Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Qupperneq 21
Miðvikudagur 18. Mars 2009 21Fókus
á miðvikudegi
Franskur strætó á Ferðinni
Hin árlega vika franskrar tungu stendur nú yfir. Í gær hófust strætó-
ferðir hins svokallaða frönskustrætós í grunnskóla borgarinnar. Í dag
mun strætóinn svo stoppa í Norðlingaskóla og Víkurskóla, 18. mars
verður hann við Melaskóla og 19. við Landakotsskóla og Hlíðaskóla.
Þema vikunnar er „Morgundagurinn“ en ýmislegt skemmtilegt verð-
ur á dagskrá svo sem ljóðakeppni og ljósmyndasýning.
Þríleikur
schmitts
Bjartur gefur í dag út bókina Þrí-
leikur um það sem enginn sér eftir
Eric-Emmanuel Schmitt. Um er að
ræða endurútgáfu á þremur neon-
bókum í einni. Þær eru Óskar og
bleikklædda konan, Herra Ibrahim
og blóm Kóransins og Milarepa. Það
er Guðrún Vilmundardóttir sem
þýðir en bækurnar hafa ekki verið
fáanlegar um langt skeið. Útgáfan er
í tilefni af sýningu Borgarleikhússins
á einleiknum Óskar og bleikklædda
konan, í flutningi Margrétar Helgu
Jóhannsdóttur.
ókeypis perlur
Listasafn Reykjavíkur og Tríó
Reykjavíkur bjóða á hádegis-
tónleika í hádeginu á föstudag.
Tónleikarnir fara fram á Kjar-
valsstöðum en klassískur léttleiki
verður í fyrirrúmi. Tónleikarn-
ir bera yfirskriftina Klassískar
perlur en meðal annars verður
leikið stef úr Töfraflautu Mozarts
og Czardas Montis. Tónleikarnir
eru um 40 mínútur að lengd og
munu tónlistarmennirnir sjálfir
kynna verkin sem leikin verða.
Tónleikarnir fara fram í Kjarvals-
salnum og geta gestir því notið
verka hans um leið og þeir hlýða
á ljúfa tóna.
aFmælis-
tónleikar atla
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur
á fimmtudaginn afmælistónleika til
heiðurs Atla Heimi Sveinssyni. Atli
Heimir hefur verið eitt virtasta og
afkastamesta tónskáld Íslands svo
áratugum skiptir. Á tónleikunum
hljóma tvö af hans merkustu hljóm-
sveitarverkum frá fyrri tíðm Flautu-
konsert og Hreinn: Gallerí SÚM.
Svissneski hljómsveitarstjórinn
Baldur Brönnimann stjórnar tón-
leikunum en sérstakur gestur á þeim
er Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari.
Tónleikarnir eru haldnir í Háskóla-
bíói og hefjast klukkan 19.30.
David Kepesh (Ben Kingsley) er
kúltíveraður menningarfrömuður,
rithöfundur, gagnrýnandi og kenn-
ari á sviði textaskrifa af ýmsu tagi.
Hann veltir fyrir sér samskiptum
kynjanna með skeptiskum augum
hins fráskilda og frábitna á gamals
aldri. Hann heillast skyndilega af
Consuelu, ungum nemenda sínum
sem hrærir upp í honum meira en
góðu hófi gegnir.
Sviptivindar eru snöggir í ástum
og sambandið fer frá kynferðislegri
hlutdeild yfir í einingu sem inni-
ber meira. Afbrýðisemi er stór hluti
af mörgum góðum ástarsögum en
fleiri hlutir fylgja í kjölfarið sem eru
öllu óhefðbundnari. Hvernig verða
til dæmis fyrstu kynni Davids og
fjölskyldu Consuelu þegar hann er
eldri en flestir í boðinu?
Samræður Davids og trúnaðar-
vinar hans George (Dennis Hopper)
sýna heilabrotin skýrt og skilmerki-
lega. David bendir Consuelu á hve
flott brjóst hennar séu og það fáum
við staðfest að er alls engin lygi.
