 1.
desember 2008 hefði verið neikvæð
um 17,1-20,4 prósent. Lífeyrissjóð-
urinn hefur verið gagnrýndur fyrir að
setja sparnað þeirra áhættufælnustu í
skuldabréf Landsbankans. Frjálsi líf-
eyrissjóðurinn hjá Kaupþingi fjárfesti
hins vegar í ríkisskuldabréfum og
skilaði mun betri ávöxtun árið 2008
en Íslenski lífeyrissjóðurinn. Frjálsi 3,
sem er áhættuminnsta séreignaleið-
in hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum, skilaði
23,6 prósenta nafnávöxtun árið 2008.
Áhættuminnsta séreignaleiðin hjá Ís-
lenska lífeyrissjóðnum, Leið IV, skil-
aði hins vegar -20,1 prósents nafn-
ávöxtun.
Ólíðandi upplýsingaleysi
Í samtali við DV segir Hörður Hilm-
arsson, hjá Réttlætishópnum sem
tapaði á peningamarkaðsbréfum
Landsbankans, að það sé ólíðandi
að ekki sé hægt að fá betri upplýs-
ingar um málefni peningamarkaðs-
sjóðs Landsbankans. Tekur Hörður
dæmi af því að hvorki borgarlögmað-
ur né aðrir lögmenn fái fullnægjandi
upplýsingar sem þeir óska eftir. „Það
er ótrúlegt, þar sem ríkið á þennan
banka, að ekki sé hægt að fá svör frá
bankanum,“ segir hann.
Nýi Landsbankinn og Landsvaki
hafa viðurkennt að í einhverjum til-
vikum hafi peningamarkaðssjóðurinn
verið kynntur sem áhættulaus fjár-
festing. Bankinn hefur einnig greitt
þremur aðilum til baka eign sína í
sjóðnum. Héraðsdómur Reykjavík-
ur hefur úrskurðað að fyrrverandi
framkvæmdastjóra og stjórnarmanni
í Landsvaka hf. sé skylt að veita hópi
fyrrum eigenda hlutdeildarskírteina í
peningamarkaðssjóði Landsbankans
upplýsingar um fjárfestingar sjóðsins.
Í tilkynningu frá viðskiptaráðu-
neytinu í desember kom fram að uppi
hefðu verið ásakanir um að í fyrstu
viku októbermánaðar síðastliðins
hefði hlutdeildarskírteinishöfum ver-
ið ráðið frá því að taka út fé sitt úr pen-
ingamarkaðssjóði Landsbankans.
Tíðar mannabreytingar
Nokkuð tíðar mannabreytingar hafa
verið hjá Íslenska lífeyrissjóðnum á
undanförnum árum. Hermann Jón-
asson, núverandi forstjóri Tals, var
framkvæmdastjóri til ársins 2006
þegar Tómas N. Möller tók við starf-
inu. Tómas lét síðan af störfum 2008
og starfar nú hjá Lífeyrissjóði verslun-
armanna. Við starfi hans tók þá Dav-
íð Harðarson sem var framkvæmda-
stjóri þar til í byrjun febrúar 2009
þegar Tryggvi Guðbrandsson tók við
starfinu.
Keyptu í eigin fyrirtækjum
Atli Gíslason, þingmaður vinstri-
grænna, ásakaði íslensku viðskipta-
bankana í nóvember 2008 um að hafa
látið peningamarkaðssjóði kaupa í
eigin fyrirtækjum skömmu fyrir hrun
bankanna, en selja í öðrum og traust-
ari fyrirtækjum. Skýringin hafi verið
lausafjárþröng bankanna. Þetta hafi
gert það að verkum að eigendur pen-
ingamarkaðssjóða bankanna töpuðu
stórum fjárhæðum. Þessum ásökun-
um neitaði Stefán Héðinn Stefáns-
son, þáverandi framkvæmdastjóri
eignastýringasviðs Landsbankans og
stjórnarformaður Landsvaka.
Íslenski lífeyrissjóðurinn var stofn-
aður árið 1990. Upphaflega var hann
einungis séreignarlífeyrissjóður en frá
árinu 1998 hefur hann einnig starfað
sem almennur lífeyrissjóður. Fjöldi
sjóðsfélaga var tæplega 28 þúsund í
upphafi árs og var stærð sjóðsins fyrir
hrunið skráð 33 milljarðar króna.
Eignastýringasvið Landsbankans
sá um ávöxtun eigna hans og kaus
að leggja tæplega 9 milljarða króna í
peningamarkaðsbréf eigin banka.
