Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Síða 12
12 þriðjudagur 21. júlí 2009 fréttir
Klónaðir fíkni-
efnahundar
Tollgæslan í Suður-Kóreu segist
hafa tekið í þjónusu sína heims-
ins fyrstu klónuðu „þefhunda“ til
að leita að eiturlyfjum á flugvöll-
um og við landamærastöðvar.
Um er að ræða sex hunda
sem voru klónaðir eftir kanad-
ískum „þefhundi“ síðla árs 2007
og hafa hundarnir nú lokið sex-
tán mánaða þjálfun.
Að mati tollgæslunnar væri
hægt að lækka kostnað barátt-
unnar gegn glæpum með því
að klóna hunda því erfitt sé að
finna góða „þefhunda“ og að að-
eins þrjátíu prósent „þefhunda“
sem fæðist með eðlilegum hætti
standist próf. Að sögn þarlendra
vísindamanna væri hægt að
hækka hlutfallið í níutíu prósent
með klónun.
Lýsir sig sekan
Mohammad Ajmal Amir Qasab
mun hafa viðurkennt sekt sína
vegna hryðjuverkaárásanna í
Mumbaí á Indlandi í nóvember.
Qasab er sá eini hryðjuverka-
mannanna í Mumbaí sem lifði
árásirnar af og var ákærður fyr-
ir áttatíu og sex atriði, þeirra á
meðal stríð gegn Indlandi, morð
og fyrir að hafa haft sprengiefni í
fórum sínum.
Ekki liggur ljóst fyrir hvers
vegna Qasab hefur breytt yfirlýs-
ingu sinni en í maí lýsti hann sig
saklausan af öllum ákæruliðum.
Viðbúnaðarstig
lækkað í Bretlandi
Viðbúnaðarstig vegna hryðju-
verkahættu í Bretlandi hefur
verið lækkað frá „alvarlegri“
hættu til „verulegrar“ hættu.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
frá innanríkisráðuneyti landsins.
Viðbúnaðarstig var hækkað
í landinu árið 2007, en þá var
talið að hryðjuverkaárás væri
„mjög líkleg“. Samkvæmt nýju
mati er nú talið að slík árás sé
„möguleg“.
Að sögn Alans Johnson hjá
innanríkisráðuneytinu mun
almenningur ekki verða var við
breytingar á öryggisráðstöfun-
um og telur hann að ógnin sé
eftir sem áður „raunveruleg og
alvarleg“.
Baráttusamtök fyrir mannréttindum
í Rússlandi lýstu því yfir um helgina
að þau væru reiðubúin til að standa
fyrir máli sínu fyrir dómstólum, en
Ramzan Kadyrov, forseti Tsjetsjen-
íu, segist ætla að höfða mál á hend-
ur samtökunum vegna fullyrðinga
þeirra um að hann sé morðingi.
Oleg Orlov, forstöðumaður Mem-
orial mannréttindasamtakanna í
Rússlandi, sagði að hann stæði við
fullyrðingar sem hann lét falla í síð-
ustu viku í kjölfar morðsins á mann-
réttindabaráttukonunni Natalíu
Estemirovu. Estemirovu var rænt á
miðvikudaginn af heimili hennar í
Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, og
fannst lík hennar í nágrannaríkinu
Ingúsetíu. Estemirova hafði verið
skotin í höfuð og bringu.
„Við vitum hver er ábyrgur. Við vit-
um hvaða stöðu hann gegnir. Hann
er forseti Tsjetsjeníu,“ sagði Orlov á
fréttamannafundi í Moskvu. Að sögn
Orlovs hafði Kadyrov haft í hótunum
við Natalíu Estemirovu á síðasta ári
og að hún hefði verið vöruð við því
að halda áfram mannréttindabaráttu
sinni eða taka afleiðingunum ella.
