Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2009, Blaðsíða 8
8 þriðjudagur 11. ágúst 2009 fréttir
250 milljóna króna innheimtukrafa
Lögfræðistofu Reykjavíkur á hend-
ur Exista leggst ofan á aðrar kröfur
í eignir Exista og gæti vel komið til
innheimtu að mati forsvarsmanna
félagsins.
Í síðasta helgarblaði DV var sagt
frá því að Lögfræðistofa Reykjavíkur
hefði sent ofangreindan reikning eft-
ir að skilanefnd Landsbankans hafði
falið lögfræðistofunni að annast inn-
heimtu á 27 milljarða króna láni sem
skilanefndin hafði gjaldfellt.
Lárentsínus Kristjánsson, for-
maður skilanefndar Landsbankans,
er jafnframt einn af eigendum Lög-
fræðistofu Reykjavíkur.
Í yfirlýsingu sem skilanefnd-
in sendi frá sér í kjölfar fréttar DV
var tekið fram að Lárentsínus hefði
hvergi komið nálægt samningsgerð
við Lögfræðistofu Reykjavíkur.
Sveinn Andri Sveinsson, meðeig-
andi Lárentsínusar í Lögfræðistofu
Reykjavíkur, sagði í fréttum Stöðv-
ar tvö og Bylgjunnar þennan sama
dag, að skilanefnd Landsbankans
hefði leitað til utanaðkomandi aðila
til að létta sér verkið. „Og það kom
upp sú tillaga skilanefndar að Lög-
fræðistofu Reykjavíkur yrði falið að
aðstoða skilanefndina í samningum
við Exista.“
Sveinn Andri sagði einnig í sömu
frétt að þegar sú tillaga hafi kom-
ið upp hefði Lárentsínus vikið sæti
á fundinum. Aðrir hefðu því tekið
ákvörðunina. „Og blaðamenn DV
vita það ósköp vel eins og aðrir, að
það sem gerist er í þessu tilviki er að
þegar ákveðið er að gjaldfella þessa
risastóru kröfu eru lögð á hana drátt-
arvextir og innheimtuþóknun eins
og gengur, bara eins og það reiknast í
kerfinu. En það er víðsfjarri að þess-
ar 250 milljónir sé eitthvað sem er að
greiðast til Lögfræðistofu Reykjavík-
ur. Það eru meiri líkur á að vinna í ít-
alska ríkislottóinu heldur en að þessi
krafa greiðist.“
Undir hæl skilanefnda
Forsvarsmenn Exista vilja síður
koma fram og tala undir nafni enda
er félagið, rétt eins og mörg önn-
ur félög í vanda, undir hæl skila-
nefnda hinna föllnu banka og reyna
að bjarga því sem bjargað verður. Í
samtölum við DV benda þeir þó á að
fullyrðingar Sveins Andra megi túlka
þannig að lítið sem ekkert innheimt-
ist af 27 milljarða gjaldföllnu láninu.
Jafnvel þótt aðeins 1 prósent þess
innheimtist væru það 270 milljónir
og það dygði fyrir innheimtukröfu
frá lögfræðistofu Sveins Andra og
Lárentsínusar. Meira að segja yrðu
20 milljónir króna afgangs upp í Ice-
save-reikningana. Forsvarsmönnum
Exista þykir sem talsmenn Lögfræði-
stofu Reykjavíkur séu býsna fullyrð-
ingasamir um greiðslustöðu Exista
sem ekki hefur verið tekið til skipta.
Sveinn Andri Sveinsson vísaði því
einnig á bug í frétt Stöðar 2 að um
hagsmunaárekstra væri að ræða. „Í
fyrsta lagi var hann (Lárentsínus)
ekki formaður þegar þessi ákvörð-
un var tekin. Og í öðru lagi voru það
aðrir fulltrúar í skilanefndinni sem
tóku þessa ákvörðun en hann vék
sæti þegar þessi tillaga kom upp.“
Þrátt fyrir yfirlýsingar Sveins
Andra er efni til að spyrja um hæfi
og vanhæfi. Ekki er ljóst hvort Lár-
entsínus átti hlut að þeirri ákvörðun
að gjaldfella 27 milljarða króna lánið
á hendur Exista sem síðar leiddi til
þess að lögfræðistofa hans öðlaðist
tilefni til að senda Exista 250 millj-
óna króna innheimtureikning.
Yfir, undir og allt um kring
Í yfirlýsingu skilanefndar Lands-
bankans um málið segir meðal ann-
ars að eitt af þeim málum sem fyrir
nefndina hafi komið hafi verið lán-
veiting bankans til Exista, sem þá
þegar var komið í alvarleg vandræði.
„Gerði skilanefnd af því tilefni ítar-
legan verksamning við lögmann hjá
Lögfræðistofu Reykjavíkur þar sem
honum var falið að innheimta kröf-
ur bankans við Exista. Lárentsínus
Kristjánsson vék sæti í skilanefnd
við umræðu og atkvæðagreiðslu um
þann samning.“
Ýmsir lögfræðingar Lögfræði-
stofu Reykjavíkur gætu hafa gert áð-
urgreindan verksamning, en hann
er ekki nafngreindur í yfirlýsingunni.
Einn þeirra er Steinar Þór Guðgeirs-
son, en hann er formaður skilanefnd-
ar Kaupþings. Geta má þess að Ex-
ista var fjórðungseigandi Kaupþings
skömmu áður en bankinn féll. Annar
þeirra er Ólafur Garðarsson, en hann
er formaður slitastjórnar Kaupþings.
