Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Page 14
Hvers á æska Íslands að gjalda? Hví, ó hví á að ganga svo hart fram gegn henni að hún geti ekki
lengur farið á rúntinn á föstudags- og
laugardagskvöldum?
Nú hefur Kristján L. Möller samgönguráðherra kynnt tillögur að breytingum á umferðarlögum. Áratugum
saman hafa íslensk ungmenni getað
hlakkað til þess að fá bílprófið dag-
inn sem þau verða sautján ára. (Og
foreldrar þeirra ef til vill fyllst óhug,
eða í það minnsta einhverjum ugg.)
En þessi dýrðartíð stendur víst ekki
mikið lengur. Nú verða blessuð börn-
in að bíða árinu lengur eftir bílpróf-
inu. Í stað þess að fá prófið 17 ára fá
þau prófið 18 ára ef áform ráðherrans
ganga eftir. Sem þýðir þá væntanlega
mikinn sparnað fyrir ungmenni og
foreldra þeirra á næsta ári en að sama
skapi mikið tekjutap fyrir ökukennara
sem sjá fram á að heill árgangur dett-
ur út hjá þeim ef svo má segja. (OK,
reyndar ekki alveg því þetta á að ger-
ast í áföngum, ungmenni fá bílprófið
sautján ára og þriggja mánaða 2011,
sautján og hálfs árs 2012 og þar fram
eftir götunum. Það verður þá í það
minnsta ekki gert upp á milli barna
eftir því hvenær ársins þau fæddust.)
En þetta er ekki allt. Ónei. Nú á að banna krökkum að fara á rúntinn eftir klukk-
an ellefu á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Reyndar er þetta ekki sagt
þessum orðum í frumvarpinu heldur
látið nægja að segja að ökumaður
megi ekki hafa meira en einn farþega
í bíl sínum fyrr en hann er orðinn tví-
tugur. Þessu beinir ráðherrann ráðríki
augljóslega gegn rúntinum sem hef-
ur verið ánægja ungmenna og hluti
af þroskaferli þeirra frá því fljótlega
upp úr seinni heimsstyrjöld. Allir sjá
í hendi sér að menn rúnta ekki mikið
með einn farþega, ónei, það verð-
ur fyrst fjör þegar eru komnir fleiri
farþegar í bílinn en framleiðendur
hans gerðu ráð fyrir. En nú má
ekki lengur fylla hann að því
marki sem hann er byggður
fyrir.
Og hvað gerist þegar krakk-arnir ætla að fara í bíó sam-
an? Það er löng leið úr
Grafarvogi í Háskóla-
bíó og Hafnarfirði í
Mjóddina. Nú þurfa
fimm ungmenni á þrem-
ur bílum að halda til að fara
í bíó ef sýningunni er ekki
lokið vel fyrir klukkan ellefu
á föstudags- og laugardags-
kvöldi. Ekki getur þetta talist
umhverfisvænt. Bar Kristján L.
Möller samgönguráðherra þetta
undir Svandísi Svavarsdóttur um-
hverfisráðherra? Eða er kannski
ætlast til að sautján, átján og
nítján ára ungmenni fari í bíó
klukkan átta í síðasta lagi og verði
komin heim löngu fyrir miðnætti?
Reyndar verður að taka fram að reglan um einn farþega gildir ekki ef um neyðarakst-ur er að ræða. Þannig að ef
þrjú ungmenni í bíl sjá blikkandi ljós
lögreglunnar eftir klukkan ellefu á
föstudagskvöldi geta þau alltaf bjarg-
að sér með því að brjóta glerflösku á
höfði eins farþegans.
Að drepA rúntinn
Spurningin
„Já, mér finnst það nú. Maður hefur
verið mikið í því að leika svona vini
aðalleikarans í gegnum tíðina.“
Laddi leikur
aðalhlutverkið í
kvikmyndinni
Jóhannes.
Það er
fyrsta
aðalhlut-
verk
hans í
kvik-
mynd á
löngum
ferli.
VAr kominn
tími á þig?
Sandkorn
n Deilt er um stöðu Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdóttur,
varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins, eftir að hún sat hjá
við afgreiðslu á aðildarumsókn
Íslands í
Evrópu-
samband-
ið. Heima-
stjórnararmur
Sjálfstæðis-
flokksins er
ævareiður
út í varafor-
manninn
sem datt úr takti við formann-
inn. Úr þeim ranni heyrist að
varaformaðurinn hafi veikst.
Reyndar heyrast sömu sjónar-
mið á meðal fjölmargra Evrópu-
sinna flokksins sem telja að það
sé pólitískt hugleysi hjá Þor-
gerði að sitja hjá.
n Steingrímur J. Sigfússon,
formaður VG, er lágt skrifað-
ur þessa dagana eftir að hafa
pínt flokk sinn til að samþykkja
aðildarumsóknina að ESB.
Formaðurinn þykir hafa fórnað
flestum hugsjónum flokksins
fyrir valdastólana og daglega
missir hann stuðningsmenn.
