Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Blaðsíða 9
miðvikudagur 25. mars 2009 9Fréttir
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
Fjarstýrðir rafmagns- og
bensínbílar í úrvali
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is
Vefsíðan ringulreid.org er oftar en ekki notuð til að níðast á
ungu fólki. Ung stúlka sem varð fyrir barðinu á níðingunum
segir þá hafa eyðilagt líf sitt. Sálfræðingurinn Kolbrún Bald-
ursdóttir er orðlaus yfir vefsíðunni og segir að þolendur ein-
eltis glími við fortíðina allt sitt líf.
NetNíðiNgar
leggja börN
í eiNelti „Ég er ung stelpa sem var sett inn á þessa síðu og það rústaði öllu í mínu lífi.“
Fjölmörg íslensk börn hafa verið
og eru beitt grófu andlegu ofbeldi
í gegnum vefsíðuna ringulreid.org.
Vefsíðan var sett upp stuttu eftir að
lögreglan lokaði annarri íslenskri
barnaklámssíðu sem bar nafn-
ið handahof.org. Þeirri vefsíðu
var lokað í kjölfar umfjöllunar DV
um hana og ábendingar til blaðs-
ins um hver stæði á bakvið síðuna.
Lögreglan gekk í málið í kjölfarið
og vefsíðunni var lokað.
Vefsíðan virkar þannig að hver
sem er getur, í skjóli nafnleyndar,
sett inn ljósmyndir og texta. Út frá
þessum færslum verða til spjall-
þræðir með ákveðnum umræðu-
efnum. Þannig má til dæmis finna
spjallþræði sem fjalla um berar
ungar stúlkur. Þá keppast netníð-
ingarnir við að birta allar þær upp-
lýsingar sem hægt er að komast
í um viðkomandi stúlkur og þær
beinlínis lagðar í einelti með ógeð-
felldum ummælum um til dæmis
útlit þeirra.
Lögreglan hefur að undan-
förnu rannsakað síðuna með hjálp
Interpol og er sú rannsókn enn í
gangi.
Rústaði lífi mínu
„Ég er ung stelpa sem var sett inn
á þessa síðu og það rústaði öllu í
mínu lífi,“ segir ung stúlka sem ekki
vildi koma fram undir nafni af ótta
við hefndaraðgerðir níðinganna.
„Ég er undir lögaldri en birt-
ar voru myndir af mér á vefsíð-
unni sem hafa aldrei verið birtar
á netinu áður. Ég var búin að kæra
dreifinguna á þessum myndum
en málið er að það er ekki hægt að
stoppa þetta,“ segir stúlkan sem
veit um fleiri sem hafa lent í níð-
ingunum.
„Það er fullt, fullt af ungum
stelpum og strákum sem lenda í
þungu andlegu ofbeldi þarna á
netinu og á stað þar sem allir geta
og verða oft meðvirkir,“ segir stúlk-
an sem, eins og svo margir, stend-
ur ráðþrota gagnvart eineltinu.
Lífið óbærilegt
„Þetta gæti þýtt eyðileggingu til
lífstíðar fyrir þá sem verða þolend-
ur. Þetta verður algjörlega stjórn-
laust því þetta verður notað gegn
þér, þessu verður dreift og þar með
gæti þetta gert líf sumra óbærilegt,“
segir Kolbrún Baldursdóttir sál-
fræðingur en hún hefur að undan-
förnu fjallað um einelti í þætti sín-
um á sjónvarpstöðinni ÍNN.
„Það sem kemur upp í huga
minn er hvar foreldrarnir séu og
hvort þeir viti hvað börnin þeirra
eru að gera. Þetta eru ungir krakk-
ar og því verður að ná til foreldr-
anna,“ segir Kolbrún sem skynjar
breytta afstöðu foreldra til einelt-
is og þá sérstaklega foreldra ger-
enda.
Alvarlegt vandamál
„Þeir sem fá símtalið um að barn-
ið þeirra sé gerandi í einelti eru
æ meira tilbúnir til samvinnu því
þetta er eitthvað sem enginn vill.
Sem betur fer hefur dregið úr því
að foreldrar fari í vörn þegar málin
eru rædd við þau. Yfirleitt eru for-
eldrarnir miður sín og vilja gjarn-
an vinna með öðrum í málinu. En
þetta er bara eins og lítill snjóbolti
sem rúllar niður fjallshlíð. Þetta er
kannski bara lítill hópur til að byrja
með en síðan fara fleiri að taka þátt
í því að níðast á öðrum. Ef ekki
næst að stöðva þetta ertu kominn
með slóð af alvarlegum vandamál-
um,“ segir Kolbrún.
En hvenær geta þolendur byrj-
að að vinna í sínum málum?
„Fyrsta skrefið er að stoppa
eineltið. Þolandinn á erfitt með
að byrja bata fyrr en þessi skaðlegi
ferill hefur verið stöðvaður. Með-
an það er yfirvofandi að á morgun
eða hinn munu birtast myndir af
þér á vefsíðunni eða níð þá getur
þú aldrei byrjað þennan bataferil
að neinu leyti. Það er ekki fyrr en
að þessari síðu verður lokað sem
þolendur geta byrjað að tína púsl-
in saman.“
AtLi MáR GyLfAson
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
netníðingarnir
Leggja ekki síst ungar
stúlkur í einelti.
Kolbrún Baldursdóttir
segir neteineltið geta
valdið varanlegum skaða.
Ringulreid.org
Er skilgetið afkvæmi barna-
klámssíðunnar handahof.org.