Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2009, Blaðsíða 17
þriðjudagur 26. maí 2009 17Sport
Stjarnan fær Svar í dag „Við búumst við svari á morgun [í dag]. þetta er í skoðun og
vinnslu,“ sagði Sigurður Hilmarsson, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, við dV í gær um
undanþáguna fyrir kaupum eða láni á markverði. aðalmarkvörður liðsins, Bjarni þórður Halldórs-
son, fékk rautt spjald í síðasta leik liðsins gegn FH og verður í banni þegar Stjarnan tekur á móti
Fylki á fimmtudaginn. Félagaskiptaglugginn er lokaður en þar sem staða markvarðar er æði sérstök
eru veittar sérstakar undanþágur komi eitthvað upp á eins og meiðsli. Framkvæmdastjóri KSí get-
ur einn veitt undanþáguna. En er Stjarnan með einhver skotmörk fái hún undaþágu? „Við erum
búnir að sirka út einhver lið og sett okkur í viðræður við þau sem geta hjálpað okkur en það er
ekkert frágengið. þetta hangir allt saman á undanþágunni,“ sagði Sigurður Hilmarsson.
Wade Elliot, þrítugur leikmaður
sem aldrei hefur leikið í efstu deild
á Englandi, varð hetja Champion-
ship-deildar liðsins Burnley í gær
þegar hann skaut félaginu upp í úr-
valsdeildina með gullfallegu marki í
úrslitaleik umspilsins gegn Sheffield
United á Wembley-leikvanginum.
Þetta er í fyrsta skiptið í þrjátíu og
þrjú ár sem Burnley er komið aftur á
meðal þeirra bestu.
Jóhannes Karl Guðjónsson byrj-
aði á bekknum eins og vaninn hef-
ur verið síðustu vikur en kom inn á
sem varamaður á 27. mínútu þegar
annar félagi hans varð fyrir meiðsl-
um. Jóhannes Karl lék vel og var
óheppinn að skora ekki annað mark
Burnley þegar varið var frá honum á
marklínu í dauðafæri. Jóhannes hef-
ur einu sinni áður leikið í efstu deild,
þá með Aston Villa.
Þetta Burnley-lið er samansafn af
sannkölluðum ofurmennum en liðið
átti frábæru gengi að fagna í báðum
bikarkeppnum tímabilsins og lagði
þar á meðal Arsenal, 2-0, á Emirat-
es. Burnley spilaði sextíu og einn leik
á tímabilinu en notaði til þess að-
eins tuttugu og þrjá leikmenn. Það er
næstflesta leiki allra liða á Englandi á
eftir Englandsmeisturum Manchest-
er United. Ekki verið að kvarta yfir
leikjaálagi þar.
Owen Coyle, stjóri liðsins, hef-
ur unnið sannkallað kraftaverk með
þetta smálið og verður afar athyglis-
vert að fylgjast með því í úrvalsdeild-
inni á næsta keppnistímabili. Eitt er
ljóst að stuðningsmenn liðsins eru
afar ánægðir með Coyle og mátti sjá
borða honum til heiðurs á Wembley
í gær sem á stóð: „Coyle er guð.“
tomas@dv.is
Jóhannes Karl aftur á meðal þeirra bestu:
Ofurmennin í úrvalSdeildina
BuSacca í róm
það verður svissneski dómarinn
massimo Busacca sem dæmir
úrslitaleik meistaradeildarinnar þar
sem mætast Evrópumeistarar
manchester united og Barcelona í
róm á miðvikudagskvöldið.
dómaranefnd Evrópska knatt-
spyrnusambandsins tilkynnti þetta í
gær. Busacca, sem er fertugur, hefur
verið alþjóðlegur dómari síðan
1999. Hann hefur dæmt 77
Evrópuleiki, þar af 32 í meistara-
deildinni. Hann er búinn að dæma
einn leik með man. united á árinu.
Sigurleik liðsins gegn Porto á
útivelli í 8 liða úrslitum þar sem
Cristiano ronaldo skaut Evrópu-
meisturunum áfram með stórkost-
legu marki snemma leiks.
HamiltOn
gefSt ekki upp
Heimsmeistaranum í Formúlu 1,
Bretanum Lewis Hamilton, líst
ekkert á blikuna það sem komið er
og sér sig ekki geta varið titilinn
sinn. jenson Button á Brawn gP
hefur unnið fimm af sex fyrstu
mótum ársins og er langefstur í
keppni ökuþóra með fimmtíu og
eitt stig. Sjálfur er Hamilton með níu
stig. Næst taka við keppnir í
Tyrklandi og á Silverstone á
Englandi sem Hamilton segir ekki
henta mclaren. „Ég efast um að ég
geti keppt um heimsmeistaratitilinn
úr því sem komið er. En ég mun
halda áfram að berjast og sjá hvað
gerist. Ég gefst ekki upp. Ég er
tilbúinn að berjast í Tyrklandi því við
verðum aðeins betri með hverri
keppni en við erum hvergi nærri
jafnfljótir og Brawn,“ segir Hamilton.
HOllendingar
dýrir
miðasala á leik íslands og Hollands í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins í knattspyrnu er hafin en þar
kosta dýrustu miðarnir 4.500 krónur
í forsölu. það eru sæti í gömlu, en þó
nýuppgerðu, stúkunni. Sæti í nýju
stúkunni, stundum kölluð Sýnar-
stúkan, kostar 3.000 krónur í forsölu
og nýjustu sætin á hliðum gömlu
stúkunnar kosta 1.500 krónur.
