Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2009, Qupperneq 4
4 miðvikudagur 12. ágúst 2009 fréttir
Landsmenn auka
orkunotkun
Orkustofnun gerir ráð fyrir að
orkunotkun aukist um átta pró-
sent næstu sex árin og um 44
prósent til ársins 2030. Mest er
búist við að orkunotkunin aukist
á höfuðborgarsvæðinu.
Orkuspárnefnd lét vinna raf-
orkuspána og byggir hún á spá
frá árinu 2005 en með teknu til-
liti til nýrra gagna og breyttra for-
sendna. Þannig er byggt á for-
sendum um mannfjölda, fjölda
heimila, landsframleiðslu og
framleiðslu einstakra atvinnu-
greina.
Mikið um
makaskipti
Þriðjungur allra fasteigna
sem gengu kaupum og sölum
á höfuðborgarsvæðinu í síð-
asta mánuði skiptu um hend-
ur með makaskiptum. Aðeins
tvisvar áður hefur það gerst í
einum mánuði að meira hafi
verið um makaskipti á íbúð-
um.
Alls seldust 177 fasteignir í
síðasta mánuði. Þar af var um
makaskipti að ræða í 65 tilfell-
um. Mest var um makaskipti
í maí síðastliðnum þegar 79
slíkir samningar litu dagsins
ljós og í september í fyrra voru
72 slíkir samningar þinglýstir.
Hagkaup og 10-
11 stóðu sig verst
Verðmerkingum í matvöruversl-
unum á höfuðborgarsvæðinu er
mest ábótavant í Hagkaupum
Spönginni og 10-11 Langarima
og Lágmúla. Fulltrúar Neyt-
endastofu könnuðu verðmerk-
ingar á 50 vörum í 78 verslunum
á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Í
verslununum þremur sem tald-
ar eru upp hér að framan voru að
lágmarki 40 prósent varanna vit-
laust eða ekki merktar.
Níu verslanir fengu hins veg-
ar toppeinkunn, þar sem allt
var rétt verðmerkt. Þetta eru 10-
11, Barónsstíg og Austurstræti,
Nettó, Salavegi, 11-11, Grensás-
vegi og í Hraunbæ, Kaskó, Vest-
urbergi, Hagkaup, Jafnaseli,
Samkaup, Búðarkór og Bónus,
Helluhrauni.
Í lok ágúst verður haldið málþing í Skálholti sem átti upprunalega að vera til heið-
urs Ólafi Skúlasyni biskupi. Konurnar sem sökuðu Ólaf um kynferðislega áreitni
á sínum tíma voru ósáttar við það og því er málþingið ekki lengur tengt minningu
Ólafs. Stefaníu Þorgrímsdóttur, einni kvennanna, þykir þetta mjög leitt.
HÆTT VIÐ AÐ HEIÐRA
MINNINGU BISKUPS
lilja Katrín gunnarsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Ég skil vel að hann eigi
aðstandendur sem vilja
heiðra hans minningu.“
Dagana 23. til 24. ágúst fer fram
málþing í Skálholti með yfirskrift-
inni Þjóðkirkjan og lýðræðið. Upp-
haflega átti málþingið að vera til
heiðurs Ólafi Skúlasyni heitnum,
fyrrverandi biskupi. Að sögn skipu-
leggjanda málþingsins verður það
ekki á nokkurn hátt tengt minningu
Ólafs. Er það vegna þess að sum-
ar konurnar sem sökuðu Ólaf um
kynferðislega áreitni árið 1996 settu
sig í samband við skipuleggjendur
málþingsins og mótmæltu þessari
ákvörðun.
Mjög leitt
Stefanía Þorgrímsdóttir er ein
kvennanna sem sökuðu þáverandi
biskup, séra Ólaf Skúlason, um kyn-
ferðislega áreitni árið 1996 í biskups-
málinu svokallaða. Hún vissi ekki af
málþinginu og þykir mjög leitt að
það hafi verið hætt við að tengja það
minningu Ólafs.
„Ólafur Skúlason átti sína fjöl-
skyldu og hann var maður eins og
ég. Ég skil vel að hann eigi aðstand-
endur sem vilja heiðra hans minn-
ingu. Ég er búin að vinna mig út úr
mínum málin og dreg mörkin við
að leggjast gegn því að minning
einhvers manns sé heiðruð af þeim
sem þykir vænt um hann og kynnt-
ust annari hlið á honum en ég. Mér
þykir þetta mjög leitt,“ segir Stefanía
Þorgrímsdóttir.
