Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 20. Maí 20094 Fréttir „Atvinnulífið er að kafna“ Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segist ekkert botna í þeirri afstöðu Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins að varast beri frek- ari lækkun stýrivaxta að sinni. „Þetta er óþurftarverk af hálfu sjóðsins. Atvinnulífið er að kafna undan þessu. Háir vextir valda því að engar ákvarðanir eru teknar um fjárfestingar. Meira að segja útflutningsgreinar og aðr- ir sem njóta góðs af lágu gengi krónunnar halda að sér hönd- um með fjárfestingar og fjölgun starfsfólks vegna hárra vaxta.“ 10,8 prósenta verðbólga Hagstofan birtir í næstu viku nýjar verðbólgutölur. Grein- ing Íslandsbanka spáir því að verðbólgan muni hækka um 0,4 prósent í maí. Gangi spá- in eftir lækkar tólf mánaða verðbólga úr 11,9 prósent- um í 10,8 prósent. Er það mat Greiningar að hækk- andi eldsneytisverð og annar kostnaður tengdur bifreiðum muni reynast drýgsti hækk- unarvaldur vísitölu neyslu- verðs að þessu sinni. Jöklabréf á þingi Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir að óveruleg- ur hluti svonefndra jöklabréfa sé í eigu innlendra aðila. Vitað sé að mestu hverjir útgefendurnir voru en það voru einkum þýskir, austurrískir og japanskir aðilar. Steingrímur segir að bréfin séu misjöfn og til misjafnlega langs tíma og hluti þeirra sé tengd- ur þeim sem gerðu út á vaxta- muninn. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Þórs Saari, Borgarahreyfingunni. Þór þótti svörin rýr og vakti at- hygli á að innlend verðbréf væru í miklum mæli í höndum manna erlendis. Ekki talinn í lífshættu Átján ára piltur sem slasaðist í vinnuslysi í Garðinum í gær- morgun er ekki talinn í lífs- hættu. Hann hlaut þó alvarlega áverka og er höfuðkúpubrotinn, fótbrotinn og með áverka í and- liti. Að því er fram kom í fréttum RÚV var verið að hífa byggingar- mót í krana, þegar vírinn slitnaði og mótin féllu ofan á starfs- manninn. „Það kom ýmsum á óvart að þessi við- skipti væru í þeim mikla mæli sem þau eru,“ segir Samúel Örn Erlingsson, varabæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Kópavogi. DV náði tali af Samúel í gærkvöldi þegar hann var nýkominn af fundi bæjarmálaráðs Framsóknar- flokksins í Kópavogi þar sem saman voru komnir á annan tug framsókn- armanna. Umræðuefni fundarins var viðskipti bæjarfélagsins við Frjálsa miðlun, fyrirtæki Brynhildar Gunn- arsdóttur sem er dóttir Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn mynda meirihlutann í bænum og kom til tals að meirihlutasamstarfinu yrði slitið vegna málsins. „Ég ætla ekk- ert að útiloka það,“ segir Samúel. 19 ára meirihlutasamstarf Niðurstaða fundarins í gærkvöldi var að bíða eftir skýrslu endurskoðenda bæjarins sem eru að fara yfir viðskipti við Frjálsa miðlun á árunum 2003 til 2008 en á síðasta bæjarráðsfundi þann 14. maí var samþykkt að láta vinna slíka skýrslu. „Ég vil gjarnan vita hversu mikil viðskipti við þetta tiltekna fyrir- tæki eru af heildarviðskiptum af þessu tagi hjá bæjarfélaginu áður en ég móta mína afstöðu,“ segir Samúel. Þegar skýrsla endurskoðenda er tilbúin mun fulltrúaráð Framsóknar- flokksins fara yfir stöðuna. Ekki er ljóst hversu löng bið er eftir skýrslunni. Samúel segir því aðspurður að meirihlutasamstarfinu verði ekki slit- ið í dag. „Menn bíða bara eftir stað- reyndum,“ segir hann og vísar til kom- andi skýrslu. „Það væri frekar lélegt að slíta 19 ára meirihlutasamstarfi að illa athuguðu máli. En það þýðir samt ekki að það sé ómögulegt,“ segir Samúel og leggur áherslu á að allar staðreyndir liggi ljósar fyrir áður en lengra er hald- ið. „Ráðast á dóttur mína“ Gunnar Birgisson, bæjarstóri Kópa- vogsbæjar, hefur ítrekað vísað því á bug í samtölum við DV að nokkuð sé óeðli- legt við umfang viðskipta bæjarins við fyrirtæki dóttur hans. Hann vildi lít- ið segja þegar blaðamaður náði tali af honum í gær. „Ég mun ekki tjá mig um málið fyrr en skýrsla endurskoðenda liggur fyrir. Ég vil verða hreinsaður af þessum ásökunum og áburði, bæði ég og hún. Hún hefur ekkert til saka unn- ið,“ segir Gunnar. Spurður hvað honum finnist um þann möguleika að meirihlutaslit verði vegna viðskiptanna segir hann: „Ég hef ekki heyrt það áður og mér finnst það mjög ólíklegt.“ Kastljós tók í gær fyrir greiðslur Kópavogsbæjar til Frjálsrar miðlunar og hélt Gunnar sig þar við fyrri afstöðu: „Síðan er þessi skítapólitík frá Samfylk- ingunni að reyna að gera mig tortryggi- legan, og í fyrsta lagi síðan að ráðast á dóttur mína og hennar fyrirtæki. Það virðist vera eitt af helstu stefnumálum Samfylkingarinnar því málefnafátækt- in er algjör,“ sagði hann. Hefur ekkert að fela DV hefur undanfarnar vikur fjallað ít- arlega um viðskiptin. Þannig kom fram þann 9. apríl að Frjáls miðlun hefði á undanförnum árum fengið greiðslur fyrir verkefni frá Kópavogsbæ að upp- hæð tæpar fjörutíu milljónir króna. Gunnar sagði þá að verkin sem félag dóttur sinnar hefði fengið í gegnum tíðina hefðu verið boðin út en að félag hennar hefði boðið lægst og því feng- ið verkin. Bryn- hildur sagði nýverið í sam- tali við DV að hún hefði ekk- ert að fela, þeg- ar hún var spurð um hvort þarna hefði verið farið að eðlilegum viðskiptaháttum. Fulltrúar minnihlutans í Kópavogi hafa lengi barist fyrir því að tekin verði saman gögn um greiðslur bæjarins til fyrirtækis dóttur Gunnars og er það loks nú sem skýrsla um það er komin í vinnslu. 21. apríl greindi DV síðan frá rúm- lega ellefu milljóna króna greiðslum frá Lánasjóði íslenskra námsmanna til Frjálsrar miðlunar á sama tíma og Gunnar var stjórnarfor- maður sjóðsins. Gunnar heldur fast við að ekkert sé óeðlilegt við þessar greiðslur. Við vinnslu fréttarinnar náðist ekki tal af Brynhildi Gunnarsdóttur. Samúel Örn Erlingsson útilokar ekki meirihlutaslit Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi. Boðað var til skyndifundar bæjarmálaráðs Framsóknar í gær þar sem sá möguleiki var ræddur. Umfang viðskipta bæjarins við fyrirtæki dóttur Gunnars I. Birgissonar hefur komið mjög á óvart. Niðurstaða fundarins var að bíða eftir skýrslu endurskoðenda bæjarins um viðskipti bæjarins við fyrirtæki dóttur Gunnars. ÚTILOKAR EKKI MEIRIHLUTASLIT miðvikudagur 15. apríl 20096 Fréttir Dóttir Gunnars Birgissonar, Bryn- hildur Gunnarsdóttir, hefur fengið greiddar rúmar 40 milljónir króna frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum, samkvæmt heimildum DV. Gunn- ar er bæjarstjóri Kópavogs. Bryn- hildur rekur útgáfufélagið Frjálsa miðlun ásamt eiginmanni sínum Guðjóni Gísla Guðmundssyni sem jafnframt er framkvæmdastjóri þess. Útgáfufélagið hefur fengið þessi verkefni án útboðs samkvæmt heimildum og hefur Brynhildur fengið greiðslurnar fyrir ýmiss kon- ar útgáfustarfsemi á vegum bæjar- ins. Meðal annars hefur útgáfufélag- ið séð um gerð ársskýrslu bæjarins sem dreift hefur verið á hvert heim- ili í bænum undanfarin ár. Samkvæmt heimildum DV fékk félagið 7 milljónir króna frá Kópa- vogsbæ árið 2008 fyrir hin ýmsu verk og hefur fengið 700 þúsund krónur það sem af er þessu ári. Jafnframt mun fyrirtæki Bryn- hildar hafa fengið rúmar tvær millj- ónir króna frá bænum árið 2005 til þess að vinna afmælisrit fyrir hönd bæjarins í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar. Þetta afmælisrit kom þó aldrei út en Frjáls miðlun hélt greiðslunni samt sem áður eft- ir samkvæmt heimildum. Krefjast svara um greiðslurnar Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, þau Guðríður Arnardóttir og Haf- steinn Karlsson, lögðu fram fyrir- spurn fyrir bæjarráð Kópavogsbæj- ar á miðvikudaginn í síðustu viku þar sem þau krefja bæjarstjórann svara um viðskipti og greiðslur til félagsins tíu ár aftur í tímann. Guðríður segir að þau hafi ákveðið að leggja fyrirspurnina fram á bæjarráðsfundi vegna þess að þeim hafi síendurtekið bor- ist það til eyrna að Frjáls miðlun hafi fengið verkefni hjá Kópavogs- bæ án þess að útboð færi fram á þessum verkum. „Við höfum feng- ið ábendingar um að þetta fyrir- tæki hafi fengið fjölmörg verk án útboðs og að viðskipti bæjarins við þetta fyrirtæki hafi verið mik- il á liðnum árum,“ segir Guðríður Arnardóttir. Hún segir að það sé sjálfsagt og eðlilegt að þau sem kjörnir fulltrú- ar í bæjarstjórn spyrjist fyrir um þetta. „Okkur langar að vita hversu stór og mikil viðskipti þetta hafa verið við fyrirtækið og hvort það hefði ekki verið eðlilegt að bjóða þau út,“ segir Guðríður. Verkin boðin út, segir Gunnar Gunnar Birgisson segir að verkin sem félag dóttur hans hafi fengið í gegnum tíðina hafi verið boðin út en að félag hennar hafi boðið lægst og því hafi það fengið verkin. Hann segir aðspurður að Kópavogsbær bjóði út öll stærri verk sem unn- in séu fyrir bæinn. „Við bjóðum út ársskýrslur og öll stærri verk og allt það,“ segir Gunnar og bætir því við að Samfylkingin stundi „skítapólit- ík“ með fyrirspurninni um félagið. „Það eru engir óeðlilegir viðskipta- hættir þarna og þó að hún sé dóttir mín á ekki að refsa henni fyrir það,“ segir Gunnar. Aðspurður segir Gunnar að hann viti ekki hvort þær upphæð- ir sem DV hefur heimildir fyrir að Frjáls miðlun hafi fengið séu réttar eða ekki. Bæjarstjórinn segir að fyrir- spurn bæjarfulltrúanna verði svarað eftir bestu getu. „Menn hafa ekkert að fela í þessu, þetta er allt uppi á borðum hjá okkur og mun allt koma í ljós væntan- lega,“ segir Gunnar og bætir því við að fyrirspurninni verði svar- að fljótlega. InGI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Gunnars Birgissonar Brynhildur Gunnar sdóttir Krefjast svara um Frjálsa miðlun guðríður arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í kópavogi, segir að Samfylkingin vilji fá að vita hvort Frjáls miðlun hafi fengið verk án útboðs frá kópavogsbæ. MILLJÓNAGREIÐSLUR TIL DÓTTUR GUNNARS „skítapólitík“ samfylkingarinnar gunn- ar Birgisson, bæjarstjóri í kópavogi, segir a ð fyrirspurn Samfylkingarinnar sé dæmi um „skítapólitík“. Hann neitar ásökununum og segir kópavogsbæ bjóða út öll „stærri“ ver k. sverrir Pétur Pétursson Ákæ ður fyrir 60 milljóna skattsvik Sverrir Pétur Pétursson málara- meistari hefur verið ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot. Ríkis- lögreglustjóri ákærði Sverri Pétur fyrir að svíkja rúmar 60 milljón- ir undan skatti á árunum 2006 og 2007. Að því er kemur fram í ákæru framdi Sverrir Pétur brotin ýmist með því að standa skil á röngum virðisaukaskattsskýrslum, skila ekki slíkum skýrslum eða með því að standa ríkissjóði ekki skil á inn- heimtum virðisaukaskatti. Málið verður þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í dag. Samkvæmt ákæru byrjaði Sverrir Pétur smátt, en frá janúar til febrúar 2006 sleppti hann að greiða virðisaukaskatt að upphæð fjórtán þúsund krónur. Á næstu tveimur mánuðum fór upphæð- in skjótt upp í rúmar fimm millj- ónir. Í hegningarlögum er gert ráð fyrir að þeir sem brjóta af sér á þennan hátt geti átt von á allt að sex ára fangelsi auk fjársekta. Sam- kvæmt lögum um virðisaukaskatt þarf Sverrir Pétur, verði hann sak- felldur, að endurgreiða minnst tvöfalda þá upphæð sem svikin var undan skatti, rúmar 120 milljónir. Hins vegar er heimild til að inn- heimta fjársektir sem nema allt að tífaldri upphæðinni, eða 600 millj- ónir króna. Sverrir Pétur er 45 ára og fékk löggildingu sem málarameistari fyrir tæpum átta árum. Hann vildi ekki tjá sig um málið þegar DV náði tali af honum í gær. erla@dv.is Tíföld sekt Sverrir pétur pétursson þarf að greiða minnst 120 milljónir í sekt verði hann sakfelldur en getur þó verið sektaðu r um allt að 600 milljónir. mynd PhoTos.com Stjórnvöldum hefur mistekist Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórnvöldum hafi algerlega mis- tekist að halda uppi gengi krón- unnar. Gengi hennar hafi fallið um heil 16 prósent frá 1. febrúar. „Það stefnir í nýja verðbólgu- bylgju sem kemur í veg fyrir að Seðlabankinn geti lækkað vexti,“ sagði Bjarni í upphafi þingfundar á Alþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra spurði Bjarna hvort hann væri að mælast til þess að gjaldeyrisforðinn yrði notaður til að halda uppi gengi krónunnar. Steingrímur viðurkenndi að glíman við að halda uppi gengi krónunnar hefði reynst erfiðari en menn hefðu vonað. Sverrir í sprengjuárás „Ég sat inni á tuskulegum veit- ingastað og var að panta mér kokkteil, bankokkteil, þegar molotovkokkteill kom allt í einu fljúgandi inn um gluggann. Ekki alveg það sem ég var að biðja um,“ skrifar tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker á bloggsíðu sína. Hann var svo óheppinn að vera staddur í Bangkok þegar óeirðir brutust út í höfuðborg Taílands. Mótmælendur hafa krafist þess að Abbhisit Veijajivi, for- sætisráðherra landsins, segi af sér. Sverrir segir að á svipstundu hafi annars lítt vinsæll veitinga- staður breyst í einn þann heit- asta í bænum, í orðsins fyllstu merkingu. Enn springur meirihluti Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur er sprunginn eftir að deila kom upp milli Samfylkingarinnar og Fram- sóknar sem fóru með meiri- hluta í bæjarstjórninni. Deilan sem varð meiri- hlutanum að falli er rak- in til þess að bæjarfulltrú- ar Samfylkingarinnar lögðu fram bókun þess efnis að þeir vildu ráða Garðar Pál Vignis- son í stöðu skólastjóra Hóps- kóla. Garðar Páll hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Samfylk- inguna frá árinu 2001 og er forseti bæjarstjórnar. Þetta er í annað skiptið á kjörtímabilinu sem meiri- hluti springur í Grindavík. Sá fyrri sprakk á síðasta ári. Leiðinlegt á Selfossi Lögregla og sjúkralið var kallað að verslun Krónunnar á Selfossi aðfaranótt laugardags vegna manns sem kviknað hafði í. Þeg- ar lögregla kom á staðinn var enginn eldur en í ljós kom að piltur á nítjánda ári hafði hellt bensíni í fatnað sinn og borið eld að. Félagi hans var til staðar með slökkvitæki og slökkti eldinn. Pilturinn útskýrði tiltækið með þeim hætti að hann hefði gert þetta sér til gamans þar sem svo leiðinlegt væri á Selfossi. Pilt- urinn hlaut ekki skaða af en hann hafði borið vaselín á fætur sína til að fyrirbyggja bruna. miðvikudagur 22. apríl 20096 Fréttir Á þeim tíma sem Gunn r Birgis- son, bæjarstjóri í Kóp vogi, var stjórnarformaður Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna (LÍN) fékk út- gáfufélag dóttur hans, Frjáls miðl- un, rúmar ellefu milljónir króna greiddar frá sjóðnum vegna ým- iss konar þjónustu sem tengist útgáfustarfsemi. Ekki eru nánari upplýsingar um eðli verkefnanna í bókhaldi Lánasjóðsins. Þetta kem- ur fram í upplýsingum sem starfs- menn Lánasjóðsins hafa tekið saman að beiðni DV. Starfsmenn Lánasjóðsins fóru yfir bókhald sjóðsins allt frá árinu 1992 þegar Gunnar tók við sem stjórnarformaður LÍN og fram