Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2009, Qupperneq 17
sport 21. júlí 2009 ÞrIÐJUDAGUr 17
David Beckham fékk engar stjörnumót-
tökur í sínum fyrsta leik með bandaríska
MLS-liðinu Los Angeles Galaxy þegar
hann sneri þangað aftur á sunnudaginn.
Liðið lék þá æfingaleik gegn ítalska stór-
liðinu AC Milan sem allt vesenið milli
Beckhams og Galaxy hefur verið út af.
Beckham var á láni hjá Milan og gaf það
út að hann vildi vera áfram á Ítalíu því
þar væri betri fótbolti spilaður. Baulað
var á Beckham og borðum með fúkyrð-
um flaggað. Englendingurinn hlédrægi
bauð þó fram sáttahönd og átti að sjálf-
sögðu þátt í báðum mörkum liðsins en
hann hefur verið iðinn við kolann hvað
varðar stoðsendingar hjá liðinu.
„Farðu heim, svikari“
Hörðustu aðdáendur Galaxy eru allt
annað en ánægðir með framkomu Beck-
hams á síðustu mánuðum. Einn þeirra
var með risastóran borða sem á stóð:
„Farðu heim, svikari“ á meðan annar
hafði einfaldlega gert hring í kringum
númer Beckhams, 23, og strikað í gegn-
um það. Á einum borðanum mátti lesa:
„Hey Becks, við vorum hér áður en þú
komst, verðum eftir að þú ferð og erum
hér þrátt fyrir þig“ og enn annar sagði:
„Er illska eitthvað sem þú ert eða eitt-
hvað sem þú gerir?“
Þegar flautað var til hálfleiks var mik-
ið baulað og fórnaði Beckham þá hönd-
um og bað fólkið um að hætta sem það
gerði ekki. Hann kom þó aftur inn á í
seinni hálfleik en eftir leikinn gekk hann
að hörðustu baulurunum og sagði þeim
að koma úr stúkunni, niður á völl og taka
í höndina á
honum. Það
gerði enginn.
Þegar Beck-
ham ætlaði svo
sjálfur að æða
yfir auglýsinga-
skilti og upp í stúku
var hann stöðvaður
af gæslumanni.
Landsliðið
markmiðið
Það er ekkert
launungar-
mál að Beck-
ham hefur ekki
tekist ætlunar-
verk sitt í Ameríku
enda virðist áhugi á
knattspyrnu þar jafnlítill
og venjulega. Beckham hefur
gefið það út að hann vilji spila á
heimsmeistaramótinu á næsta ári
en Fabio Capello, landsliðþjálfari
Englands, hefur sagt að ætli hann
sér það verði Beckham að spila reglu-
lega í einni af bestu deildum heims.
Það styttist í tímabilin á meginland-
inu en MLS-deildinni lýkur ekki fyrr
en í haust.
Leonardo, nýráðinn þjálfari AC Mil-
an, hefur opinberlega sagt að það sé
pláss fyrir Beckham í Milan og sjálfur
hefur hann viðurkennt að vilja spila
þar áfram. Næsta verkefni Beckhams
er þó að halda áfram að vinna stuðn-
ingsmenn Galaxy aftur á sitt band.
„Það mátti alveg búast við þessu.
Stundum gengur fólk samt of langt.
Langflestir stuðningsmennirnir hafa
þó verið mér afar góðir,“ sagði David
Beckham eftir leikinn gegn Milan.
„Farðu .
heim,
svikari“
David Beckham fékk óblíðar móttökur þegar
hann sneri aftur til Los Angeles Galaxy í æf-
ingaleik gegn AC Milan sem hann lék með seinnipart veturs.
Stór hluti áhorfenda baulaði á Englendinginn sem rétti fram
sáttahönd og átti þátt í báðum mörkum liðsins.
Beckham Ekki sá
vinsælasti í LA þessa
dagana.
TÓmaS ÞÓR ÞÓRÐaRSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
eiNN aF BORÐuNum Farðu heim, svikari.
KOMDU Í ÁSKRIFT
:: hringdu í síma 515 5555 eða
:: sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is
:: farðu inn á www.birtingur.is
og komdu í áskrift
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið