Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 4. Júní 2009 15Umræða
Hvað drífur þig áfram? „Það að
maður fékk einhverja hæfileika
að guðsgjöf sem maður verður að
nýta sér sem best og láta verða af
hlutunum sem maður trúir á.“
Hvar ólstu upp? „í Vesturbænum.“
Við hvað starfar þú? „Kvikmynda-
gerð.“
Hvernig tilfinning var það að hitta
Dalai Lama? „Það var alveg einstakt.
Ég upplifði samt blendnar tilfinning-
ar því hann er svo blátt áfram, svo
venjulegur en um leið svo einstakur.“
Var eitthvað í fari Dalai Lama sem
kom þér á óvart? „Hvað hann hafði
ótrúlega orku miðið við að hann er
75 ára gamall.“
Hvernig leið honum hérna? „Ég
held að honum hafi liðið mjög vel.
auðvitað get ég ekki sagt til um það
en ég er mamma og ég reyni að lesa
fólk út frá því og mér fannst honum
líða mjög vel. Hann var öruggur í
íslenskum höndum.“
Bað hann um að sjá eitthvað sér-
stakt hér á landi? „íslenska fólkið.“
Hefði forseti Íslands átt að hitta
Dalai Lama? „Já, auvitað fannst mér
það en það er bara mitt einstaka
viðhorf. Hann hefur sín viðhorf og ég
ber fulla virðingu fyrir þeim.“
Hvað finnst þér um viðbrögð
kínverskra stjórnvalda við komu
Dalai Lama til landsins? „Ég veit
ekki alveg hver viðbrögð þeirra eru
núna. Ég held að við verðum að bíða
aðeins og sjá hver viðbrögðin verða.“
Hverjir verða Íslandsmeistarar Í fótbolta karla?
„Valur vinnur. Ég fylgist með og hef
farið á völlinn í sumar.“
Pitak Ganjan
14 ára nemi
„Ég veit ekkert um fótbolta.“
aLfreð jónsson
76 ára FyrrVerandi starFsmaður dV
„Ég held að það verði Kr, ég er samt
ekki viss.“
arnþór HaLLGrÍmsson
14 ára
„Ég veit það ekki. Ég fylgist ekkert með
fótbolta.“
Bjarni sÍVertsen
14 ára nemi
Dómstóll götunnar
þóranna siGurðarDóttir
kvikmyndagerðarkona er einn af
skipuleggjendum komu dalai Lama
til landsins. Hún lýsir dalai Lama sem
einstaklega orkumiklum manni sem
leið vel á íslandi.
Öruggur í íslensk-
um hÖndum
„ekki FH. Öll liðin í deildinni eru mín lið,
nema FH. Þannig að ég ætla að segja
að Keflavík vinni.“
þórir tHeóDórsson
42 ára smiður
maður Dagsins
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
er mikill vandi á höndum. Öll spjót
standa á henni þegar átta mánuðir
eru liðnir frá hörmungum banka-
hrunsins og afglöp-
um stjórnvalda og
stofnana sem
hámörkuðu
tjón íslensku
þjóðarinnar.
Gjaldeyris-
hrun bættist
ofan á fjár-
málakrepp-
una sem ein
og sér hafði
nægt afl
til þess að framkalla mestu efna-
hagsdýfu síðari áratuga hér á landi.
Bankahrunið framkallaði slíka
ólgu á fáum vikum að ríkisstjórn
Geirs H. Haarde hrökklaðist frá.
Kjósendur horfðu ekki aðeins ofan í
tómar buddur sínar og fram á vax-
andi efnalegt óöryggi heldur gróf
um sig tortryggni í garð íslenskra
stjórnmála yfirleitt. Tími var kom-
inn til þess að lofta út.
Áratugum saman hafði klíku-
þjóðfélagið grafið um sig og skap-
að forréttindastétt þar sem ófust
saman helstu peninga- og auð-
lindahagsmunir þjóðarinnar og
yfirráð á vettvangi stjórnmálanna.
Þessi forréttindastétt hafði að lok-
um búið svo um hnútana upp
úr aldamótunum síð-
ustu að hún hafði
framkvæmda-
valdið, lög-
gjafarvaldið
og hálft dóms-
valdið í hönd-
um sér. Hún
gat lifað í
refsileysi við
hlið rétt-
arríkisins
og bjó sig
undir að
ná undir-
tökunum
á fjórða
valdinu,
fjölmiðl-
unum.
Boðskapur
forsetans
Það er vel þess virði
að rýna með kaldri hlut-
lægni á það sem Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, hefur
um þetta að segja í ítarlegu viðtali
í nýju tölublaði Mannlífs.
Hann ræðir þar um íslenska sið-
menningu í pólitík sem einskon-
ar krónískan sjúkdóm sem rætur
eigi að rekja aftur til heimastjórnar
Hannesar Hafstein fyrir einni öld
síðan. Þar ófust stjórnmálaflokkar
saman við embættiskerfið í flokks-
ræði „... þar sem forystumenn
flokkanna höfðu drottnunarvald
yfir embættiskerfinu í ríkara mæli
en hollt var fyrir lýðræðið.“
Og Ólafur Ragnar bætir við:
„Flokkarnir skipuðu miskunnar-
laust sína fulltrúa í embætti innan
ráðuneyta og í öðrum stjórnstofn-
unum, dyggir flokksmenn höfðu
forgang, almennir hæfileikar,
menntun og reynsla, voru ekki ráð-
andi [...] Þetta hefur gert embætt-
iskerfið flokkspólitískt í tvennum
skilningi, menn eiga sinn sess og
stöðu innan embættismannakerf-
isins hollustu við flokkinn að þakka
og hins vegar að menn vissu um
þetta skipunarvald ráðherranna.“
Í ljósi þessa kemst Ólafur Ragn-
ar að þeirri niðurstöðu að ein af
orsökunum fyrir kerfishruni bank-
anna hafi verið áratuga langt sam-
spil flokksræðis og stjórnsýslu í
landinu. Sjúkdómurinn verði ekki
læknaður nema til komi siðvæðing
og breyttir starfshættir á vettvangi
stjórnmálaflokkanna og við val á
embættismönnum.
máttleysislegt viðnám
Nú þykjast margir sjá teikn þess að
ríkisstjórninni hafi ekki tekist sem
skyldi að verða við kröfum kjós-
enda um uppstokkun og hreinsun.
Þvert á móti hafi hún látið glepj-
ast af hrægömmum og hákörlum
gamla kerfisins sem hreiðri um sig
á nýjan leik í fjármálalífinu und-
ir verndarvæng bláeygðra stjórnar-
herra.
Vandi ríkisstjórnarinnar í þessu
efni er ekki minni en sá djúpstæði
efnahagsvandi sem steðjar nú að
heimilum og fyrirtækjum í land-
inu. Tröllauknar skuldir blasa við
á öllum vígstöðvum. Enda eru klík-
ustjórnmálin menningarsjúkdóm-
ur sem ekki verður læknaður nema
með meðulum siðvæðingarinnar.
„Á Íslandi ríkir ný yfirstétt. Skila-
nefndir gömlu bankanna fara nú
með eignir gamla bankakerfisins
og drottna yfir örlögum dauðlegra,“
segir Ólafur Arnarson, höfundur
bókarinnar Sofandi að feigðarósi, í
nýjum bloggpistli sínum.
Skilanefndir eru aðeins eitt
dæmi af mörgum um hneigðir í átt
til laumuspils og ógagnsæis gamla
klíkuþjóðfélagins.
Ríkisstjórnin var kjörin til þess
að vinda ofan af klíkuþjóðfélaginu.
Ætli hún sér að halda velli verður
hún að vanda verk sín á þessu sviði
einnig, fylgja gagnsæjum reglum
og upplýsa um hagsmunatengsl.
Seigfljótandi klíkuveldi segir til sín
kjallari
svona er íslanD
1 teri Hatcher í flottu formi -
myndir aðþrengda eiginkonan teri
Hatcher lék sér í sjónum um helgina og
sýndi glæsilegan vöxt.
2 teri Hatcher í flottu formi -
myndir aðþrengda eiginkonan teri
Hatcher lék sér í sjónum um helgina og
sýndi glæsilegan vöxt.
3 „Við vitum ekki meira en það
sem stendur í blöðunum“ einar
gústafsson, bróðir Helge gústafssonar,
segir fjölskylduna ekki vita mikið en
halda í þá litlu vonarglætu sem til er.
4 keypti ísskáp á facebook
sammi í Jagúar keypti ísskáp af
Kastljóspíunni Þóru tómasdóttur á
Facebook.
5 Örlátur lesandi gaf nýtt hjól
Fjallahjóli nabils Omars anítusonar var
stolið en lesandi dV gaf honum glænýtt
trek-fjallahjól.
6 Vinalaus kynbomba Ofurskutlan
og transformer-stjarnan megan Fox er
skíthrædd við að verða djamminu að
bráð og lifir einangruðu lífi.
7 „spunameistari skattastjórn-
arinnar“ Ólafur arnarson gagnrýnir
Þórólf matthíasson hagfræðing fyrir að
ganga fram fyrir skjöldu og verja
hækkanir ríkisstjórnarinnar á
eldsneytissköttum og áfengisgjaldi.
mest lesið á dV.is
jóHann
Hauksson
útvarpsmaður skrifar
„Þvert á móti hafi
hún látið glepjast
af hrægömmum og
hákörlum gamla
kerfisins sem hreiðri
um sig á nýjan leik.“