til ársins 2009 þegar Katrín Jakobs- dóttir, nýskipaður menntamála- ráðherra, vék stjórninni frá og skipaði nýja. Ekki útboðsskylda Frjáls miðlun er útgáfufélag sem dóttir Gunnars, Brynhildur Gunn- arsdóttir, á og rekur ásamt eigin- manni sínum, Guðjóni Gísla Guð- mundssyni. Félagið sérhæfir sig meðal annars í auglýsingagerð, tölvuvinnslu og útgáfustarfsemi hvers konar, samkvæmt hlutafé- lagaskrá. S mkvæmt pplýsingum frá Guðmundi Hannessyni, forstöðu- manni ráðgjaf sviðs hjá Ríkis- kaupum, er ríkisstofnunum ekki skylt að bjóða út verk sem kosta innan við fimm milljónir króna og er því ólíklegt að verkin sem Frjáls miðlun fékk frá LÍN hafi verið boð- in út. Upplýsingar frá Lánasjóðn- um koma heim og saman við þetta en samkvæmt þeim er sjóðnum ekki skylt að bjóða út öll verk sem keypt eru. Í flestum tilfellum er það fram- kvæmdastjóri LÍN sem tekur ákvörðun um við hvaða fyrirtæki eigi að skipta. Núverandi fram- kvæmdastjóri lánasjóðsins heit- ir Guðrún Ragnarsdóttir og tók hún við stöðunni í byrjun febrú- ar. Greiðslurnar til dóttur Gunn- ars áttu sér því stað áður en hún kom að sjóðnum. Framkvæmda- stjóri LÍN á undan Guðrúnu var Steingrímur Ari Arason, núverandi forstjóri Sjúkratryggingastofnun- ar, sem gegndi starfinu frá árinu 1999. Gunnar neitar aðkomu Aðspurður um hvort hann hafi átt þátt í að veita Frjálsri miðlun verk- efni sem það fékk greiddar fyr- ir rúmar ellefu milljónir króna á umræddu tímabili segir Gunnar Birgisson að það hafi alfarið verið framkvæmdastjóri Lánasjóðsins sem tók ákvarðanir um við hvaða fyrirtæki ætti að skipta. „Ég hafði ekki milligöngu um það. Ég var bara formaður stjórnarinnar. Það þarf bara að spyrja framkvæmda- stjórana að þessu,“ segir Gunnar og bætir því við að hann hafi ekki einu sinni haft hugmynd um að Frjáls miðlun hefði unnið fyrir Lánasjóð- inn. Ekki náðist í Steingrím Ara Ara- son við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Rúmar 50 milljónir til dóttur- innar Upplýsingarnar um greiðslur LÍN til félagsins koma fram í kjölfar fréttar DV frá því í síðustu viku um að Frjáls miðlun hafi samkvæmt heimildum fengið greiddar rúm- ar 40 milljónir frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum fyrir alls kyns út- gáfustarfsemi. Frjáls miðlun hefur í flestum tilfellum fengið þau verk sem félagið hefur unnið fyrir Kópa- vogsbæ án útboðs en meðal ann- ars er um að ræða gerð ársskýrslu fyrir Kópavogsbæ sem dreift hefur verið inn á heimili Kópavogsbúa á liðnum árum. Tengsl Frjálsrar miðlunar við Kópavogsbæ hafa löngum verið tortryggð og meðal annars birtist frétt í DV í janúar árið 2005 um að minnihlutinn í bæjarstjórn væri ósáttur við að félagið fengi verk- efni frá bænum án útboðs. Þessi óánægja minnihlutans náði svo há- marki fyrir tæpum tveimur vikum þegar bæjarfulltrúar Samfylking- arinnar, þau Guðríður Arnardótt- ir og Hafsteinn Karlsson, lögðu fram fyrirspurn á bæjarráðs- fundi þar sem þau óskuðu eft- ir upplýsingum um greiðslur frá Kópavogsbæ til Frjálsrar miðlunar tíu ár aftur í tím- ann og eins hvort verkefn- in hefðu farið í útboð áður en þeim var úthlutað til félagsins. Gunnar hefur neitað því að nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað í viðskiptum Frjálsrar miðlunar og Kópavogsbæjar. Hann segir að þau verk sem Frjáls miðlun fékk hjá Kópavopsbæ hafi verið boðin út og að dóttir hans eigi ekki að líða fyrir það að faðir hennar sé bæjarstjóri. Samkvæmt Þór Jónssyni, for- stöðumanni almannatengsla hjá Kópavogsbæ, er unnið að því að safna umbeðnum upplýsingum um Frjálsa miðlun saman og munu þær liggja fyrir eins fljótt og auðið er að hans sögn. InGI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Gunnars Birgissonar Brynhildur Gunn- arsdóttir DÓTTIR GUNNARS FÉKK 11 MILLJÓNIR FRÁ LÍN líka greiðslur frá lÍn guðríður arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylking- arinnar í kópvogi, lagði fyrr í mánuð- inum fram fyrirspurn um greiðslur frá kópavogsbæ til útgáfufélagsins Frjálsrar miðlunar. Nú hefur það fengist staðfest að félagið fékk rúmar 11 milljónir frá lánasjóði íslenskra námsmanna. milljónagreiðslur til dótturinnar dóttir gu nnars Birgissonar, Brynhildur gunnarsdóttir, fékk greiddar rúmar 11 mill jónir króna frá lánasjóði íslenskra námsmanna meðan faðir hennar var stjórn arformaður sjóðsins. neitar aðkomu að greiðslum gunnar Birgisson neitar því að hafa haft milligöng u um að dóttir hans fengi verkefni sem skilu ðu útgáfufélagi hennar 11 milljónum króna meðan hann var stjórnarformaður líN. Össur fer mikinn gegn Bjarna Ben Össur Skarphéðinsson tekur Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, á beinið í færslu á bloggsíðu sinni. Hann segir að Bjarni hafi einkum getið ér orð fyrir einstakan hæfi- leika til ð skipta oft um skoðun. Össur gerir það sem hann kallar hringlandahátt Bjarna varðandi skattahækkanir og ESB að um- talsefni. „Honum hefur tekist að fara tvo heila hringi varðandi skattahækkanir. Frá landsfundi hefur hann verið jafnoft á móti skattahækkunum, og með þeim. [...] Sami hringlandaháttur birt- ist um ESB. Þar er Sjálfstæðis- flokkurinn einsog vönkuð kvíga, sem veit ekki hvað snýr upp eða niður.“ Eignaspjöll og þjófnaðir á Akranesi Töluvert var um eignaspjöll í umdæmi lögreglunnar á Akra- nesi í síðustu viku. Krotað var utan á íbúðarhús í bænum en þeir sem þar voru að verki þekkt- ust og telst það mál upplýst. Einnig var farið um borð í skip í Akraneshöfn og neyðarbauja eyðilögð ásamt því sem gerð var tilraun til innbrots í skipið. Á föstudagskvöld voru brotnar rúður í nýju verknámshúsi Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Stjórnin sprung- in, segir Guðni Guðni Ágústsson segir að rík- isstjórn Samfylkingar og VG hafi sprungið á opnum fundi á Selfossi í fyrrakvöld. Þetta segir Guðni í samtali við vefinn sunn- lendingur.is. „Hún sprakk á opn- um fundi á Selfossi í gærkvöldi, allt járn í járn,“ segir Guðni við Sunnlending og vísaði í skoðana- ágreining milli Björgvins G. Sig- urðssonar og Atla Gíslasonar um aðild að Evrópusambandinu. Hátekjufólk með stóra sneið 615 tekjuhæstu fjölskyldurn- ar á Íslandi fengu í sinn hlut 4,2 prósent af heildartekj- um fjölskyldna í landinu árið 1993, en árið 2007 var hlutur þeirra af tekjum allra fjöl- skyldna orðinn 19,8 prósent. Þetta kemur fram í skýrslu sem þeir Arnaldur Sölvi Kristjánsson og Stefán Ólafs- son frá Háskóla Íslands unnu um þróun tekjuskiptingar á Íslandi frá 1993 til 2004. Þá segir í skýrslunni að á sama tíma og tekjur hátekjuhóp- anna jukust langt umfram tekjur annar a á Íslandi hafi stjórnvöld bætt um be ur og lækkað stórlega skattbyrði hátekjuhópanna, með inn- leiðingu hins nýja fjármagns- tekjuskatts. Þorsteinn m. jónsson Tók ekki út arðinn Í DV í gær var Þorsteinn M. Jónsson, jafnan kenndur við Kók, sagður hafa látið Sólstafi ehf, móðurfélag Vífil- fells, greiða sér 250 milljóna króna arð árið 2007 þrátt fyrir að félagið hefði tapað hálfum milljarði á árinu. Samþykkt var fyrir því hjá félaginu að hann fengi arð sem umræddri upp- hæð nemur en á það reyndi aldrei. Í frétt blaðsins var tap félagsins sagt nema 521 milljón króna. Þorsteinn gerir athugasemdir við þessi atriði og segir þessa fjárhæð eiga við inn- leyst tap en tap ársins sem fært var á eigið fé hafi numið 245,2 milljónum króna sem sé hið eiginlega tap. Þá segir einnig í fréttinni að á félaginu hafi, samkvæmt ársreikningi 2007, verið lán upp á rúmlega einn og hálf- an milljarð í erlendri mynt. Lánið var í fréttinni uppreiknað með tilliti til gengisbreytinga og sagt standa í 3,2 milljörðum íslenskra króna. Þor- steinn segir þessa fullyrðingu frétta- rinnar ekki standast þar sem öllum erlendum lánum félagsins hafi ver- ið breytt í íslenskar krónur í byrjun ársins 2008 og félaginu hafi þannig verið forðað frá verulegu gengistapi. Samkvæmt upplýsingum Þorsteins var ofsagt í DV að hann hefði fengið arðinn. Hið rétta er að samþykkt var að hann fengi greiddan arð en hann nýtti sér ekki þá heimild. Þorsteinn m. jónsson Öllum erlendum lánum Sólstafa var breytt í íslenskar krónur í byrjun ársins 2008 . Föstudagur 15. maí 20096 Fréttir Sandkorn Hjá Pennanum er starfsfólk með brattara móti eftir kenni- töluhoppið í boði ríkisins. Fjöldi bókaútgáfna er í sárum eftir ð fyrirtækinu tókst að svíða af þeim stóran hluta umboðssöl- unnar. Engan bilbug er þó að finna á Bryndísi Loftsdóttur, talsmanni Pennans, sem fer á kostum eins og fyrir kennitölu- flakk. Við kynningu á metsölu- lista vikunnar upplýsti hún rík- isstjórnina um að kynjaskipting á topp 10 metsölulistanum væri jöfn þessa vikuna. Hins vegar sæti karlmaður í fyrsta sæti list- ans og þannig hefði það verið í 17 af 19 vikum þessa árs. Hinar ýmsu samsæriskenning- ar vegna stjórnarskiptanna láta ekki á sér standa. Vefritið Press- an vekur á því athygli að Katrín Jakobsdóttir menntamálaráð- herra var fjarverandi þegar fram fór sérstök sýning í Þjóðleik- húsinu á leikriti Jökuls Jakobs- so ar, H rt í bak. Um var að ræða sýningu sem tekin var upp til sýn- ingar í Ríkis- sjónvarpinu um næstu jól. Rjómi valdastéttarinnar var mættur í boði Tinnu Gunnlaugsdótt- ur þjóðleikhússtjóra. Fjarvera menntamálaráðherra þótti vís- bending um að Tinna yrði ekki endurráðin sem leikhússtjóri. Flipp Moggans með gerviís- björni n í Skagafirði er með því neyð legra sem sést hefur í fjöl iðlum og hafa hlátrasköll- in vegna einfeldninnar glumið milli fjalls og fjöru. Sjálfir eru Moggamenn talsvert uppteknir af ísbjörnum ef marka má frétt sem kom í kjölfarið um að ólík- legt væri með tilliti til stöðu haf- íss að ísbirnir þvældust hingað um Grænlandssund. Guðmund- ur Magnússon, ritstjóri Eyj- unnar, þykir hafa undirliggjandi húmor en hann tengdi á frétt Moggans með orðunum „Mogg- inn nn á ísbjarnavakt“. L ndsbankinn, hinn nýi, keppist nú við að tjasla saman ímynd sinni eftir bankahrun- ið og hefur kostað til ófáum milljónum í auglýsingaherferð í þeim tilgangi. Upplýsingasvið bankans lætur heldur ekki sitt eftir liggja en þaðan hafa þau Páll Be ediktsson og Tinna Molphy sent fjölmiðlum ítar- legar leiðbeiningar um hvernig fjalla skuli um Landsbankann í fjölmiðlum. Þeim er, að því er virð- ist, kapps- mál að fjar- lægja nýja Landsbank- ann þeim gamla, en þar starfaði Tinna áður við markaðsmál, og leggja nú á og mæla um að ekki megi kalla gamla Landsbank- ann „gamla“ og þann nýja ekki „nýja“. Nýi Landsbankinn skal hér eftir nefnast „Landsbankinn“ í fréttum og sá gamli „LBI“ eða „skilanefnd LBI“ samkvæmt leiðbeiningum Tinnu og Páls. Þau láta þess þó getið í leiðar- vísi sínum að þau séu „meðvit- uð um að þetta er kannski ekki einfaldasta og skýrasta lausnin í boði“. Flestir hljóta að geta verið sammála því og því má spyrja sig hvaða tilgangi það þjóni að hrófla við góðri og gildri skil- greiningu á gömlu og nýju sem virðist ekki vefjast sérstaklega fyrir almenningi þótt hún fari í taugar markaðsdeildar Nýja Landsbankans eða þess gamla væntanlega líka. Útgáfufyrirtæki í eigu Brynhildar Gunnarsdóttur, dóttur Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópa- vogi, og eiginmanns hennar, Guð- jóns Gísla Guðmundssonar, fékk tæpar 3,5 milljónir króna fyrir að vinna afmælisrit fyrir Kópavogs- bæ árið 2005 sem svo var aldrei gefið út. Fyrirtækið, sem heitir Frjáls miðlun, fékk auk þess rúma hálfa milljón króna til að vinna gagnvirkt götukort fyrir vefsvæði Kópavogsbæjar sem aldrei hefur verið birt á vefsvæði bæjarins.Í heildina hefur Frjáls iðlun feng- ið 50 milljónir króna frá Kópa- vogsbæ vegna verka sem unnin hafa verið fyrir bæinn á síðustu tíu árum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu frá Kópavogsbæ við fyrirspurn tveggja bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi, þeim Guðríði Arnardóttur og Haf- steini Karlssyni, sem lagt var fram á bæjarráðsfundi í Kópavogsbæ í gær. DV fjallaði um greiðslur til Frjálsrar miðlunar í síðasta mán- uði og sagði þá frá því að greiðsl- urnar síðustu sex árin næmu tæp- um 40 milljónum króna. Þegar DV innti Gunnar Birgisson eftir svör- um um hvort eitthvað óeðlilegt væri við viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun sagði hann að ekki ætti að refsa dóttur hans fyrir að hann væri faðir hennar, verk- in sem fyrirtækið fékk hefðu verið boðin út og Samfylkingin í Kópa- vogi stundaði „skítapólitík“ með fyrirspurninni um greiðslurnar til félagsins. Veit ekki af hverju ritið kom ekki út Brynhildur segir að Frjáls miðl- un hafi skilað afmælisritinu til Kópavogsbæjar árið 2005 en að það hafi ekki verið gefið út af ein- hverjum ástæðum sem henni sé ekki kunnugt um. „Bærinn er með handritið að afmælisritinu, við skiluðum því fullunnu með fullt af myndum tilbúnu til prentunar. En ég veit ekki af hverju það var ekki gefið út,“ segir Bryn- hildur en vinnan við þetta afmæl- isrit var ekki boðin út, samkvæmt heimildum DV, og það er ekki nefnt í skýrslunni að það hafi ver- ið gert. Bryn- hildur segir að síðustu ár hafi Frjáls miðlun ein- ungis fengið greitt fyrir verk sem félagið vann en bærinn verði að svara fyrir það af hverju þjónusta þess skilaði sér ekki til Kópavogs- búa. Hún segir, spurð um mikil við- skipti Frjálsrar miðlunar við Kópa- vogsbæ á liðnum árum, að eng- ir óeðlilegir viðskiptahættir hafi verið þarna á ferðinni. „Ég myndi hafa áhyggjur ef svo væri en ég hef ekkert að fela,“ segir Bryn- hildur. Hún segir að félagið hafi í nokkrum tilfellum fengið útboðs- skyld verk eftir þátttöku í útboði en þegar um smærri verk hafi ver- ið að ræða hafi bærinn stundum haft samband við Frjálsa miðl- un og beðið félagið um að vinna verkin. Hún telur að umræðan um Frjálsa miðlun sé pólitísk og stjórnist af því að hún sé dóttir Gunnars Birgissonar bæjarstjóra. Bærinn mun rannsaka viðskiptin Á bæjarráðsfundinum í gær var samþykkt, einróma, tillaga um að fela endurskoðendum Kópa- vogsbæjar að fara yfir öll viðskipti bæjarins við Frjálsa miðlun, hvort farið hafi verið eftir innkauparegl- um bæjarins og hvort ákvarðanir sem snúi að félaginu hafi verið í samræmi við góða stjórnsýslu. Guðríður Arnardóttir segir að það hafi komið henni á óvart hversu háar fjárhæðir fyrirtæki dóttur Gunnars hafi fengið á liðn- um árum og hversu háar greiðsl- urnar hafi verið fyrir ýmis verk sem ekki virðast mjög veigamik- il. En í því sambandi nefnir hún sérstaklega að Frjáls miðlun hafi á síðastliðnum sex árum fengið tæpar 2,5 milljónir fyrir að gera umhverfisviðurkenningar sem ár- lega eru veittar fimm aðilum og rúmlega hálfa milljón fyrir gerð gagnvirks götukorts fyrir vefsvæði Kópavogsbæjar sem aldrei hafi verið látið þangað inn. „Þessar umhverfisviðurkenningar eru við- urkenningarskjöl, A-4 blöð inni í ramma, og fyrir þetta fær félagið greitt allt að 750 þúsund