Kennir ólafi ekki um
Stefanía sagði frá kynnum sínum við
Ólaf í DV í mars árið 1996. Hún hitti
hann einu sinni og þá var hún tólf
ára gömul.
„Það var þegar ég var á barnsaldri
á sundnámskeiði og hann stýrði
fermingarbarnamóti sem æsku-
lýðsfulltrúi kirkjunnar á sama stað.
Hann hafði þá mikil og óeðlileg af-
skipti af mér og annarri telpu og við-
hafði athæfi sem ég get ekki kallað
annað en mjög grófa kynferðislega
áreitni þó ekki hlytist meira af.“
Í dag er Stefanía á sextugsaldri og
hefur unnið vel úr sínum málum.
„Fyrir mér er þessu máli lokið.
Maðurinn er dáinn. Ég kenni hon-
um ekki einum um þau mál sem
komu þarna upp á sínum tíma. Ég
hef alltaf sagt það og segi það enn
að það var valdabarátta innan kirkj-
unnar sem við vorum dregnar inn
í. Ég álít að þó að Ólafur hafi verið,
að mínu mati, maður sem gekk ekki
heill til skógar í sum-
um efnum þá hef-
ur hann áreiðanlega
líka gert góða hluti
í sínu starfi. Það eru
fleiri hliðar á hverjum
manni.“
Fjölskyldan ósátt
Skipuleggjendur
málþingsins höfðu
ekki einungis samráð
við konurnar heldur
einnig fjölskyldu Ól-
afs. Samkvæmt heim-
ildum DV voru einhverjir innan fjöl-
skyldunnar sem voru heldur ekki
sáttir við að málþingið yrði haldið til
að heiðra minningu hans.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir
Ólafs, vildi ekkert tjá sig um málið
þegar DV hafði samband.
Viðkvæm mál tengd biskupi
Skipuleggjendur málþingsins segja
ákvörðunina um að tengja málþing-
ið ekki við Ólaf hafi líka helgast af því
að mál tengd honum hafi verið mik-
ið í umræðu fjölmiðla upp á síðkast-
ið og séu mjög viðkvæm. Eru þeir þá
að vísa til máls Sigrúnar Pálínu Ingv-
arsdóttur, Pálu eins og hún er kölluð,
sem steig fyrst kvennanna fram árið
1996 og sakaði Ólaf um nauðgun-
artilraun. Hún tók mál sitt upp aft-
ur í kjölfar fyrirgefningarbeiðni sem
Karl Sigurbjörnsson biskup fór með
í setningarræðu sinni á prestastefnu
í lok apríl á þessu ári. Þar bað bisk-
up „þær konur og börn, sem brotið
hefur verið á af hálfu starfsmanna
og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á
þeirri þjáningu og sársauka sem þau
hafa liðið“.
Pála sagði sögu sína í sjónvarps-
þætti Jóns Ársæls, Sjálfstætt fólk, í
maí og lýsti reynslu sinni af Ólafi.
„Og bara svo ég segi heiðarlega
hvað gerðist voru hendurnar á hon-
um inni á brjóstunum á mér, ég
fann að honum reis hold og tung-
an á honum uppi í mér og þetta var
prestur sem gifti mig og skírði barn-
ið mitt,“ sagði Pála í þættinum.
Í júní fékk Pála uppreisn æru
er hún fékk fund með kirkjuráði. Í
ályktun ráðsins eftir fundinn kom
fram að það harmaði „sársauka og
vonbrigði sem fram komu í frásögn
hennar á fundinum og skort á skiln-
ingi og máttleysi í viðbrögðum kirkj-
unnar á sínum tíma“.
Fimmtudagur 30. apríl 200912 Helgarblað Fimmtudagur 30. apríl 2009 13Helgarblað
Karl Sigurbjörnsson
Ólafi Skúlasyni
Gunnari Björnssyni
FYRIRGEFNING SYNDANNA
„Ég bið þær konur og börn, sem brot-
ið hefur verið á af hálfu starfsmanna
og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á
þeirri þjáningu og sársauka sem þau
hafa liðið,“ sagði Karl Sigurbjörns-
son, biskup Íslands, í setningarræðu
sinni við upphaf Prestastefnu Íslands
í Kópavogskirkju á þriðjudagskvöld.
Sagði biskup ennfremur að Kirkju-
þing hefði sett starfsreglur um með-
ferð kynferðisbrotamála í kirkjunni.
