Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Blaðsíða 9
„Á Möltu var staðan ekki ólík því
sem gerist á Íslandi. Íbúarnir skipt-
ust mjög í fylkingar með og á móti
Evrópusambandinu. Ég taldi nauð-
synlegt að kynna mér reynsluna frá
Möltu af aðdragandanum og inn-
göngunni í sambandið,“ segir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
sem í gærmorgun hélt frá Möltu eft-
ir að hafa fundað með þarlendum
stjórnvöldum. Fjögur ár eru frá því
Malta gekk í Evrópusambandið og
á síðasta ári tóku eyjarskeggjar upp
evru. Margt er líkt með Íslandi og
Möltu þar sem íbúarnir eru um 400
þúsund. Össur segir að heimsókn-
in hafi verið honum mjög gagnleg
og hann muni miðla Alþingi af þeim
fróðleik sem hann aflaði sér.
Vill vera klár í slaginn
„Ég legg mikla áherslu á að kynna
mér reynslu þjóða sem eru í svip-
aðri stöðu og við Íslendingar. Ég átti
fund með þeim sem var aðalsamn-
ingamaður Möltu gagnvart Evrópu-
sambandinu. Menn lögðu gríðarlega
áherslu á víðtækt samráð innanlands
í aðdraganda inngöngunnar. Fund-
urinn með honum var mjög fræð-
andi og þá ekki síst með það fyrir
augum að átta sig á því sem betur má
fara í aðdragandanum,“ segir Össur.
Hann segist trúa því að Alþingi muni
samþykkja aðildarumsókn Íslands
og vill vera tilbúinn í samningavið-
ræður sem þá taka við.
Utanríkisráðherra segir að Malt-
verjar telji reynsluna af inngöngu
þeirra vera mjög jákvæða. „Evran
hefur reynst þeim mikið skjól fyrir
nöprum vindum heimskreppunnar.
Þá hefur erlend fjárfesting á Möltu
tvöfaldast. Andstæðingum við að-
ildina að Evrópusambandinu hefur
snarfækkað eftir að reynsla er kom-
in á aðild Möltu. Það er því góð sátt
um að hafa farið þessa leið sem von-
andi bíður okkar Íslendinga,“ segir
Össur.
Blæs á gagnrýni
Hann segir að það hafi komið sér á
óvart að sá mannskapur sem Malta
heldur úti í Brussel vegna aðildar-
innar sé svipaður og er viðloðandi
sendiráð Íslands. Nokkuð hefur ver-
ið gagnrýnt að utanríkisnefnd Al-
þingis hafi ekki verið kunnugt um
heimsókn ráðherrans til Möltu. Öss-
ur gefur lítið fyrir þá gagnrýni.
„Ég veit ekki til þess að það tíðk-
ist að ráðherrar geri Alþingi grein
fyrir öllum heimsóknum sínum til
útlanda,“ segir Össur sem í gær sat
ráðstefnu Eystrasaltsríkjanna. Þar
var hugsanleg aðildarumsókn Ís-
lands ofarlega á baugi.
„Það er nánast sama hvar ég kem.
Menn eru meðvitaðir um þá tillögu
að ganga til samninga við ESB og
sýna máli okkar mikinn áhuga.“
Fimmtudagur 4. Júní 2009 9Fréttir
Eignir SkipholtS Ehf. árið 2007 og 2009:
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy t rm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum
Íslenskur fótboltakappi dæmdur fyrir skjalafals í Danmörku:
„Verð að kyngja þessu“
„Það segjast náttúrulega allir vera
saklausir sem eru dæmdir en í þessu
tilviki er ég hundrað prósent sak-
laus,“ segir Magnús Már Þorvarðar-
son, 25 ára nemi í Arkitektaskólan-
um í Árósum í Danmörku. Í gær var
hann dæmdur í fjörutíu daga skil-
orðsbundið fangelsi í Vestri Lands-
rétti fyrir að hafa falsað inntökubréf
sitt við skólann fyrir tveimur árum.
Í grein á vef danska blaðsins Århus
Stiftstidende kemur fram að Magnús
fékk neitunarbréf frá skólanum. Hon-
um var gefið að sök að hafa rifið bréf-
ið í tvennt og skeytt nýjum hluta við
bréfið þannig að svo virtist sem hann
hefði fengið inngöngu í skólann vor-
ið 2007. Þetta segir Magnús alrangt.
„Ég er búinn að standa í þessu
máli í tvö ár vegna einhverrar villu í
skólanum. Það er ekki rétt að ég hafi
rifið vitlaust bréf og hent því saman.
Það er algjör villa. Ég átti að fara með
inntökubréf í skólann en ég hellti
kaffi á það og ég reddaði mér með
afriti af bréfinu. Aðalvillan er að ég
var ekki í tölvukerfi skólans í byrjun.
Þetta hljómar illa en svona var þetta,“
segir Magnús.
Magnús hafði áður verið sýknað-
ur í undirrétti og getur ekki áfrýjað
málinu að þessu sinni.
„Ég hef ekki tækifæri til að áfrýja.
Ég hefði helst viljað leita til mannrétt-
indadómstólsins en það er ekki hægt
því þetta er svo lítið mál. Sem betur
fer eru viðurlögin ekki eins slæm og
þau hefðu getað verið þannig að ég
get allavega brosað í ljósi þess. Ég
verð að kyngja þessu,“ segir Magnús
sem á eitt ár eftir í BA-gráðu við skól-
ann.
„Þetta er búinn að vera svakaleg-
ur dagur. Ég fór í réttarsalinn og það
var á allra vörum að málið myndi
fara mér í hag en síðan snerist það
við. Mín ósk er að fá að klára nám-
ið. Rektorinn er í fríi núna en ég fæ
að vita fljótlega hvort ég fæ að halda
áfram.“
liljakatrin@dv.is
Magnús Már Hefur spilað víða.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sótti sér fróðleik um
Evrópusambandið til Möltu í vikunni. Margt er líkt með Íslandi
og Möltu þar sem íbúarnir eru um 400 þúsund. Össur segir að
heimsóknin hafi verið honum mjög gagnleg og hann muni miðla
Alþingi af þeim fróðleik sem hann aflaði sér.
Skjól fyrir
heimSkreppunni
„Andstæðingum við
aðildina að Evrópu-
sambandinu hefur
snarfækkað eftir að
reynsla er komin á að-
ild Möltu. “
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir alla sem hann hittir á ferðum sínum
mjög áhugsama um tillögu um að íslendingar gangi til samninga við ESB.
„Andstæðingum við aðild-
ina hefur snarfækkað eftir
að reynsla er komin á að-
ild Möltu. “