Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 4. Júní 20094 Fréttir Engir nýir ráð- herrabílar Enginn ráðherra í nýrri rík- isstjórn hefur endurnýjað ráðherrabíl sinn á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytunum. Ennfremur eru engar endurnýjanir á bílaflota ráðherra áformaðar, enda mikill niðurskurður í þjóðarbúskapn- um fram undan. Síðasta vor festi heilbrigðisráðuneytið kaup á glæsibifreið, Volvo XC 90 Ex- ectuive, fyrir 8,1 milljón króna í ráðherratíð Guðlaugs Þórs Þórð- arsonar. Aðrir ráðherrar notast við sömu ráðherrabílana og þeir gerðu áður. Gæsluþyrla sótti Færeying Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF var kölluð út klukk- an 22.50 í fyrrakvöld eftir að grænlenski togarinn Pol- ar Nanoq hafði samband við stjórnstöð Landhelgis- gæslunnar. Um borð var 48 ára Færeyingur sem grunur lék á að væri með innvort- is blæðingar. Þyrlulæknir ræddi við skipstjóra og tal- ið var nauðsynlegt að sækja manninn. Togarinn var á siglingu til Grænlands eftir að hafa landað á Íslandi. TF- LÍF kom að skipinu klukk- an 02.15. Komið var með manninn til Reykjavíkur- flugvallar þar sem sjúkra- bifreið tók við sjúklingnum klukkan fjögur um nóttina. Ekki meiri svínaflensa Ekki hafa fleiri tilfelli svína- flensu komið upp á Íslandi síðan einn greindist fyrir tíu dögum. Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislög- reglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðis- starfsmenn á alls fimmtán fund- um víðs vegar um landið í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufar- aldurs. Alls hafa nú verið greind 19.159 tilfelli í heiminum, þar af 605 í ríkjum ESB og EFTA. Skráð dauðsföll af völdum veik- innar eru 117 talsins, þar af 97 í Mexíkó, 17 í Bandaríkjunum, 2 í Kanada og 1 í Kostaríka. Sjö teknir með dóp á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók í fyrrakvöld sjö einstaklinga á aldrinum 18 til 40 ára vegna gruns um fíkniefnamisferli. Um þrjú aðskilin mál var að ræða og gerði lögregla húsleit í þremur íbúðum í bænum. Hald var lagt á 112 grömm af kanna- bisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu. Allir voru látnir lausir að yf- irheyrslum loknum og teljast málin upplýst. Þá var ökumað- ur stöðvaður við eftirlit grun- aður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við aðgerðirnar naut lögreglan aðstoðar liðsmanna sérsveitar ríkislögreglustjóra á Akureyri. Þingmenn sem eiga sæti í fjárlaga- nefnd Alþingis hafa fengið litlar upp- lýsingar um boðaðan niðurskurð í fjárlögum ríkisins. Fjárlaganefnd- in fundaði á þriðjudaginn og þar fjallaði Steingrímur J. Sigfússon um stöðu og horfur í ríkisfjármálum, auk þess sem hann kynnti áætlaðar tekjur og útgjöld fyrir næstu ár. Hös- kuldur Þórhallsson, alþingismað- ur Framsóknarflokksins, segir þó að engar tillögur liggi fyrir í nefndinni um hvar standi til að skera niður eða hversu mikið verði skorið niður í hverjum málaflokki. „Þetta var allt í spádómslíki, mér leið eins og ég væri á miðilsfundi, Steingrímur kynnti engar frekar tillögur um niðurskurð heldur talaði almennt um að þær ætti að byggja á sanngirni og meðal- hófi. Það vantar stóru breyturnar, til dæmis Icesave, það er bara langt frá því að vera ljóst hvað við þurfum að greiða þar,“ segir hann. Þór Saari, alþingismaður Borg- arahreyfingarinnar, segir sömu sögu. „Það eru engar tillögur komnar fram í nefndinni,“ segir hann. Ráðgert er að niðurskurðartillög- ur verði kynntar í lok júní eða um miðjan júlí, en Jóhanna Sigurðar- dóttir sagði við fjölmiðla í vikunni að ástandið væri verra en í fyrstu hefði verið talið. Höskuldur gagnrýnir lélegt upp- lýsingaflæði og að sífellt sé talað í hálfkveðnum vísum. Óvissunni þurfi að eyða. „Við erum alltaf að lenda í því sem störfum inni í nefndum að upplýsingar sem berast til okkar séu hugsanlega trúnaðarmál. Þetta er eitthvað sem gengur ekki lengur. Það er miklu betra að við segjum frá stöð- unni eins og hún er, tökum vindinn í fangið og berjumst saman í gegnum það.“ valgeir@dv.is Allt er á huldu um boðaðan risaniðurskurð í ríkisfjármálum: Sparnaðartillögur í spádómslíki Steingrímur J. Sigfússon Fjármálaráðherra fjallaði um stöðu og horfur í ríkisfjármálum á fundi fjárlaganefndar. Engar niðurskurðartillögur liggja fyrir. fór til rúSSlAndS í lAx í boði glitniS Sumarið 2007 fór Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, í boðsferð á veg- um Glitnis í Ponoi-laxveiðiána á Kóla-skaga í Rússlandi. Borg- arfulltrúinn var í hópi 60 til 80 góðra viðskiptavina og starfs- manna Glitnis sem var boðið í hollum í nokkrar veiðiferðir til Rússlands þetta sumar. Um var að ræða 3 til 4 fjór- ar veiðiferðir í Ponoi-ána og var hver þeirra þriggja daga löng; 15 til 20 manns voru í hverri ferð. Stór einkaþota var leigð und- ir hópana. Flogið var frá Reykja- víkurflugvelli og á flugvöllinn í borginni Murmansk á Kóla-skaga í Norður-Rússlandi. Frá Mur- mansk var flogið með hópana að Ponoi-ánni í rússneskri herþyrlu en áin er lengst úti í öræfum Kóla-skaga. Við ána var gist í vel útbúnum, upphituðum tjald- búðum. Samkvæmt heimildum DV var íslenskur kokkur fenginn til þess að dvelja í tjaldbúðunum og elda ofan í boðsgestina og var hann fluttur sérstaklega til Rúss- lands til þessa. Vel var veitt af mat og drykk í ferðinni. Áætla má að kostnaður við ferðirnar hafi hlaupið á tugum milljóna króna. Vikuveiðileyfi í ánni kostar nú á bilinu tíu til fimmtán þúsund dollara, eða 1,2 til 1,8 milljónir króna. Áin er ein gjöfulasta og besta laxveiðiá í heimi og er þekkt fyrir stórlaxa. Meðalveiðin á stöng er 25 til 70 laxar á viku og ber að sleppa löx- unum sem veiðast. Gísli segist hafa verið í vinnunni í ferðinni Gísli Marteinn segir að hann hafi farið í ferðina til Rússlands því hann hafi verið beðinn um það af starfsmanni bankans að gegna ákveðnu hlutverki þar. „Ég var beð- inn um að koma. Ég hef oft verið fenginn í einhverjar uppákomur og ferðir á vegum bankanna, fyr- irtækja og félagasamtaka í gegn- um tíðina; ýmist sem veislustjóri, ræðumaður eða til að gegna ein- hverju öðru hlutverki. Þetta á bæði við meðan ég var í sjónvarpinu og eins eftir það. Þessi ferð var ein af þeim. Hlutverk mitt í ferðinni var að vera eins konar veislustjóri og ræðumaður. Mér hefur alltaf fund- ist mjög gaman að vera veislustjóri og þessi veisla var óvenjuleg en fór vel fram,“ segir Gísli Marteinn. Gísli segir aðspurður að hann telji að honum hafi ekki verið greitt sérstaklega fyrir ferðina. „Það er misjafnt hvort maður fær greitt fyr- ir svona ferðir eða ekki. Stundum voru bara ferðirnar og uppihaldið greiðslan fyrir vinnuna í þessum ferðum,“ segir Gísli Marteinn. Borgarfulltrúinn vill aðspurður ekki svara því hvort það hafi verið gaman í ferðinni eða ekki. Gísli segist vera lítill veiði- maður Einn veiðivörður aðstoðaði hverja tvo boðsgesti við veiðarnar þá daga sem hóparnir dvöldu við Ponoi- ána. Samkvæmt heimildum DV veiddu boðsgestirnir afar vel þá daga sem þeir dvöldu við veiðar í ánni enda gengur það orð af henni að allir geti veitt í henni. Á heima- síðu íslensku ferðaskrifstofunnar Lax-á, sem sérhæfir sig í veiðiferð- um til útlanda, segir að Ponoi-áin sé fyrir þá sem vilja veiða mikið af laxi. „Fyrir þá sem vilja veiða mik- ið!!!“ segir þar. Gísli Marteinn segist ekki vita hvort vel hafi veiðst í ferðinni eða ekki og hann segist sjálfur lítið hafa spreytt sig á veiðunum. „Ég er sjálf- ur lítill veiðimaður og kann ekkert á það,“ segir hann. Sjaldgæft að stjórnmálamenn þiggi slíka fyrirgreiðslu Samkvæmt heimildum DV var Gísla Marteini boðið í ferðina vegna vinatengsla hans við fram- kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, Einar Örn Ólafsson, sem einnig var í ferðinni meðal ann- arra. Einar Örn hefur verið nokk- uð í fréttum á síðustu vikum vegna starfsloka sinna í Íslandsbanka, sem bar brátt að í lok apríl, og einnig vegna þess að innan við mánuði síðar var hann ráðinn for- stjóri Skeljungs. Ferðin var ein af fjölmörgum boðsferðum íslensku viðskipta- bankanna þriggja í góðærinu svo- kallaða sem lauk á Íslandi með falli bankanna í haust. Ekki er vit- að um mörg dæmi þess að stjórn- málamenn líkt og Gísli Marteinn Baldursson hafi þegið slíka fyrir- greiðslu frá bönkunum á dögum íslenska góðærisins. Ekki náðist í Einar Örn Ólafs- son við vinnslu fréttarinnar. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var einn af tugum manna sem Glitnir bauð í laxveiðiferðir í rússnesku ána Ponoi sumarið 2007. Stór einkaþota flutti boðsgestina til Murmansk. Þaðan var flogið með herþyrlu að Pon- oi-ánni. Kostnaðurinn við ferðina hljóp á tugum milljóna króna. Gísli Marteinn segist hafa verið beðinn um að fara í ferðina til að gegna ákveðnu hlutverki. InGI F. VIlhJálMSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Við veiðar í Ponoi glitnir bauð sextíu til áttatíu viðskiptavinum sínum og háttsettum starfsmönnum í laxveiði í Ponoi-ána í norður-rússlandi sumarið 2007. Hér sést fluguveiðimaður kasta í Ponoi-ána sem er ein sú gjöfulasta í heimi. gísli segist ekki hafa veitt mikið í ferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.