Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Síða 4
Ganga á slóð
menningar
55 íbúar af erlendum upp-
runa mættu í menningar-
göngu í miðborginni á dög-
unum. Gangan er farin til
að kynna menninguna fyrir
innflytjendum víðs vegar
frá. Hún er í boði Borgar-
bókasafns, Ljósmyndasafns
Reykjavíkur, Listasafns
Reykjavíkur og Minjasafns
Reykjavíkur. Fólki gafst færi
á að velja um að fylgja leið-
sögumönnum sem töluðu
ensku, spænsku, pólsku eða
taílensku. Fólkið kynnt-
ist menningarstofnunum í
miðborg Reykjavíkur og sögu
gatna og styttna á svæðinu.
Ökuskírteininu
seinkar um ár
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra hefur lagt fram frum-
varp um breytingar á umferð-
arlögum. Meðal þess sem þar
kemur fram er að ungmenni fái
ökuskírteini hér eftir átján ára
en ekki sautján ára, líkt og hef-
ur tíðkast undanfarna áratugi.
Lagt er upp með að ökuleyfisald-
ur færist upp í áföngum, seinki
um þrjá mánuði á ári frá 2011 til
2015.
Jafnframt er lagt til að ungir
ökumenn megi ekki nema í und-
antekningatilfellum keyra um
með fleiri en einn farþega í bíl
sínum aðfaranætur laugardags
og sunnudags.
4 þriðjudagur 21. júlí 2009 fréttir
Jón Auðunn Jónsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Sparisjóðs
Hafnarfjarðar, segir að gerð hafi
verið krafa um sölumat frá óháð-
um aðilum vegna láns sem sjóð-
urinn veitti lögmönnunum Karli
Georg Sigurbjörnssyni og Birni
Þorra Viktorssyni til kaupa á fast-
eign í Riga í Lettlandi árið 2006.
Húsið sem félagarnir keyptu er
iðnaðarhúsnæði í Riga og af mynd-
um af því að dæma virðist það ekki
vera í sérlega góðu ásigkomulagi
og hæpið að það sé mörg hundr-
uð milljóna króna virði. Eins og
sjá má á myndum sprettur illgresi
upp í kringum húsið og neglt hef-
ur verið fyrir glugga.
Fram kom í helgarblaði DV að
lögmennirnir fengu 4 milljóna
evra lán fyrir kaupum á fasteign
í Riga. Aðrar heimildir herma að
lánið hafi verið 3,2 milljónir evra.
Eignin sjálf var lögð fram sem veð
fyrir láninu. Fram kom að lög-
mennirnir Björn Þorri og Karl
Georg yfirverðsettu fasteign-
ina og er talið að hún hafi ver-
ið metin á um 100 þúsund evrur á
þeim tíma. Verðmæti hennar hafi
því verið fertugfaldað. Talið er að
BYR þurfi að afskrifa allt að einn
milljarð króna vegna þessarar
fjárfestingar. Fasteignin var keypt
í gegnum félagið Adminu iela SIA,
en þeir félagar áttu helmingshlut
í félaginu á móti lettneskum lög-
manni.
Segir lánið greitt
beint til seljanda
„Þeir voru margoft krafð-
ir um sölumat frá við-
urkenndum óháð-
um aðilum,“ segir Jón
Auðunn. Hann bend-
ir á að í Riga og víðar
í Lettlandi sé eignar-
hald gjarnan tvískipt.
Einn aðili eigi lóðina
og annar eigi mann-
virkið sem stendur
á lóðinni. Þetta sé af-
leiðing af veru Sovét-
manna í borginni og
þannig hafi
það verið í þessu tilfelli. „Þegar
þetta lán var greitt út var það greitt
inn á sérstakan geymslureikning,
sem var opnaður í banka ytra. Þeg-
ar komin var staðfesting á að búið
væri að þinglýsa öllu fékk bankinn
þau skilaboð að þeir mættu greiða
lánið til seljanda,“ segir hann.
