Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2009, Blaðsíða 10
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
10 þriðjudagur 11. ágúst 2009 neytendur
Kostnaður sem hver Íslendingur þarf að bera vegna Icesave nemur rúmri millj-
ón króna verði samningurinn samþykktur á Alþingi. Hefðbundin fimm manna
fjölskylda gæti fyrir Icesave-peninginn leyft sér mikinn munað. Þar á meðal væru flatskjáir, amerískur ís-
skápur, tölvur og nýlegur einkabíll. Þess í stað mun hún þurfa að greiða fimm og hálfa milljón í formi verð-
og skattahækkana vegna Icesave ef fer sem horfir. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur segir að samþykkt samn-
ingsins sé mikilvæg fyrir framtíð Íslands. Horfa verði á málið í víðara samhengi.
Þetta gætirðu keypt fyrir icesave-peningana
Fimm manna fjölskylda gæti keypt
lítið notaðan bíl, fimm fullkomna
farsíma, fimm glæsilegar fartölvur,
amerískan ísskáp með öllu, fimm
flatskjái af dýrustu sort og þrjú reið-
hjól fyrir peninginn sem hún þarf
að greiða vegna Icesave verði rík-
isábyrgð samþykkt á Alþingi. Hver
einstaklingur þarf að greiða rúmar
milljón krónur vegna samkomulags-
ins sem ríkisstjórnin segir nauðsyn-
legt að staðfesta.
356 milljarðar
Miðað við núverandi forsendur
Icesave-samningsins þarf íslenska
ríkið að greiða Hollendingum og
Bretum 355,9 milljarða króna. Þetta
miðast við 5,5 prósent vexti af 2,35
milljarða punda láni frá breska rík-
inu og 1,33 milljarða evru láni frá hol-
lenska rík-
inu. Auk
þess er
búið að
gera ráð
fyrir því
að þrír
fjórðu
hlutar eigna Landsbankans upp á
1.100 milljarða muni ganga upp í
skuldina. Miðað við óbreytt gengi
krónunnar munu 355,9 milljarð-
ar króna leggjast á herðar íslenska
ríkisins; almennings. Talan verður
reyndar töluvert hærri en þessi upp-
hæð fæst út ef tekin eru með áhrif
verðbólgu. Upphæðin miðast sem sé
við núvirði.
1,1 milljón á mann
Datamarket hefur hannað reikni-
forrit sem sýnir hverjar skuldbind-
ingar íslenska ríkisins eru vegna Ic-
esave. Forritið má finna á mbl.is.
Samkvæmt úreikningunum þarf
hver einasti núlifandi Íslendingur að
borga meira en eina milljón króna
vegna þess samkomulags sem ef
til vill verður samþykkt á Alþingi á
næstu dögum eða vikum. Miðað við
gefnar forsendur nemur upphæðin
á hvert mannsbarn 1.114.557 krón-
um.
Þetta þýðir að meðal fimm
manna fjölskylda mun greiða rúmar
5,5 milljónir króna á næstu 15 árum
vegna Icesave-reikninganna sem
Landsbankinn, með þá Sigurjón Þ.
Árnason og Halldór J. Kristjánsson
í broddi fylkingar, stofnaði í Bret-
landi og Hollandi. Til hliðsjónar má
nefna að Sigurjón hafði rúmar 286
milljónir króna í árslaun árið 2008,
samkvæmt tekjublaði Mannlífs. Þar
eru fjármagnstekjur ekki meðtaldar.
Halldór hafði litlar 84 milljónir í árs-
laun 2008.
Bíll og fartölvur
Til að setja kostnaðinn í samhengi
tók DV saman hvað fimm manna
fjölskylda, sem þarf að jafnaði að
greiða 5,5 milljónir í formi skatta og
verðhækkana, gæti keypt fyrir 5,5
milljónir króna. Hún gæti byrjað á að
kaupa þriggja ára gamlan Toyota Av-
ensis. Á vefnum bilasolur.is má finna
nokkra slíka á rétt rúmar tvær millj-
ónir króna, eða 2.090 þúsund krón-
ur. Á bílnum gæti fjölskyldan farið
í Elko og keypt þar MacBook App-
le-fartölvur af dýrustu gerð. Fimm
slíkar, ein fyrir hvern fjölskyldumeð-
lim, myndu kosta 950 þúsund krón-
ur án hugsanlegs magnafsláttar. Þá
Hart deilt um Icesave inn á þingi sem
utan þess Hagfræðingur segir vinnu-
brögð fjármálaráðherra og fjárlaganefndar
Alþingis almennt vekja traust.
Hagsmunir ofar vináttu Ólafur
Ísleifsson hagfræðingur segir reynsluna
sýna að tengsl þjóða byggist meira á
hagsmunum en vináttu.
Miðað við óbreytt
gengi krónunnar munu
355,9 milljarðar króna
leggjast á herðar ís-
lenska ríkisins; almenn-
ings.
Apple Macbook
Fimm gæðafartölvur
kosta 950.000.
Flatskjár í hvert herbergi
Fjölskyldan gæti meðal
annars keypt sér fimm 32”
Phillips HD fyrir peninginn.