Þá veldur IceSave-samning-
urinn og stórundarlegt val á
formanni samninganefndar
Steingrími miklum vandræð-
um. Samfylkingarmenn gera
lítið til að hjálpa honum eins og
sjá má af því að þeir hafa tek-
ið upp baráttu fyrir því að sett
verði varúðarákvæði í IceSave-
samninginn. Einhver hefði sagt
að Steingrímur hefði átt að fá
að reisa þá kröfu sjálfur til að
milda áfall sitt.
n Björn Bjarnason, eftirlauna-
þegi og fyrrverandi ráðherra,
hefur lengst af verið þekktur
fyrir annað
en gaman-
semi. Svo
virðist þó
sem brott-
hvarf hans
á þingi og
rólegheit
því samfara
hafi laðað
fram nýj-
ar hliðar hans. Björn blogg-
aði nýverið um samherja sína
á hægrivefnum amx.is sem er
eins konar mótvægi við Smug-
una, vef VG. Björn segir amx
vera „vefsíðu, sem njóti sívax-
andi vinsælda“. Þá toppar hann
eigin húmor með því að segja
það „fagnaðarefni, að vefsíðu á
borð við amx.is skuli haldið úti,
þegar efnistök allra fjölmiðla
séu eins og steypt í sama mót“.
n Eitt vinsælasta svæðið á Ís-
landi fyrir sumarhús er í Borg-
arfirði. Einstaklingar sem eiga
bústaði mynda gjarnan með sér
félög sem gæta hagsmuna og
velsæmis. Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur var for-
maður eins slíks félags í Borg-
arfirði. Það félag hefur ítarlegar
reglur sem ná til umgengni,
dýrahalds og auðvitað umhverf-
ismála. Síðasta ákvæðið í regl-
unum vekur sérstaka athygli en
þar er ábúendum gert skylt að
bjóða góðan daginn þegar þeir
mæta gestum og gangandi.
LyngháLs 5, 110 ReykJavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ég er frjáls.
Þessi mál eru úr
sögunni í dag.“
n Fyrrverandi Idol-stjarnan Kalli Bjarni er laus úr
fangelsi og búin að gera upp öll sín mál. – DV
„Ég hvorki erfi
nokkurn hlut né
er í neinni
keppni við hann
og mun aldrei vera.“
Atli Eðvaldsson, þjálfari Vals, segir allt gleymt
og grafið milli hans og Páls Einarssonar eftir
farsann á milli þeirra fyrir nokkrum árum. Þeir
mættust á hliðarlínunni í leik Vals og Fylkis í
gærkvöldi. – Vísir.is
„Kannski verðum við
næstu silfurdrengir
Íslands.“
Jón Þór Þórsson, sundkappi í samkynhneigða
sundfélaginu Styrmi, segir undirbúning fyrir
Outgames í Kaupmannahöfn ganga vel. –
Fréttablaðið.
„Mér þykir býsna ótrúlegt
að íslenskur dómstóll
hnekki þeim.“
Indriði H. Þorláksson, ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu, um líklega málshöfðun
kröfuhafa í þrotabú Landsbankans til að fá
neyðarlögunum hnekkt. – Morgunblaðið
„Ég stóð upp og
söng í strætis-
vögnum þegar
ég var lítil.“
Svanhildur Þórsteinsdóttir, Svansí, var á
útopnu sem lítil stelpa í Skagafirði. – DV
Stefnulaust rekald
Leiðari
Ríkisstjórnin sem nú situr er banda-lag um völd. Ágreiningsmálin eru risavaxin og lausnirnar dýrkeyptar. Á meðan Samfylking fær nánast öllu
sínu framgengt verða vinstri-grænir að éta
flestar sínar hugsjónir ofan í sig. Vandséð er að
þessi stjórn geti lifað út eitt kjörtímabil . Óskilj-
anlegt er að ríkisstjórn skuli vera mynduð um
að sækja um aðild að Evrópusambandinu með
það fyrirliggjandi að annar stjórnarflokkanna
er nær algjörlega andvígur. Auðvitað fylgja
því sárindi þegar foringjar VG ganga þvert
gegn samþykktum flokksins og styðja aðild-
arumsókn. Það hefur verið lenska í íslensk-
um stjórnmálum að flokkarnir hafa traðkað
á yfirlýstri stefnu sinni. Sjálfstæðisflokknum
var lengst af stjórnað af mönnum sem blygð-
unarlaust þöndu út ríkið milli þess sem þeir
einkavæddu í þágu flokksgæðinga. Hin opin-
bera stefna þess flokks um minni ríkisafskipti
og frelsi einstaklinga til athafna varð aldrei
að öðru en orðum á blaði. Flokkurinn þandi
út ríkisbáknið í stjórnartíð sinni og þverbraut
flestar sínar hugsjónir. Það sama er nú uppi
á teningnum hjá vinstri-grænum. Flokkurinn
sem berst gegn stóriðju hefur það hlutverk að
auka þannig rekstur í landinu. Og flokkurinn
sem er algjörlega andvígur aðild að ESB axlaði
sjálfviljugur þann kross að senda inn aðildar-
umsókn sem hann þykist ætla að berjast gegn.
Formaður VG lýsti því á sínum tíma að henda
ætti Alþjóðagjaldeyrissjóðnum út úr landinu.
Hann kúventi í þeirri afstöðu sinni þegar hon-
um bauðst aðild að ríkisstjórn. Og meðan all-
ir þessir umsnúningar eiga sér stað vex reið-
in innan flokksins. Að óbreyttu er útilokað að
VG haldi núverandi fylgi sínu í gegnum aðrar
kosningar. Flokkur sem ekki í neinu heldur
fast við stefnu sína eða sannfæringu getur ekki
átt sér góða framtíð. Sá tími að flokkar með
skálka við stýrið vinni þvert á eigin stefnu ætti
að vera að baki. Þjóðin er nýlega búin að hrista
af sér ríkisfasisma Sjálfstæðisflokksins þegar
martröðin heldur áfram og róttækasti vinstri
flokkur lands svíkur kjósendur sína í öllum
meginatriðum. VG er stefnulaust rekald í ólgu-
sjó íslenskra stjórnmála.
reynir trAustAson ritstjóri skrifAr. Að óbreyttu er útilokað að VG haldi núverandi fylgi sínu.
bókStafLega
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. júlí 2009 UmRæÐA