Jón Auðunn segir að greiðslan
hafi farið beint til seljanda og lög-
mennirnir hafi ekki komist í lánið
sjálfir. „Þeir sem fengu lánið áttu
aldrei að hafa getað komist að
því. Lánið var lagt inn
á geymslureikn-
ing og þaðan
var það greitt
beint til selj-
andans.“
Neitar að
tjá sig
Björn Þorri vildi
ekkert tjá sig þeg-
ar leitað var til
hans. Hann sagði
umfjöllun DV
uppfulla af rangfærslum og hann
ætlaði að svara því annars staðar.
Hann fékkst hins vegar ekki til að
benda á efnislegar rangfærslur í
umfjöllunninni.
Nafninu á Adminu iela var
breytt í mars á þessu ári í Beta 5.
Félagið seldi þá 60 prósent af fast-
eigninni fyrir 240 þúsund evrur. Í
maí var gengið frá sölu á afgangs-
hlut í fasteigninni
fyrir 78 þús-
und evr-
ur. Sölu-
verðið
nem-
ur um
10 pró-
sentum
af lán-
inu sem
tekið var
til kaup-
anna.
risalán á hreysi
Fyrrverandi stjórnarformaður Sparisjóðs Hafnarfjarðar, sem veitti Karli Georgi
Sigurbjörnssyni og Birni Þorra Viktorssyni lán til kaupa á fasteignum í Riga árið
2006, segir lánið hafa farið beint frá bankanum til seljanda. Lögmennirnir hafi ekki
haft aðgang að peningunum. Mörg hundruð milljóna króna veð var í fasteigninni.
Húsið í Riga Húsið, sem Björn Þorri
og Karl Georg keyptu og veðsettu fyrir
risaláni, er gamalt og talið að raunvirði
þess sé miklu lægra en lánið.
aNNaS SiGmuNdSSoN oG
ValGeiR öRN RaGNaRSSoN
blaðamenn skrifa: as@dv.is og valgeir@dv.is
Björn Þorri Viktorsson Átti fjórð-
ungshlut í fasteigninni í Lettlandi í
gegnum eignarhaldsfélag.
Karl Georg Sigurbjörnsson
Var meðeigandi í félaginu
sem keypti húsið árið 2006.
Ofsaakstur á
hringbraut
Mikið var um hraðakstur á höf-
uðborgarsvæðinu um helgina.
Sá sem mældist á mestum hraða
innanbæjar var hálfþrítugur
maður sem ók vélhjóli sínu á 130
kílómetra hraða eftir Hring-
braut. Hann var þó ekki sá sem
ók hraðast í umdæminu. Tveir
vélhjólakappar, annar tvítugur
en hinn þrítugur, mældust á 150
kílómetra hraða á Reykjanes-
braut sunnan Hafnarfjarðar.
Kona á þrítugsaldri keyrði bíl
á 100 kílómetra hraða á Hring-
braut og tvítugur piltur var tek-
inn á sama hraða á Bústaðavegi.
Ökumenn á leið eftir Þingvallavegi
geta átt von á vandræðum á leið sinni
til og frá Þingvöllum í dag. Vegagerð-
in ræðst í framkvæmdir, bæði mal-
bikun og sandburð.
Annarri akrein Þingvallavegar
verður lokað fyrir umferð á kafla strax
í morgunsárið og fram eftir degi. Um
er að ræða tveggja kílómetra langan
kafla sem hefst fimmtán kílómetra
austan við Gljúfrastein. Þetta er þó
ekki eina hindrunin sem ferðalangar
á leið til og frá Þingvöllum verða fyr-
ir. Viðvarandi blæðingar eru á Þing-
vallavegi og því er vegurinn reglulega
sandborinn frá Hakinu og niður að
þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum.
Af þeim sökum hefur hámarkshraði
verið takmarkaður við fimmtíu kíló-
metra á klukkustund á þessum kafla.
Víðast annars staðar á landinu
eiga samgöngur að ganga vel fyrir
sig. Vegir eru greiðfærir en þó þunga-
takmarkanir á fáeinum stöðum. Þó
verður Illagilsbrú í Fjörðum lok-
uð um óákveðinn tíma vegna fram-
kvæmda við endurgerð brúarinnar.
Lokanir og hraðatakmarkanir vegna framkvæmda:
Blæðir á Þingvallaleið
Blæðandi vegir Mikið þarf að huga
að viðhaldi og varúðarráðstöfunum.