Þeir fara því báðir með hagsmuni
þess banka sem Exista átti fjórðungs
hlut í. Þá gæti Sveinn Andri Sveins-
son einnig hafa gert umræddan verk-
samning. Enn einn lögfræðingur
hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur hefur
einnig komið við sögu skilanefnd-
anna, en það er Tómas Jónsson, sem
situr nú í skilanefnd Icebank. Hann
hefur meðal annars komið við sögu
skilanefndar Kaupþings.
Á kaupi hjá eigin stofu
Framan af vetri voru skilanefndir
föllnu bankanna á launum hjá hinu
opinbera en nú fá þær greitt fyrir störf
sín af eignum þrotabúa bankanna
sjálfra. DV greindi frá því snemma
í febrúar að allir skilanefndarmenn
stóru bankanna með tölu sendu á
þeim tíma Fjármálaeftirlitinu reikn-
inga og innheimtu fyrir störf sín í
nafni lögmannastofa, endurskoðun-
arfyrirtækja eða einkahlutafélaga.
Miðað við greiðslur á þeim tíma inn-
heimtu félög skilanefndarmannanna
3,2 milljónir að meðaltali á mán-
uði fyrir hvern og einn skilanefnd-
armann, en margir þeirra skiluðu
gríðarlegum tímafjölda samkvæmt
heimildum DV. Þar eð Ólafur, Lár-
entsínus, Steinar Þór og Tómas koma
allir við sögu skilanefndanna hefur
lögmannastofa þeirra, Lögfræðistofa
Reykjavíkur, innheimt á annan tug
milljóna króna á mánuði fyrir skila-
nefndarstörf og lögfræðistofan síðan
gert upp við þá.
Auk starfs- og kunningjatengsl-
anna eru flestir ofangreindra lög-
fræðinga í Sjálfstæðisflokknum og
hafa sumir hverjir gegnt trúnaðar-
störfum fyrir flokkinn. Þess má geta
að Lögfræðistofa Reykjavíkur var
valin til verka fyrir hina föllnu banka
þegar í október af Jónasi Fr. Jónssyni,
þáverandi forstjóra Fjármálaeftir-
litsins. Eftir því sem DV kemst næst
höfu Baldur Guðlaugsson, þáverandi
ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneyt-
isins, og Jón Sigurðsson, þáverandi
stjórnarformaður FME, hönd í bagga
um val á sérfræðingum í skilanefnd-
irnar auk Jónasar. Baldur og Jónas Fr.
hafa sterk flokkstengsl við Lögfræði-
stofu Reykjavíkur.
Kvartað yfir Lárentsínusi
Í yfirlýsingu frá skilanefnd Lands-
bankans fyrir helgi segir að 250
milljóna króna innheimtukrafan
taki mið af undirliggjandi 27 millj-
arða láninu sem skilanefnd Lands-
bankans gjaldfelldi á Exista.
Í ljósi aðstæðna má búast við,
samkvæmt innheimtusamningn-
um, að málið fari í þann farveg að
Lögfræðistofa Reykjavíkur fái tíma-
gjald fyrir þjónustu sína eða miklu
lægri fjárhæð en sem nemur heild-
artölunni í hinni formlegu kröfu-
gerð. Ef krafan ásamt innheimtu-
kostnaði innheimtist að fullu verður
kostnaðurinn greiddur af skuldara,
ekki af bankanum,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Aðeins tveir skilanefndarmenn
af fimm eru eftir í skilanefnd Lands-
bankans. Einn hvarf á braut að eig-
in ósk en Fjármálaeftirlitið sagði
tveimur öðrum upp störfum þar
eð þeir gegndu ábyrgðarstöðum í
gamla Landsbankanum.
Samkvæmt upplýsingum frá Fjár-
málaeftirlitinu í gær hefur enn ekki
verið tekin ákvörðun um að fjölga í
nefndinni á ný. Þá hefur heldur ekki
verið tekin ákvörðun um framtíð
Lárentsínusar hjá nefndinni, en DV
hefur heimildir fyrir því að FME hafi
borist athugasemdir við störf hans
og hagsmunatengsl.
Forsvarsmenn Exista telja að í yfirlýsingum frá Lögfræðistofu Reykjavíkur felist fullyrðingar um að félagið
eigi ekki einu sinni fyrir 250 milljóna króna innheimtureikningi frá lögfræðistofunni. Jafnvel þótt aðeins 1
prósent innheimtist af 27 milljarða láni sem skilanefnd Landsbankans hafi gjaldfellt sé til fyrir reikningnum
og meira að segja 20 milljónir króna að auki upp í Icesave-reikninginn.
250 milljónirnar ofan
á aðrar skuldir „Það eru meiri líkur á að vinna í ítalska ríkislottóinu heldur en að þessi krafa greiðist,“ seg-ir Sveinn Andri Sveinsson um
greiðslugetu Exista.
Jóhann haUKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Til varnar meðeiganda Sveinn Andri Sveins-
son sér enga meinbugi á því að Lárentsínus
Kristjánsson, meðeigandi hans í LR, standi nærri
ákvörðun um gjaldfellingu á 27 milljarða króna
láni til Exista og geti jafnframt haft hag af 250
milljóna króna innheimtu á hendur félaginu.
skilanefnarformaðurinn Eftir því
sem DV kemst næst hefur verið kvartað
yfir meintum hagsmunatengslum
Lárentsínusar til Fjármálaeftirlitsins.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is