Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Blaðsíða 19
miðvikudagur 25. mars 2009 19Sviðsljós
Söngkonan Katy Perry sem gerði garðinn frægan með laginu I kiss-ed a Girl og klassíski söngvarinn
Josh Groban sem flestir kannast við eru
nú sögð vera að stinga saman nefjum. Á
meðan hún syngur um að kyssa stelpur
bræðir hann hjörtu kvenna um allan
heim með djúpri röddu sinni og sjarma.
Það má því með sanni segja að þau séu
afar ólík þegar kemur að tónlistinni.
Samkvæmt heimildarmanni hafa skötu-
hjúin verið að hittast um tíma en reynt
allt hvað þau geta til að halda samband-
inu leyndu. Engu að síður hefur söng-
konan oftar en ekki lýst opinberlega yfir
aðdáun sinni á söngvaranum.
Katy Perry og
Josh groban
Söngfuglar stinga saman nefjum:
Söngvarinn Josh Groban Er
þekktur fyrir að bræða hjörtu
kvenna með röddu sinni.
Kyssir Josh Groban
söngkonan sem syngur
um að kyssa stelpur
er sögð vera að hitta
sjálfan Josh groban.
Katie Price, einnig þekkt sem Jordan, hefur loksins látið verða af því að hanna klæðnað fyrir unga knapa. Jordan er mikil hestakona
og lét verða af því fyrir nokkru að framleiða sína
eigin línu af reiðfatnaði.
Jordan pósaði í sínum eigin klæðnaði með tvo
smáhesta sér við hlið. Óhætt er að segja að dressið
sem Jordan er í er ekki það þægilegasta í heimi.
Ekki þykir líklegt að Jordan myndi sjálf fara svona
klædd á bak.
Föt barnanna voru að mestu bleik, líka stráka-
klæðnaðurinn, og passaði liturinn sérstaklega vel
við smáhestana sem Jordan hélt fast í.
Bleik föt og
smáhestar
Jordan hannar klæðnað fyrir unga knapa:
Brjóstaskora Og litlir hestar.
Það gerist ekki mikið betra.
Stórglæsileg með
smáhestunum.
Bleikur klæðnaður
Jordan hannar klæðn-
að fyrir unga knapa.
sKoðar sexí
strendur
Joel og Ethan Coen blása nýju lífi í gamla John Wayne-mynd: