Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 20. Maí 2009 15Umræða
Hver er maðurinn? „alfreð
Finnbogason, tvítugur Bliki.“
Hvar ertu uppalinn? „Ég er uppal-
inn í grindavík með smá viðkomu í
Skotlandi. Þegar ég var tíu ára fluttist
ég svo í grafarvoginn og hef búið
þar síðan.“
Hvaða þrjú orð lýsa þér best?
„Bjartsýnn, ákveðinn og heilsteypt-
ur.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Humar.“
Hvernig svafstu í nótt? „Ég ákvað
að horfa á leikinn við FH þegar ég
kom heim og vaka nógu lengi þar til
ég gæfist upp og sofnaði.“
Hvenær byrjaðir þú að stunda
knattspyrnu? „Ég á mynd af mér
með fyrsta bikarinn aðeins fimm ára
gamall. Ég held ég hafi verið byrjaður
af krafti, fjögurra ára gamall og hef
ekki stoppað síðan.“
Hvernig leggst tímabilið í þig?
„Það leggst vel í mig, liðið er gott og
við ætlum okkur stóra hluti.“
Er stefnan tekin á að skora í
hverjum leik? „að sjálfsögðu ætla
ég mér að skora í hverjum leik en
helst vil ég nú vinna hvern leik.“
Ertu tapsár? „Já, virkilega. Það að
tapa getur verið virkilega erfitt og
sárt.“
Hvað ætlarðu að gera í sumar
fyrir utan boltann? „Ég er að vinna
á kópavogsvelli í sumar, fallegasta
velli landsins. Þannig að ég verð í því
að halda honum góðum fyrir leikina,
spila bolta og sinna vinunum.“
Áttu þér óuppfylltan draum? „Já,
að spila fyrir Manchester united.“
Ertu mEð vinnu í sumar?
„Já.“
Kristín HElga
guðmundsdóttir
19 ára neMi
„Já, ég er með vinnu.“
Kristín HlöðvErsdóttir
20 ára neMi
„Ég er í hlutastarfi.“
Katrín Halldórsdóttir
25 ára neMi
„Ég er ekki með vinnu.“
Katrín PÁlsdóttir
24 ára neMi
Dómstóll götunnar
alfrEð finnbogason
knattspyrnumaður byrjar leiktíðina
vel og er búinn að skora mark í
þremur fyrstu leikjum Breiðabliks í
Pepsí-deildinni. Hann segist stefna að
því að skora í hverjum leik.
Fékk Fyrsta bikar-
inn Fimm ára
„Já.“
HElga Hrannarsdóttir
19 ára neMi
maður Dagsins
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þing-
kona VG, sagði í umræðum um
stefnuræðu forsætisráðherra á
mánudagskvöld að hún gleddist yfir
því að EES-þjóðirnar hefðu unnið
Eurovision-söngkeppnina.
Hún átti við Noreg og Ísland.
Hún talaði um óáran innan Evr-
ópusambandsins, meðal annars
atvinnuleysi á Spáni sem stefndi
í 20 prósent og samdrátt þjóðar-
tekna, vaxandi atvinnuleysi og aðrar
hremmingar í öðrum löndum ESB.
Hún áminnti Jóhönnu Sigurðar-
dóttur um að tala aðeins fyrir hönd
Samfylkingarinnar en ekki VG um
ESB og aðildarumsókn.
Guðfríður Lilja talar af þessum
sökum ekki fyrir munn meirihluta
kjósenda VG. Ef rétt er munað eru
47 prósent kjósenda VG hlynnt að-
ildarumsókn að ESB en 36 prósent
andvíg.
Guðfríður Lilja gladdist yfir sam-
flotinu með Noregi eins og til að
undirstrika hið eilífa vor sem ríkti
þar og á Íslandi, þökk sé verunni
utan Evrópusambandsins. Vel-
gengni Norðmanna er slík að NRK
hefur engar áhyggjur af kostnaði við
Eurovision-keppnina að ári.
bjargræðið kemur að utan
Þunginn í orðum Guðfríðar Lilju
gegn forsætisráðherra sínum kemur
á óvart og veldur nokkrum áhyggj-
um um fyrsta hreinræktaða stjórnar-
samstarf jafnaðar- og vinstrimanna
frá upphafi íslenska flokkakerfisins.
Guðfríður Lilja horfir út um
þröngan hellismunna, ásamt þeim
þriðjungi kjósenda VG sem ekkert
vill vita af ESB. Út um opið glittir í
Noreg. Allt og sumt.
Þessi hópur mætti hafa eftirfar-
andi í huga:
Íslenska þjóðin lýtur lögum sem
hún hefur sett sjálfri sér. Þessi lög
snerta réttarfar, heilbrigðismál, op-
inber fjármál, menntun, velferð,
verslun og viðskipti svo nokkuð sé
nefnt.
