Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2009, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2009, Side 25
Sjöfaldi heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, hryggði Formúlu-heiminn mikið í gær þegar hann tilkynnti að hann myndi ekki keppa í Valencia um aðra helgi. Eft- ir slæm höfuðmeiðsl Felipe Massa í Búdapest stóð til að Schumacher myndi leysa Brasilíumanninn af út tímabilið en meiðsl á hálsi hafa nú aftrað Schumacher frá end- urkomu. Meistarinn sjöfaldi slasað- ist við Mótorhjólakappakst- ur á síðasta ári en hann féll þá af fák sínum í keppni í Þýskalandi. Hann hefur ver- ið að dunda sér aðeins við mótor- hjólin eftir að ferlinum í Formúlunni lauk. Eins manns dauði er þó annars brauð og fær nú tilraunaökumað- ur Ferrari, Luka Badoer, tækifærið. Badoer, sem er 38 ára gamall, ók í Formúlunni frá 1993-1999 en hefur verið á bak við tjöldin hjá Ferrari síð- an. Hann er fyrrverandi heimsmeist- ari í Formúlu 3000 en ók 48 sinnum í Formúlu eitt á sínum ferli. Vilja Ferrari-menn þannig launa Badoer alla vinnuna sem hann hefur lagt af mörkum við að prufukeyra Ferrari- bílana undanfarin ár. Felipe Massa hefur sjálfur sagst vonast til að geta keyrt aftur á þessu tímabili en læknar hafa ráðlagt hon- um að gera svo ekki. Nú þegar heims- meistaratitill bílasmiða er löngu úr augsýn sætta Ferrari-menn sig lík- lega við að Badoer aki út tímabilið. tomas@dv.is Luka Badoer fær tækifæri hjá Ferrari: Tíu ár síðan síðasT Ronaldo með flensu Dýrasti knattspyrnumaður í heimi, Cristiano Ronaldo, verður ekki með portúgalska landsliðinu sem mætir Liechtenstein í æfingaleik í landsleikjahléinu í vikunni. Ronaldo fékk flensuna en sum blöð á Spáni vilja halda því fram að það sé hin alræmda svínaflensa. Ekkert kom fram nákvæmlega í fréttatilkynningu frá Real Madrid í gær, ekki nema það að hann lægi heima við og væri undir læknishendi. Carlos Queiroz, landsliðsþjálfari Portúgals, kallaði á vængmanninn Eliseu í hópinn í staðinn en hann leikur með Lazio á Ítalíu. Manchester City ætlar sér stóra hluti í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili en liðið hefur leik á laugar- daginn gegn Stóra Sam og strákun- um hans í Blackburn Rovers. Fyrir utan endanleg félagaskipti Cristian- os Ronaldo til Real Madrid hefur Manchester City nær átt sviðsljós- ið í bresku pressunni og það eðli- lega með kaupum á mönnum eins og Emmanuel Adebayor, Kolo Toure, Roque Santa Cruz, Gareth Barry og Argentínumanninum Carlos Tevez. Tevez-kaupin hafa fengið mikla umfjöllun hjá sparkspekingum í öll- um miðlum á Englandi. Nokkrum finnast þau góð og segja baráttugleði og eljusemi Tevez nákvæmlega það sem City-liðið þarfnast. Mjög marg- ir sjá þó einfaldlega ekki hvað City sé að fá fyrir þessar 25 milljónir punda sem bláliðar Manchester-borgar eyddu í hann þótt það séu auðvitað vasapeningar fyrir ríkisbubbana þar á bæ. „Hvað er ég að fá fyrir peningana?“ Nú síðast var það fyrrverandi Arsen- al- og Celtic-hetjan Charlie Nicholas sem afbakaði þessi kaup City-manna í pallborðsumræðum á Sky-sjón- varpsstöðinni. Nicholas lék á sínum tíma 450 leiki með Celtic og Arsen- al meðal annars, skoraði 150 mörk á ferlinum og var eitt sinn kjörinn besti knattspyrnumaður Skotlands. Á meðan gamla kempan Paul Mer- son sagði Glen Johnson ekki pening- anna virði fyrir Liverpool og annar spekingur mikill, Chris Kamara, vildi meina að Stewart Downing væri eng- in reifarakaup fyrir Aston Villa var Nicholas harður á því að Tevez væri minnst auranna virði. „Ég sé ekki hvað Tevez á að gera. Ekki misskilja mig, hann er góður leikmaður, en fyrir 25 milljónir, sé ekki ekki öll mörkin sem hann á að skila,“ sagði Nicholas en Tevez var ekki iðinn við kolann í deildinni á árunum sínum tveimur hjá Manchester United. „Hann er ekki heldur neitt sérstak- ur í því að skapa mörk. Hann er auðvitað mjög eljusamur, hæfileikaríkur og með frábært úthald en Tevez þarf að vera í góðu og jöfnu liði til þess að geta þrifist,“ bætti hann við og sagðist algjörlega skilja ákvörðun sir Alex Ferguson að láta hann fara. „Ég get skilið að stuðninsmenn elska hann en fyrir 25 milljónir punda hefur sir Alex einfaldlega hugsað: „Hvað er ég að fá fyrir peningana?“ og ég spyr einfaldlega sömu spurn- ingar í þeim efnum,“ sagði Charlie Nicholas. tomas@dv.is Sparkspekingar á Englandi keppast nú við að hita upp fyrir tíma- bilið þar í landi en besta deild heims, enska úrvalsdeildin, hefst á laugardaginn. Manchester City er mikið á milli tannanna á mönnum og kaupin þeirra. 25 milljóna punda kaup City á Carlos Tevez eru margir sammála um að muni ekki borga sig. Tevez ekki auranna virði 25 milljónda punda maður Mark Hughes vonast til að Tevez verði peninganna virði. sir alex ferguson Vildi ekki kaupa Tevez svo dýru verði. mótorhjóla- kappakstur Fór illa með Schu- macher. 2 dálkar = 9,9 *10          Fyrir bústaðinn og heimilið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.