Rússlandsforseti neitar
sekt stallbróður síns
Natalia Estemirova var enginn ný-
græðingur í mannréttindabaráttu og
hafði unnið í Grosní í tæpan áratug
og skrásett aftökur án dóms og laga,
mannshvörf og fjölda annars konar
mannréttindabrota í Tsjetsjeníu und-
ir stjórn Ramazans Kadyrov. Natal-
ia var ennfremur náinn vinur Önnu
Politkovskayu blaðamanns sem var
myrt í Moskvu í október 2006, en enn
sér ekki fyrir endann á rannsókn þess
morðs.
Dmitry Medvedev fordæmdi
morðið á Nataliu Estemirovu og fyr-
irskipaði rannsókn á því. Estemir-
ova var svarinn andstæðingur stjórn-
valda í Tsjetsjeníu, en Kadyrov,
forseti landsins, er afar hallur undir
stjórnvöld í Kreml. Dmitry Medved-
ev veit kannski ekki hver er ábyrgur
fyrir morðinu á Estemirovu en telur
sig þó vita hvar ábyrgðin liggur ekki.
Medvedev hefur hafnað ásökunum á
hendur Kadyrov og sagði þær „frum-
stæðar og óviðunandi“.
Myndi vinna málshöfðun
Stjórnmálaskýrendur eru flestir
þeirrar skoðunar að Ramazan Kad-
yrov myndi hafa sigur fyrir dómstól-
um þar sem rússneskir dómstólar
séu stjórnvöldum leiðitamir. Engu að
síður kynni málið að skaða orðspor
Kremlverja enda beinast sjónir nú í
miklum mæli að Kadyrov sem er að
mati stjórnvalda í Rússlandi ómiss-
andi bandamaður í Tsjetsjeníu í bar-
áttunni gegn uppgangi múslímskra
afla þar í landi.
Mannréttindasinnar segja að Kad-
yrov sé ekki lengur stætt á þeirri full-
yrðingu að óvinir hans beri ábyrgð
á morðum á óvinum hans, en hann
hefur beitt þeim rökum í hvert skipti
sem fréttamaður, lögfræðingur eða
aðrir sem andvígir eru honum eru
myrtir í Rússlandi.
Í blaðinu Novaya Gazeta, sem
Estemirova skrifaði fyrir, var skrif-
uð ítarleg grein um kringumstæður
morðsins á henni og meðal annars
vakin athygli á því að bifreið mann-
ræningjanna hefði verið ekið athuga-
semdalaust í gegnum nokkrar eftir-
litsstöðvar lögreglunnar og það hefði
ekki verið mögulegt nema mannræn-
ingjarnir hefðu haft opinber skilríki.
Leynilegur dauðalisti
Það er víðar en í Rússlandi og Tsjetsj-
eníu sem gagnrýnendur þarlendra
stjórnvalda eiga við skammlífi að
stríða. Útlægir Tsjetsjenar fullyrða
að Ramazan Kadyrov hafi sett sam-
an leynilegan lista yfir andstæðinga
sína og af þeim hafi um 300 verið
eyrnamerktir til aftöku. Engar sann-
anir liggja fyrir um þessa fullyrðingu,
en Umar Israilov, einn andstæðinga
Kadyrovs, var skotinn til bana á götu
úti í Vín í Austurríki í mars. Israilov
hafði án árangurs leitað til lögregl-
unnar vegna ótta um að honum yrði
fyrirkomið.
Annar andstæðingur Kadyrovs,
Sulim Yamadayev, var í sama mánuði
myrtur í Dúbaí. Skömmu eftir morðið
fannst morðvopnið, rússnesk Makar-
ov-byssa, og voru tveir handteknir
vegna morðsins, en fjórir grunað-
ir um aðild flúðu til Rússlands. Yfir-
maður lögreglunnar í Dúbaí sakaði
Adam Delimkhanov, náinn vin og
frænda Kadyrovs, um að hafa staðið
að baki morðinu.