Í öðru lagi hefur íslenska þjóðin
framselt fullveldi að hluta í ýmsum
milliríkjasamningum. EES-samn-
ingurinn er umfangsmestur þeirra,
en einnig aðrir samningar og sátt-
málar sem tengja þjóðina við evr-
ópska regluverkið. Þjóðin gengst
undir þetta af frjálsum vilja og veit
enda að samvinna við aðra getur
komið sér vel.
Í þriðja lagi hefur íslenska þjóð-
ríkið fullgilt fjöldann allan af alþjóð-
legum sáttmálum og samningum,
svo sem eins og mannréttindasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna.
Oft hefur það gerst að fjölþjóð-
legar stofnanir, sem fylgjast með
framkvæmd samninga og sáttmála,
hafa snuprað íslensk stjórnvöld,
líkt og Guðfríður Lilja gerði við for-
sætisráðherra sinn á Alþingi. Þess-
ar stofnanir, stundum fjölþjóðlegir
dómstólar, hafa komið Íslendingum
til bjargar þegar þeirra eigin stjórn-
völd hafa níðst á borgaralegum rétt-
indum þeirra.
Nútímamaðurinn er með öðrum
orðum seldur undir flókið regluverk
sem er að minnsta kosti þríþætt:
Reglur þjóðríkisins, reglur milli-
ríkjasamninga og loks reglur alþjóð-
legra sáttmála.
draumsýnin um stöðugleikann
Sjálfstæðisbaráttan stóð að sönnu í
heila öld. Fram að seinna stríði voru
Íslendingar alls ekki vissir um að
þeir gætu staðið á eigin fótum.
Margir góðir stjórnmálamenn
reyndu að vanda til verka.
Þetta breyttist eftir seinni
heimsstyrjöldina. Þorskastríð-
in og klofningurinn um þjóðarör-
yggið, NATO og veru Banda-
ríkjahers í landinu til ársins
2006, grundvölluð-
ust á þjóðernis-
legum gildum.
Þjóðinni
hefur nú tek-
ist – nánast
hjálparlaust
– að glata
efnahags-
legu sjálf-
stæði sínu.
Það á sum-
part rætur í
langvinnri
tortryggni í
garð útlend-
inga. Hún er
spegilmynd-
in af vanmeta-
kennd eyjar-
skeggjans. Önnur
rót vandans er spillt og úthugsuð
sérhagsmunagæsla íslenskrar yf-
irstéttar í áratugi sem komið hefur
sér upp forréttindum og refsileysi.
Varnir almennings gegn yfrgangin-
um hafa oftar en ekki verið sóttar í
nána alþjóðlega samvinnu og sátt-
mála siðmenntaðra þjóða.
Nú er aðild að ESB engin töfra-
lausn gegn fáheyrðum viðburði eins
og bankahruni á Íslandi. Hægri-
menn í Bandaríkjunum kalla reynd-
ar Evrópusambandið
sósíalistaklúbb með
umhverfismál á heil-
anum.
Allt þetta veit
Guðfríður Lilja.
Hún veit til dæmis
að hugsjón henn-
ar um varnir gegn
mengun andrúms-
loftsins er háð kerfis-
bundnu samstarfi við
aðrar þjóðir. Hún
veit að stöðugleika-
sáttmálinn, sem alla
dreymir um, mun
aldrei grundvall-
ast á krónunni sem
enginn hefur litið
við í frjálsum við-
skiptum á erlendri
grundu í áratugi.
Þess vegna fer
henni offors gegn
ESB og Jóhönnu
afar illa.
„Eurovision“ Guðfríðar Lilju
kjallari
svona er íslanD
1 nauðgaði hundi nágranna
síns
karlmaður á grænlandi hefur verið
sektaður fyrir að ræna og nauðga hundi
nágranna síns. vettvangur glæpsins
þótti taka af öll tvímæli um sekt
mannsins.
2 listinn yfir eigendur jökla-
bréfa
Seðlabankinn tók saman lista yfir
eigendur jöklabréfa í desember. vaxandi
þrýstingur er á ríkisstjórnina að upplýsa
hverjir eigi bréfin.
3 „allt fyrir mig - ekkert fyrir
ykkur“
Josko risa var kjörinn bæjarstjóri
Prolozac í króatíu undir æði sérstöku og
hreinskilnu slagorði.
4 létta á sér í laugina
Margir pissa í sundlaugar samkvæmt
bandarískri könnun.
5 Klappstýran í Heroes skotin -
myndir
Hayden Panettiere nýtur lífsins á frönsku
rivíerunni með nýja kærstanum.
6 doberman-hundur beit tvær
konur
Stór doberman-hundur réðst á tvær
konur í Fossvogsdalnum.
7 „fólk ætlaði að éta okkur“
aðdáendur Jóhönnu guðrúnar í
Moskvu voru ágengir og söngkonan
átti stundum fótum fjör að launa.
mest lesið á dv.is
JóHann
HauKsson
útvarpsmaður skrifar
„Hún veit að stöðu-
gleikasáttmálinn,
sem alla dreymir um,
mun aldrei grundval-
last á krónunni.“