Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2009, Qupperneq 16
Miðvikudagur 21. október 200916 HeiMili og rúM
7. Veggfóður er hægt að nota til
að skreyta fleira en veggi, það er t.d.
hægt að veggfóðra hillur, skáphurð-
ir, kommóður eða hvaðeina (svona
næstum því) sem ykkur dettur í hug!
Þarna er búið að veggfóðra skáp-
hurðir hverja með sínu veggfóðrinu
sem kemur vel út því þau tóna vel
saman.
8. Viltu vídd í vegginn? Þá er ekki
svo mikið mál að taka „bút“ úr
veggnum og mála hann í öðrum
lit. Ef það er gert þar sem rúmið
stendur virkar þetta nánast eins og
risavaxinn rúmgafl. Önnur hugmynd
er að taka aðeins dýpri en mun
minni „bút“og búa til hillu sem
fellur inn í vegginn. Þetta hentar
sérstaklega vel ef herbergið er undir
súð.
9. Til að nýta gólfpláss sem best
í litlum barnaherbergjum er góð
lausn að vera með hátt rúm svipað
og þetta á myndinni því þá nýtist
allt gólfplássið sem í boði er. Ef það
er nógu hátt er hægt að vera með
skrifborð og stól undir og búa til
kósí „skrifstofustemningu“ en þá er
nauðsynlegt að vera með góðan
borðlampa.
10. Barnaherbergi ættu að
vera örvandi en um leið róandi
fyrir krakkakrílin; ekki viljum við
að þau skrúfist upp þegar þau fara
inn í herbergi eftir langan dag í
leikskólanum eða skólanum. Litir
eiga heima í barnaherbergjum en
ekki gera þau of litrík, kúnstin er
að velja rétta liti og litatóna saman,
ekki mála heilu veggina neonskæra
eða í mjög dökkum litum. Eldrauður,
kóngablár eða kolsvartur litur á til
dæmis ekki heima í herbergjum
krílanna. Veljið frekar milda liti.
11. Ekki stútfylla herbergið af leik-
föngum; „less is more“ þegar kemur
að herbergjum barnanna. Ef það
er að drukkna í dóti verða börnin
bara rugluð í ríminu, finna ekkert
og nenna síður að taka til. Hjá yngri
börnum er ágætt að skipta dótinu
í tvo eða þrjá dótakassa, (eftir því
hvað þau eiga mikið dót), og hafa
bara einn í herberginu í einu, skipta
svo um dótakassa á mánaðarfresti.
Þá fá þau síður leið á leikföngunum.
12. Geymið dótið í dótakössum
sem hægt er að loka því þá er hægt
að smella sessu ofan á lokið og búa
til sæti í leiðinni; sparar pláss í litlum
barnaherbergjum.
13. Athugið að það sé góð lýsing í
herbergjum barnanna og þá er gott
að vera með dimmer á ljósunum ef
þau vilja hafa smáljós á næturnar,
því mörg kríli eru hrædd við drauga!
barnaherbergið
20 ráð fyrir
Í Boði HúsA oG HÍBýLA
Þegar líður á meðgönguna verður
alltaf erfiðara og erfiðara að finna
réttu stöðuna til að sofa í. Marg-
ar óléttar konur verða andvaka ófá-
ar næturnar, sérstaklega á seinasta
þriðjungi meðgöngunnar, og stund-
um virðist sem það sé ekki til sú
svefnstelling í heiminum sem geti
losað konurnar við pirring, verki og
þreytu.
Ýmislegt er hægt að gera til að
gera næturnar þægilegri og þurfa
margar konur að endurskoða svefn-
stellingar sínar þar sem gömlu stell-
ingarnar valda bara verkjum og van-
líðan.
Sofðu á hliðinni
Besta svefnstellingin fyrir óléttar
konur er að sofa á vinstri hliðinni
með hnén örlítið beygð. Líka er gott
að sofa á hægri hliðinni og er nauð-
synlegt að hafa kodda á milli fót-
leggjanna. Í þessari stellingu setur
ófætt barn þitt ekki þrýsting á líffæri
og æðar. Blóðflæði er þar með betra
og næringarefni berast betur til fylgj-
unnar. Þessi stelling er einnig talin
draga úr vökvasöfnun og þar af leið-
andi bjúgmyndun. Þá bætir stelling-
in meltinguna og dregur úr líkum á
gyllinæð. Á fyrri hluta meðgöngunn-
ar reynist þessi stelling góð fyrir kon-
ur sem eru mjög aumar í brjóstum
og sífellt óglatt.
notaðu makann
Hliðarstellingin
er líka góð ef þú
ert þjáð af bak-
verkjum og þá er
gott að setja kodda
líka undir kviðinn.