Leikarar standa sig vel og margar
senur eru vandlega flottar. „Kynlíf er
hefnd fyrir allt það sem bugaði þig
í lífinu“ er þungavigtarlína í annars
of löngum samræðum.
Þær fara sæmilega langt með
mann en skortir dýpt skáldsögutexta
sem væri viðeigandi í jafnskáldlega
uppbyggðri mynd. Myndin er nefni-
lega unnin upp úr sögu Philip Roth,
„The Dying Animal“. Myndin magn-
ast upp eftir því sem dramað eykst
og það líður að uppgjöri tilfinninga,
losta, aldurs og ábyrgðar.
Elegy er hreinskilin mynd um
menningarvita á gamals aldri ást-
föngnum á skjön við kynslóðabil.
En að hætti New York-búa fer hún
of mikið út í persónulegar krísur
naflaskoðandi dramadrottninga
allt þar til alvöru vandamál knýja
dyra. Ég held að það hafi ekki ver-
ið ætlunin að manni liði eins og
það væri rosalega sorglegt að
verða gamall. Fólk sem þekk-
ir það skilgreinir það ekki sem
vandamál að fá hár í eyrun svo
lengi sem það heldur sæmi-
legri heilsu.
Erpur Eyvindarson
ElEgy
Leikstjórn: isobel Coixet
Aðalhlutverk: Penélope Cruz, Ben
kingsley, Patricia Clarkson, Peter
sarsgaard, dennis Hopper, deborah Harry
kvikmyndir
Fiðringur á
gráu svæði
Það eru allavega tvö ár síðan fyrsta
ljósmyndin úr Killzone 2 birtist á net-
inu. Ég hlóð henni niður og setti á
tölvuskjáinn minn. Nördalegt. Síðan
þá hef ég uppgötvað sjálfan mig upp
á nýtt átta sinnum, grátið yfir hand-
boltaleikjum, grátið yfir visakorti
og kreppt hnefann að háloftunum.
En Killzone datt í hús fyrir nokkrum
vikum og ég hef varla fundið fyr-
ir kreppunni síðan. Hér er um há-
klassaskotleik að ræða og allt til fyrir-
myndar. Gerðarlegur gaukur eins og
Þór Magnússon búfræðingur myndi
segja. Um efni leiksins þarf kannski
ekkert að tíunda, Killzone 2 er líklega
fyrsti leikurinn sem er auglýstur eins
og kvikmynd á Íslandi, með tilheyr-
andi stiklum og heilsíðu auglýsingum.
Allavega þá gerist leikurinn í nánustu
framtíð og stríð við hina óhugnanlegu
Helgast er skollið á, eins og aðdáend-
ur fyrri leikja væntanlega þekkja. Úr
verður svo hrottalegur hasar, þar sem
maður fylgist með frá fremstu viglínu.
Það síðasta sem maður vill gera er að
útmála stríð sem eftirsóknarverðan
hlut, en ef ekki í tölvuleikjum, hvar
þá? Hér er allt á milljón, kúlur fljúg-
andi, öskrandi Helgast sem minna
mjög mikið á Nasista, sem er frábært.
Bókstaflega allt í gangi. Grafíkin er
sturluð, stýringar toppurinn, þó að allt
six-axis kerfi þurfi allsherjar aðhlynn-
ingu, svona almennt. Svo þegar sag-
an klárast tekur við einhver skemmti-
legasta og feitasta netspilun sem um
getur. Netspilun sem hefur neikvæð-
ari félagsleg áhrif heldur en nánast
hvaða fíkniefni sem er. Killzone ég
elska þig og þú elskar mig.
Dóri DNA
Einn sá gerðarlegasti
Elegy
reynsluboltarnir Ben
kingsley og dennis
Hopper leika í myndinni.
Penélope Cruz
Leikur Consu-
elu Castillo í
myndinni.
KillzonE 2
Tegund: skotleikur
Spilast á: Ps3
tölvuleikir