Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Page 21
Fimmtudagur 4. Júní 2009 21Fókus á f i m mt u d e g i Hvað Heitir lagið? „Hún batt þig við eld- hússtól, hún braut há- sæti þitt og klippti hár þitt.“ Sex vikur á toppnum Bókin Sofandi að feigðarósi eftir Ólaf Arnarson heldur enn toppsæti sínu á metsölulista Eymundsson og trónir þar nú sjöttu vikuna í röð. Matgæðingurinn Nanna Rögnvald- ardóttir var örfáum eintökum frá því að hrifsa toppsætið af Ólafi með bókinni Maturinn hennar Nönnu í síðustu viku en það er skemmst frá því að segja að hún hefur nú hrapað niður í sjöunda sæti. Ætla má því að hún ógni Ólafi ekki frekar á næst- unni. Í öðru sæti þessa vikuna situr hins vegar Ragnheiður Gestsdótt- ir með bókina Ef væri ég söngvari en með henni fylgir geisladiskur. Krimminn umtalaði Karlar sem hata konur eftir Stieg heitinn Larsson kemur þar á eftir. Önnur Hálf- vitaplata Út er komin nýjasta plata Ljótu hálfvitanna sem jafnframt er nefnd í höfuðið á þeim. Þetta er önnur plata hljómsveitarinnar og á henni eru meðal annars lög eins og Lukkutrollið, sem hljóm- að hefur talsvert á öldum sumra ljósavaka að undanförnu, Stjáni, Fyllibyttublús og Meðlag. Nokkr- ir góðir gestir eru á plötunni, þar á meðal söngkonan Guð- rún Gunnarsdóttir og Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Gunnar Ben óbóleikari sem takast á í ein- leikseinvígi ársins í Áfram stelp- ur! Síðastliðinn laugardag héldu Ljótu hálfvitarnir útgáfutónleika í Óperunni og ætla þeir að halda aðra slíka á heimavelli liðsmanna norður í Ýdölum í Aðaldal á morgun, föstudag. Allar nánari upplýsingar á midi.is. Skjálftadag- Skrá í Hvera- gerði Hin árlega tónlistarhátíð Bjartar sumarnætur fer fram í Hveragerð- iskirkju um helgina. Dagskráin er nákvæmlega sú sama og átti að fara fram á síðasta ári en þá féll hátíðin niður þar sem daginn áður en hún átti að hefjast reið jarðskjálftinn stóri yfir Suðurland. Vegna skemmda á kirkjunni og ótta aðstandenda hátíð- arinnar og listamannanna við frekari hamfarir var hætt við tónleikahald- ið. Á meðal þeirra sem koma fram eru Diddú, píanóleikarinn Anna Guðný Guðmundsdóttir og klarin- ettuleikarinn Sigurður I. Snorrason að ógleymdu Tríói Reykjavíkur. Allar nánari upplýsingar á hveragerdi.is. Djúpið, nýr íslenskur einleikur eft- ir Jón Atla Jónasson, verður frum- sýndur á Litla sviði Borgarleikhúss- ins á morgun, föstudag. Leikhús um alla Evrópu eru nú í óða önn að tryggja sér sýningarréttinn á verkinu en það var heimsfrum- sýnt í Oran Mor-leikhúsinu í Glas- gow í apríl síðastliðnum. Viðtökur gagnrýnenda voru frábærar, Djúp- ið fékk til að mynda fjórar stjörnur í blaðinu The Scotsman. Einn þekkt- asti leikari Skotlands, Liam Brenn- an, var í aðalhlutverkinu en í Borg- arleikhúsinu er það stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson sem fer með aðalhlutverkið. Höfundurinn Jón Atli, sem þreytir hér frumraun sína sem leikstjóri, skrifaði verkið með Ingvar í huga. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnort- inn, segir í tilkynningu. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, ís- lensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið. Bát- ur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum. Höfundur leikmyndar er Árni Páll Jóhannsson, lýsing er í hönd- um Björns Bergsteins Guðmunds- sonar og um tónlistina sér Hilmar Örn Hilmarsson. Þessi einleikur Jóns Atla er sá nýjasti í röð einleikja sem settir hafa verið upp á Litla sviði Borgarleik- hússins í vetur. Þrír hafa þegar ver- ið settir upp: Óskar og bleikklædda konan þar sem Margrét Helga Jó- hannsdóttir leikur öll hlutverkin, Sannleikur spéfuglsins Péturs Jó- hanns Sigfússonar og Ég heiti Ra- chel Corrie þar sem Þóra Karítas Árnadóttir var allt í öllu. Enn einn einleikurinn Á dauða mínum átti ég von! En að einhver leikur myndi draga mig frá UFC-leiknum var sem köld tuska í heldur þurrt andlit. Einhverskonar rafeindahvellur verður í borg sem minnir skuggalega á New York. Í kjölfarið er borgin sett í sóttkví og allt verður tryllt. Glæpagengi ráða ríkjum, allt í ólagi, algjör óöld, ekki ósvipað því og er í gangi í Reykjavík um þessar mundir. Maður sem var staddur í miðri sprengingunni finnur að hann er ekki samur. Nú líður um hann raf- magn sem hann getur notað í ýmis brögð, hann er sem sé með ofur- krafta. Skyndilega hefur FBI-kona samband og fær manninn til að leita að eiginmanni sínum, sem er týnd- ur einhverstaðar í borginni. Þetta er svona nokkurn veginn upphafið á leiknum Infamous, en undirritaður gerir sér fulla grein fyrir því að leiki af þessari stærðargráðu er erfitt að tí- unda í örfáum setningum. Á leiðinni lærir maður milljón ný trix, hoppar milli húsþaka, kemur rafmagni aftur á borgarhluta, berst við gengi, aðra drullusokka með of- urkrafta og svo verður maður auð- vitað að ákveða sig hvort maður ætli að vera góður eða slæmur í leiðinni, eins og lenskan er í leikjum í dag. In- famous byggir á „free-roam“ stíl leikja eins og GTA, en með ofurkröftun- um er búið að glæða þessa týpu svo fersku lífi að samanburðurinn verð- ur óþarfur. Grafíkin er glæsileg, ekki feilspor stigið þar á bæ. Í bardögum getur verið ógurlegur hraði og með útsjónarsemi er hægt að nýta nánast allt umhverfi gegn andstæðingum. Sagan er illa svöl og heldur manni við efnið, án þess að maður brosi út í annað, eins og svo oft gerist. Ég var enn að átta mig á nýjum hlutum rétt áður en ég kláraði leikinn, sem gefur honum topp-endingu. Infamous er án nokkurs vafa einn af betri leikjum sem við munum sjá þetta árið, ég bara trúi ekki öðru. En ef maður á að kvarta yfir einhverju, þá mætti leikurinn vera aðeins erfiðari, ég spila í hard, og það er engin sérstök áskorun. Infamous er annars dæmi um hvað tölvuleikjafyr- irtæki geta verið æðisleg. Svona nán- ast fullt hús stiga, sem er sjaldgjæft í helvítis kreppunni. Ef valið stendur á milli þess að sjá Grease, eða spila þennan. Þessi, ekki nokkur spurning. Dóri DNA Betri en Su aráSt Infamous Ef valið stendur á milli þess að sjá grease, eða spila þennan. Þessi, ekki nokkur spurning. Svar: HallelujaH eftIr leonard CoHen einleikarar Pétur Jóhann Sigfússon lék í einleik á Litla sviði Borgarleik- hússins í vetur og nú fylgir ingvar í sömu spor. með þeim á myndinni er fegurðardrottningin unnur Birna Vilhjálmsdóttir. MYnd Gunnar GunnarSSon Infamous tegund: Hasarleikur Spilast á: PS3/Xbox 360 tölvuleikir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.