LANGVERST ÁVÖXTUN
Í LANDSBANKANUM
miðvikudagur 11. mars 20092
Fréttir
LAndsbAnKinn
TAP
31,5 %
borgað út
68,5 %
gLiTnir / ísLAndsbAnKi
borgað út
85,12 %
TAP
14,88%
ÁVÖXTUN Á ViðBóTARLÍfEyRi
íslenski lífeyrissjóðurinn
Landsbankinn / Leið iv
Almenni lífeyrissjóðurinn
Íslandsbanki / Ævisafn iv
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
kaupþing / Frjálsi 3
+23,6%
(*Áhættuminnsta leiðin síðastliðið ár.)
Langbest hjá Kaupþingi
Lífeyrissjóður á vegum Landsbankans tapaði milljörðum í pen-
ingamarkaðssjóði sama banka. Lífeyrissjóðurinn skilaði afleitri
ávöxtun fyrir viðbótarlífeyrissparnað árið 2008. Peningamark-
aðssjóður Landsbankans, sem var fjórðungur eigna lífeyris-
sjóðsins, fór mun verr út úr bankahruninu en sjóðir hinna stóru
bankana.
bankastjórarnir sigurjón Þ. Árnason og
Halldór J. kristjánsson, fyrrverandi bankastjórar
Landsbankans, voru yfirmenn stjórnenda
Landsvaka. Hér yfirgefa þeir ráðherrabústað-
inn eftir fund með yfirvöldum við bankahrunið
síðasta haust.
LjÓsmyndAri: sigTryggUr Ari jÓhAnnsson
AnnAs sigmUndsson
blaðamaður skrifar: as @dv.is
miðvikudagur 11. mars 2009 3
Fréttir
„Ég var í miðri vörn fyrir Íbúða-
lánasjóð í mjög harðri snerru, um
það bil sem ég var kosinn á þing
vorið og sumarið 2007,“ segir Árni
Páll Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar. Hann starfaði lengi
sem lögmaður fyrir Íbúðalánasjóð,
þar sem hann sérhæfði sig í evr-
ópumálum, og hélt því áfram um
skamman tíma eftir að hann varð
þingmaður. Forstjóri Íbúðaláana-
sjóðs segir að vegna sérþekkingar
Árna Páls hjá sjóðnum hafi reynst
nauðsynlegt að hann kláraði þau
verkefni sem þá voru í gangi.
Viðskiptabankarnir kærðu
sjóðinn
Árni Páll segir að Árni Magnús-
son, þáverandi félagsmálaráð-
herra Framsóknarflokksins, hafi
árið 2003 óskað eftir áliti hans sem
lögmanns í kjölfar þess að við-
skiptabanarnir fóru að undirbjóða
húsnæðislán Íbúðalánasjóðs.
Bankarnir héldu þá fram að starf-
semi Íbúðarlánasjóðs bryti gegn
ríkisaðstoðarreglum EES-samn-
ingsins. „Niðurstaða mín var sú að
starfsemi sjóðsins stæðist þessar
reglur,“ segir Árni Páll.
Í framhaldinu var honum falið
að vinna tilkynningu til Eftirlits-
stofnunar EFTA (EES) fyrir þáver-
andi ríkisstjórn. Sem kunnugt er
kærðu viðskiptabankarnir starf-
semi sjóðsins til ESA og hófst stöð-
ugur málarekstur sem stóð með
litlum hléum til október 2008 þeg-
ar bankakerfið hrundi. Árni Páll
segir að þá hafi öllum orðið end-
anlega ljóst á hversu veikum mál-
efnagrunni kröfur bankanna stóðu
og hversu illa búnir þeir voru til að
rækja hlutverk sem lánveitandi á
íbúðalánamarkaði.
Lauk störfum í árslok 2007
Árni Páll segir að síðustu greiðslur
sem hann fékk frá Íbúðalánasjóði
voru ferðakostnaður og laun vegna
fundaferðar til Brussel í septemb-
er 2007 að upphæð 158 þúsund.
Auk þess sinnti hann rúmlega 180
klukkustunda vinnu fyrir sjóðinn
seinni hluta ársins 2007 og fékk fyr-
ir það greidda 1,5 milljón króna.
Þar af voru tæplega 330 þúsund
krónur, sem samsvarar vinnu fyr-
ir 39,5 stunda vinnu eftir að þing
kom saman 1. október 2007.
„Frá árslokum 2007 hef ég ekki
unnið fyrir Íbúðalánasjóð, að öðru
leyti en því að ég hef veitt forstjóra
hans ókeypis ráð þegar hann hef-
ur leitað til mín vegna einstakra
vandamála sem upp hafa komið
og tengjast mínum fyrri störfum,“
segir Árni Páll.