„Settar hafa verið siðareglur og
heilræði fyrir starfsfólk í barna- og
æskulýðsstarfi. Við verðum að taka
mark á þessu og fylgja eftir í starfi
kirkjunnar. Þessa dagana er verið að
ljúka gerð bæklings sem unninn er af
starfshópi á vegum Þjóðkirkjunnar
og annarra kristinna trúfélaga sem
vill leggja sitt af mörkum til að vinna
gegn ofbeldi í hvaða mynd sem er,
sem sagt kynferðisáreitni og mis-
notkun.“
Vonar að sár muni læknast
Karl segir í samtali við DV að fyrir-
gefningin sé almenn en útilokar ekki
að einstaka aðilar verði beðnir fyrir-
gefningar persónulega af hálfu kirkj-
unnar.
„Þá er það þegar og ef. En ég tek
það skýrt fram að þetta er almenn yf-
irlýsing og þetta snertir ekki einstaka
atvik. Ég er ekki í þeirri stöðu þarna
að taka á sérstökum málum sem fyrir
liggja. Ég er að vísa til bæði mála sem
hafa verið í hámæli og til reynslu
sem fólk hefur talað um stundum
mörgum árum síðar þar sem farið
hefur verið yfir mörkin. Ég er að vísa
til þessara sára, þjáningar og sárs-
auka sem er þarna úti sem í raun ýf-
ist upp og hefur aldrei fengið neina
sérstaka úrlausn. Ég er bara að orða
það. Ég bið þess og vona að þessi sár
muni læknast.
Ég tala við presta og djákna og
kirkju fólksins og það er fyrir þeirra
hönd sem ég ber þetta fram en ég er
ekki með nein sérstök dæmi í huga.
Ég er ekki að dæma í sérstökum, til-
teknum málum. Ég er bara að vísa til
þess að það eru ýmsir sem bera sár
og finna til þeirrar þjáningar sem
hefur kannski aldrei verið tekið á.
Eins og er alls staðar í okkar samfé-
lagi eru kirkjunnar starfsmenn upp
til hópa fólk eins og annað fólk.“
Kynbundið ofbeldi
er samfélagsvá
Karl telur að kynferðisbrot verði ekki
aðeins gerð upp með lögum og reglum
heldur líka með hjálp trúarinnar.
„Heimilisofbeldi og kynbundið of-
beldi er samfélagsmein á Íslandi í dag.
Kirkjan hefur markað stefnu um virka
andstöðu gegn kynbundnu ofbeldi í
samfélaginu. Hún hefur markað stefnu
bæði innan sinna vébanda í kirkjunni
og líka í samfélagi við alþjóðakirkju-
stofnanir sem við erum þátttakendur
í. Það er mikilvægt að við fylgjum því
eftir og tökum það alvarlega og látum
þau skilaboð hljóma í samfélaginu. Öll
umræða um slíka hluti verður til þess
að ýfa upp sárar minningar um brot
og margt af því verður ekki gert upp
með þeim verkfærum sem samfélag-
ið leggur til með lögum sínum og regl-
um, siðareglum og dómstólum heldur
með þeim verkfærum sem trúin bend-
ir okkur á. Það er að tala um hlutina,
iðrunin, fyrirgefningin sem til þarf.
Það er vegur trúar, vonar og kærleika.
Að því þurfum við að stuðla.
Það sem ég er fyrst og fremst að vísa
til er að okkar stefnumörkun í þessum
málum er alveg skýr og kirkjan vill ekki
líða slíka framkomu. Hún vill vinna
að því og taka undir með þeim í okkar
samfélagi sem vilja vinna gegn þess-
ari samfélagsvá sem margvíslegt kyn-
bundið ofbeldi er. Við eigum að taka
það alvarlega. Þetta eru ekki bara ein-
hver pappírsgögn þessar stefnumark-
anir kirkjunnar. Þetta á að hafa áhrif á
okkar persónulegu afstöðu og hvernig
við vinnum úr málum þegar þau koma
upp í framtíðinni.“
Sakaður um nauðgunartilraun
Nokkur tilfelli hafa komið upp síð-
ustu ár þar sem starfsmenn kirkj-
unnar hafa verið sakaðir um kyn-
ferðislega áreitni.
Árið 1996 sakaði Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir séra Ólaf Skúlason, þá-
verandi biskup, um nauðgunartil-
raun. Mál Sigrúnar vakti mikla at-
hygli á Íslandi og í kjölfar ásakana
hennar gáfu aðrar konu sig fram og
sökuðu biskup um kynferðislega
áreitni. Öll málin voru frá þeim
tíma þegar Ólafur var prestur.
Biskup kærði málið til saksókn-
ara og sagði sakaráburð nafn-
greindra og ónafngreindra aðila
vega að friðhelgi einkalífs hans
og æru með ólögmætum hætti.
Í yfirlýsingu sem hann sendi frá
sér á þessum tíma sagði að ráða
mætti af ummælum í fjölmiðl-
um að markmiðið með þess-
um röngu sakargiftum væri að
þvinga hann til að segja sig frá
biskupsembættinu.
Ríkissaksóknari vísaði mál-
inu frá þar sem hann taldi ekki
efni fyrir hendi til að ákæru-
valdið aðhefðist neitt í máli kvenn-
anna sem biskup kærði. Skömmu
áður en saksóknari tilkynnti þessa
niðurstöðu ákvað biskup að aftur-
kalla kröfu sína.
Biskupinn er sekur
Í viðtali við
Helg-
arpóstinn 30. maí árið 1996 lýsti Sig-
rún Pálína yfir vonbrigðum sínum
við þessari niðurstöðu og sagðist
standa við að biskup væri sekur.
„Ég er ekki sátt við þessi málalok,
þar sem engin niðurstaða fékkst. Það
segir þó sína sögu að ríkissaksóknari
skuli ekki telja ástæðu til málshöfð-
unar gagnvart okkur fyrir að hafa
borið biskup röngum sökum. Bendir
það til þess að biskup sé saklaus? Mér
sýnist að ef ég hefði komið fram með
þetta mál
áður
en
það var fyrnt hefði ég jafnvel getað
unnið það, því ég stend við það að
biskupinn er sekur. Við rannsókn
RLR komu fram vitni sem höfðu
sömu sögu að segja af samskiptum
við biskup og við. En það hlýtur að
vera óviðunandi, bæði fyrir presta
landsins og okkur sem tilheyrum
Þjóðkirkjunni, að biskup sitji áfram
í embætti eftir það sem á undan er
gengið,“ sagði Sigrún Pálína í við-
talinu.
Valdníðsla
Sigrún Pálína tók málið fyrst upp
tveimur árum áður. Þá talaði hún
við séra Pálma Matthíasson og
árið eftir við séra Vigfús Þór
Árnason. Hún bað prestana
tvo að taka málið upp inn-
an kirkjunnar en hvorugur
hafðist að í málinu.
„Í upphafi lagði ég ekki
fram kæru á hendur bisk-
upi heldur erindi til siða-
nefndar Prestafélagsins.
Framganga biskups í mál-
inu varð hins vegar til
þess að ég fór að sækja
málið með ákveðn-
ari hætti. Eg sé ekki eftir
að hafa farið af stað með
þetta mál þótt niðurstaðan
valdi mér vonbrigðum. Ég
var svo barnaleg að halda að
siðanefnd Prestafélagsins tæki
virkilega á málinu og liti það
alvarlegum augum. Tilgang-
ur minn var að losa mig við
þessa vitneskju og
hræðslu um
að aðrar
konur ættu eftir að lenda í því sama
og ég. En þegar málið snýst upp í það
að Ólafur Skúlason fer að hóta mér,
eins hann gerði á sáttafundi í Graf-
arvogskirkju, varð ekki aftur snúið.
Þetta mál er löngu hætt að snúast um
mig og biskup. Það snýst um vald og
valdníðslu og réttarkerfið í landinu,“
sagði Sigrún Pálína í viðtali við Helg-
arpóstinn 30. maí árið 1996.
„Neytir aflsmunar“
Sigrún Pálína og tvær aðrar kon-
ur sögðu sögu sína í helgarblaði DV
í byrjun mars þetta ár. Þar lýsti Sig-
rún Pálína fundi sínum við séra Ólaf
í Bústaðakirkju að kvöldi vegna þess
að séra Ólafur sagðist ekki geta hitt
hana á öðrum tíma, að sögn Sigrún-
ar.