Myrtir nærri heimahögum
Aðrir andstæðingar Kadyrovs hafa
fallið nærri heimahögum. Þeirra á
meðal er Ruslan Yamadayev, bróð-
ir Sulims, sem var skotinn til bana
skammt frá Kreml í september. Rúss-
neskir fjölmiðlar hafa einnig tengt
Adam Delimkhanov við morðið á
Movladi Baisarov, fyrrverandi stríðs-
herra í Tsjetsjeníu og foringja í FSB,
fyrirrennara leyniþjónustu Sovétríkj-
anna KGB.
Stjórnmálaskýrendur, sem Times í
Moskvu vitnar í, segja að Kadyrov hafi
gert fástískt samkomulag við Kreml-
verja, þar sem Vladimír Pútín forsæt-
isráðherra hefur tögl og hagldir þrátt
fyrir setu Medvedevs í forsetastóli.
Ennfremur segja stjórnmálaskýrend-
ur að rússnesk stjórnvöld hafi gef-
ið Kadyrov frjálsar hendur fyrir að
hafa brotið á bak aftur sjálfstæðisöfl-
in sem létu til sín taka upp úr 1990.
Kadyrov hefur í kjölfarið farið fram á
skilyrðislausa tryggð af hálfu keppi-
nauta sinna að viðlagðri útlegð eða
einhverju þaðan af verra.
Enn sér ekki fyrir endann á máli blaðamannsins og mannréttindasinnans Önnu Politkovsk-
ayu. Og nú skekur morð á annarri mannréttindakonu stjórnvöld í Kreml og beinir sjónum
að Ramazan Kadyrov, forseta Tsjetsjeníu og stuðningsmanni rússneskra stjórnvalda.
Mannréttinda-
fóLK Myrt
Útlægir Tsjetsjenar fullyrða að
Ramazan Kadyrov hafi sett sam-
an leynilegan lista yfir andstæð-
inga sína og af þeim hafi um 300
verið eyrnamerktir til aftöku.
BLaðaMenn og MannréttindafóLK seM
drepin hafa Verið í rússLandi
YuRi ShcheKochiKhin
Drepinn í júlí 2003
Yuri Shchekochikhin var blaðamaður og meðlimur dúmunnar. Hann lést vegna
banvæns ofnæmis sem olli því að líkami hans steyptist út í rauðum útbrotum
og orsakaði bilun í líffærum hans. Yuri Shchekochikhin hafði oft og iðulega flutt
fréttir beint af staðnum í Tsjetsjeníu og barist gegn mannréttindabrotum og
almennri spillingu þar í landi.
AnnA PoLitKovSKAYA
Drepin í október 2006
Anna Politkovskaya var blaðamaður og skrifaði fyrir Novaya Gazeta og gaf að auki
út tvær bækur þar sem hún gagnrýndi stefnu rússneskra stjórnvalda með tilliti til
Tsjetsjeníu. Þrátt fyrir að verða fyrir nokkrum morðtilræðum lét Anna ekki deigan
síga og hélt starfi sínu ötul áfram þar til hún féll fyrir kúlum óþekktra morðingja
fyrir framan heimili sitt í Moskvu.
StAniSLAv MARKeLov
Drepinn í janúar 2009
Stanislav Markelov var vel þekktur mannréttindalögfræðingur sem kom meðal
annars að máli við Önnu Politkovskayu. Markelov var einnig lögfræðingur Elzu
Kungayeva, tsjetsjenskrar konu, sem var myrt af foringja í rússneska hernum árið
2000.
Stanislav Markelov var myrtur um hábjartan dag í Moskvu ásamt Anastösju
Baburaovu, sem var í starfsþjálfun hjá Novaya Gazeta.
KoLbeinn þoRSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
nataliu estemirovu minnst
Forseti Tsjetsjeníu hefur verið
sakaður um aðild að morðinu.
Anna Polikovskaya Gagnrýndi tengsl
Rússlands og Tsjetsjeníu og var myrt 2006.