krónur á ári,“ segir Guðríður en í skýrsl- unni segir einnig að Frjáls miðlun hafi fengið rúmlega sex milljónir króna vegna ljósmynda- vinnu fyrir bæinn á síðustu sex árum. Hún segir að hún muni á næstunni fara ítarlega yfir skýrsluna frá Kópa- vogsbæ og athuga fyrir hvaða verk fyr- irtækið fékk greitt og hvort þau hafi skilað sér til bæjarins og til Kópavogsbúa. MILLJÓNIR FYRIR RIT SEM ALDREI KOM ÚT Brynhildar Gunnarsdóttur Gunnars Birgissonar InGI F. VIlhjálmsson blað maður skrifar ingi@dv.is segir viðskiptin eðlileg gunnar Birgisson neitar því staðfastlega að óeðlilegir viðskiptahættir hafi legið á bak við viðskipti við dóttur hans. Greiðslur KópavoGsbæjar til Frjálsrar miðlunar síðastliðin sex ár: ár Upphæð Árið 2003 6.636.422 Árið 2004 4.979.510 Árið 2005 8.094.225 Árið 2006 6.668.755 Árið 2007 6.044.625 Árið 2008 6.990.725 Alls 39.414.262 miðvikudagur 22. apríl 2009 Fréttir Á þeim tíma sem Gunnar Birgis-son, bæjarstjóri í Kópavogi, varstjórnarformaður Lánasjóðs ís-lenskra námsmanna (LÍN) fékk út-gáfufélag dóttur hans, Frjáls miðl-un, rúmar ellefu milljónir króna greiddar frá sjóðnum vegna ým-iss konar þjónustu sem tengist útgáfustarfsemi. Ekki eru nánari upplýsingar um eðli verkefnanna í bókhaldi Lánasjóðsins. Þetta kem-ur fram í upplýsingum sem starfs-menn Lánasjóðsins hafa tekið saman að beiðni DV. Starfsmenn Lánasjóðsins fóru yfir bókhald sjóðsins allt frá árinu 1992 þegar Gunnar tók við sem stjórnarformaður LÍN og fram til ársins 2009 þegar Katrín Jakobs-dóttir, nýskipaður menntamála-ráðherra, vék stjórninni frá og skipaði nýja. Ekki útboðsskyldaFrjáls miðlun er útgáfufélag sem dóttir Gunnars, Brynhildur Gunn-arsdóttir, á og rekur ásamt eigin-manni sínum, Guðjóni Gísla Guð- mundssyni. Félagið sérhæfir sig meðal annars í auglýsingagerð,tölvuvinnslu og útgáfustarfsemi hvers konar, samkvæmt hlutafé-lagaskrá. Samkvæmt upplýsingum fráGuðmundi Hannessyni, forstöðu-manni ráðgjafasviðs hjá Ríkis-kaupum, er ríkisstofnunum ekki skylt að bjóða út verk sem kosta innan við fimm milljónir króna og er því ólíklegt að verkin sem Frjáls miðlun fékk frá LÍN hafi verið boð-in út. Upplýsingar frá Lánasjóðn-um koma heim og saman við þetta en samkvæmt þeim er sjóðnumekki skylt að bjóða út öll verk sem keypt eru. Í flestum tilfellum er það fram-kvæmdastjóri LÍN sem tekur ákvörðun um við hvaða fyrirtæki eigi að skipta. Núverandi fram-kvæmdastjóri lánasjóðsins heit-ir Guðrún Ragnarsdóttir og tók hún við stöðunni í byrjun febrú-ar. Greiðslurnar til dóttur Gunn-ars áttu sér því stað áður en hún kom að sjóðnum. Framkvæmda-stjóri LÍN á undan Guðrúnu var Steingrímur Ari Arason, núverandi forstjóri Sjúkratryggingastofnun-ar, sem gegndi starfinu frá árinu 1999. Gunnar neitar aðkomuAðspurður um hvort hann hafi átt þátt í að veita Frjálsri miðlun verk-efni sem það fékk greiddar fyr-ir rúmar ellefu milljónir króna á umræddu tímabili segir Gunnar Birgisson að það hafi alfarið verið framkvæmdastjóri Lánasjóðsins sem tók ákvarðanir um við h Rúmar 50 milljónir til dóttur-innar Upplýsingarnar um greiðslur LÍN til félagsins koma fram í kjölfarfréttar DV frá því í síðustu viku umað Frjáls miðlun hafi samkvæmt heimildum fengið greiddar rúm-ar 40 milljónir frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum fyrir alls kyns út-gáfustarfsemi. Frjáls miðlun hefur í flestum tilfellum fengið þau verk sem félagið hefur unnið fyrir Kópa-vogsbæ án útboðs en meðal ann-ars er um að ræða gerð ársskýrslu fyrir Kópavogsbæ sem dreift hefurverið inn á heimili Kópavogsbúa á liðnum árum. Tengsl Frjálsrar miðlunar viðKópavogsbæ hafa löngum verið tortryggð og meðal annars birtist frétt í DV í janúar árið 2005 um að minnihlutinn í bæjarstjórn væri in hefðu farið í útboð áður en þeimvar úthlutað til félagsins.Gunnar hefur neitað því aðnokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað í viðskiptum Frjálsrar miðlunar og Kópavogsbæjar. Hann segir að þau verk sem Frjáls miðlun fékk hjá Kópavopsbæ hafi verið boðin út og að dóttir hans eigi ekki að líða fyrir það að faðir hennar sé bæjarstjóri.Samkvæmt Þór Jónssyni, for-stöðumanni almannatengsla hjá Kópavogsbæ, er unnið að því að safna umbeðnum upplýsingum um Frjálsa miðlun saman og munu þær liggja fyrir eins fljótt og auðið InGI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Gunnars Birgissonar Brynhildur Gunn- arsdóttir DÓTTIR GUNNARS FÉKK 11 MILLJÓNIR FRÁ LÍN milljónagreiðslur til dótturinnar dóttir gunnars Birgissonar, Brynhildur gunnarsdóttir, fékk greiddar rúmar 11 milljónir króna frá lánasjóði íslenskra námsmanna meðan faðir hennar var stjórnarformaður sjóðsins. Össur fer mikinn gegn Bjarna BenÖssur Skarphéðinsson tekur Bjarna Benediktsson, formannSjálfstæðisflokksins, á beinið í færslu á bloggsíðu sinni. Hannsegir að Bjarni hafi einkum getið sér orð fyrir einstakan hæfi-leika til að skipta oft um skoðun.