Leikurinn verður laugardaginn 6.
júní klukkan 18.45 en miðasalan fer
fram í gegnum miðasölukerfi miði.is
umSjóN: TómaS þór þórðarSoN, tomas@dv.is
Steinliggur Wade
Elliot skorar gullfallega
sigurmarkið í gær. mynd AFP
Newcastle er fallið í Championship-deildina, þá næstefstu á Englandi, eftir öm-
urlegt tímabil. Goðsögninni Alan Shearer tókst ekki að bjarga liðinu frá falli en
undir hans stjórn vann liðið aðeins einn leik. Liðið er einfaldlega ekki nægilega
gott, hvorki í ár né í fyrra, segir Shearer.
„Ég er augljóslega gífurlega von-
svikinn. Það er hægt að kenna mér
um, Joe Kinnear [stjóranum sem
veiktist], leikmönnunum, Mike
Ashley [eigandanum], en stað-
reyndin er að við vorum ekki nægi-
lega góðir í ár, heldur ekki í fyrra
og það er hægt að horfa lengra til
baka hvað það varðar,“ sagði goð-
sögnin hjá Newcastle, Alan Shear-
er, eftir að liðið féll í næstefstu
deild á Englandi um helgina.
Þar sem varalið Englands-
meistara Manchester United gerði
Newcastle mikinn greiða með
því að sigra Hull á útivelli þurfti
Newcastle ekki nema að halda
jöfnu gegn Aston Villa. Það var því
eins og samantekt á öllu vonleysi
Newcastle þegar Aston Villa skor-
aði sigurmarkið með skoti í hinn
skelfilega Damien Duff og inn.
Sextán ára veru þessa stórklúbbs á
enda í úrvalsdeildinni eftir hæðir
og lægðir.
Upprisinn er hann
Newcastle lék síðast í næstefstu
deild tímabilið 1992–1993. Árið áður
var liðið við það að falla úr þeirri
deild og var bókað að liðið myndi
lýsa sig gjaldþrota hefði það gerst. Þá
var kynntur til sögunnar Kevin nokk-
ur Keegan en undir hans stjórn urðu
næstu ár tóm sæla. Liðið komst upp
um deild strax á næsta ári og end-
aði í þriðja sæti úrvalsdeildar árið
eftir. Eftir sjötta sætið 1995 háði lið-
ið mikla baráttu við Manchester Un-
ited um Englandsmeistaratitilinn
1996 og 97 en tapaði í bæði skiptin.
Eftir það komu mögur ár og þeg-
ar liðið var við það að falla í næst-
efstu deild stýrði Robby Robson lið-
inu af botninum og í meistaradeild
árið eftir. Robson var síðar rekinn
eftir frábært gengi. Ein af mörgum
skrítnum ákvörðunum yfirvaldsins
hjá Newcastle sem á endanum kom
liðinu þangað sem það er núna.
Óheppni í leikmannakaupum
Það verður seint sagt að Newcastle
hafi ekki reynt allt sitt hvað fjármál
varðar til þess að gera betur. Fjölda
milljóna punda hefur verið eytt
undanfarin ár í að rétta hlut þessa
ríka félags undir forystu auðmanns-
ins Mikes Ashley. Nánast hver ein-
ustu kaup síðustu árin hafa mislukk-
ast, sum meira en önnur. Leikmenn
sem hafa gert frábæra hluti annars
staðar hafa koðnað niður hjá fé-
laginu. Aldrei hefur verið beinlínis
útskýrt hvað er að. Hvort þjálfunin
sé svona svakalega vond eða hvað.
Eina sem er ljóst er að það er eitt-
hvað gífurlega mikið að og þurfa
menn þar á bæ að finna lausn á því
og það sem fyrst.
Hverjir fara?
Þó nær ekki einn einasti leikmaður
hjá Newcastle hafi staðið sína plikt í
ár eru þó innan liðsins leikmenn sem
líklegt er að önnur lið girnist. Obaf-
emi Martins, Michael Owen, Kevin
Nolan, Jonas Gutierrez, Habib Beye
og Fabricio Coloccini. Unglinga-
starf Newcastle hefur verið ágætt
undanfarin ár og endaði varaliðið
til dæmis í fjórða sæti norðurdeildar
varaliðanna, aðeins fjórum stigum
á eftir Manchester United þar sem
hafa leikið ungstirnin Danny Wel-
beck og Federico Macheda.
Þó margir gætu farið hefur liðið
gífurlegt aðdráttarafl og gæti New-
castle auðveldlega safnað að sér
bestu leikmönnum næstefstu deild-
ar síðustu árin. Þó þeir séu kannski
ekki sömu nöfnin og hafa verið keypt
síðustu ár þarf það ekkert að verra
verra fyrir vikið. Hvernig fer með fjár-
málin er aftur á móti stór spurning.
Eigandinn Mike Ashley hefur verið
leikinn grátt síðustu misserin. Fyrst
tapaði hann fúlgu fjár þegar Eng-
landi tókst ekki að komast á EM, svo
varð hann fyrir barðinu á kreppunni
og nú er hans ástkæri stórklúbbur í
sömu deild og Scunthorpe.
TÓmAS ÞÓR ÞÓRÐARSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Þunglyndi Stuðningsmenn
Newcastle eiga allt gott skilið.
þeir bestu á Englandi. mynd AFP
Hrunne caS le
gengi newcaStle
SíðuStu tíu árin
1999 13. sæti
2000 11. sæti
2001 11. sæti
2002 4. sæti
2003 3. sæti
2004 5. sæti
2005 14. sæti
2006 7. sæti
2007 13. sæti
2008 12. sæti
2009 18. sæti (fall)