„Ég kalla þetta tilraun til nauðg-
unar. Þegar viðkomandi neytir afls-
munar til að koma fram vilja sínum
og fórnarlambið þarf að beita afli til
að komast undan er farið yfir mörk-
in á milli kynferðislegrar áreitni og
nauðgunartilraunar,“ sagði Sigrún í
viðtalinu. „Ég komst út úr kirkjunni,
fór heim og brotnaði alveg niður. Ég
skalf og grét alla nóttina. Ég sagði
mínum nánustu frá þessu en það
var alls staðar sama svarið. „Þú getur
ekkert gert, þetta er orð á móti orði.“
Á þessum tíma voru engin Stígamót
og þessi umræða ekki byrjuð nema
að mjög litlu leyti. Eðli atburðarins
og hversu alvarlegur hann var gerði
það að verkum að ég gat ekki fundið
sökina hjá mér þrátt fyrir að ég færi
strax að leita að henni eins og fórn-
arlömb reyna jafnan að gera.“
Önnur kona sagði frá því að séra
Ólafur hefði leitað á hana í Kaup-
mannahöfn 1979. Þá hefði hún
búið þar ásamt eiginmanni sínum
og séra Ólafur viljað hitta þau en
hann var þá í borginni á presta-
þingi. Þriðja konan sagðist hafa
orðið fyrir áreitni séra Ólafs þeg-
ar hún var tólf ára.
Nokkru áður en konurnar
þrjár komu fram í DV birtist frétt
í blaðinu þar sem greint var frá
að þrjár konur hittust reglulega
hjá Stígamótum vegna fyrri
samskipta sinna við biskup
og að starfskona samtakanna
vissi af fleiri konum en vildi
ekki greina nánar frá málum
þeirra.
Tveir biskupar í
málinu
Einn þeirra sem
tengdust inn í
mál kvenn-
anna gegn
séra Ól-
afi
biskupi á sínum tíma var séra Karl
Sigurbjörnsson, þá prestur og nú
biskup. Samkvæmt frétt DV 6. mars
1996 beittu tveir prestar, þeir Hjálmar
Jónsson, sem þá var þingmaður en er
nú sóknarprestur dómkirkjunnar, og
Karl, núverandi biskup, áhrifum sín-
um til að fá konurnar sem ásökuðu
Ólaf biskup um kynferðislega áreitni
til að falla frá málum sínum. Í frétt-
inni segir meðal annars að prestarn-
ir tveir hafi átt tíða fundi með kon-
unum og að í kjölfar þeirra hafi ein
kvennanna dregið mál sitt til baka.
„Munu prestarnir meðal annars hafa
lagt mikla áherslu á kostnaðinn sem
því fylgi að standa í málarekstri gegn
biskupi,“ segir í fréttinni.
Séra Karl vildi ekkert tjá sig um
þetta á þeim tíma en ónafngreind-
ur prestur sem DV ræddi við á þeim
tíma sagði að miklu „handafli“ hefði
verið beitt af hálfu biskupsmanna til
að þagga það niður.
Gefðu mér nú kraft
Á síðasta ári kærðu tvær unglings-
stúlkur séra Gunnar Björnsson,
sóknarprest á Selfossi, fyrir kynferð-
islega áreitni og brot á blygðunar-
semi. Stúlkurnar voru sóknarbörn
hans þegar meint brott áttu að eiga
sér stað. Önnur stúlkan fór fram á
tvær milljónir króna í skaðabætur og
hin sex hundruð þúsund krónur.
Héraðsdómur Suðurlands sýkn-
aði Gunnar.
Séra Gunnar sagði við DV í lok
apríl að ásakanir stúlknanna
væru einn stór misskilningur,
að hann hefði aðeins sýnt
stúlkunum hlýju en ekki
áreitt þær á nokkurn hátt.
Þetta staðfesti dómari en
hafi látið orðin: „Gefðu
mér nú kraft A mín“ falla
er hann faðmaði stúlkuna,
hann hafi einungis ekki
verið alveg hress. Í skýrslu
sagði stúlkan að Gunnar
hafi látið þau orð falla að
straumarnir streymdu úr lík-
ama hans við það að
faðma hana.
Sigurður Þ.
Jónsson, þá-
verandi
lög-
maður séra Gunnars, sagði í samtali
við DV í maí að umbjóðandi hans
væri algjörlega saklaus. „Þetta er nú
bara það sem sums staðar hefðu ver-
ið talin afar eðlileg samskipti. Þannig
sé ég þetta eftir að hafa skoðað málið
vandlega,“ sagði Sigurður í maí á síð-
asta ári.
Leitaði á drengi í KFUM og K
Ágúst Magnússon var dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn sex drengjum og losnaði út af
Litla-Hrauni snemma á síðasta ári.
Þegar Ágúst var nýlega laus úr fang-
elsi fékk hann leyfi fangelsismála-
yfirvalda til að flytja til Uppsala í Sví-
þjóð þar sem hann ætlaði að stunda
nám í biblíuskóla. Ágústi var neitað
um skólavist eftir kvartanir foreldra
barna í skólanum um að dæmdur
barnaníðingur myndi sækja skól-
ann.