Össur gerir það sem hann kallarhringlandahátt Bjarna varðandiskattahækkanir og ESB að um-talsefni. „Honum hefur tekist að fara tvo heila hringi varðandiskattahækkanir. Frá landsfundihefur hann verið jafnoft á mótiskattahækkunum, og með þeim.[...] Sami hringlandaháttur birt-ist um ESB. Þar er Sjálfstæðis-flokkurinn einsog vönkuð kvíga, sem veit ekki hvað snýr upp eða Eignaspjöll og Hátekjufólk með stóra sneið615 tekjuhæstu fjölskyldurn-ar á Íslandi fengu í sinn hlut 4,2 prósent af heildartekj-um fjölskyldna í landinu árið1993, en árið 2007 var hlutur þeirra af tekjum allra fjöl-skyldna orðinn 19,8 prósent.Þetta kemur fram í skýrslu sem þeir Arnaldur Sölvi Kristjánsson og Stefán Ólafs-son frá Háskóla Íslands unnu um þróun tekjuskiptingar á Íslandi frá 1993 til 2004. Þá segir í skýrslunni að á sama tíma og tekjur hátekjuhóp-anna jukust langt umfram tekjur annarra á Íslandi hafi stjórnvöld bætt um betur og lækkað stórlega skattbyrði hátekjuhópanna, með inn-leiðingu hins nýja fjármagns- Fréttir Dóttir Gunnars Birgissonar, Bryn- hildur Gunnarsdóttir, hefur fengið greiddar rúmar 40 milljónir króna frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum, samkvæmt heimildum DV. Gunn- ar er bæjarstjóri Kópavogs. Bryn- hildur rekur útgáfufélagið Frjálsa miðlun ásamt eiginmanni sínum Guðjóni Gísla Guðmundssyni sem hildar hafa fengið rúmar tvær millj- ónir króna frá bænum árið 2005 til þess að vinna afmælisrit fyrir hönd bæjarins í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar. Þetta afmælisrit kom þó aldrei út en Frjáls miðlun hélt greiðslunni samt sem áður eft- ir samkvæmt heimildum. Krefjast svara um greiðslurnar Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, þau Guðríður Arnardóttir og Haf- steinn Karlsson, lögðu fram fyrir- spurn fyrir bæjarráð Kópavogsbæj- Verkin boðin út, segir Gunnar Gunnar Birgisson segir að verkin sem félag dóttur hans hafi fengið í gegnum tíðina hafi verið boðin út en að félag hennar hafi boðið lægst og því hafi það fengið verkin. Hann segir aðspurður að Kópavogsbær bjóði út öll stærri verk sem unn- in séu fyrir bæinn. „Við bjóðum út ársskýrslur og öll stærri verk og allt það,“ segir Gunnar og bætir því við að Samfylkingin stundi „skítapólit- ík“ með fyrirspurninni um félagið. „Það eru engir óeðlilegir viðskipta- hættir þarna og þó að hún sé dóttir mín á ekki að refsa henni fyrir það,“ InGI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Gunnars Birgissonar Brynhildur Gunnarsdóttir MILLJÓNAGREIÐSLUR TIL DÓTTUR GUNNARS „skítapólitík“ samfylkingarinnar gunn- ar Birgisson, bæjarstjóri í kópavogi, segir að fyrirspurn Samfylkingarinnar sé dæmi um „skítapólitík“. Hann neitar ásökununum og segir kópavogsbæ bjóða út öll „stærri“ verk. hefur mistekist - ur Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórnvöldum hafi algerlega mis- tekist að halda uppi gengi krón- unnar. Gengi hennar hafi fallið um heil 16 prósent frá 1. febrúar. - bylgju sem kemur í veg fyrir að Seðlabankinn geti lækkað vexti,“ sagði Bjarni í upphafi þingfundar Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra spurði Bjarna hvort hann væri að mælast til þess að gjaldeyrisforðinn yrði notaður til að halda uppi gengi krónunnar. Steingrímur viðurkenndi að glíman við að halda uppi gengi krónunnar hefði reynst erfiðari sprengjuárás „Ég sat inni á tuskulegum veit- i gastað og var að panta mér kokkteil, bankokkteil, þegar molotovkokkteill kom allt í einu fljúgandi inn um gluggann. Ekki alveg það sem ég var að biðja um,“ skrifar tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker á bloggsíðu sína. Hann var svo óheppinn að vera staddur í Bangkok þegar óeirðir brutust út í höfuðborg Mótmælendur hafa krafist þess að Abbhisit Veijajivi, for- sætisráðherra landsins, segi af Sverrir segir að á svipstundu hafi annars lítt vinsæll veitinga- staður breyst í einn þann heit- asta í bænum, í orðsins fyllstu 15. apríl 22. apríl „Bærinn er með handritið að afmæl- isritinu, við skiluðum því fullunnu með fullt af myndum tilbúnu til prentunar. En ég veit ekki af hverju það var ekki gefið út“ ERla HlynSdóttIR blaðamaður skrifar: erla@dv.is GREIðSLUR KópAvOGSbæJAR TIL FRJáLSRAR MIðLUnAR SíðASTLIðIn SEx áR: ÁR UppHæð Árið 2003 6.636.422 Árið 2004 4.979.510 Árið 2005 8.094.225 Árið 2006 6.668.755 Árið 2007 6.044.625 Árið 2008 6.990.725 allS 39.414.262 Framsóknarmenn bíða Samúel Örn Erlingsson segir framsókn- armenn í kópavogi ekki útiloka meirihlutaslit en telur að allar staðreyndir þurfi að liggja ljósar fyrir áður en ákvörðun verður tekin. Skrifstofa Frjálsrar miðlunar Útgáfu- félagið Frjáls miðlun er skráð á heimili Brynhildar gunnarsdóttur, Hrauntungu 16 í kópavogi. Mynd SIGtRyGGUR aRI Fámáll gunnar i. Birgisson bíður eftir skýrslu endurskoðenda kópavogsbæjar um viðskipti bæjarins við fyrirtæki dóttur hans. 15. apríl 2009 15. maí 2009 22. príl 2009

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.