Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Qupperneq 9
fréttir 21. Júlí 2009 ÞriÐJUDAGUr 9
Fjölskylduhátíðin Kátir dagar var
haldin í Langanesbyggð og nágrenni
um helgina. Það skyggði óneitanlega
á fögnuðinn þegar upp komst um
viðamikinn þjófnað á dansleik með
Ingó og Veðurguðunum í félags-
heimilinu Þórsveri á Þórshöfn að-
faranótt sunnudags. Tvær nítján ára
stúlkur frá Akureyri gerðust þar ansi
fingralangar og stálu ellefu GSM-
símum, tíu þúsund krónum í pening-
um, tæplega tuttugu greiðslukortum,
veskjum, töskum, snyrtivörum og
öðru smálegu.
Ekki skipulagt
Hlutirnir sem stúlkurnar stálu voru
flestir geymdir í fatahenginu í fé-
lagsheimilinu en engin gæsla var
þar að sögn lögreglunnar á Þórshöfn
enda bjuggust íbúar og gestir staðar-
ins ekki við svo bíræfnum þjófnaði.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu
voru stúlkurnar mjög iðnar við þetta
athæfi sitt á dansleiknum.
Ekki virðist vera að stúlkurnar
hafi skipulagt þjófnaðinn áður en
þær komu til Þórshafnar. Að sögn
lögreglu er nokkuð ljóst að þetta hafi
verið hugmynd sem kviknaði á dans-
leiknum sem stúlkurnar hafi síðan
framkvæmt í snarhasti.
Of stór skammtur
Stúlkurnar tvær voru í hópi fólks frá
Akureyri sem hafðist við í tjöldum í
þorpinu. Lögreglan handtók stúlk-
urnar á sunnudaginn þegar þær voru
á leiðinni frá Þórshöfn aftur heim til
Akureyrar. Lögreglan náði að endur-
heimta allt þýfið og er búin að koma
því flestu til skila til réttra eigenda.
Málið telst upplýst enda fékk lög-
reglan á staðnum dygga hjálp frá
þeim sem lentu í þjófnaðinum, en
það voru heimamenn sem og íbúar
Vopnafjarðar, Þistilfjarðar og Kópa-
skers.
Lögreglan hafði einnig afskipti af
þriðju stúlkunni úr þessum hópi frá
Akureyri á föstudagskvöldið. Hún
tók of stóran eiturlyfjaskammt og var
flutt á heilsugæsluna á Þórshöfn þar
sem var dælt upp úr henni.
Leiðindamál
Kátir dagar fóru annars vel fram en
þessi þjófnaður olli miklum usla á
Þórshöfn og nágrenni. Íbúi Þórs-
hafnar, sem DV talaði við, sagði mál-
ið leiðindamál en er lögreglu afar
þakklátur, eins og aðrir þorpsbúar,
fyrir að hafa leyst málið svo hratt og
örugglega. Almenn ánægja ríkir með
úrvinnslu málsins enda ekki algengt
að þýfi af þessu tagi komi allt í leitirn-
ar að sögn lögreglunnar á Þórshöfn.
Látlaust félagsheimili Ballgestum í Þórsveri
brá aldeilis í brún þegar upp komst um
þjófnað á dansleiknum aðfaranótt sunnudags.
Tvær ungar stúlkur frá Akureyri létu greipar sópa á dansleik
á Kátum dögum á Þórshöfn og stálu peningum, símum og
töskum. Þriðja stúlkan tók of stóran skammt af eiturlyfjum
og þurfti á læknisaðstoð að halda.
STOLIÐ
AF BALLGESTUM
„Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu voru
stúlkurnar mjög iðnar
við þetta athæfi sitt á
dansleiknum.“
LiLja Katrín gunnarsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Hátíðarmatseðill
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
Steikt Lúðufiðrildi með
hvítlauksristuðum
humarhölum og humarsósu
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Hunangsgljáð andabringa
„Orange” með rusty kartöflum
og ristuðu grænmeti
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
200 gr. ristaðir humarhalar
með mangó-chilli cous cous,
salat og kartöflubátar
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Glóðuð Nautalundarpiparsteik,
ristaðir humarhalar, grænmeti
og rjómalöguð piparsósa
Dessert
Hátíðardessert
Laugaás 30 ára
25. júní
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf