Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Side 17
„Ferðalagið var langt en nokkuð þægilegt. Lítið hægt að kvarta yfir því,“ sagði landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, Guðmundur Þórður Guð- mundsson, þegar DV náði í skottið á honum er landsliðið var að detta inn á hótelið í Skopje í Makedóníu. Íslenska liðsins bíður þriðji leikjurinn í sínum riðli í undankeppni heimsmeistara- mótsins gegn Makedóníu í kvöld. Ísland mætti einmitt Makedón- íu í leikjum um sæti á síðasta heims- meistaramóti síðasta sumar. Ísland vann með sex marka mun heima en náði þar ekki að yfirstíga átta marka sigur Makedóna í fyrri leiknum. Ís- lenska liðið hafði stuttu áður unnið sér inn sæti á Ólympíuleikunum en martraðarhöllin í Skopje varð íslenska liðinu ofviða. Afar stuttur undirbúningur Strákarnir okkar fá ekki langan tíma til að ná úr sér flugþreytunni en þeir lentu í gærdag og leikurinn er í kvöld. Liðið kom saman á sunnudaginn í Þýskalandi og náði Guðmundur nokkrum æfingum þar áður en hald- ið var til Makedóníu. „Þetta er afar stuttur undibúningur. Það er því mið- ur ekkert við því að gera en við verð- um bara að gera það besta úr þessu,“ sagði Guðmundur við DV í gær. „Þetta er mjög erfitt verkefni. Mjög svo. Jafntefli í sjálfu sér væri frá- bær úrslit,“ viðurkenndi Guðmundur en það hjálpar íslenska liðinu ekk- ert lítið að hið lágt skrifaða eistneska lið stal stigi af Makedónum í rimm- um þeirra. Ísland gjörsigraði Belgíu og gerði jafntefli við Noreg í sínum fyrstu leikjum og á, fyrir utan „auð- veldu“ leikina gegn Belgíu og Eist- um, heimaleiki eftir gegn Makedón- um og Noregi. Lemstrað lið Í silfurlið Íslands vantar ennþá Alex- ander Petterson og Ólaf Stefánsson en góðu fréttirnar eru þó að Snorri Steinn Guðjónsson er kominn aftur í hópinn þótt hann sé tæpur. „Snorri getur lítið æft en hann getur þó spilað leikina,“ sagði Guðmundur um leikstjórnand- ann mikilvæga. Þá sagði Guðmundur einnig að skyttan efnilega úr Hauk- um, Sigurbergur Sveinsson. væri að kljást við einhver eymsli í baki. Fréttirnar voru svo ekki góðar eftir að Guðmundur tilkynnti nítj- án manna hóp sinn en hvorki Einar Hólmgeirsson né Logi Geirsson verða með íslenska liðinu í þessum tveimur leikjum og Logi verður frá langt fram á sumarið. „Þetta hjálpar okkur auðvit- að ekkert en við þurfum bara að gera okkar besta. Það er auðvitað allt hægt í þessu þótt þetta verði rosalega erfitt,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Guðmund- ur Guðmundsson. martraðarhöllin Miðvikudagur 18. Mars 2009 17Sport duxbury fundaði á íslandi scott duxbury, framkvæmdastjóri enska úrvalsdeild- arliðsins West Ham sem Björgólfur guðmundsson á, var hér á landi um síðustu helgi að funda um framtíð félagsins. Funduðu duxbury og Björgólfur stíft á heimili Björgólfs við vesturbrún í reykjavík. Björgólfur er að reyna að selja félagið og vill fá 250 milljónir punda fyrir eða rúma fjörutíu milljarða króna. Þegar hann keypti West Ham borgaði hann 104 milljónir punda eða rúma 17 milljarða fyrir það. West Ham sættist í fyrradag við sheffield united um greiðslu vegna Tevez-málsins svokallaða og var haldið að því væri loks lokið. Það breyttist svo í gær þegar fyrr- verandi þjálfari sheffield united, Neil Warnock, sagðist ætla að sækja tekjumissi sinn til West Ham í gegnum réttarkerfið en svo virðist sem Tevez-málinu sé allt annað en lokið. George Burley, landsliðsþjálfari Skot- lands, tilkynnti í gær tuttugu og sex manna hóp sem mætir Hollandi og Íslandi í undankeppni heimsmeist- aramótsins í næstu viku. Skotar mæta Hollendingum á miðvikudaginn eft- ir viku og svo íslenska landsliðinu í Skotlandi þremur dögum síðar. Dýr- asti markvörður Bretlandseyja, Cra- ig Gordon sem leikur, eða leikur ekki, þessa dagana með Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, gæti verið í byrjun- arliði Skota þrátt fyrir að hafa aðeins leikið einn leik á árinu 2009. „Það er frábært að hann [Gordon] sé kominn í toppstand. Þetta hef- ur verið erfitt tímabil fyrir hann því hann varð fyrir slæmum meiðslum síðasta sumar. Svo kom hann aftur of snemma og var aftur frá í aðra tvo mánuði. Þó hann sé heill núna hefur hinn markvörðurinn hjá Sunderland staðið sig vel og því haldið sæti sínu,“ sagði Burley í gær. „Ég er með þrjá frábæra markverði og Allan McGregor sýndi gegn Argent- ínu að hann getur keppt við þá bestu. En það er ekki útilokað fyrir neinn að komast í byrjunarliðið. Menn