Ekki hagsmunatengsl
Guðmundur Bjarnason, forstjóri
Íbúðalánasjóðs, lítur ekki svo á að
um hagsmunatengsl hafi verið að
ræða þótt Árni Páll hafi starfað fyr-
ir sjóðinn eftir að hann var orðinn
þingmaður. „Auðvitað getur svona
lagað verið álitamál en ég álít það
ekki vera svo í þessu tilfelli. Þarna
var hann að klára verkefni sem
tengdust hans sérfræðiþekkingu.
Hann var auðvitað búinn að starfa
hér í nokkur ár og var þarna að
ljúka því starfi,“ segir hann.
Guðmundur bendir á að mikil-
vægt hafi verið fyrir Íbúðalánasjóð
að starfsmaður með þekkingu á
málefninu sinnti starfinu.
Engar reglur eru um að þing-
menn skuli ekki sinna öðrum störf-
um meðfram þingmennskunni.
Ráðgjafastörf síðasta sumar
Þau verkefni sem hann hafði áður
með höndum fyrir Íbúðalánasjóð
voru falin erlendum lögmanni
sumarið 2008. „Þá var óskað eft-
ir því við mig af hálfu Íbúðalána-
sjóðs og fjármálaráðuneytisins að
ég myndi veita hinum erlenda lög-
manni ráðgjöf eftir því sem hann
teldi nauðsyn á enda þá ennþá
mjög tvísýnt um örlög Íbúðalána-
sjóðs.
Ég aðstoðaði erlenda lögfræði-
fyrirtækið með ráðgjöf, bréfaskrif-
um, greiningum og undirbúningi
funda að þessu leyti í september
og október 2008. Heildarreikning-
ur vegna þeirrar þjónustu og ferð-
ar til Brussel vegna funda var 7.292
evrur,“ segir Árni Páll.
Miðað við gengi Seðlabankans
var evran 150 krónur um miðjan
október. Greiðslurnar frá lögfræði-
fyritækinu hafa því numið rúmri
milljón.
Árni Páll Árnason hélt áfram störfum hjá Íbúðalánasjóði um hríð
eftir að hann settist á þing. Síðasta sumar þáði hann greiðslur
fyrir ráðgjafastörf tengd sjóðnum fyrir á aðra milljón. Haustið
áður fékk hann síðan tæpar tvær milljónir í laun frá sjóðnum. Þá
var hann þegar starfandi þingmaður.
Engar reglur eru um að þingmenn
skuli ekki sinna öðrum störfum
meðfram þingmennskunni.
Áfram hjá Íbúðalánasjóði
Árni Páll Árnason fékk tæpar tvær
milljónir í laun frá Íbúðalánasjóði
haustið 2007. Hann var kjörinn á
þing þá um vorið.
Mynd EggERt JóhannEsson
„Auðvitað getur svona
lagað verið álitamál
en ég álít það ekki vera
svo í þessu tilfelli.“
FÉKK MILLJÓNIR Í
AUKAGREIÐSLUR
ERLa hLynsdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
kaUPÞing
borgað út
85,3 %
taP
14,7 %
LÍfEyRissJóðUR Landsbankans
fJÁRfEsti Í sJóði Eigin banka
Hlutfall peningamarkaðsbréfa*
Líf 1 31,7%
Líf 2 25,9%
Líf 3 18,3%
Líf 4 20,1%
Heildartap á sjóðnum: 2,75 milljarðar
*Hlutfall heildareigna Íslenska lífeyrissjóðsins eftir sparnað-
arleiðum í peningamarkaðssjóði Landsbankans
Mótmæli Í kjölfar bankahrunsins
dundu mótmæli á Landsbankanum
og var krafist brottvikningar þáver-
andi bankastjóra, Elínar sigfúsdóttur.
„Ég veit ekki um hvað
málið snýst. Fjármála-
eftirlitið eða sérstak-
ur saksóknari verður
að svara fyrir það hvað
hann er að skoða,“
Bankastjórarnir
sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. kristjánsson,
fyrrverandi bankastjórar Landsbankans, voru
yfirmenn stjórnenda eignastýringar sem höfðu
umsjón með lífeyrissjóðunum. Hér yfirgefa þeir
ráðherrabústaðinn eftir fund með yfirvöldum
við bankahrunið síðasta haust.
Mynd sigtryggur ari Jóhannsson
davíð harðarson
davíð var framkvæmdastjóri yfir
lífeyrissjóðunum sem fjármálaráðherra
skipaði umsjónarmenn yfir.
Brotum vísað til saksóknara
Brotum lífeyrissjóðanna hefur
verið vísað til Ólafs Þórs Hauks-
sonar, sérstaks saksóknara.
11. mars