Ágúst ólst upp í Grýtubakka og var
í Breiðholtsskóla á sínum yngri árum.
Samkvæmt heimildum DV tók hann
að sér vinnu í æskulýðsstarfi kirkj-
unnar, KFUM og K, í Bakkahverfinu
sem unglingur og las sögur fyrir ungt
fólk. Þar lentu einhverjir drengir í því
að Ágúst leitaði á þá. Málið vakti usla
í hverfinu en var aldrei kært til lög-
reglu.
LiLja KaTríN GUNNarSdÓTTir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
alræmdur barnaníðingur Ágúst
tók að sér að lesa sögur fyrir ungt
fólk í KFum og K á sínum yngri
árum og leitaði þar á unga drengi.
Fyrsta fréttin lítil frétt á innsíðu í
dV 15. febrúar 1996 markaði upp-
hafið að umfjöllun um mál nokkurra
kvenna gegn þáverandi biskupi.
Sver af sér sakir Séra
Ólafur Skúlason biskup sagði
ekkert til í ásökununum.
Stigu fram Þrjár konur
sem sakað höfðu biskup
um áreiti og tilraun til
nauðgunar komu fram í
viðtali í helgarblaði dV 2.
mars 1996.
Baðst fyrirgefningar Karl
bað fórnarlömb kynferðislegs
ofbeldis fyrirgefningar við
upphaf prestastefnu íslands
og segir kynbundið ofbeldi
samfélagsmein á íslandi.
Sýknaður Séra gunnar var
sýknaður fyrir skemmstu af
ákærum um kynferðisbrot gegn
tveimur unglingsstúlkum.
„Eins og er alls staðar
í okkar samfélagi eru
kirkjunnar starfsmenn
upp til hópa fólk eins
og annað fólk.“
Fékk uppreisn æru Í júní fékk Pála
fund með kirkjuráði sem harmaði
máttleysi í viðbrögðum kirkjunnar á
sínum tíma. ljósMyndari: sigtryggur ari
jóhannsson
Pála stígur fram
Karl Sigurbjörnsson
biskup bað fórnarlömb
kynferðislegs ofbeldis
fyrirgefningar á
prestastefnu. Í kjölfarið
tók Pála mál sitt gegn
kirkjunni upp aftur.
Ögmundur jónasson segir ríkisstjórnina ekki í hættu:
Icesave fellir ekki ríkisstjórnina
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráð-
herra segir að ríkisstjórninni sé ekki
hætta búin vegna frumvarpsins um
ábyrgð á hluta Icesave-skuldanna.
Mest sé um vert að ná breiðri sam-
stöðu á Alþingi um fyrirvara sem eitt-
hvert hald sé í. Hann hafi sjálfur lagt
sig eftir því að undanförnu.
Ætlunin er að fjárlaganefnd leggi
lokahönd á málið í dag og skili tillög-
um sínum um fyrirvara. Ekki er þó
fullvíst að sú áætlun gangi eftir.
Utanríkisráðuneytið undirbýr við-
ræður við Hollendinga og Breta komi
til ágreinings við þjóðirnar vegna
hugsanlegra fyrirvara sem Alþingi
kann að setja með samþykkt frum-
varpsins Þetta kom fram í máli Árna
Þórs Sigurðssonar, formanns utan-
ríkismálanefndar, á þingfundi í gær.
Eygló Harðardóttir, Framsóknar-
flokki, spurði Árna Þór um það hvort
óskað hefði verið eftir fundum með
breskum og hollenskum yfirvöldum
vegna Icesave-málsins og hvort sam-
skiptaleiðir væru ef til vill lokaðar við
viðsemjendur í málinu.
Árni Þór sagði ekki tímabært af
hálfu framkvæmdavaldsins að óska
eftir viðræðum meðan málið væri
til þinglegrar meðferðar á Alþingi.
„En það er hárrétt að ef Alþingi kýs
að afgreiða málið með fyrirvörum er
mikilvægt að íslensk stjórnvöld ræði
við Hollendinga og Breta um það.
Ég veit að í gangi er vinna í utanrík-
isráðuneytinu ef til þess kemur. Ekki
er eðlilegt að óska eftir samninga-
viðræðum við þá nú af hálfu fram-
kvæmdavaldsins.“
Ögmundur jónasson Vill víðtæka
samstöðu, vald þingsins sem mest og
haldgóða fyrirvara.