verða bara að vera í góðu standi og í því er Gordon svo sannarlega,“ sagði George Burley. tomas@dv.is George Burley valdi landsliðið sem mætir Íslandi: gordon gæti byrjað gegn íslandi jón Þorgrímur hættur „Nú er maður alhættur í boltanum. Loksins,“ sagði vængmaðurinn Jón Þorgrímur stefánsson við dv í gær en hann hefur lagt skóna á hilluna og verða Framarar því án þessa kræfa kantmanns í baráttunni næsta sumar. Hann flyst nú til Noregs þar sem hans bíður nýtt og spennandi starf. Jón Þorgrímur gekk í raðir Fram frá Hk og skoraði í sínum fyrsta leik gegn Fylki en fór síðar út af meiddur. Þegar hann kom svo aftur til leiks lenti hann í ruddalegri tæklingu í leik gegn Fjölni og brotnaði á fæti. Hann spilaði ekkert meira í Landsbankadeildinni eftir það og mun ekki fara inn á knattspyrnuvöllinn aftur. „Maður er að fara til Noregs út af góðu atvinnutækifæri. Þarna er ég að fara vinna við mitt áhugasvið sem tölvunörd,“ sagði Jón við dv en hann hefur störf hjá vefhönnunar- fyritækinu Opera. „Það er virkilega spennandi að fara vinna hjá Opera. Leiðinlegt samt sem áður að hætta í boltanum á þennan hátt. Eyða tímabilinu upp í stúku á hækjum, fótbrotinn. Mesta syndin er samt sú að pabbi náði bara að sjá son sinn spila í tuttugu mínútur í Fram- búningnum. Þessu var ekki ætlað að verða en ég náði þó að skora eitt mark fyrir gamla í þessum búningi,“ sagði Jón Þorgrímur stefánsson. tomas@dv.is sigrar telja - ekki stig róttækar breytingar voru gerðar á keppnisfyrirkomulagi í Formúlu 1 í gær þegar ákveðið var að sá ökumaður sem vinnur flestar keppnir framvegis verði heimsmeist- ari en ekki sá sem hlýtur flest stigin. gerist það að tveir ökumenn vinni jafnmargar keppnir mun gamla og góða stigakerfið skera úr um hver er sigurvegarinn. Eins er stigakerfið notað til að raða í öll önnur sæti fyrir utan heimsmeistarann. sigurvegari hverrar keppni fær tíu stig, annað sætið gefur átta, þriðja sex stig og svo koll af kolli eftir það. Það var Formúlu 1-einráðurinn Bernie Ecclestone sem kom með þessa tillögu en annarri tillögu hans um að verðlauna sigurvegarann með medalíu sem svipar til þeirrar sem veitt er á ólympíuleikum var hafnað. Þessi nýja regla verður væntanlega ekkert lítið á milli tannanna á Formúlu-spekingum á næstunni en staðreyndin er sú að hefði þessi regla verið í gangi á síðasta tímabili væri Lewis Hamilton ekki ríkjandi heimsmeistari. Hann vann fimm keppnir en Felipe Massa á Ferrari sex. Hætt er við að keppnin verði hreinlega búin mjög snemma á árinu. verði einhver ökumaður í frábæru formi á fyrri hluta tímabils gæti hann verið búinn að klára mótið áður en það er ríflega hálfnað. vinni einhver ökumaður kannski sjö fyrstu keppnirnar getur hann klesst á vegg það sem eftir er í fyrstu beygju, fengið sér einn kaldan og beðið eftir að heimsmeistaratitill- inn verði hans. uMsJóN: TóMas Þór ÞórðarsON, tomas@dv.is / sport@dv.is hóPurinn Markverðir: gordon (sunderland), Mcgregor (rangers), Marshall (Norwich). Varnarmenn: alexander (Burnley), Barr (Falkirk), Berra (Wolves), Broadfoot (rangers), Caldwell (Celtic), Hutton (Tottenham), Mcallister (Bristol City), McManus (Celtic), Naysmith (sheffield united), Weir (rangers). Miðjumenn: Brown (Celtic), Commons (derby), Ferguson (rangers), Fletcher (Manchester united), Hartley (Celtic), Morrison (West Brom), rae (Cardiff), Teale (derby). Framherjar: Clarkson (Motherwell), Fletcher (Hibernian), iwelumo (Wolves), McCormack (Cardiff), Miller (rangers). Á góðri stundu Níu milljóna punda markvörðurinn situr nú á tréverkinu hjá sunderland. Mynd Getty IMAGes staðan 1. Noregur 4 3 1 0 136:109 27 7 2. Ísland 2 1 1 0 71:52 19 3 3. Makedónía 2 1 1 0 59:50 9 3 4. Eistland 4 1 1 2 104:116 -12 0 5. Belgía 4 0 0 4 98:141 -43 0 Íslenska landsliðið á fyrir höndum gífurlega erfiðan leik í kvöld gegn Makedóníu ytra í undankeppni Evrópumótsins. Makedónía komst á síðasta heimsmeistaramót á kostnað Íslendinga en grunnurinn að sigrinum þar var lagður í hinni gífurlega erfiðu íþróttahöll í Skopje þar sem erfitt er fyrir nokkurt lið að sækja sigur. bíður strákanna tÓMAs ÞÓR ÞÓRÐARsOn blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Fögnuður Það tók á að sjá Makedóna fagna sæti á heimsmeistaramótinu í Laugardalshöll síðasta sumar. sársvekktir Ásgeir Örn Hallgrímsson er einn af fáum lykilmönnum Íslands sem eru algjörlega heilir heilsu. Mynd AMe

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.