Ef þú færð brjóst-
sviða á næturnar er
gott að hafa nóg af púðum
við efri part líkamans til að
liggja á. Heppilegt er að
fjárfesta í brjóstagjafapúð-
um strax á meðgöngunni
þar sem það er mjög gott
að sofa með þá. Svo nýt-
ast þeir líka rækilega þegar barnið
er fætt. Ef makinn þinn er ósáttur við
allt þetta púðaflóð geturðu reynt að
nýta þér hann með því til dæmis að
hvíla annan fótlegginn uppi á hon-
um í staðinn fyrir að hafa púðann á
milli leggjanna.
Seint á meðgöngunni
finna margar kon-
ur fyrir því að þær
séu andstuttar og
er þessi stelling
mjög góð til að
auðvelda svefn ef
svo er. Fyrir þær konur
sem ekki eru vanar að
liggja á hliðinni er samt
mælt með því að þær
prófi það því það virkar.
Það er samt sem áður
ekki vænlegt að liggja
í sömu stellingunni alla nóttina og
gott að hreyfa sig aðeins úr stað.
Ekki Sofa á bakinu
Flestir sérfræðingar eru sammála
um að óléttar konur eigi ekki að
liggja á bakinu. Sú stelling getur
valdið bakverkjum, erfiðleikum með
andardrátt, meltingarörðugleikum,
gyllinæð, lágum blóðþrýstingi og
getur minnkað blóðflæðið til hjart-
ans og barnsins. Konur ættu samt
ekki að óttast það að snúa sér á bak-
ið á næturnar ef þeim líður illa en
þá er gott að velta sér á aðra hvora
hliðina áður en þær festa aftur svefn.
Þá er ekki ráðlagt að vanfærar kon-
ur liggi á maganum á seinni hluta
meðgöngunnar enda reynist það
mjög óþægilegt eftir því sem kúlan
stækkar.
Allar óléttar konur sem glíma
við svefnerfiðleika vegna grindar-
verkja, gigtar, bakverkja og annarar
vanlíðunar ættu að prófa snúnings-
lökin svokölluðu. Þau hjálpa kon-
um að sofa alla nóttina og hindra að
þær vakni títt á næturnar til að snúa
sér. Fást þau til dæmis í Móðurást og
kosta 3.300 krónur. liljakatrin@dv.is
Það eru varla til heiti yfir alla þá verki sem ólétt
kona getur upplifað á meðgöngunni. Þessir
verkir gera mörgum konum erfitt um vik að
festa svefn og þjást margar af svefnleysi og
vanlíðan vegna þessa. Það er samt margt hægt
að gera til að auðvelda svefninn, lina þjáning-
arnar og vakna endurnærð á morgnana.
hin fullkomna
Það er samt sem áður
ekki vænlegt að liggja í
sömu stellingunni alla
nóttina og gott að hreyfa
sig aðeins úr stað.
stelling
Undrastelling Í Bandaríkjunum
kallast hliðarstellingin sos (sleep on
side) og er það nafn með rentu þar
sem hún bjargar mörgum konum frá
svefnleysi og vanlíðan. Mynd Photos.coM
nóg af púðum Í Fifa er
úrval af brjóstagjafapúð-
um og er verð á þeim
frá 7.990 krónum upp í
15.900 krónur. Mynd FiFa.is
„Gengið hefur nánast tvöfaldast og
því væri eðlilegt að vöruverð myndi
hækka í samanburði við það,“ seg-
ir Eyjólfur Pálsson, forstjóri hús-
gagnaverslunarinnar Epal. „Það
hefur hins vegar ekki gert það hjá
okkur. Við erum svo bráðheppin
að hafa í 34 ár átt í farsælum við-
skiptum við sömu birgjana sem
hafa flestallir komið vel á móts við
okkur meðan ástandið er svona,“
segir Eyjólfur en Epal hefur verið
með sömu kennitöluna síðan fyrir-
tækið var stofnað árið 1975.
„Birgjarnir hafa margir hverjir
gefið okkur vænan afslátt á meðan
ástandið er svona slæmt og við sla-
kað á álagningu á sama tíma,“ en
Eyjólfur segir að með því hafi versl-
uninni tekist að halda hækkunum
í lágmarki hjá sér. Íslendingar hafa
jafnan verið kallaðir heimsmeistar-
ar í kennitöluflakki og það er sjald-
gæft að fyrirtæki hérlendis sé með
sömu kennitölu eftir öll þessi ár.
„Við seljum því alveg þokkalega,“
heldur Eyjólfur áfram og bætir við,
„Við erum bara bjartsýn.“
Epal hefur alltaf verið framar-
lega hvað íslenska hönnun varðar
og segir Eyjólfur það einnig skila
sér í dag. „Það er mikil vakning í
sambandi við alla íslenska hönn-
un í dag sem er auðvitað bara frá-
bært.“
Epal nýtur góðs af heiðarlegum viðskiptum:
heilindi skila sér
Eyjólfur Pálsson Mætir skilningi hjá
erlendum birgjum eftir áralöng viðskipti.